Meistaramót Íslands 15-22 ára var haldiđ ađ Laugum í Ţingeyjarsýslu helgina 25.-26. ágúst s.l. Frjálsíţróttadeild Umf. Selfoss sendi vaska sveit til leiks og stóđu ţau sig öll međ mikilli prýđi. Afrakstur helgarinnar var 6 gullverđlaun, 2 silfurverđlaun, 4 bronsverđlaun og 1 HSK met.
Örn Davíđsson náđi ţeim frćkilega árangri ađ verđa fjórfaldur Íslandsmeistari í drengjaflokki ţrátt fyrir ađ vera á yngra ári í flokknum. Örn sigrađi glćsilega í spjótkasti međ 50.64m, í kúluvarpi međ 14.83m löngu kasti, kringlunni kastađi hann einnig lengst allra eđa 49.38m og ađ lokum stökk hann 1.78m í hástökki og fjórđi Meistaratitillinn var í höfn. Ađ auki vann Örn til bronsverđlauna í sleggjukasti er hann kastađi sleggjunni 36.68m og bćtti sinn fyrri árangur um 2.15m og í ţrístökki er hann stökk 11.69m. Frábćr árangur hjá ţessum efnilega pilti.
Agnes Erlingsdóttir varđ Íslandsmeistari í 300m grindahlaupi stúlkna ţegar hún hljóp keppnislaust í veikari riđli hlaupsins á 48.31sek og bćtti sig um rúmar 2 sekúndur og Fjóla Signý Hannesdóttir varđ Íslandsmeistari ţegar hún sigrađi í 100m grindahlaupi í stúlknaflokki á tímanum 16.91s í mótvindi.
Eyrún Halla Haraldsdóttir bćtti sinn besta árangur í kringlukasti um 3.66m ţegar hún kastađi kringlunni 29.97m og vann til silfurverđlauna í stúlknaflokki. Jóhanna Bríet Helgadóttir var í feiknarstuđi í sleggjukasti, hún kastađi sleggjunni 28,80m og vann til bronsverđlauna í meyjarflokki og bćtti um leiđ HSK met Önnu Bjarkar Ómarsdóttur Umf .Selfoss frá árinu 2004 um 1.64m. Stúlknasveit Umf. Selfoss sem skipuđ var ţeim Ţórhildi Helgu Guđjónsdóttur, Sólveigu Söru Samúelsdóttur, Fjólu Signýju Hannesdóttiu og Andreu Ýr Bragadóttur vann til silfurverđlauna í 4x100m bođhlaupi og Sólveig Sara Samúelsdóttir vann til bronsverđlauna í langstökki ţegar hún stökk 4.79m í stúlknaflokki.
Áslaug Ýr Bragadóttir bćtti sinn besta árangur í kúluvarpi um 48cm ţegar hún kastađi kúlunni 9.46m og hún bćtti sig um heila 5 metra ţegar hún kastađi sleggjunni 24.44m í meyjaflokki. Ađ lokum bćtti Ţórhildur Helga Guđjónsdóttir sig í langstökki og ţrístökki , hún stökk 4.71m í langstökki og 9.47m í ţrístökki.
Frjálsíţróttadeild Umf .Selfoss varđ í öđru sćti stigakeppninnar í drengjaflokki og í ţriđja sćti í stúlknaflokki og hafnađi liđiđ í 7.sćti í heildarstigakeppni mótsins. Glćsilegur árangur hjá krökkunum á síđasta stórmóti sumarsins.



