Beint á leiđarkerfi vefsins

Frálsíţróttir

Frálsíţróttir - RSS

28.12.2010 | Nýjustu fréttir

Uppskeruhátíđ ÍTÁ - Íţróttakarl og kona Árborgar 2010

Uppskeruhátíð íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar, ÍTÁ, verður haldin í kvöld þriðjudaginn 28. desember kl.20:00 við hátíðlega athöfn í hátíðarsal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hátíðin er eins og nafnið ber til kynna uppgjör íþróttafólks í Árborg á árinu 2010 en þar verður afreksíþróttafólk ársins heiðrað......

Afhentir verða styrkir úr Afreks- og styrktarsjóði Árborgar og íþróttafélaganna, þ.e. Umf. Selfoss, Íþf. Suðra, Umf. Stokkseyrar og Íþf. FSu. Hvatningaverðlaun verða einnig veitt og tilkynnt kjör íþróttakonu og íþróttakarls Árborgar 2010. Sveitarfélagið Árborg afhentir einnig sérstaka styrki fyrir einstaklinga og/eða lið sem hafa náð afburðaárangri á árinu 2010.

Selma Ágústsdóttir munu syngja og í lok hátíðarinnar verður boðið upp á léttar veitingar. Íbúar frá öllum byggðarkjörnum Árborgar eru hvattir til að fjölmenna og heiðra þann fjölmenna hóp afreksíþróttafólks sem kemur frá Sveitarfélaginu Árborg.

F.h. ÍTÁ,
Bragi Bjarnason
Íþrótta- og tómstundafulltrúi


Á nćstunni

2.6.2012 | Frjálsíţróttir
2.6.2012 | Frjálsíţróttir
30.6.2012 | Frjálsíţróttir
14.7.2012 | Frjálsíţróttir
28.7.2012 | Frjálsíţróttir
11.8.2012 | Frjálsíţróttir


Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta