Beint á leiðarkerfi vefsins

Handboltaakademía

Handboltaakademía - RSS

30.12.2007 | Handbolti

Landsliðið í öðru sæti á Hela Cup

Íslenska u-18 ára landslið karla tapaði í gær fyrir Frökkum 40-36 í úrslitum á Hela Cup í Þýsklandi og urðu því í 2. sæti á þessu sterka móti. Er það sannarlega stórglæsilegur árangur hjá strákunum. Staðan í gær í hálfleik var 20-15 fyrir liði Frakklands.

29.12.2007 | Handbolti

U18 landsliðið leikur til úrslita á Hela Cup

HSI_logoFyrr í dag vann landslið Íslands, skipað leikmönnum fæddum 1990 og síðar (U18), Þjóðverja með eins marks mun, 34-33 eftir að þeir þýsku hafi haft yfir í hálfleik 20-15. Frábært hjá strákunum að vera komnir í úrslitaleikinn sem verður við Frakka í kvöld.

28.12.2007 | Handbolti

Selfoss A HSK-meistarar í handbolta

HSK_merkiSelfoss A varð í gærkvöldi HSK-meistari í handbolta þegar liðið lagið Árborg 36-29. Liðið vann alla þrjá leiki sína og hlaut 6 stig. Selfoss B, sem sigraði Dímon 40-22, varð í öðru sæti með 4 stig. Árborg og Dímon eiga eftir að leika um það hvort liðið lendir í 3. sæti. Með þessu móti var HSK-mótum í handbolta ýtt úr vör eftir að hafa legið niðri um langt árabil.

22.12.2007 | Handbolti

Sefoss A vann Dímon 40-15 í HSK-mótinu

hand-boltamynd2Í gærkvöldi áttust við í Vallaskóla Selfoss A og Dímon í HSK-mótinu í handbolta. Lið Selfoss var skipað leikmönnum úr 2. og 3. flokki. Selfoss A vann auðveldan sigur 40-15 og er nú efst í mótinu með 4 stig eftir tvo leiki. Liðið á eftir að spila við Árborg og fer sá leikur fram fimmtudaginn 27. des kl. 20:30. Á eftir þeim leik eða kl. 22:00 eigast við Selfoss B og Dímon.

20.12.2007 | Handboltaakademía

HSK mótið í handbolta á fullu

hand-boltamynd2Nú er tveimur leikjum lokið í HSk mótinu í handbolta. Fyrst spiluðu Selfoss A og Selfoss B og fór sá leikur 39-29 fyrir A-liðinu. Í hinum leiknum vann Selfoss B lið Árborgar 50-37 en þess má geta að þetta er fyrsti leikur Árborgar í handbolta svo vitað sé.

19.12.2007 | Handboltaakademía

Handboltinn á fullu öll jólin

handboltakallKrakkarnir í handboltanum æfa á fullu öll jólin. Aðeins verður frí frá Þorláksmessu og fram yfir annan í jólum. Einnig verður frí á nýársdag. Annars verða æfingar á venjulegum tímum milli jóla og nýárs. Meðal annars jólamót innan hvers flokks þar sem skipt verður í jöfn lið og spilað innbyrðis.  

18.12.2007 | Handboltaakademía

Tap gegn Fram

Á laugardaginn sl. sigraði lið Framara í 3.flokki okkar menn í 91-liðinu. Selfyssingar gerðu sig seka um mörg klaufaleg mistök í leiknum og hefði í raun átt að vinna leikinn. Lokatölur urðu 25-29 Fram í vil eftir að staðan hafði verið 15-13 í hálfleik.

17.12.2007 | Handboltaakademía

Unglingalandsliðsmenn á fullu

u90 menn2Þeir Ragnar Jóhannsson, Einar Héðinsson Guðmundur Árni Ólafsson og Bjarki Már Elísson æfa nú á fullum krafti með unglingalandsliðinu, en liðið fer til Þýskalands milli jóla og nýárs og tekur þátt í átta liða móti. Ísland er í riðli með Frökkum, Pólverjum og Þjóðverjum og tvö efstu liðin fara síðan áfram í undanúrslit. Það verðu því engin afslöppun hjá stráknum um jólin og jólaundirbúningur snýst um æfingar og aftur æfingar. Unglingalandsliðið leikur æfingaleik við Selfoss kl 19 á fimmtudaginn.

14.12.2007 | Handbolti

Tap fyrir FH á heimavelli

hsi_logoÍ gærkvöldi tapaði meistaraflokkur á heimavelli fyrir efsta liði deildarinnar 30-34. Staðan í hálfleik var 12-17 fyrir FH. FH liðið var einfaldlega betra allan leikinn og of stór biti fyrir okkar menn að þessu sinni.

14.12.2007 | Handbolti

Mjólkin var ódýr fyrir FH-inga

AKFH vann Selfoss í toppslag 1. deildar 30-34 í leik sem fram fór á Selfossi í kvöld. Leikurinn byrjaði jafnt og var jafn þangað til í stöðunni 3-3. Ragnar Jóhannsson skoraði fyrsta mark leiksins og var það í eina skipti sem Selfyssingar voru yfir í leiknum. FH-ingar spiluðu góða 3-2-1 vörn með Ólaf Guðmundsson í fararbroddi sem var atkvæðamikill í hraðaupphlaupum FH-inga.

