Í gær sóttu okkar menn í Selfoss-1 í 3. flokki Stjörnumenn heim í Garðabæinn. Leikurinn var hraður og mjög fjörugur og óhætt að segja að hiti hafi verið í húsinu og þá aðallega heimamönnum sem sættu sig ekki við mótspyrnu gesta sinna. Leikurinn endaði 38-34 fyrir Stjörnuna en okkar menn leiddu 21-18 í hálfleik.
A-lið 2 fl. virðist vera að taka við sér þessa dagana. Þeir unnu sinn 3 útileik í röð á laugardaginn þegar þeir unnu FH 21-23 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 11-11. Liðið er nú tímabundið í efsta sæti deildarinnar en það mun breytast þar sem Haukar og Akureyri eiga inni leiki á Selfoss
Strákarnir í Selfoss-2 í 2. flokki þurftu að játa sig sigraða gegn Fram í Safamýri á laugardaginn síðastliðinn. 36-34 endaði leikurinn eftir að staðan var 19-16 í hálfleik fyrir heimamenn.
Í gærkvöldi unnu Selfyssingar Fjölni 34-17 í 1. deildinni og eru því enn efstir í deildinni stigi á undan Aftureldingu sem vann Víking í gær. Staðan í hálfleik var 16-8 fyrir Selfoss.
2. fl. A-lið eða Selfoss 1 eins og þeir heita hjá HSÍ unnu sinn annan útileik í röð í gærkvöldi gegn Víkingi 22-29, en fyrir leikinn voru Víkingar í efsta sæti deildarinnar. Liðið á einn útileik eftir á laugardaginn og vonandi tekst þeim að landa sigri þar líka.
Selfyssingar í 91-liðinu svokallað unnu ÍBV í gær örugglega 31-22 eftir að hafa leitt í hálfleik 17-10. Sigurinn var aldrei í hættu en frekar mikið vantaði upp á leikgleði drengjanna svo ekki sé fastara að orði kveðið.
Loksins kom útisigur í deildinni hjá 2 fl. A liði síðasta laugardag. Sigur vannst á HK 23-37 en staðan í hálfleik var 12-20. Ragnar og Eyþór voru ekki með og Einar spilaði mjög lítið. Aðrir leikmenn stóðu sig vel. Liðið náði upp í 4-5 sæti með þessum sigri og eygir nú möguleika á úrslitakeppninni ef þeir ná að fylgja þessu eftir.