Íslenska u-18 ára landslið karla tapaði í gær fyrir Frökkum 40-36 í úrslitum á Hela Cup í Þýsklandi og urðu því í 2. sæti á þessu sterka móti. Er það sannarlega stórglæsilegur árangur hjá strákunum. Staðan í gær í hálfleik var 20-15 fyrir liði Frakklands.
Fyrr í dag vann landslið Íslands, skipað leikmönnum fæddum 1990 og síðar (U18), Þjóðverja með eins marks mun, 34-33 eftir að þeir þýsku hafi haft yfir í hálfleik 20-15. Frábært hjá strákunum að vera komnir í úrslitaleikinn sem verður við Frakka í kvöld.
Selfoss A varð í gærkvöldi HSK-meistari í handbolta þegar liðið lagið Árborg 36-29. Liðið vann alla þrjá leiki sína og hlaut 6 stig. Selfoss B, sem sigraði Dímon 40-22, varð í öðru sæti með 4 stig. Árborg og Dímon eiga eftir að leika um það hvort liðið lendir í 3. sæti. Með þessu móti var HSK-mótum í handbolta ýtt úr vör eftir að hafa legið niðri um langt árabil.
Í gærkvöldi áttust við í Vallaskóla Selfoss A og Dímon í HSK-mótinu í handbolta. Lið Selfoss var skipað leikmönnum úr 2. og 3. flokki. Selfoss A vann auðveldan sigur 40-15 og er nú efst í mótinu með 4 stig eftir tvo leiki. Liðið á eftir að spila við Árborg og fer sá leikur fram fimmtudaginn 27. des kl. 20:30. Á eftir þeim leik eða kl. 22:00 eigast við Selfoss B og Dímon.
Nú er tveimur leikjum lokið í HSk mótinu í handbolta. Fyrst spiluðu Selfoss A og Selfoss B og fór sá leikur 39-29 fyrir A-liðinu. Í hinum leiknum vann Selfoss B lið Árborgar 50-37 en þess má geta að þetta er fyrsti leikur Árborgar í handbolta svo vitað sé.
Krakkarnir í handboltanum æfa á fullu öll jólin. Aðeins verður frí frá Þorláksmessu og fram yfir annan í jólum. Einnig verður frí á nýársdag. Annars verða æfingar á venjulegum tímum milli jóla og nýárs. Meðal annars jólamót innan hvers flokks þar sem skipt verður í jöfn lið og spilað innbyrðis.
Á laugardaginn sl. sigraði lið Framara í 3.flokki okkar menn í 91-liðinu. Selfyssingar gerðu sig seka um mörg klaufaleg mistök í leiknum og hefði í raun átt að vinna leikinn. Lokatölur urðu 25-29 Fram í vil eftir að staðan hafði verið 15-13 í hálfleik.
Þeir Ragnar Jóhannsson, Einar Héðinsson Guðmundur Árni Ólafsson og Bjarki Már Elísson æfa nú á fullum krafti með unglingalandsliðinu, en liðið fer til Þýskalands milli jóla og nýárs og tekur þátt í átta liða móti. Ísland er í riðli með Frökkum, Pólverjum og Þjóðverjum og tvö efstu liðin fara síðan áfram í undanúrslit. Það verðu því engin afslöppun hjá stráknum um jólin og jólaundirbúningur snýst um æfingar og aftur æfingar. Unglingalandsliðið leikur æfingaleik við Selfoss kl 19 á fimmtudaginn.
Í gærkvöldi tapaði meistaraflokkur á heimavelli fyrir efsta liði deildarinnar 30-34. Staðan í hálfleik var 12-17 fyrir FH. FH liðið var einfaldlega betra allan leikinn og of stór biti fyrir okkar menn að þessu sinni.
FH vann Selfoss í toppslag 1. deildar 30-34 í leik sem fram fór á Selfossi í kvöld. Leikurinn byrjaði jafnt og var jafn þangað til í stöðunni 3-3. Ragnar Jóhannsson skoraði fyrsta mark leiksins og var það í eina skipti sem Selfyssingar voru yfir í leiknum. FH-ingar spiluðu góða 3-2-1 vörn með Ólaf Guðmundsson í fararbroddi sem var atkvæðamikill í hraðaupphlaupum FH-inga.
Sebastian Alexandersson, þjálfari Selfossar, er hér í spjalli varðandi leik þeirra gegn FH sem fram fer í dag í 1. deild karla. kl. 19:30 á Selfossi.
Nú færðu topplið FH í heimsókn í kvöld, verður þetta erfiður róður fyrir ykkur?
FH er eina taplausa liðið í deildinni og hefur að mínu mati verið að spila best það sem af er vetrar í okkar deild. Þeir virðast alls ekki líklegir til þess að misstíga sig á næstunni. Ég reikna þess vegna með því að þetta verði einn af okkar erfiðustu leikjunum í vetur en með góðum stuðningi áhorfenda er allt hægt. Það er alls ekkert auðvelt að sækja sigur á Selfossi og FH mun þurfa að hafa verulega fyrir því ef það á að takast hjá þeim.
