Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss, eigandi og framkvæmdaraðili Brúarhlaups Selfoss, og Landsbankinn, undirrituðu nýverið samstarfssamning í tengslum við Brúarhlaup Selfoss. Í samstarfinu felst m.a. að Landsbankinn verður aðal styrktar- og stuðningsaðili hlaupsins. Að sögn Helga S. Haraldssonar, formanns frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss, skiptir þessi samningur miklu máli fyrir Brúarhlaup Selfoss og framkvæmd þess og styrkir frjálsíþróttadeildina við undirbúning og framkvæmd hlaupsins. Landsbankinn hefur verið stuðningsaðili deildarinnar vegna framkvæmdar á Brúarhlaupinu síðastliðin fjögur ár og skiptir deildina miklu máli varðandi undirbúning og framkvæmd hlaupsins, enda hefur Landsbankinn útvegað aðstöðu við skráningu, upphitun og fleira á hlaupdag auk þess sem margir starfsmenn Landsbankans starfa við hlaupið.
Á myndinni undirrita þau Helgi S. Haraldsson, formaður frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss, og Helga Guðmundsdóttir, frá Landsbankanum á Selfossi, samninginn.



