Hið árlega Grýlupottahlaup UMF. Selfoss, hófst laugardaginn 14.apríl. Grýlupottahlaupið hefur verið haldið samfleytt í 38 ár. Hlaupið fer þannig fram að hlaupnir eru 800 metrar á sex laugardagsmorgnum síðla vetrar. Eftir sex hlaup eru þeir verðlaunaðir sem hlaupið hafa fjögur hlaup eða fleiri og ná bestum tímum. Hlaupið heldur því áfram næstu fimm laugardagsmorgna. Hlaupið er frá Tíbrá, um Engjaveginn og kringum Grýlupottana á tjaldsvæðinu við Gesthús. Í þessum hlaupum hafa margir hlaupið sín fyrstu skref í átt til afreksmanna í íþróttum eða ástundun almenningshlaupa og skokks, sér til heilsubótar.
1. Grýlupottahlaup - laugardaginn 14. apríl
2. Grýlupottahlaup - laugardaginn 21. apríl
3. Grýlupottahlaup - laugardaginn 28. apríl
4. Grýlupottahlaup - laugardaginn 5. maí
5. Grýlupottahlaup - laugardaginn 12. maí
6. Grýlupottahlaup - laugardaginn 19. maí