13.12.2007 | Handboltaakademía

Það verður stemming í Mjólkurbænum í kvöld

bastiSebastian Alexandersson, þjálfari Selfossar, er hér í spjalli varðandi leik þeirra gegn FH sem fram fer í dag í 1. deild karla. kl. 19:30 á Selfossi.
Nú færðu topplið FH í heimsókn í kvöld, verður þetta erfiður róður fyrir ykkur?
FH er eina taplausa liðið í deildinni og hefur að mínu mati verið að spila best það sem af er vetrar í okkar deild. Þeir virðast alls ekki líklegir til þess að misstíga sig á næstunni. Ég reikna þess vegna með því að þetta verði einn af okkar erfiðustu leikjunum í vetur en með góðum stuðningi áhorfenda er allt hægt. Það er alls ekkert auðvelt að sækja sigur á Selfossi og FH mun þurfa að hafa verulega fyrir því ef það á að takast hjá þeim.

10.12.2007 | Handboltaakademía

91-liðið tapaði heima gegn Haukum

hand-boltamynd2Á laugardag komu Haukar í heimsókn til að etja kappi við yngra árs lið okkar í 3. flokki karla. Haukar hafa á að skipa nokkuð sterku liði og hafa innaborðs fjölmarga landsliðsmenn. Leikurinn byrjaði illa fyrir Selfyssinga og náðu gestirnir snemma forustunni. Í hálfleik stóðu leikar 11-16 Haukum í vil. Í seinni hálfleik var mun beittara Selfosslið mætt til leiks og náðu þeir að minnka muninn í þrjú mörk og áttu tækifæri til að minnka í tvö. Haukar setti þá tvö mörk í röð og hélst munurinn í fimm mörkum. Lokatölur 27-32 fyrir Hauka.

8.12.2007 | Handboltaakademía

Meistaraflokkur gerði jafntefli á útivelli

einar hedÍ gærkvöldi fór mfl. í Víkina og spilaði við sterkt lið Víkinga. Leikurinn endaði  32 32 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 16-11 fyrir Víking. Selfoss byrjaði leikinn afar illa og var leikur liðsins bæði hægur og ómarkviss í sókn. Birkir og Baldur voru fjarverandi vegna meiðlsa og nú hafði Arnar bæst við á meiðslalistann þannig að vörnin var ekki að finna sig heldur..

7.12.2007 | Handboltaakademía

Jólahlaðborð handboltaakademíunnar tókst vel

Í gær fimmtudag hélt akademían stórglæsilegt jólahlaðborð í hádeginu í Tíbrá. Stjórnarmönnum handboltans og skólastjórum FSu var einnig boðið. Alls voru um 40 manns í mat og þótti maturinn gómsætur sem og glæsilegur. Lilja Hjelm á allan heiður af undirbúningi og framreiðslu matsins og kunnum við henni miklar þakkir fyrir.

7.12.2007 | Handboltaakademía

Selfoss 90 vann FH2 á heimavelli

Í gærkvöldi vann 90 liðið FH2 37 - 23. Talsverður getumunur var á liðunum í gærkvöldi bjarkien þó ber þess að geta að það vantaði 2 sterka leikmenn í lið FH2. Meira jafnræði var með liðunum í seinni hálfleik eftir að staðan í hálfleik hafði verið 20 - 9.

6.12.2007 | Handboltaakademía

17 krakkar úr Flóahreppi æfa handbolta á Selfossi

magnús og HákonKrakkar úr Flóahreppi eru dugleg að sækja handboltaæfingar á Selfossi, en 17 krakkar úr sveitinni hér í kring æfa nú handbolta á Selfossi sem er mjög hátt hlutfall. Nokkrir krakkar koma ofan úr Grímsnesi, Laugarvatni, af Skeiðunum og einn úr Gnúpverjahreppi sem lætur sér ekki muna um að koma 45 km leið á handboltaæfingar.

6.12.2007 | Handboltaakademía

Þórir Ólafs viðbeinsbrotinn

ThorirÞórir Ólafsson varð fyrir því óláni á æfingu í gær að viðbeinsbrotna á hægri öxl. Þórir var að stökkva inn úr horninu og var hrint með þeim afleiðingum að hann lenti illa á hægri öxlinni og viðbeinið fjór-brotnaði. Hann verður frá keppni fram í mars og þarf hugsanlega að fara í aðgerð.

5.12.2007 | Handboltaakademía

2. flokkur tapaði fyrir Aftureldingu á útivelli

astgeirÍ gærkvöldi tapaði 2. flokkur fyrir Aftureldingu á útivelli. Leikurinn var illa spilaður af okkar mönnum og náðu strákarnir aldrei takti við leikinn. Staðan í hálfleik var 15-10 og endaði svo 32-24 fyrir Aftureldingu.

5.12.2007 | Handboltaakademía

Tveir útileikir hjá Selfoss 90-liði í 3 fl. karla

U90 mennStrákarnir í 90-liðinu hafa ekki spilað heimaleik síðan í fyrstu umferð Íslandsmótsins, en aftur á móti spilað nokkra útileiki. Misfarist hefur að setja inn fréttir af síðustu tveimur útileikjum þeirra og er hér með bætt úr því þannig að hér koma fréttir af báðum leikjunum.

4.12.2007 | Handboltaakademía

Þórir Hergeirs í eldlínunni á HM

thorir hergSelfyssingurinn Þórir Hergeirsson er nú staddur í Frakklandi á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik. Þórir er aðstoðarþjálfari ríkjandi heimsmeistara norðmanna sem nú freista þess að vera titilinn. Þórir var í sviðsljósinu í Aftenposten einu útbreiddasta dagblaði Noregs á dögunum.

2.12.2007 | Handboltaakademía

Besta umgjörð á leikjum hjá Selfoss

áreksturHandknattleiksdeild umf. Selfoss fékk á dögunum verðlaun fyrir bestu umgjörð á leikjum sínum í 1.deild Íslandsmótsins. Það var fréttavefurinn handbolti.is sem stóða að valinu. Selfoss hefur fengið lang flesta áhorfendur á sína leiki og voru til að mynda tæplega 400 áhorfendur á síðasta heimaleik í toppslagnum við ÍR.

2.12.2007 | Handboltaakademía

´97 strákarnir með gull !

6.fl.ba-BStrákarnir í 6.flokki drengja B-liðum unnu sigur í 1.deild íslandsmótsins á dögunum. Liðið er eingöngu skipað leikmönnum á yngra ári eða fæddir 1997. Þessi strákar stóðu sig mjög vel í 7.flokki í fyrra og töpuðu aðeins einum leik allan veturinn. Í vetur hafa þeir haldið sigurgöngunni áfram og sigruðu á Spron-móti KR um daginn en mótið var önnur umferð íslandsmótsins.

30.11.2007 | Handboltaakademía

Fyrsta tap m.fl. á heimavelli á Íslandsmótinu

Í gærkvöldi kom topplið ÍR í heimsókn á Selfoss og gerði sér lítið fyrir og tók bæði stiginhsi_logo með sér heim. Bæði lið spiluðu sterkan varnarleik og var leikurinn jafn allann tímann. Fyrir vikið urðu hver mistök afdrífarík á báða bóga. Frábær stemmning var á leiknum en rúmlega 300 manns horfðu á leikinn.

29.11.2007 | Handbolti

Stelpurnar töpuðu fyrir Haukum

handboltamarkÁ sunnudaginn spilaði 3. flokkur kvenna seinasta leikinn sinn fyrir jólafrí á móti Haukum. Leikurinn fór fram á Ásvöllum og voru stelpurnar fáliðaðar vegna veikinda og annarra ástæðna. Stelpurnar byrjuðu gríðarlega illa og voru greinilega ekki tilbúnar í þennan leik. Hauka-stelpurnar nýttu sér það vel með grimmri vörn og hraðaupphlaupum. Selfoss-stelpurnar voru á hælunum og misstu marga bolta klaufalega í sókninni og spiluðu lélega vörn. Staðan í hálfleik var 21-7 Haukum í vil.

28.11.2007 | Handboltaakademía

Baldur Þór Elíasson úr leik í 3-4 vikur

033Baldur Þór hefur átt við eymsli að stríða í hné undanfarið. Eftir nánari greiningu hefur komið í ljós að hnéskelin rekst í brjósk sem getur skaddast ef hann fær ekki hvíld og meðferð hjá sjúkraþjálfara. Baldur hefur verið einn besti varnarmaður liðsins í vetur og því er þetta óheppilegt. Þetta er annar lykilleikmaðurinn sem verður óleikfær vegna meiðsla á stuttum tíma. Það er ljóst að aðrir leikmenn verða að þjappa sér saman í þeirra fjarveru. 

28.11.2007 | Handboltaakademía

Stórleikur í handboltanum annað kvöld

AKAnnað kvöld (fimmtud. 29. des. kl. 19:30) verður sannkallaður toppslagur í handboltanum. Þá mætast Selfoss og ÍR í uppgjöri toppliða. Selfoss er sem stendur í 4. sæti deildarinnar tveimur stigum á eftir Víkingi sem hefur leikið tveimur leikjum fleira. ÍR er á toppi deildarinnar. Það stefnir allt í að húsið fyllist því mikil stemming er fyrir leiknum. Nú er bara að mæta snemma og láta svo vel í sér heyra. ÁFRAM SELFOSS!

26.11.2007 | Handboltaakademía

Handb.akademían í mat hjá Rauða Húsinu

matarboð_156Rauða Húsið bauð handboltaakademíunni í mat annað árið í röð í lok nóvember. Þetta frábæra boð kemur sér vel á þessum tíma þar sem strákunum veitir ekki af smá upplyftingu og tilbreytingu frá æfingaálaginu sem verið hefur undanfarið. Við þökkum Rauða Húsinu fyrir þetta stórkostlega framtak. Myndir frá kvöldinu...

23.11.2007 | Handboltaakademía

Óvandað orðalag!

Vissulega skiptir það máli hvað sett er á heimasíður úti í bæ þegar um opinberan miðil er að ræða sem fjöldi fólks les. Þess vegna þarf að varast að hafa umfjöllunina persónulega eða skoðanamyndandi út fyrir eðlileg mörk eða a.m.k. er það okkar skoðun. Á heimasíðu Gróttu má sjá eftirfarandi umfjöllun um síðasta leik þeirra gegn Selfoss.

23.11.2007 | Handboltaakademía

Selfoss´91 lagðir af ÍR í svekkjandi leik

hand-boltamynd2Sverrir var í markinu, Andri Már og Árni Steinn í sitthvoru horninu, Örn Þrastarson á miðjunni, Orri og Andri Hrafn voru í skyttunum og Þór á línu. Matthías Örn spilaði einnig mikið ýmist í skyttu eða á miðjunni og Trausti kom nokkuð við sögu í hornunum tveimur. Kamil kom líka inná í hægra hornið.

22.11.2007 | Handboltaakademía

Selfoss að gera góða hluti í 1. deildinni

AKSamkvæmt vefsíðunni www.handbolti.is þá völdu þjálfarar liðanna ásamt síðunni úrvalslið deildarinnar, besta leikmanninn, besta þjálfarann og bestu umgjörð í leikjum í 1. umferð 1. deildar karla. Niðurstaðan er ánægjuleg fyrir okkur Selfyssinga. Við eigum nefnilega...

21.11.2007 | Handboltaakademía

Meistaraflokkur með jafntefli á útivelli á móti Gróttu

Í gærkvöldi spilaði meistaraflokkur á móti Gróttu á útivelli. Leikurinn endaði 22 - 22 og AKstaðan í hálfleik var 10 - 8 fyrir Gróttu. Selfoss átti síðustu sóknina í leiknum og náði skoti á markið á lokasekúndunum sem var varið af markverði Gróttu.

20.11.2007 | Handboltaakademía

Birkir F. Bragason frá vegna meiðsla í 4 vikur

027Birkir handarbrotnaði að því er virðist illa á æfingu í gærkvöldi en það er einmitt leikur í kvöld á móti Gróttu á útvelli. Hann verður í gifsi a.m.k. í 4 vikur. Það er mikil blóðtaka fyrir Selfossliðið að missa Birki í svona langan tíma þar sem hann hefur verið langbesti markmaðurinn í 1. deild karla það sem af er móti. Hann hefur varið 109/4 skot og er með 47% markvörslu í þeim 6 leikjum sem hann hefur spilað.

20.11.2007 | Handboltaakademía

2. flokkur með tvo leiki í síðustu viku

2. flokkur spilaði 2 leiki á 2 dögum í síðustu viku. Báðir leikirnir voru á útivelli. Á hsi_logoföstudeginum spiluðu þeir við Stjörnuna og á laugardeginum við FH. Enn vantar báðar vinstri skytturnar í liðið vegna meiðsla og háir það liðinu talsvert. Bæði Stjarnan og FH eru með 2 af bestu liðum landsins í þessum flokki.

18.11.2007 | Handboltaakademía

91 liðið úr leik í bikarnum

91-liðið í 3. flokki er úr leik í bikarnum eftir hetjulega baráttu gegn ÍR í Austurbergi í gær. ÍR hefur á að skipa allmörgum landsliðsmönnum og því var enginn í vafa um að um alvöru leik væri að ræða. Lokatölur urðu 32-26 fyrir ÍR.

17.11.2007 | Handboltaakademía

Árekstur

áreksturÞessa skemmtilegu mynd tók Hlynur Sigmarsson fyrir í leik Selfoss og Gróttu fyrr í vetur. Myndir er af því þegar Birkir markvörður lendir í harkalegum árekstri við einn leikmann Gróttu. Reyndar er heim myndasyrpa um þetta atvik hér. En það er gaman að skoða viðbrögð þeirra sem horfa á.

17.11.2007 | Handboltaakademía

Myndir úr ferð unglingalandsliðsins

u90 11Þrír leikmenn frá Selfoss fóru á dögunum til Noregs með unglingalandsliði leikmanna undir 18 ára og léku þrjá leiki við Norðmenn. Þeir Guðmundur Árni Ólafsson, Ragnar Jóhannsson og Einar Héðinsson voru fulltrúar okkar ásamt þjálfararnum Einari Guðmundssyni. Meðfylgjandi eru myndir úr ferðinni sem Sverrir Reynisson liðstjóri tók: 

17.11.2007 | Handboltaakademía

Myndir af 7. flokks móti

7.fl.kalrarStrákarnir í 7. flokki drengja tóku þátt í fyrst umferð Íslandsmótsins í handknattleik sem fór frá í Víkinni helgina 9.-10. nóvember síðastliðinn. Strákarnir stóðu sig frábærlega og eru í fremstu röð í þessum árgangi.
Meðfylgjandi eru myndir af mótinu:

16.11.2007 | Handboltaakademía

Stelpurnar úr leik í bikarnum

hand-boltamynd1Á þriðjudaginn var leikur hjá 3. flokki kvenna. Stelpurnar léku gegn FH í íþróttahúsi Vallaskóla. Leikurinn byrjaði illa fyrir Selfoss þar sem FH ingar skoruðu fyrstu 3 mörkin. En svo tóku stelpurnar við sér, fóru að sækja á markið og spila frábæra vörn og náðu stöðunni í 4-4. Áslaug hjálpaði þar mikið þar sem hún stóð sig frábærlega í markinu og staðan í hálfleik var 10-10.

15.11.2007 | Handboltaakademía

2. flokkur kominn í 8 liða úrslit Bikarsins

viggo_1168Strákarnir í 2. flokki eru komnir í 8-liða úrslit í Bikarkeppninni eftir sigur 18-25 sigur á Gróttu á útivelli síðasta mánudagskvöld. Leikurinn vannst á góðri og þolinmóðri vörn ásamt hraðupphlaupum. Fátt var um fína drætti í sókn þar sem þær voru fáar og stuttar þegar þær loks komu. Allir fengu að spila þó nokkuð. Gústi og Sjóli voru markahæstir.

13.11.2007 | Handboltaakademía

Selfoss í 3.sæti

raggi baldurÞegar öll liðin í fyrstu deild íslandsmótsins í handknattleik hafa leikið við hvert annað, eru Selfyssingar í þriðja sæti af sjö liðum. Leikin verður fjórföld umferð samtals 24 leikir og er því einn fjórði hluti mótsins að baki og árangur liðsins eins og spáð var. En hins vegar er var liðið óheppið að vinna ekki ÍR á útivelli, en ÍR-ingar eru í 2.sæti. Staðan í deildinni er eftirfarandi :

12.11.2007 | Handboltaakademía

Bjarki og Siggi Már í landsliðshópinn

bjarkiFimm Selfyssingar eru í 26 manna landsliðshópi leikmanna fæddir 1990 og síðar. Þeir Ragnar Jóhannsson, Guðmundur Árni Ólafsson og Einar Héðinsson voru í 16 manna hópnum í síðasta mánuði. Nú bætast þeir Bjarki Már Elísson (mynd) og Sigurður Már Guðmundsson við hópinn sem æfir um n.k. helgi og undirbýr sig fyrir mót í Þýskalandi milli jóla og nýárs. 

12.11.2007 | Handboltaakademía

M.fl. vinnur Þrótt á útivelli og eru í 3 sæti 1.deildar

Í gærdag kl. 14:00 vann Selfoss Þrótt 19 - 34 eftir að staðan í hálfleik var 13 - 20 fyrir AKokkar stráka. Selfossliðið kom mjög vel stemmt til leiks og menn ákveðnir í því að vinna þetta verkefni 100% samkvæmt því leikskipulagi sem lagt var upp með.

12.11.2007 | Handboltaakademía

2 flokkur tapaði fyrir Haukum á heimavelli

Síðastliðinn föstudag töpuðu strákarnir fyrir Haukum en það eru að mestu sömu strákarsjóli og spila í Haukum2 í 1. deild karla og því er liðið sterkt á 2 flokks mælikvarða. Jafnt var í hálfleik 11 - 11 og leikurinn var í járnum þar til 15 mín. voru eftir en þá náðu Haukar 4 marka forskoti sem hélst til leiksloka. Leikurinn endaði því 23 - 27 fyrir Haukum.

12.11.2007 | Handboltaakademía

Tap hjá 4. flokki A

Í gær lék 4. fl gegn Gróttu á Seltjarnarnesi. Okkar drengir áttu hörmulegan leik og vilja eflaust gleyma honum hið allra fyrsta. Grótta leiddi í hálfleik 19-12 og vann að lokum 32-22.

9.11.2007 | Handboltaakademía

Fyrsti sigur 91-liðsins á FH orðinn að veruleika

Hand_boltiÍ gærkvöld kom yngra lið FH-inga í 3. flokki í heimsókn á Selfoss og lék við yngra lið Selfoss (91 árganginn). Þetta FH-lið hefur yfirleitt verið Selfyssingum erfiður ljár í þúfu og höfum við tapað flestum leikjum við þá undanfarin ár. Í fyrra t.a.m. vann FH allar fjórar viðureignirnar liðanna.

8.11.2007 | Handboltaakademía

Selfoss90 tapaði með einu fyrir FH á útivelli

u-landslidsmennÍ gærkvöldi tapaðist fyrsti leikur vetrarins hjá Selfoss90 liðinu þegar þeir spiluðu við FH á útivelli. Strákarnir voru 16 - 13 undir í hálfleik og endaði leikurinn síðan 28 - 27 fyrir FH.

7.11.2007 | Handboltaakademía

507 handboltaleikir á ári!

handboltamarkUmsvif handknattleiksdeildar hafa aukist ár frá ári, iðkendum hefur fjölgað og árangurinn hefur aldrei verið betri. Flestir árgangar eru á meðal fimm bestu á landsvísu. Síðasta keppnistímabil léku lið á vegum handknattleiksdeildar Umf. Selfoss 507 leiki!!! Einnig var Landsbankamótið í 6. flokki drengja haldið á Selfossi þar sem leiknir voru 115 leikir. Ekki eru taldir með æfingaleikir og æfingamót sem lið tóku þátt í heldur aðeins leikir í opinberum mótum.

