Um helgina fóru strákarnir í handboltaakademíunni á Selfossi í skemmtilega óvissuferð. Eins og sannri óvissuferð sæmir vissu strákarnir ekkert hvað til stóð þegar lagt var af stað. Þeir héldu að það ætti að vera vídeóæfing í rútunni. Farið var frá Selfossi niður á Eyrarbakka og til baka og síðan Gaulverjabæjarhringurinn sem endaði svo á jólahlaðborði á Rauða húsinu.
Í gærkvöldi var skrifað undir samninga við styrktaraðila handbolta-akademíunnar á Selfossi. BT-músin var að sjálfsögðu mætt enda nýtt lukkudýr deildarinnar. Hvatning músarinnar skilaði sér vel því strákarnir í unglingaflokki Selfoss 90 lögðu ÍR-inga í hörku leik 30-28.



