Örn Davíđsson náđi ţeim frábćra árangri ađ sigra í hástökki ađeins 16 ára ađ aldri en hann sigrađi einnig á Meistaramótinu innanhúss í vetur. Örn stökk 1.93cm sem er bćting um 6cm og ađeins 5cm frá gildandi Íslandsmeti í sveinaflokki. Ţessi árangur er enn glćsilegri í ljósi ţess ađ Örn er nýkominn heim frá Svíţjóđ ţar sem hann var án ćfinga í 7 vikur. Örn náđi einnig stórgóđum árangri í spjótkasti er hann kastađi karlaspjótinu 50,88m sem er HSK met í sveinaflokki en sjálfur átti hann eldra metiđ 49,06m. Ágústa Tryggvadóttir var iđinn viđ kolann ađ venju. Hún náđi öđru sćti í ţrístökki međ stökki upp á 11.20m og 100m grindahlaup hljóp hún á tímanum 15,77 sem skilađi henni bronsverđlaunum. Ágústa stökk 1.60m í hástökki og hafnađi í 4.sćti, sama sćti og hún fékk fyrir ađ kasta kúlunni 10.99m. Fjóla Signý Hannesdóttir sýndi mikiđ keppnisskap er hún bćtti sig í ţrístökki í mótvindi, stökk 10,61m og hafnađi í 4.sćti, hún hljóp til úrslita í 100m grind á tímanum 16,55 og hafnađi í 5.sćti og ađ lokum hljóp hún á besta tíma sínum í 100m hlaupi, 13,89 en međvindur var örlítiđ yfir leyfilegum mörkum. Tinna Jóhönnudóttir náđi 6.sćti í kringlukasti er hún ţeytti henni 28,20m og hún setti persónulegt met í kúluvarpi er hún kastađi henni 10,17m. Edda Ţorvaldsdóttir hljóp á besta tíma sínum í 100m hlaupi, 13,59s en međvindur var örlítiđ yfir leyfilegum mörkum og Ţórhildur Helga Guđjónsdóttir, sem er ađeins 14 ára, hljóp einnig á persónulegu meti í 100m hlaupi, 13,68 og stórbćtti sinn fyrri árangur. Frábćr árangur hjá ungu liđi Frjálsíţróttadeildar Selfoss.