6.11.2007 | Handboltaakademía

91-liðið lék tvo leiki fyrir norðan

Líkt og 90-liðið lék 91-liðið tvo leiki á Akureyri um helgina, við Þór á laugardeginum og KA daginn eftir. Leikurinn við Þór var hörkuleikur þar sem heimamenn voru yfirleitt með frumkvæðið. Þórsarar skoruðu 6-1 síðustu mínúturnar og unnu 29-24 í leik sem einkenndist af baráttu, átökum, barning og flottum tilþrifum inn á milli. Á sunnudeginum lék liðið gegn KA og tapaði þar 28-20 í vægast sagt skelfilegum leik.

5.11.2007 | Handboltaakademía

Selfoss90 á Akureyri

Snemma á laugardagsmorguninn var lagt á stað til Akureyrar til þess að spila við Þór ogU90 menn KA á Íslandsmótinu. Ferðin gekk vel og var mjög skemmtileg í alla staði. Það var sérstaklega vel tekið á því hvort sem var um að ræða handbolta eða matmálstíma.

3.11.2007 | Handboltaakademía

6. fl. kvenna í 5. sæti

6.fl.kvStelpurnar í 6. flokki kvenna í handbolta urðu í 5. sæti í fyrstu umferð Íslandsmótsins sem haldið var dagana 27.-28. október í Kópavogi. Stelpurnar unnu fimm leiki og töpuði tveimur. Liðið lék án nokkurra lykilmanna vegna þess, að þessa helgi var vetrarfrí í skólunum á Selfossi og margir búnir að skipuleggja stutt frí. Er þetta mjög efnilegur flokkur undir góðri stjórn þeirra Halldórs Haraldssonar og Sigrúnar Örnu Brynjarsdóttur.

2.11.2007 | Handboltaakademía

Naumur sigur á Haukum 2

AKSelfyssingar lögðu Hauka 2 í æsispennandi leik í gærkvöldi. Selfoss er því komið í 3. sæti 1.deildar með 6 stig eftir 5 leiki, fjórum stigum á eftir ÍR og FH. Haukar 2 töpuðu hins vegar fimmta leik sínum í röð og verma þeir botnsætið ásamt Gróttu. Mjög góð mæting var á leikinn og salurinn var nánast fullur. Einnig var byrjað á BT leiknum, sá sem verður kosinn besta BT músin fær vegleg verðlaun í boði BT.

1.11.2007 | Handboltaakademía

Leikur í kvöld !

handboltamarkMeistaraflokkur tekur á móti ungmennaliði Hauka í kvöld kl 19:30 í 1.deild íslandsmótsins í handknattleik. Haukar U eru undir stjórn Einars Jónssonar sem var aðstoðarþjálfari Sebastians í eitt ár og ætti hann því að þekkja vel til Selfossliðsins. Haukastrákunum hefur ekki gengið sem best í vetur og situr á botni deildarinnar með ekkert stig eftir fjóra leiki. staðan í deildinni er eftirfarandi :

30.10.2007 | Handboltaakademía

Selfoss-strákarnir stóðu sig vel í Noregi

u90 menn2Íslenska unglingalandsliðið í handbolta vann Norðmenn tvisvar og tapaði einu sinni í þremur leikjum í Drammen í Noregi um helgina. Með liðinu leika þrír Selfyssingar þeir Guðmundur Árni Ólafsson, Ragnar Jóhannsson og Einar Héðinsson. Liðið byrjaði frekar illa og tapaði fyrsta leiknum 32-26 eftir að hafa leitt í hálfleik 15-16. Ragnar og Guðmundur voru í byrjunarliði en Einar kom inn á í seinni hálfleik. Guðmundur var besti maður liðsins og skoraði 10 mörk, en Ragnar skoraði aðeins eitt mark.

29.10.2007 | Handboltaakademía

Pabbinn í sal FSu sunnud. 11. nóv kl. 20

Aukasýning verður á Pabbanum, með Bjarna Hauki Þórssyni, á Selfossi í sal FSu sunnudaginn 11. nóvember kl. 20:00. Allur ágóði af sýningunni rennur til uppbyggingar handknattleiksdeildar Umf. Selfoss. Mætum og sýnum stuðning. Þess má geta að hátt í 20.000 manns hafa séð Pabbann, en sýningin hefur fengið ágæta dóma. Auglýsingu um sýninguna má sjá hér... Pabbinn_auglýsing ( jpg, 2.77 mb ).

25.10.2007 | Handboltaakademía

5. flokks-strákarnir næstbestir á Íslandi!

6.fl. aliðStrákarnir í 5. flokki karla stóðu sig frábærlega í 1. umferð Íslandsmótsins í handbolta sem haldið var í Vestmannaeyjum helgina 12.-14. okt. Strákarnir í A-liðinu unna alla sína leiki í riðlakeppninni og í milliriðlinum. Þeir léku því til úrslita við Fram og höfnuðu í öðru sæti á mótinu eftir að hafa tapað úrslitaleiknum með einu marki14-13. Guðni Ingvarsson og Eyþór Lárusson þjálfara þessa stráka sem margir eru á yngra ári, en sá hópur varð deildarmeistari í fyrra.