Á laugardag komu Haukar í heimsókn til að etja kappi við yngra árs lið okkar í 3. flokki karla. Haukar hafa á að skipa nokkuð sterku liði og hafa innaborðs fjölmarga landsliðsmenn. Leikurinn byrjaði illa fyrir Selfyssinga og náðu gestirnir snemma forustunni. Í hálfleik stóðu leikar 11-16 Haukum í vil. Í seinni hálfleik var mun beittara Selfosslið mætt til leiks og náðu þeir að minnka muninn í þrjú mörk og áttu tækifæri til að minnka í tvö. Haukar setti þá tvö mörk í röð og hélst munurinn í fimm mörkum. Lokatölur 27-32 fyrir Hauka.
Í gærkvöldi fór mfl. í Víkina og spilaði við sterkt lið Víkinga. Leikurinn endaði 32 32 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 16-11 fyrir Víking. Selfoss byrjaði leikinn afar illa og var leikur liðsins bæði hægur og ómarkviss í sókn. Birkir og Baldur voru fjarverandi vegna meiðlsa og nú hafði Arnar bæst við á meiðslalistann þannig að vörnin var ekki að finna sig heldur..
Í gær fimmtudag hélt akademían stórglæsilegt jólahlaðborð í hádeginu í Tíbrá. Stjórnarmönnum handboltans og skólastjórum FSu var einnig boðið. Alls voru um 40 manns í mat og þótti maturinn gómsætur sem og glæsilegur. Lilja Hjelm á allan heiður af undirbúningi og framreiðslu matsins og kunnum við henni miklar þakkir fyrir.
Í gærkvöldi vann 90 liðið FH2 37 - 23. Talsverður getumunur var á liðunum í gærkvöldi en þó ber þess að geta að það vantaði 2 sterka leikmenn í lið FH2. Meira jafnræði var með liðunum í seinni hálfleik eftir að staðan í hálfleik hafði verið 20 - 9.
Krakkar úr Flóahreppi eru dugleg að sækja handboltaæfingar á Selfossi, en 17 krakkar úr sveitinni hér í kring æfa nú handbolta á Selfossi sem er mjög hátt hlutfall. Nokkrir krakkar koma ofan úr Grímsnesi, Laugarvatni, af Skeiðunum og einn úr Gnúpverjahreppi sem lætur sér ekki muna um að koma 45 km leið á handboltaæfingar.
Þórir Ólafsson varð fyrir því óláni á æfingu í gær að viðbeinsbrotna á hægri öxl. Þórir var að stökkva inn úr horninu og var hrint með þeim afleiðingum að hann lenti illa á hægri öxlinni og viðbeinið fjór-brotnaði. Hann verður frá keppni fram í mars og þarf hugsanlega að fara í aðgerð.
Í gærkvöldi tapaði 2. flokkur fyrir Aftureldingu á útivelli. Leikurinn var illa spilaður af okkar mönnum og náðu strákarnir aldrei takti við leikinn. Staðan í hálfleik var 15-10 og endaði svo 32-24 fyrir Aftureldingu.
Strákarnir í 90-liðinu hafa ekki spilað heimaleik síðan í fyrstu umferð Íslandsmótsins, en aftur á móti spilað nokkra útileiki. Misfarist hefur að setja inn fréttir af síðustu tveimur útileikjum þeirra og er hér með bætt úr því þannig að hér koma fréttir af báðum leikjunum.
Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson er nú staddur í Frakklandi á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik. Þórir er aðstoðarþjálfari ríkjandi heimsmeistara norðmanna sem nú freista þess að vera titilinn. Þórir var í sviðsljósinu í Aftenposten einu útbreiddasta dagblaði Noregs á dögunum.
Handknattleiksdeild umf. Selfoss fékk á dögunum verðlaun fyrir bestu umgjörð á leikjum sínum í 1.deild Íslandsmótsins. Það var fréttavefurinn handbolti.is sem stóða að valinu. Selfoss hefur fengið lang flesta áhorfendur á sína leiki og voru til að mynda tæplega 400 áhorfendur á síðasta heimaleik í toppslagnum við ÍR.
Strákarnir í 6.flokki drengja B-liðum unnu sigur í 1.deild íslandsmótsins á dögunum. Liðið er eingöngu skipað leikmönnum á yngra ári eða fæddir 1997. Þessi strákar stóðu sig mjög vel í 7.flokki í fyrra og töpuðu aðeins einum leik allan veturinn. Í vetur hafa þeir haldið sigurgöngunni áfram og sigruðu á Spron-móti KR um daginn en mótið var önnur umferð íslandsmótsins.