24.10.2007 | Handboltaakademía

Guðmundur Árni Ólafsson stóð sig vel

Guðmundur_ÁrniGuðmundur Árni Ólafsson stóð sig vel með undir 20 ára landsliði Íslands í handknattleik sem lék tvo landleiki við Dani í Skjern í Danmörku. Íslendingar töpuðu reyndar báðum leikjunum fyrst 31-26 og þá gerði Guðmundur Árni 1 mark, en í síðari leiknum töpuðu strákarnir 24-23 og þá gerði okkar maður tvö mörk. Þess má geta að Danir eru Evrópumeistarar í þessu aldursflokki. Guðmundur kemur heim í dag og fer svo aftur út á föstudaginn með undir 18 ára landsliðinu.

19.10.2007 | Handboltaakademía

3. flokkur vann fyrsta leikinn á Íslandsmótinu

gudmarniÍ gærkvöldi unnu strákarnir Stjörnuna á heimavelli 36 - 22. Staðan í hálfleik var 18 - 11. Allt liðið lék vel en Guðmundur Árni og Helgi áttu stórleik. Guðmundur skoraði 17 mörk úr 22 skotum og Helgi varði 27 skot þar af 1 víti. Hjá Stjörnunni var Svavar Ólafsson langbestur og varði mjög vel.

19.10.2007 | Handbolti

Húsasmiðjan framlengir samstarf sitt við handboltaakademíuna

úsasmidjan_logoHúsasmiðjan hefur framlengt samstarfssamning sinn við handboltaakademíu FSu og UMFS um 1 ár. Samningurinn var undirritaður í þessari viku. Þar með má segja að Húsasmiðjan hafi enn eitt árið lagt sitt af mörkunum til samfélagins á Selfossi með því að styrkja þetta forvarnar- og æskulýðsstarf.

18.10.2007 | Handbolti

Addi í sviðsljósinu

addi pungurÍþróttasíðan handbolti.is birti skemmtilega frétt um Arnar Gunnarson fyrirliði Selfossliðsins í gær, þar sem náðust skemmtilegar myndir af kappanum í leik Selfoss og Gróttu. Við látum fylgja með tengli yfir á þessa annars frábæru síðu og þar er hægt að skoða myndirnar úr Gróttuleiknum sem Selfoss vann eftirminnilega.

http://www.handbolti.is/?p=101&i=13238

17.10.2007 | Handbolti

Viðtal við Guðmund Árna unglingalandsliðsmann

G.ArniGuðmundur Árni Ólafsson hefur verið valinn í landslið leikmanna sem fæddir eru 1988. Guðmundur er fæddur árið 1990 og er því að spila tvö ár upp fyrir sig. Mjög sjaldgæft er að leikmenn spili í unglingalandsliði með leikmönnum sem eru tveimur árum eldri. Guðmundur Árni fer á næstunni í tvær keppnisferðir með báðum unglingalandsliðunum. Heimasíðan lagði nokkrar spurningar fyrir Guðmund af þessu tilefni.

5.10.2007 | Handbolti

HSK-mót í handbolta í kvöld kl. 20:00

HSK_merkiÍ kvöld kl. 20:00 fer fram í Vallaskóla leikur í HSK-mótinu í handknattleik. Þar eigast við Selfoss 1 og Selfoss 2 í meistaraflokki karla. Ekki hefur verið keppt á HSK-móti í handbolta um nokkurt skeið og er hér verið að endurvekja þá hefð. Vonandi verður keppt í fleiri flokkum á næsta ári.

4.10.2007 | Handbolti

Fjörið byjrar í kvöld

hand-boltamynd2Í kvöld (fimmtudag) kl. 19:30 verður fyrsti leikur meistaraflokks Selfoss í 1. deild karla í handbolta þegar Grótta kemur í heimsókn. Síðan er annar heimaleikur í Vallaskóla á sunnudag 7. okt kl. 18:00 gegn úrvalsdeildaliði Akureyrar (KA/Þór) í 32-liða Bikarkeppni HSí. Heyrst hefur að Sebastian þjálfari ætli að dusta rikið af keppnisskónum fyrir þann leik. Síðan leikur Selfoss 2 við Víking 2 í Víkinni laugardaginn 6. okt kl. 18:00. Nú er bara að drífa sig á völlinn og rífa upp stemmninguna. Áfram Selfoss!!!

26.9.2007 | Handbolti

Björt framtíð í handboltanum á Selfossi

HSI_logoÞað sem af er ári hafa fjórtán handboltastrákar verið boðaðir á landsliðsæfingar HSÍ hjá U-18 og U-20 ára landsliðum Íslands. Þeir Ragnar Jóhannson, Einar Héðinsson og Guðmundur Árni Ólafsson eru allir í U-18 ára landsliðinu sem fer til Noregs í lok október og til Þýskalands á milli jóla og nýárs. Ársæll Ársælsson, Sveinbjörn Jóhannson, Sigurður Már Guðmundsson, Sverrir Andrésson, Árni Steinn Steinþórsson, Halldór Haraldsson og Bjarki Már Guðmundsson hafa allir varið valdir á æfingar en ekki í 16 manna hóp. Þá eru Baldur Þór Elíasson, Hörður Másson, Birkir Fannar Bragason og Helgi Héðinsson allir í U-20 ára landsliðinu og hafa farið út á þessu ári. Sannarlega góður árangur og sýnir að framtíðin er björt í handboltanum á Selfossi.

12.9.2007 | Handbolti

Selfossi spáð fjórða sæti í 1. deild karla

HSI_logoÍ spá forráðamanna handknattleiksliða á Íslandi er Selfossi spáð 4. sætinu í 1. deild. FH og ÍR er spáð efstu tveimur sætunum og að þau fari upp. Í 1. deild eru auk Selfoss, FH og ÍR, Grótta, Víkingur, Haukar 2 og Þróttur/Fylkir. Stjörnunni er spáð sigri í úrvalsdeild bæði karla og kvenna.

20.8.2007 | Handbolti

Handboltaæfingar hefjast fimmtudaginn 23. ágúst

6flokkur_nov4_2006Handboltaæfingar hefjast fimmtudaginn 23. ágúst um leið og skólarnir hefjast. Allir mega koma og prófa og sjá hvernig þeim líkar handbolti. Miði verður sendur öllum sem hafa æft handbolta og þeir hvattir til að taka vini sína með á æfingar. Í byrjun september verða haldnir foreldrafundir þar sem vetrarstarfið verður kynnt nánar.

14.8.2007 | Handbolti

Ragnarsmótið í handbolta 22.- 25. ágúst - frítt inn!

hand-boltamynd1Ragnarsmótið hefst miðvikudaginn 22. ágúst. Eins og undanfarin ár komust færri lið að en vildu en félögin eru farin að bóka sæti á mótinu í maí til að tryggja sér sæti. Það er óhætt að fullyrða að þetta er vinsælasta undirbúningsmót hvers árs í handboltanum. Spilaður er fullur leiktími eða 2x30 mín. og frítt er inná alla leikina. Að sjálfsögu hvetjum við fólk til að líta við í Vallaskóla og líta á strákana okkar og hin liðin. Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

6.5.2007 | Handboltaakademía

Horfum bjartsýn fram á veg

Lógó SelfossAðalfundur Umf. Selfoss var haldinn fimmtudaginn 5. maí. Á fundinum fékk fimleikadeild félagsins afhenta viðurkenningu frá Íþrótta- og Ólympíusmbandi Íslands sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ, fyrst deilda og félaga á Suðurlandi. Þá voru kjörnir þrír nýir heiðursfélagar þeir Hafsteinn Þorvaldsson, Kristján S. Jónsson og Tómas Jónsson. Þórir Haraldsson var endurkjörinn formaður félagsins sem og framkvæmdastjórnin öll nema Sally Anne Vokes kom ný inn í stað Steinunnar H. Eggertsdóttur.

30.3.2007 | Handbolti

Viggó Sigurðsson gestaþjálfari hjá handboltaakademíunni

viggo_1176Síðasta sunnudag kom Viggó í heimsókn og stjórnaði æfingu hjá strákunum sem eru í handboltaakademíunni. Viggó sem skildi við Flensburg í efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar um áramótin lagði áherslu á hugmyndafræðina bakvið vörn og hraðupphlaup. Hann vonaðist til þess að geta komið aftur og farið þá í sóknarleikinn.

23.3.2007 | Handbolti

Tveir heimaleikir hjá meistaraflokki um helgina

hand-boltamynd2Meistaraflokkur Selfoss í handbolta leikur tvo heimaleiki um helgina í 1. deildinni. Fyrri leikurinn er í kvöld (föstudag) kl. 19:15 gegn Gróttu. Hinn leikurinn er á sunnudag kl. 15:00 við Hött. Nú er um að gera að drífa sig í Vallaskóla og hvetja strákana.

7.3.2007 | Handbolti

Halldór Haraldsson í viðtali

Halli_myndHalldór Haraldsson leikmaður akademíunar hefur vakið athygi í vetur fyrir góða frammistöðu með Selfoss '90 liðinu. Halldór lék með Fram í fyrra en kom í haust á Selfoss, hóf nám við FSu og fór í Handbolta-akademíuna. Heimasíðan lagði nokkrar spurningar fyrir Halldór.

27.2.2007 | Knattspyrna

Mæta brosandi á æfingar

Eiður_SmárinÍ Helgarsportinu nýlega var viðtal við Eið Smára Guðjohnsen knattspyrnumann hjá Barcelona. Þar var hann m.a. spurður hvað þyrfti til að ná jafn langt og hann. Eiður sagði að auk þess að leggja hart að sér yrðu menn að mæta brosandi á æfingar. Það væri lykilatriði. Hann bætt svo við "Og muna eftir að taka Lýsi".

20.2.2007 | Handbolti

Stærsta handboltamót sem haldið hefur verið á Selfossi

handboltamót_207Helgina 23.-25. febrúar verður haldið á Selfossi eitt fjölmennasta handboltamót sem haldið hefur verið hér á landi. Mótið er hluti af Íslandsmeistaramótinu í 6. flokki drengja 10-11 ára. Alls eru 55 lið skráð til leiks og má búast við milli 550-600 keppendum og öðru eins af foreldrum og liðstjórum. Leikið verður í báðum íþróttahúsunum á Selfossi þ.e. Vallaskóla og Iðu. Byrjað verður á föstudeginum kl. 16:00 og ekki linnt látum fyrr en að loknum 125 leikjum á seinni part sunnudags.


Á næstunni


www.fsu.iswww.arborg.iswww.husasmidjan.iswww.sghus.iswww.edalhus.isss.isvis.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta