Dregið var í 4-liða úrslit Eimskipsbikarsins, í hálfleik í leik Fram og Hauka í deildabikarnum í Laugardalshöll í gær. Segja má að Selfoss hafi dottið í lukkupottinn því liðið fékk heimaleik við Gróttu. Það lið sem sigrar í þeirri viðureign leikur til úrslita í bikarkeppninni við annað hvort Val eða FH. Valsmenn fengu heimaleik gegn FH í hinum undanúrslitaleiknum. Ljóst er að það verða 1. deildarlið og úrvalsdeildarlið sem leika til úrslita. Leikirnir í undanúrslitum fara fram 7. og 8. febrúar.
Í hálfleik á úrslitaleikjum kvenna og karla í N1 deildarbikarnum verður dregið í 8 liða úrslit kvenna og 4 liða úrslit karla í Eimskipsbikarnum. Kvennaleikurinn hefst kl.13.30 og karlaleikurinn hefst kl.15.50. Liðin sem verða í pottinum hjá kvennaliðunum eru: FH, Fram, Fylkir, Grótta, Haukar, KA/Þór, Stjarnan og Valur. Hjá karla liðunum eru það: FH, Grótta, Selfoss og Valur.
Gamla myndin þessa vikuna er af stuðningsmannasveit Selfossliðsins 1991. Þetta var á þeim tímum þegar íþróttahúsið var fullt á hverjum einasta leik. Þarna má sjá Ævar Österby fremstan í flokki, en hann var aðalmaðurinn í þessu hópi. Þarna má einnig sjá Hilmar í Selós, Bjarka Hilmars, Gunna Gråns o.fl.
Gamla myndir að þessu sinni var tekin í leikhléi þegar Valdimar Grímsson var þjálfari Selfossliðsis keppnistímabilið 1995-1996. Þar má sjá þekkta kappa eins og Einar Gunnar Sigurðsson, Erling Richardsson, Hallgrím Jónasson og Erling Klemensson. Valda á vinstri hönd er Gísli Óskarsson sem var aðstoðarþjálfari.
Okkar menn töpuðu gegn FH um helgina, en þetta sama lið varð Íslandsmeistari í 4. flokki A-liða eftir skrautlegan úrslitaleik gegn KA síðastliðið vor. Hafnfirðingar hafa að flestra mati á að skipa langbesta liðinu í deildinni og eru þar leikmenn sem eiga mun meira heima í efri deildar liði þeirra. Því var ljóst að um erfiðan leik yrði að ræða.
Á laugardag spiluðu strákarnir í 2. flokki við FH á útivelli og töpuðu illa. Leikurinn endaði 42 - 27. Staðan í hálfleik var 20 - 15. Það var aðeins í fyrri hálfleik sem strákarnir héldu í við FH. Þetta var 6 leikurinn á 13 dögum hjá þessum hópi og þeir voru hreinlega búnir á því í seinni hálfleik. Í liðið vantaði Halla, Gumma og Birki að þessu sinni og munar um minna.
Meistaraflokkur náði ekki að fylgja eftir góðum sigri á Stjörnunni í Bikarnum á mánudaginn þegar þeir mættu Aftureldingu á föstudagskvöldið. Leikurinn tapaðist 27 - 21 en staðan í hálfleik var 15 - 9. Selfossliðið var algjörlega bensínlaust bæði andlega og líkamlega í leiknum og voru aldrei þátttakendur í leiknum. Afturelding voru einir á vellinum og áttu því ekki erfitt með að landa auðveldum sigri að þessu sinni.
Í frétt í Morgunblaðinu í dag er athyglisvert viðtal við Wolfgang Gütschow þýskan umboðsmann sem heldur því fram að íslenski skólinn í handbolta sé einn sá besti í heimi og að íslendingar ættu á næstu árum eftir að eignast enn fleiri atvinnumenn í handbolta. Selfoss var í vor verðlaunað fyrir besta barna- og unglingastarfs landsins og Selfoss er í toppbaráttu í nær öllum árgöngum. Selfoss mun því að öllu líkindum eignast þó nokkra atvinnumenn í handbolta á komandi árum.
Selfoss og Stjarnan áttust við í 8-liða úrslitum Eimskipsbikarsins í Vallaskóla s.l. mánudagskvöld. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann. Svo fór að Selfoss vann með einu marki 32:31 eftir að Birkir Fannar varði vítaskot á síðustu mínútu framlengingar. Selfoss er þar með komið í 4-liða úrslit bikarkeppninnar þar sem mótherjarnir verða Grótta, FH eða Valur. Frábær árangur.
Gamla myndin í þessari viku er af þeim Grími Hergeirssyni og Ólafi Einarssyni. Myndin var tekin af því tilefni að þeir félaga fengu að fara í heimsókn til þýska úrvalsdeildarliðsins Essen sem var á þeim tíma undir stjórn Jóhanns Inga Gunnarssonar. Alfreð Gíslason núverandi þjálfari Þýskalandsmeistara Kiel var leikmaðaur með Essen á þessum tíma.
Í kvöld kl. 19:30 mætir Selfoss Stjörnunni í 8-liða úrslitum Eimskipsbikars karla. Búast má við fjörugum og skemmtilegum leik. Þó að Stjarnan eigi að heita sterkari á pappírunum og spili í úrvalsdeild er gott að muna að í bikarleikjum getur allt gerst og ekkert lið getur bókað sigur. FH og Grótta eru komin í 4-liða úrslit eftir sigra á Haukum og Stjörnunni 2 í gær. Fram og Valur eigast einnig við í kvöld. Nú er um að gera að fjölmenna á pallana og láta í sér heyra. Góður stuðningur getur skipt sköpum. Áfram Selfoss!!!
Í gær töpuðu strákarnir í 2. flokki með 1 marki fyrir Akureyri í hörkuleik. Okkar menn höfðu frumkvæðið nánast allan leikinn og lentu ekki undir fyrr en á síðustu mínútunni. Akureyri er með frábært lið og því var svekkjandi að vera ekki fyrstir til vinna þá. Guðmundur Árni meiddist illa á upphafsmínútunum eftir blokkeringu línumanns Akureyrar og munaði gríðarlega um það í svona jöfnum leik. Tölfræði kemur vænatanlega eftir helgi.
Í gær tapaði Selfoss-91 gegn heimamönnum í Þór í bikarkeppni HSÍ afar illa. Lokatölur 36-24 eftir að heimamenn leiddu 18-11 í hálfleik. Okkar menn sáu aldrei til sólar í leiknum og Þór vann verðskuldaðan sigur.
Leik Selfoss og Stjörnunnar í 3. flokki sem fram átti að fara í kvöld hefur verið frestað til miðvikudagsins 10. desember nk. Það er okkur lítt að skapi hér á Selfossi. Á laugardaginn er hins vegar bikarleikur á Akureyri kl. 13.30 gegn Þór og verður þar eflaust hart barist. Þórsarar eru erfiðir heim að sækja og verður þetta því verðugt verkefni fyrir strákana. Þeir hafa nefnilega margt að sanna eftir frekar slakan leik gegn Fram á dögunum.
Laugardaginn síðastliðinn fengu strákarnir í 3. flokki góðan gest í heimsókn. Drengirnir voru búnir að nauða mikið í þjálfara sínum um að fá Venna Páer (Vernharð Þorleifsson) sem gestaþjálfara. Það vildu þeir þó vita að ekki yrði neitt um handbolta á æfingunni sem og vissu menn að þessi æfing yrði ekki auðveld. Sem og raunin varð.
Stelpurnar í 5. flokki kvenna unnu um helgina efstu deild í sínum árgangi og eru því bestar á landinu um þessar mundir. Þær sigruðu alla sína leiki mjög örugglega og það eru þessar stelpur sem verða kjarninn í framtíðarlið Selfoss í kvenna handbolta. Liðið er undir stjórn Halldórs Stefáns Haraldssonar sem hefur gert frábæra hluti með þetta lið. Strákarnir stóðu sig líka vel því þeir unnu 2. deild A og færast því upp í 1. deild.
Á þriðjudögum í vetur ætlum við að vera með gömlu mynd vikunar eins og í fyrra. Örn Grétarsson hjá Prentmet hefur lánað handknattleiksdeildinni fullt af myndum sem nú er búið að setja á tölutækt form. Fyrsta myndin er úr leik Selfoss og Fram í 1.deildinni 1992. Þarna á Einar Gunnar Sigurðsson línusendingu á Jón Þórir Jónsson sem nær til boltans þó stuttur sé. Gústaf Bjarnason fylgist spenntur með. Áhorfendapallanir troðfullir af áhorfendum.
Í gærkvöldi vann 2. flokkur karla góðan sigur á núverandi Íslandsmeisturum HK á útivelli, úrslitin urðu 28 - 37. HK hefur mörgum góðum leikmönnum á að skipa, en í lið þeirra vantaði í gær Ólaf Bjarka og Sveinbjörn, hvoru tveggja landsliðsmenn. Hjá Selfossi vantaði Guðmund Árna, Óskar Kúld og Baldur Þór sem er enn að jafna sig eftir aðgerð í haust.
Á laugardaginn unnu stelpurnar í 3. flokki Val 30 - 19 eftir að hafa leitt í hálfleik 13 - 12. Vörn og markvarsla var góð eins og ávallt og sóknin lagaðist mikið þegar á leikinn leið. Allir leikmenn liðsins náðu að leggja eitthvað framlag til leiksins. Er það mjög jákvætt upp á framhaldið að það séu alltaf fleiri og fleiri leikmenn sem þora að beita sér í leikjum.
Á laugardaginn vann 92-lið Selfoss gestina frá Vestmannaeyjum 24-20, eftir að í hléi hafið staðið 13-10 heimamönnum í vil. Leikurinn var lélegur og frekar hægur. Selfyssingar voru til að mynda allt of hægir í sóknarleik sínum og staðir. Sigurinn var þó aldrei í hættu en menn geta mun betur en þeir sýndu á laugardag. Næsti leikur hjá þessu liði er 1. des heima í bikarnum gegn Val kl. 19:30.
Nú um helgina fór fram fjölmennt handboltamót á Selfossi, þegar Landsbankamótið í 5. flokki kvenna, yngra ár, fór fram. Um 250 keppendur mættu til leiks, 25 lið lið tóku þátt og leiknir voru 50 leikir á þremur dögum. Mótið tókst mjög vel, allar tímasetningar stóðust. 20 piltar úr handboltaakademíu Fsu dæmdu leikina. 25 tímaverðir úr 5. og 4. flokki kvenna sáu um skráningar.
Selfyssingar hrósuðu sigri gegn ÍR-ingum, 30:31, þegar liðin áttust við í toppslag í 1. deild karla í handknattleik í Austurbergi í gærkvöld. Selfyssingar höfðu yfir í hálfleik, 15:13. Eftir sigur liðsins eru Grótta, Selfoss og ÍR efst og jöfn með 14 stig. Þar á eftir koma Haukar B og Afturelding með 10 stig.Hjá Selfyssingum voru þeir Ramunas Mikalonis og Guðmundur Ólafsson atkvæðamestir með 7 mörk hvor. Atli Kristinsson kom næstur með 5 mörk.
Selfoss fékk úrvalsdeildarlið Stjörnunnar í 8-liða úrslitum bikarkeppinnar, en dregið var í hádeginu í dag. Leikur inn fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla annað hvort 7. eða 8. desember. Stjarnan er sem stendur í næst neðsta sæti úrvalsdeildarinnar og hefur ekki gengið vel það sem af er þessu keppnistímabili. Selfoss á því ágætis möguleika á að komast í undanúrslit keppninnar.
Þær Kristrún Steinþórsdóttir, Birta Antonsdóttir og Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir voru í dag valdar í undir 15 ára landsliðs Íslands í handbolta. Liðið kemur saman um aðra helgi. Þetta er frábær viðurkenning fyrir stelpurnar sem eru allar hluti af mjög sterkum flokki sem leikur undir stjórn Halldórs Stefáns Haraldssonar.
Í ljósi efnahagsástandsins og þeirrar óvissu sem ríkir nú í samfélaginu hefur menntamálaráðherra látið vinna samantekt varðandi möguleg úrræði um sálrænan stuðning við börn og ungmenni. Markmiðið með vinnunni er að styðja þá sem starfa að íþrótta- æskulýðs- og tómstundamálum til að veita börnum og ungmennum viðeigandi stuðning og stuðla þannig að velferð þeirra. Þessi samantekt fylgir hér með þegar fréttin er opnuð...
91-liðið tapaði á heimavelli gegn Frömurum frá Reykjavík 33-31 eftir að jafnt hafi staðið í fyrri hálfleik, 1616. Leikurinn var spennandi og jafn nánast allan leikinn, Selfysssingar náðu mest tveggja marka forustu í fyrri hálfleik, en Framarar komust yfir þrjú mörk í þeim síðari. Heimamenn náðu að komast yfir 31-30 en þrjú síðustu mörk leiksins voru Framara.
92-strákarnir hjá Selfossi unnu í gær ÍR-2 örugglega 42-19 i Austurbergi. Í hálfleik stóð 22-11 fyrir Selfoss. Aldrei var spurning um það hvoru megin sigurinn lenti. Selfoss lék 3-2-1 í leiknum en hafa verið að æfa þá vörn undanfarið og gekk margt ágætlega í þeirri vörn í gær.
GRÓTTA frá Seltjarnarnesi lagði Selfoss, 34:28, þegar liðin mættust í 1. deildinni í handbolta karla í gærkvöldi á Selfossi að viðstöddum um 400 áhorfendum.
Í kvöld fer fram einn af stærri leikjum ársins í 1. deild karla á Selfossi þar sem að Selfyssingar taka á móti Gróttu. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og fer fram í íþróttahúsinu við Vallaskóla.
Selfyssingar sem sitja í 2. sæti hafa farið vel af stað í 1. deildinni í vetur, eftir 7 leiki hafa þeir unnið 6 og tapað einum. Síðustu tvær viðureignir Selfoss í deildinni hafa farið svona:
Þórir Ólafsson, landsliðsmaður í handknattleik, skrifaði í gær undir nýjan samning við þýska handknattleiksliðið N-Lübbecke. Hann gildir fyrir tvö næstu tímabil eða til vorsins 2011. Þórir leikur nú sitt fjórða tímabil með félaginu og hefur spilað þar lengst allra núverandi leikmanna þess. Þrjú ár í efstu deild, en N-Lübbecke féll í vor og er nú með yfirburðastöðu í norðurriðli 2. deildar, hefur unnið 13 fyrstu leikina á tímabilinu, í deild og bikar.
Selfoss vann stórsigur á Akureyri 2, 46:23, í Eimskips Bikarnum í dag. Selfoss hafði mikla yfirburði í leiknum og leiddi með 13 mörkum í hálfleik 23:10 og unnu síðan með 23 mörkum eins og áður sagði, 46:23.
Í gær komu Ísfirðingar í heimsókn til okkar á Selfoss með lið þeirra er heitir Hörður. Í því liði eru margir flottir íþróttamenn sem byrjuðu að æfa handbolta nú í haust. Enn vantar því smá upp á hjá þeim en þegar líða fer á veturinn munu þeir eflaust eflast þar sem margir þessara stráka geta vel spilað. Leikurinn endaði 48-19 okkar strákum í hag eftir að staðan í hálfleik hafi verið 23-9.
Selfoss vann góðan sigur á Haukum U, 33-21, á heimavelli í 1. deild karla í kvöld. Selfoss hafði mikla yfirburði í leiknum og leiddi m.a. með átta mörkum í hálfleik, 17-9 og jók síðan muninn í síðari hálfleik og vann að lokum tólf marka sigur eins og áður sagði, 33-21.
Stórskyttan Atli Kristinsson og markvörðurinn Birkir Bragason voru bestu menn Selfossar í kvöld.
Erfitt er að nefna einhvern leikmanna Hauka U sem skaraði fram úr í kvöld þar sem leikur liðsins var frekar dapur í kvöld.
Selfoss ´91 gerði sér lítið fyrir og vann besta lið landsins í þessum aldursflokki. Það verður að teljast gríðarlega góður sigur að vinna jafn gott lið og FH er talið vera. Sigur hafðist með minnsta mun 27-26 eftir að heimamenn leiddu í hálfleik 14-12.
Í kvöld kl 21.00 fer fram í Vallaskóla leikur Selfoss og FH í 3. flokki. FH eru að margra mati með besta lið landsins í 3. flokki og fengu þar að auki þrjá sterka leikmenn frá vinum sínum úr Haukum fyrir tímabilið. Ljóst þykir því að Selfyssingar eiga verulega erfiðan leik fyrir höndum í kvöld. Við hvetjum alla til að mæta og horfa á leikmenn framtíðarinnar og öskra þá áfram. Ekki veitir af því að FH hefur frábæru liði á að skipa og þurfa okkar menn að eiga toppleik til að eiga möguleika gegn slíku liði.
Aðalstjórn Umf. Selfoss hélt fund í gærkvöldi í Tíbrá og var það 11. fundur aðalstjórnar á árinu. Fundir aðalstjórnar eru að jafnaði einu sinni í mánuði. Á fundinum var m.a. samþykkt ný fræðslu- og forvarnarstefna félagsins og ákveðið að halda sérstakan forvarnadag félagsins. Áhrif efnahagsástandsins voru rædd og ákveðið að hefja undirbúning að auknum systkynaafslætt sem mun nýtast barnmörgum fjölskyldum þar sem börn eru í fleiri en einni íþróttagrein...
Framundan eru tveir leikir hér heima hjá meistaraflokki karla í handbolta. Á föstudagskvöldið kl. 19:30 verður leikið við Hauka U í 1. deildinni. Síðan er annar heimaleikur í Vallaskóla á sunnudaginn við Akureyri 2 í Eimskipsbikarnum. Hefst sá leikur kl. 15:00. Í hálfleik í bikarleiknum verður skotkeppni. Nú er um að gera að drífa sig á völlinn og sjá flottan handbolta. Á síðasta heimaleik við Aftureldingu mættu hátt í 500 manns.
Næsti leikur hjá 3. flokki er á miðvikudaginn í næstu viku, en þá leikur 92-liðið gegn Þrótturum og fer leikurinn fram í Laugardalshöll. Öllum leikjum þangað til hefur verið frestað til annars tíma. Ástæðan er landsliðsæfingar yngri liða hjá HSÍ.
Leik 3. flokks (liðs-92) sem átti að fara fram í dag hefur verið frestað til miðvikud. 5. nóv. árið 2008, vonandi! 3. fl. 91-lið leikur á fimmtudaginn kemur í Vallaskóla við HK kl. 21.00. Hvetjum við alla handboltaáhugamenn að mæta og hvetja leikmenn framtíðarinnar til góðra verka. HK er með gott lið og afar færan þjálfara og því ljóst að hörkuleik er að ræða. Á laugardaginn á svo 92-liðið að leika við FH-2. Afar ósennilegt verður að teljast að sá leikur fari fram þar sem umrædda helgi eru landsliðsæfingar.
Selfoss-strákarnir 6. flokki unnu þrefaldan sigur í fyrstu umferð Íslandsmótsins sem fór fram um helgina. Öll lið landsins í þessum aldursflokki vorum saman komin á fyrsta stórmótinu af fimm, þar sem um 700 keppendur kepptu í 65 liðum. Keppt er í flokki A, B og C liða og sigraði Selfoss í öllum flokkum. Það er mjög sjaldgæft að sama félag vinni í öllum flokkum og er þetta hreint út sagt frábær árangur hjá strákunum. Alls unnust 23 af þeim 24 sem Selfoss spilaði.
Afturelding tapaði fyrsta leik sínum á þessu keppnistímabili þegar liðið sótti Selfoss heim í gærkvöldi í 1. deild karla í handknattleik, lokatölur urðu 30:27. Mosfellingar voru marki yfir í hálfleik, 14:13. Um 500 áhorfendur voru á leiknum og rífandi stemning. Afturelding hafði forystu allan fyrri hálfleik og mest munaði fjórum mörkum á liðunum, 11:7. Leikmenn Aftureldingar héldu áfram að hafa frumkvæðið í leiknum fram eftir síðari hálfleik. Selfoss komst svo yfir 24:23 og unnu leikinn 30:27.
Selfoss vann á laugardaginn ótrúlegan sigur á Þrótti á útivelli í 1. deild karla er liðið vann 23 marka sigur, 14-37. Það var aldrei spurning hvort liðið mundi sigra þennan leik. Selfoss hreinlega valtaði yfir Þróttara. Selfoss leiddi með 13 mörkum í hálfleik og lokatölur urðu eins og áður sagði 14-37, eða 23 marka munur sem verður að teljast fullmikið í deildarkeppni í handbolta.
Á föstudaginn sl. tapaði Selfoss fyrir ÍR á heimavelli í næstefstu deild í handbolta. Leikurinn endaði 30-35 eftir að ÍR hafi leitt 15-16 í leikhléi. ÍR-ingar voru mun ákveðnari og áttu sigurinn svo sannarlega skilinn.
Um helgina fór fram undankeppni 3.flokks fyrir komandi tímabil. 91-liðið lék á Selfossi í riðli með KA, Gróttu, Þrótti og FH-2. 92-liðið lék í Strandgötu gegn Haukum, HK, Þór og Fjölni. 91-liðið vann alla sína leiki örugglega og er því komið í fyrstu deild. 92-liðið tapaði tveimur leikjum, gerði eitt jafntefli og vann einn. Liðið leikur í milliriðlum um næstu helgi.
Keppni í 1. deild karla í handknattleik, næst efstu deild, hefst í kvöld með þremur leikjum sem allir hefjast klukkan 19.30. ÍR tekur á móti nýliðum ÍBV í íþróttahúsinu Austurbergi, Afturelding sækir Þrótt heim í Laugardalshöll og Grótta fær Selfoss í heimsókn í íþróttamiðstöðina á Seltjarnarnesi.
Sebastian Alexandersson, þjálfari meistaraflokks handknattleiksdeildar sem spáð er efsta sæti í 1. deild karla, var í athyglisverðu viðtali á handbolti.is um veturinn framundan. Þar var hann meðal annars spurður um möguleika liðsins í vetur, væntingar og framtíðarhorfur.
Strákarnir í 4.flokki karla B-liða fæddir 1994 stóðu sig vel í undankeppninni fyrir deildarskiptingu íslandsmótsins í handbolta. Þeir léku í Hafnarfirði og sigruðu alla sína leiki með yfirburðum og verða í 1.deild í vetur. Drengirnir fæddir 1993 eða 4.flokkur A-lið fóru norður á Akureyri og léku tvo leiki gegn sterkum liðum KA og Gróttu og töpuðu báðum en komast þó í milliriðil og eiga enn möguleika á að verða í 1.deild.
Æfingar handknattleiksdeildar eru nú komnar í fullan gang, iðkendum hefur fjölgað mikið í haust og er það eflaust góðu gengi íslenska handboltalandsliðsins að þakka. Sannkallað handboltaæði hefur gripið um sig og krakkar leika sér í handbolta um alla ganga í skólunum. Hinsvegar er engin útihandboltavöllur á Selfossi og er það verr. Vel heppnað grunnskólamót var í vikunni og voru þar þó nokkrir sem stigu sín fyrstu spor á handboltavellinum. Handknattleiksdeild hefur reyndar aðeins færri æfingatíma til umráða í vetur vegna mikilla þrengsla í íþróttahúsum bæjarins. Það er nokkuð ljóst að það þarf að byggja nýtt íþróttahús á næstu árum og spurning um hvort það eigi ekki að fara í forgang í uppbyggingu íþróttamannvirkja. Æfingatímar hafa verið auglýstir í staðarblöðum og hanga upp í íþróttahúsinu í Vallaskóla. Æfingatímar eru sem hér segir :
Fimmtudaginn 4. september fer fram Grunnskólamót í handbolta. Leikið verður með minni-bolta reglum; þ.e. lítill völlur, mjúkur bolti, færri reglur og allir geta tekið þátt. Allir sem vilja mega koma og taka þátt. Skipt verður í lið á staðnum en reynt að keppa eftir bekkjardeildum. Allir þjálfarar handknattleiksdeildar verða á staðnum og athuga hvort framtíðar landsliðsmenn leynist ekki í hópnum.
Handboltaæfingar hefjast mánudaginn 25. ágúst um leið og skólarnir byrja. Um 250 einstaklingar að æfa handbolta á Selfossi í dag og þeim hefur fjölgað um helming á síðustu 3 árum. Handknattleiksdeild Umf. Selfoss hefur skipað sér í fremstu röð í yngri flokkastarfi á Íslandi að undanförnu og var í vor veitt verðlaun fyrir besta yngri flokka starf á landinu. Hjá handknattleiksdeildinni starfa vel menntaðir og metnaðarfullir þjálfarar. Allir mega koma og prófa handbolta og sjá hvernig þeim líkar. Vinamiðar verða sendir heim með öllum iðkendum. Það verða síðan foreldrafundir í byrjun september það sem starfið verður kynnt nánar.
Í gærkvöldi spiluðu annars vegar Selfoss og Fram og hins vegar Valur og FH. Í fyrri leiknum unnu Framarar okkar menn 35 - 30 eftir að staðan í hálfleik var 16 - 13 fyrir Fram. Í síðari leiknum þá skildu Valur og FH jöfn 32 - 32, en staðan í hálfleik var 20 - 17 fyrir Val. Markaskorarar...
Ragnarsmótið í handbolta hefst í kvöld í íþróttahúsi Vallaskóla með tveimur leikjum. Fram og Stjarnan hefja leik kl. 18:30 og í kjölfarið, eða kl. 20:00, mætast færeyska liðið Neisti og FH. Á morgun fimmtudag 21. leikur Selfoss við Fram kl. 18:30 og síðan á eftir þeim leik Valur og FH kl. 20:00. Síðasta umferðin er svo á föstudag en þá eigast við Selfoss og Stjarnan kl. 18:00 og Neisti og Valur kl. 19:30. Úrslitaleikirnir hefjast svo á laugardag kl. 12:00. Úrslit verða birt jafnóðum í viðburðadagatalinu.
Strákarnir í 18-ára landsliðinu töpuðu í dag fyrir Norðmönnum 33-34 eftir að hafa leitt 18-15 í hálfleik. Mest komust Íslendingar í 26-20 í síðari hálfleik en náðu ekki að klára verkefnið. Ragnar skoraði 7 mörk í leiknum, Guðmundur Árni 4 og Bjarki 1. Þetta tap setur strik í reikningin. Á morgun verða þeir að vinna Frakka sem hafa geysilega sterku liði á að skipa.
Ísland vann hreint stórkostlegan fjögurra marka sigur á heimsmeisturum Þjóðverja á Ólympíuleikunum í Peking, 33-29. Allt liðið átti stórkostlegan leik. Frábær byrjun Íslands á þessum leikum gefur vonandi fyrirheit um fleiri sigra og kannski eitthvað meira, hver veit? Það er glæsilegt og mikið afrek íslenska liðsins að leggja það þýska að velli.
Ragnarsmótið í handbolta hefst miðvikudaginn 20. ágúst með tveimur leikjum. Að vanda eru sex lið skráð til leiks, fjögur úrvalsdeildarlið (Valur, Fram, Stjarnan og FH) auk Selfoss og gestaliðs sem er Neisti frá Færeyjum. Mótið er jafnan eitt vinsælasta upphitunarmót fyrir komandi keppnistímabil. Leikinn er fullur leiktími 2x30 mín. Frítt er inn á alla leiki og hvetjum við alla til að mæta í íþróttahús Vallaskóla. Leikjaplanið fylgir hér:
18 ára landslið Íslands í handknattleik sigraði Dani í kvöld í lokalokaleik sínum í riðlakeppni úrslitakeppni Evrópumóts landsliða. Strákarnir höfðu áður leikið tvo leiki í riðlinum, gegn Finnum á föstudag og heimamönnum Tékkum á laugardag. Það var því ljóst fyrir leikinn að sigurliðið myndi fara með stigin úr þessum leik í milliriðil.
Ríkissjónvarpið sýnir frá talsvert mörgum handboltaleikjum, ekki bara með Íslandi. Við hvetjum fólk til að horfa á þessa leiki því eflaust er geysilega skemmtilegt mót í uppsiglingu. Leikirnir og tímasetningar eru hér:
Íslenska handboltalandsliðið fékk óskabyrjun á Ólympíuleikunum í Peking með því að vinna sigur á Rússum, 33-31. Ísland náði snemma frumkvæðinu í leiknum og náðu Rússar aldrei yfirhöndinni. Þegar rúmar fimm mínútur voru til leiksloka var forysta Íslands orðin sjö mörk en liðið hleypti þá Rússum óþarflega nálægt sér. Arnór Atlason skoraði svo markið sem gulltryggði endanlega sigur íslenska liðsins þegar ein og hálf mínúta var til leiksloka og breytti stöðunni í 32-28.
Landslið Íslands í handbolta skipað leikmönnum fæddum 1990 og fyrr er komið í átta liða úrslit á Evrópumótinu sem haldið er í Tékklandi. Það sem meira er að mótið fer fram í Brno sem er heimabær Michal Dostalic leikmanns Selfoss. Í landsliðshópnum eru fjórir Selfysingar.
Þriðji flokkur félagsins hóf æfingar í gærkvöld og má segja að strákarnir hafi tekið vel á því. Þessi flokkur leikur í undankeppninni þar sem ræðst í hvaða deild liðin verða um miðjan september. Stefnan er auðvitað sett á að ná því þriðja árið í röð að vera með bæði lið 3. flokks í efri deild. Það tekst ekki nema menn gefi allt í þær æfingar sem framundan eru, því eins og allir vita; er aðeins hægt að taka það út sem lagt hefur verið inn.
Á Selfossi var svo blásið til meiriháttar gleði á 17. júní þegar handknattleiksdeildin var með Orkuboltann, fjórða árið í röð. Eins og áður var þetta haldið í Vallaskóla á meðan setning og hátíðardagskrá stóð yfir. Fyrst fengu börnin að spreyta sig í vítaköstum á móti markmönnum meistaraflokks og voru langar raðir barna eins og alltaf. Því næst voru það fulltrúar fyrirtækja í Árborg sem tóku áskorun Orkunnar um að keppa í vítakeppni.
Handknattleiksdeild umf. Selfoss í samvinnu við Landsbankann verður með handboltaskóla fyrir börn áaldrinum 8-12 ára (3.-6.bekkur) dagana 9.-20. júní í sumarÆfingarnar verða í Íþróttahúsi Vallaskóla alla virka morgna frá kl 10:00-12:00 Þjálfari er Eyþór Lárusson leikmaður m.fl.Farið verður í almenna leiki og tækniæfingar tengdar handbolta, mikil áhersla verður lögð á fjölbreytta hreyfingu, keppni og spil. Skráning er á staðnum og verðinu er mjög stillt í hóf aðeins kr.2500.
Þeir Gísli Þór Axelsson, Sverrir Pálsson, Jóhann Erlingsson og Gísli Örn Þórisson voru um síðast liðna helgi á úrtaksæfingum fyrir leikmenn fæddir 1994 og síðar. Um er að ræða 60 manna æfingahóp sem síðar verður valið úr unglingalandslið í haust. Selfoss strákarnir stóðu sig allir mjög vel á æfingunum og sérstaka athygli vakti Gísli Þór enda hefur önnur eins stórskytta ekki komið fram lengi í íslenskum handbolta. Gísli er reyndar fæddur 1995 og því einu ári yngri en flestir á æfingunum.
Anton Freyr Traustason hefur verið valin í unglingalandslið leikmanna fæddir 1992 og síðar. Anton kemur úr Þorlákshöfn og er örvhentur hornamaður sem einnig getur leikið sem skytta. Hópurinn er skipaður 28 leikönnum og kemur saman um næstu helgi. Hópinn má sjá HÉR. Heimasíðan óskar Antoni til hamingju með áfangann og þetta verður honum vonandi hvatning til frekari afreka á handboltasviðinu.
Lokahóf barna- og unglingastarfs handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður föstudaginn 23. maí kl. 16:00 í Íþróttahúsi Vallaskóla. Á dagskránni eru leikir, skemmtiatriði, verðlaunaafhending, myndataka, grillveisla og softball-mót. Mikilvægt að allir iðkendur mæti í búningum vegna myndatöku, foreldrar og forráðamenn þeirra eru hvattir til að mæta. Það má taka með sér gesti.
Þórir Ólafsson er óviss um hvort hann verði áfram hjá þýska handboltaliðinu Lübbecke en hann meiddist öðru sinni á æfingu í vikunni. Þórir hefur verið frá lengst af á tímabilinu eftir að hann þríbrotnaði á viðbeini. Hann byrjaði aftur að æfa í apríl og hefur verið að komast í sitt besta form. Á þriðjudaginn meiddist hann hins vegar öðru sinni eftir að hafa lent illa eftir samstuð við félaga sinn.
Liðið skipuðu í vetur þeir Ómar Ingi, Oliver, Richard, Elvar, Magnús, Hákon, Símon, Eiríkur, Sindri, Andri Orri og Guðlaugur.
Undankeppni fyrir Evrópumót landsliða í handknattleik skipað leikmönnum 18 ára og yngri lauk um helgina. 8.riðill var leikinn í Reykjavík og átti Selfoss fjóra fulltrúa þá Ragnar Jóhannsson, Guðmund Árna Ólafsson, Bjarka Má Elísson og Einar Héðinsson.
Íslenska liðið er undir stjórn Einars Guðmundssonar og hafði talsverða yfirburði í þessum riðli og unnu alla sína leiki með 12-15 marka mun. Liðið hefur þar með tryggt sér sæti í lokakeppninni um Evrópumeistaratitilinn sem haldin verður í Brno í Tékklandi dagana 8.-17 ágúst n.k
Ísland sigraði Tyrkland 42-27 í síðasta leiknum í undankeppni EM U-18 ára liða karla, en undankeppnin fór fram í Austurbergi nú um helgina. Staðan í hálfleik var 17-11 Íslandi í vil.Fyrir leikinn var ljóst að Ísland kæmist áframá úrslitakeppni EM 18 ára liða sem fer fram í Tékklandi í ágúst, enda sigruðu strákarnir Letta 43-31 á föstudag og Finna 38-24 í gær, laugardag.
U-18 ára karlalandslið Íslands sigraði í dag Finna 38-24 í undankeppni EM U-18 ára liða og tryggði sér með því sæti á úrslitakeppni EM U-18 ára liða sem fer fram í Tékklandi í ágúst. Markahæstir hjá Íslandi voru Aron Pálmarsson með 8 mörk og Sigurður Ágústsson og Ragnar Jóhannsson með 6 mörk hvor. Ragnar átti mjög góðan leik í vörn og sókn. Guðmundur Árni gerði 3 mörk
Íslenska u-18 ára landslið karla hóf í dag leik í undankeppni fyrir EM sem fram fer í Austurbergi í fyrsta leik sínum lögðu strákarnir Lettland að velli 43-31 eftir að hafa verið 21-17 yfir í hálfleik.Selfyssingurinn Guðmundur Árni Ólafsson átti stórleik fyrir íslenska liðið og skoraði mörk í öllum regnbogans litum. Markahæstir hjá Íslandi voru: Guðmundur Árni Ólafsson með 13 mörk og þeir Aron Pálmarsson og Oddur Grétarsson skoruðu 7 hvor. Ragnar Jóhannson skoraði þrjú mörk og Bkarki Már Elísson 2. Einar Héðinsson lék ekki vegna meiðsla Í fyrri leik dagsins lögðu Finnir lið Tyrkja að velli 31-25 eftir að hafa verið 18-13 yfir í hálfleik.
Síðasta föstudagskvöld spilaði M.fl. sinn síðasta leik í 1. deildinni í vetur. Andstæðingurinn var Þróttur. Leikurinn vannst sannfærandi 42 - 21. Allir fengu að spila talsvert en Sebastian skipti liðinu í tvennt og léku "eldri" í 15 mín. og "yngri" í 15 mín. í hvorum hálfleik.
Á föstudagskvöldið unnu okkar menn Hauka 2 í 1. deildinni á útivelli 32 - 37 en staðan í hálfleik hafði verið 13 - 16 okkar mönnum í hag. Þetta var næst síðasti leikur vetrarins hjá liðinu en sá síðasti er næstkomandi föstudag 2. maí á Sefossi kl. 19:00
Strákarnir í unglingaflokki urðu nú fyrir stundu Íslandsmeistarar þegar þeir unnu Hauka 33-30 í úrslitaleik. Selfoss hafði forustu nær allan leikinn og unnu verðskuldað. Glæsilegur árangur hjá frábæru SELFOSSLIÐI. Meira síðar..
Í dag kl. 16.30 fer rúta frá Vallaskóla stundvíslega. Handboltaáhugafólk getur þá fengið FRÍTT far með þessari sömu rútu og séð úrslitaleik Selfoss og Hauka í 3. flokki í handbolta. Sá leikur hefst kl. 18.00 í Austurbergi. Við hvetjum alla stuðningsmenn að grípa þetta tækifæri og hvetja strákana til sigurs. Áfram Selfoss!
Unglingaflokkur karla vann í dag stórsigur á Stjörnunni í undanúrslitum íslandsmótsins í handbolta. Lokatölur urðu 35-20. Selfoss liðið hafði talsverða yfirburði allan leikinn og leikur á morgun til úrslita við Hauka sem unnu FH í tvíframlengdum leik. Úrslitaleikurinn fer fram í íþróttahúsinu við Austurberg í Breiðholti kl 18:00 sunnudag. Um að gera að koma og hvetja strákana til sigurs.
Í gærkvöldi tóku okkar strákar á móti Þór í 8 liða úrslitum á heimavelli fyrir framan 150 áhorfendur. Selfossliðið mætti tilbúið til leiks og tóku strax öll völd á vellinum. Leikurinn endaði með öruggum sigri okkar manna 41-30, en staðan í hálfleik var 25-16.
Síðastliðinn laugardag fór 6.flokkur drengja til Hafnarfjarðar og spilaði við FH í íþróttahúsinu við Kaplakrika. Bæði félög eru með fjögur lið, leikið verður í tveimur sölum samtímis 1x20 mín.leikir, þrír leikir á lið. Liðin skiptu á milli sín sigrunum, Selfoss vann í B-liði og C-liði en FH var sterkara í B2 og A-liðum en reyndar náði Selfoss jafntefli í síðasta leiknum í A-liðum. En FH er með lang-besta liðið í þessum aldursflokki. Á meðan A-lið Selfoss hefur verið í 5-10 sæti á íslandsmótinu í vetur .
Selfyssingurinn Þórir Ólafsson, leikmaður TuS N-Lübbecke í Bundersligunni, ræddi framtíð sína við blaðamann DV á dögunum. Þar kom m.a. fram að Þórir hefði áhuga á að vera áfram í atvinnumennsku en nokkur félög höfðu falast eftir kröftum hans þ.a.m. Fram. Það er alveg ljóst að lið Selfoss sækist líka eftir þessum snjalla leikmanni en á Selfossi á Þórir sínar rætur og mun vonandi leika aftur með Selfoss áður en ferli hans líkur.
Heimsíðan tók þá Guðjón Ágústsson frá Stærribæ og Magnús Nielsen Filmer frá Borg tali á æfingu um daginn, þeir eru báðir úr Grímsnesinu og eru keyrðir á æfingar á Selfoss þrisvar sinnum í viku. Þeir eru tveir af 15 -20 krökkum sem æfa handbolta á Selfossi en búa í sveitunum í kring.
Handknattleiksdeildin ætlar nú einu sinni í viku að birta gamlar myndir úr starfi deildarinnar. Myndin sem ríður á vaðið var tekin þegar Ramunas Mikalonis skrifaði undir samning við Selfoss í maí árið 2000. Ramunas hefur verið á Selfossi allar götur síðan, er sestur hér að og fyrir löngu talinn Selfyssingur. Þess má geta þó myndin sé í svart/hvítu voru komnar litaljósmyndir á þessum tíma. Jón Ragnar var formaður á þessum tíma og er unglegur að sjá.
Hannes Jón Jónsson og fyrrverandi leikmaður Selfoss hefur gert 2 ára samning við Hannover Burgdorf, sem er í 6. sæti í 2.deild nyrðri í Þýskalandi, en þetta er sama félag og Robertas Pauzuolis leikur með. Hannes Jón, sem er 28 ára lék með Selfoss á árunum 2000-2002 og lék þá m.a. með Robertas og verða þeir því samherjar á ný hjá þýska atvinnumannaliðinu.
Á föstudaginn lék meistaraflokkur gegn Víkingum í Reykjavík. Fyrirfram var búist við jöfnum og spennandi leik, sú varð reyndar ekki raunin og var stórt tap niðurstaðan 34-17. Það var reyndar vitað fyrirfram að leikurinn yrði Selfyssingum erfiður þar sem liðið saknaði nokkurra lykilmanna. Byrjunarliðið í leiknum var mjög ungt og voru ungu strákarnir greinilega ekki komnir niður á jörðina eftir glæsilegan sigur á ÍR fyrir stuttu.
Sebastian Alexandersson, þjálfari 1. deildarliðs Selfossar, ræðir stórleikinn gegn Víkingi sem fram fer í Víkinni kl. 19:00 í kvöld.
Við höfum ákveðið að skyggnast ítarlega á bakvið tjöldin hjá þessum örfáu "gamlingjum" sem eru í Selfossliðinu í dag. Mönnum sem eru nýhættir eða að stíga sín síðustu spor í boltanum. Það er komið að þeim síðasta. Áður höfum við tekið þá Sebastian og Arnar en núna er það Ramunas Mikalonis.
Leikurinn var frábær skemmtun fyrir þá 412 áhorfendur sem mættu á leik liðsins gegn ÍR síðastliðinn föstudag. Stemmningin og stuðningurinn frábær og ekki vantaði dramatíkina heldur. Allir 4 leikir liðanna hafa verið svona spennandi og úrslitin ráðist á síðustu augnablikunum.
Baldur Þór meiddist illa í leik gegn Gróttu á dögunum. Skoðun hefur nú leitt í ljós að hann er með slitið krossband og rifinn liðþófa í hægra hné. Ekki er vitað hversu fljótt hann kemst í aðgerð en við vonum að hann nái sér sem fyrst sjálfs síns og liðsins vegna.
Leik Selfossliðanna sem átti að vera á sunnudag hefur verið frestað til fimmtudagsins 10. apríl kl. 20:30 vegna landsliðsæfinga hjá U-90 og vegna útileiks í 2. flokki sem er móti Stjörnunni á sunnudaginn. Það er frestaður leikur frá síðsutu helgi.
Í gærkvöldi fóru strákarnir í sinn síðasta útileik í deildinni og höfðu sigur 28-34. Þeir unnu því 7 útileiki, gerðu 1 jafntefli og töpuðu 1. Strákarnir unnu alla heimleikina sína og eiga einmitt 2 heimaleiki eftir í deildinni. Sigur í öðrum þeirra tryggir þeim Deildarmeistaratitilinn. Leikurinn í gær..
Tékkinn Michal Dostalic línumaður Selfyssinga hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann af aganefnd HSÍ. Michal fékk rautt spjald í haust í leik gegn Haukum og fór þá í eins leiks bann.
Síðasta laugardag komu Framarar í heimsókn til að spila við 90 liðið í 3. flokki. Leikurinn var hvorki skemmtilegur á að horfa né vel leikinn en Selfoss vann 36-30 eftir að hafa verið 20-17 yfir í hálfleik. Langt er síðan liðið hefur spilað svona illa en kosturinn er sá að liðið vann engu að síður og fékk nauðsynlega áminningu fyrir lokasprettinn.
Selfoss-91-liðið sótti hið sterka og sigursæla lið FH heim í gærkvöld. FH-liðið er eitt það besta á landinu og hefur unnið marga titla, hvort sem er á Íslandi eða erlendis. Því var alveg ljóst að um erfiðan leik yrði að ræða fyrir okkar stráka.
Hornamaðurinn knái Guðmundur Árni Ólafsson lék með unglingalandliðið Íslands skipað leikmönnum fæddir 1988 og síðar um páskana. En Guðmundur er fæddur árið 1990 og er því að ,,spila upp fyrir sig”. Liðið tók þátt í undankeppni fyrir heimsmeistaramótið sem haldið verður í Rúmeníu í sumar.
Um helgina sem leið þá fór 2. flokkur til Eyja að spila við ÍBV. Á dagskránni voru 2 leikir. Frábært veður gerði það að verkum að flugfært var allla helgina. Báðir leikirnir unnust en ferðin er samt athyglisverð fyrir þær sakir að engir voru dómararnir frá HSÍ. Þarna er þó ekki við mótanefnd að sakast því að allir dómarar sem hún talaði við neituðu verkefninu þrátt fyrir að það væri fært með flugi. Það er engan veginn boðlegt í 2. flokki karla.
Leikur KA gegn 91-strákunum var spennandi og einkenndist af mikilli baráttu. Selfyssingar léku án Þórs Davíðssonar sem komst ekki í tæka tíð í leikinn þar sem júdómót er hann tók þátt í tafðist frameftir degi. Þór vann gull á mótinu og er honum því fyrirgefið. Okkar menn byrjuðu leikinn hörmulega og komst KA í 2-7 og 3-9. Á þeim kafla varð Selfoss fyrir áfalli er Andri Hrafn Hallsson fór úr axlarlið í annað sinn á hægri hönd eftir um sex mínútna leik. Selfyssingar tóku við sér og náðu að jafna í 11-11 fyrir leikhlé.
KA-menn komu í heimsókn á laugardaginn og léku tvo leiki gegn 3. flokks liðum okkar Selfyssinga. Fyrst léku þeir gegn 90-liðinu og varð sá leikur aldrei spennandi né skemmtilegur. KA-menn ákvaðu að leika með varamenn sína í þeim leik til að hvíla lykilmenn gegn 91-liðinu sem þeir áttu að leika gegn síðar um daginn. Einstaklega furðuleg ráðstöfun verður að teljast, að stilla upp varaliði gegn einu besta liði landsins.
Í gærkvöldi spilaði 3 fl. 90 árg. loksins aftur eftir tæplega mánaða pásu. Mótherjarnir voru FH2 en þeir hafa staðið sig vel á heimavelli í vetur. Okkar strákar leiddu í hálfleik 11-18 og unnu svo sannfærandi sigur 20-40.
Strákar fæddir 1991 unnu í gær félaga sína í gær fædda 1992 með níu marka mun, 35-26. Í hálfleik stóðu leikar 15-11 fyrir eldra árið. Leikurinn gekk vel og tókust menn vel á í mesta bróðerni þó. Nokkur munur er á líkamlegum styrk á milli liðanna og vóg það þungt. Ýmsir hlutir voru æfðir í leiknum sem og útfærð ný varnarafbrigði. Gekk það allt saman vel og verða þeir hlutir án efa framkvæmdir í komandi leikjum liðanna.
Við höfum ákveðið að skyggnast ítarlega á bakvið tjöldin hjá þessum örfáu "gamlingjum" sem eru í Selfossliðinu í dag, mönnum sem eru nýhættir eða að stíga sín síðustu spor í boltanum. Nú er komið að þeim næsta.
Í dag kl 17.30 verður æfingaleikur á milli 91-liðsins annars vegar og 92-liðsins hins vegar. Fróðlegt verður að sjá hvort stubbarnir í 92-liðinu stríði hrímþursunum í eldra liðinu. Hart verður barist, flestir spá eldra liðinu sigri en spurning er hvað dómarinn Jón blindi gerir? Mun hann halda með yngra liðinu? Ef svo verður, hvernig bregðast þá þursinn við?
Selfyssingar fæddir 1991 sóttu Hauka heim á laugardaginn og var búist fyrirfram við hörkuleik. Haukar hafa á einu besta liði landsins á að skipa og eru þar allir leikmenn fæddir 1990. Okkar strákar lögðu sig alla í verkefnið en því miður dugði það skammt.
A lið 4. flokks lék tvo leiki um helgina. Gegn Fylki og Þrótti og báða á útivelli. Báðir unnust þeir örugglega og sigrarnir aldrei í hættu. Fylkismenn voru sigraðir 29-23 eftir að staðan í hálfleik hafi verið 15-11. Þróttarar voru svo teknir örugglega 30-17 eftir að staðan í hálfleik hafi verið 14-7.
Allir leikmenn skiluðu sínu og stóðu sig vel. Það vantar sterka menn í liðið en menn snúa bökum saman og halda áfram. Liðið á nú þrjá leiki eftir og eigir smá glætu á að komast í úrslitakeppnina.
Nú um helgina fór fram fjölmennasta íþróttamót á Selfossi á þessu ári, þegar Landsbankamótið í handbolta fór fram á Selfossi. Um 600 keppendur mættu til leiks, 62 lið lið tóku þátt og leiknir voru 140 leikir á þremur dögum. Mótið tókst með afburðum vel, allar tímasetningar stóðust og fjölmargir sjálfboðaliðar unnu frábært starf á mótinu. 50 dómarar dæmdu leikina 140 en þess má geta að þeir voru allir 17 ára og eldri. 55 tímaverðir úr 5. og 4. flokki sá um skráningar.
Mér finnst ég verða að biðja stuðningsmenn okkar og alla Selfyssinga afsökunnar á frammistöðu okkar í leiknum í gærkvöldi. Ég sem þjálfari liðsins verð að bera ábyrgð á þessu "slysi" og skoða það hvað fer úrskeiðis í undirbúningi minna leikmanna fyrir þessa leiki þegar við spilum við liðin í neðri hluta deildarinnar. Það er ekki nóg að spila vel á móti þeim bestu ef að við klárum ekki þau verkefni sem við "eigum" að klára.
Í gærkvöldi fengu okkar menn afar harða lendingu þegar Haukar 2 kipptu þeim niður á jörðina eftir frækin útisigur á ÍR fyrir viku. Ótrúlega léleg frammistaða liðsins í fyrri hálfleik gerði útslagið. Enn einn leikinn byrja okkar menn illa á móti liði úr neðri hluta deildarinnar en í þetta skipti náðu þeir ekki að snúa slakri byrjun í sigur eins og áður í vetur.
Við ræddum við Sebastian þjálfara Selfoss liðsins fyrir viðureign þeirra við Hauka 2 í kvöld.
Nú fáið þið Hauka 2 í heimsókn verður þetta ekki bara auðvelt? Það er enginn leikur auðveldur. Þeir eru bara misjafnlega erfiðir. Oftast nær stjórnast erfiðeikastuðullinn eingöngu af hugarfari okkar sjálfra.
Okkur á heimasíðunni datt í hug að skoða aðeins á bakvið tjöldin hjá þeim örfáu "gamlingjum" sem eru í kringum hið gríðarlega unga meistaraflokkslið Selfoss. Allir eru þeir nýhættir eða að taka síðustu skrefin sín með Selfossliðinu. Allir eiga það sameinginlegt að hafa lagt sitt af mörkunum við að spyrna Selfossi af botninum og lagt mikið á sig á erfiðustu tímum félagsins við að koma liðinu á þröskuld árangurs.
Á laugardag tapaði 2. flokkur síðasta heimaleik sínum í vetur fyrir Haukum 29-31. Liðið á nú einungis 4 útileiki eftir á þessu tímabili. Liðið hefur hægt og bítandi verið að bæta sinn leik í vetur. Með þessum ósigri er þó ljóst að strákarnir komast ekki í 8 liða úrslit þetta árið. Langflestir leikirnir hafa tapast naumt í vetur eða með 2-4 mörkum. Megin ástæða þess að liðið er ekki í úrslitum er sú að ekki náðist að innbyrða fleiri stig úr jöfnum leikjum.
Strákar fæddir 1991 í handboltanum á Selfossi gerðu sér aldeilis glaðan dag síðastliðinn laugardag. Leikmenn ásamt þjálfara hittust kl 13.00 í Vallaskóla og horfðu á leik Selfoss og Hauka í 2. flokki. Strax að þeim leik loknum var brunað í Laugardalshöllina og horft á leik Fram og Vals í bikarúrslitum Eimskipsbikarsins.
ÍR og Selfoss mættust í Austurbergi í kvöld og lauk leiknum með sigri Selfoss 31-32 í hörku spennandi leik.Það var spennuþrungið andrúmsloftið í Austurbergi í kvöld þegar ÍR fékk Selfyssinga í heimsókn í toppslag í fyrstu deildinni í kvöld. Selfyssingar höfðu harm að hefna frá fyrri viðureign liðanna á Selfossi og ÍR-ingar ætluðu ekki að láta Selfyssinga koma á sinn heimavöll og taka af sér stig.
Í gær áttust við Selfoss 91 og Stjarnan í 3. flokki á Selfossi. Fyrir stuttu vann Stjarnan allt of stóran sigur á sömu Selfossdrengjum og voru þeir svo sannarlega ekki búnir að gleyma því er leikurinn hófst. Okkar menn náðu fljótlega þriggja marka forystu og bættu jafnt og þétt ofan á hana í fyrri hálfleik.
Helgina 7.-9. mars verður Landsbankamótið í 6.fl. drengja haldið á Selfossi, Mótið er eitt fjölmennasta handboltamót sem haldið hefur verið hér á landi. Handknattleiksdeild Umf. Selfoss heldur mótið sem er hluti af Íslandsmeistaramótinu í 6. flokki drengja. Á Selfoss munu streyma strákar á aldrinum 10-11 ára. Alls eru 57 lið skráð til leiks og búast má við yfir 600 keppendum og öðru eins af foreldrum og liðstjórum
Hér fyrir neðan eru myndir af stelpunum í 5. flokki sem tóku þátt í fjórðu umferð Íslandsmótsins sem haldin var að Varmá í Mosfellsbæ. A-liðið vann alla sína leiki og voru þessar myndir teknar seinni daginn.
Um nýliðna helgi fór fram annað af tveim deildarmótum 5. flokks kvenna í handbolta. Mótið var háð í Mosfellsbæ og fór það mjög vel fram. A-liðið var skipað þeim: Kristínu, Kristrúnu, Hrafnhildi Hönnu, Alexöndru Bíu, Thelmu Björk, Díönu, Esther og Birtu. Stóð liðið sig frábærlega og sigraði alla sína leiki og þar með sína deild. B-liðið var skipað þeim: Auði, Auði, Gerði, Þuríði, Ágústu, Andreu Ýr, Huldu Dís og Hörpu Sólveigu. Liðið vann tvo af fimm leikjum sínum og héldu sæti sínu í 2. deild.
Í vikunni var undirritaður samningur milli Handboltaakademíu Umf. Selfoss og Guðmundar Tyrfingssonar ehf. um samstarf næstu 4 árin. Í samningnum er samið sérstaklega um notkun á bifreiðum með þriggja punkta öryggisbeltum í öllum sætum. Á samningstímanum mun Guðmundur Tyrfingsson ehf. einnig styrkja akademíuna m.a. í formi auglýsingakaupa.
Addi þjálfari var í viðtali á handbolti.is í vikunni. Hér kemur það sem Addi hafði að segja við þann ágæta vefmiðil. ,,Við tókum púlsin á Arnari Gunnarssyni leikmanni Selfoss eða Adda Púng eins og hann er oft kallaður"
4. flokkur karla tapaði mikilvægum leik á heimaveli í gær fyrir Fram 22-25 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 14-9. Við þetta minkuðu möguleikar liðsins á öðru sætinu í deildinni. Á mjög góðri heimasíðu Fram er mjög skemmtileg umfjöllun um leikinn og flottar myndir. http://www.fram.is/frettir.asp?act=1&nid=3640&did=3
Í gærkvöldi fékk Selfoss sína fyrstu rasskellingu á tímabilinu og vonandi þá síðustu í vetur. FH vann 35 - 23 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 14 - 11. Selfoss spilaði án Ívars og Mikalonis sem eru meiddir og þá misstu Michal, Atli, Birkir og Halldór allir úr æfingum mest alla vikuna vegna veikinda.
Í gærkvöld lék 91-lið Selfoss í 3. flokki gegn ÍR í Austurbergi. ÍR skartar fjórum unglingalandsliðsmönnum og telja margir þá vera með sterkt lið. Okkar drengir báru helst til mikla virðingu fyrir ÍR-ingum í byrjun leiks og eftir 20 mínútna leik var staðan 6-11 ÍR-ingum í vil. Lokatölur urðu 28-31 fyrir ÍR.
Handboltaakademían bauð á dögunum Zoran Ivic, einum af færustu þjálfurum Evrópu hingað til lands til að skoða starfið og skiptast á upplýsingum um ýmsa hluti tengda handknattleiksþjálfun.
Ívar Grétarsson verður frá æfingum og keppni um óákveðinn tíma eftir að hafa fengið talsverðan heilahristing í síðasta leik við Víking. Vonandi hefur hann sloppið við að fá mar á heilann en næstu dagar munu leiða það í ljós. Við nánari skoðun á upptöku leiksins kom í ljós..
Strákarnir í 90 liðinu mættu ÍR á laugardaginn síðasta. Leikurinn endaði 37 - 29 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 15 - 15. ÍR liðið spilaði skynsamlega í fyrri hálfleik og var Selfossliðið í miklum vandræðum á stórum köflum í fyrri hálfleik en..
Síðasta föstudagskvöld vann Selfoss Víking í 1. deild karla 34 - 28 að viðstöddum 328 áhorfendum. Staðan í hálfleik var 14 - 10 okkar mönnum í vil. Þessi sigur er gríðarlega sætur þar sem Víkingur sem er afar vel mannað lið og verið að spila frábærlega síðan í desember undir góðri stjórn Reynis Þórs Reynissonar.
Það var toppslagur í 1.karla í kvöld, þegar Selfyssingar tóku á móti Víking. Leikurinn endaði 34-28. Leikurinn fór hægt af stað og var jafnræði með liðunum framan af. Síðan fóru Selfyssingar að síga hægt og bítandi fram úr og leiddu þeir í hálfleik 14-10. Mikið líf var í heimamönnum og voru þeir einfaldlega sterkari og betri á öllum sviðum handboltans. Það var eins og bikarleikurinn í vikunni sæti ennþá í Víkingunum og náðu þeir aldrei að spila sinn handbolta.
Hildur Öder Einarsdóttir var valin í 23. manna unglingalandsliðshóp sem valin var um helgina. Telma Sif Kristjánsdóttir datt hins vegar úr hópnum en hún var í 30 manna úrtakinu. Þetta er glæsilegur árangur hjá stelpunum og ætti að vera hvatning fyrir þær að ná enn lengra. Hópurinn er eftirfarandi:
Fram úr Reykjavík heimsótti Selfoss-91 í gærkvöld og var fyrirfram búist við spennandi leik. Það varð aldrei raunin því Framarar höfðu undirtökin frá fyrstu sekúndu og virtist sem Selfyssingar væru á engan hátt tilbúnir í leikinn.
Strákarnir í 7. flokki (fæddir 1998) gerðu sér lítið fyrir um síðastliðna helgi og unnu keppni C-liða í 6. flokki !! Þeir hafa unnið alla sína leiki í 7. flokki í vetur, en auk þess taka þeir líka þátt í keppni c-liða í 6. flokki þar sem þeir etja kappi við stráka sem eru einu og tveimur árum eldri en þeir.
Handboltaakademían hefur ákveðið að fá til Íslands erlendan toppþjálfara, Zoran Iviv að nafni, til þess að koma og vera gestaþjálfari hjá sér dagana 13.-17. febrúar. Ivic hefur þjálfað mörg af landsliðum Serbíu og náð þar frábærum árangri.
6. flokkur kvenna í handbolta (stelpur fæddar 1996 og 1997) tóku þátt á deildarbikarbikarmóti sem haldið var af Fylki í Reykjavík. Stelpurnar voru í mjög sterkum riðli og aðeins 2 efstu liðin komust áfram. Á Laugardeginum var spilað í riðlinum og unnu stelpurnar alla leikina í riðlinum.
Það kom þá loks að því að Selfoss vann Aftureldingu í 2 fl. en Afturelding hefur hingað til haft tak á Selfoss undanfarin 3 ár. Í þetta skipti voru okkar menn staðráðnir að kveða burt þessa "grýlu" og gerðu það með glæsibrag. Þeir unnu öruggan sigur 34 - 26 en staðan í hálfleik var 19 - 13 fyrir Selfoss.
Í gærkvöld fór fram fyrri leikur 3.flokks liða Selfoss í handbolta í 1. deild. Fjölmargir áhorfendur lögðu leið sína á völlinn og létu þeir vel í sér heyra. Þessi tvö lið eru skipuð leikmönnum fæddum 1990 Le og 1991.
Nú í vikunni verður litla íþróttahúsið við Sunnulækjarskóla tekið í notkun hálfum mánuði eftir að íþróttakennsla hófst þar af einhverjum ástæðum. Það þýðir að fimleikadeildin flytur alla sína starfsemi í nýja húsið og handknattleiksdeildin veður eingöngu með sínar æfingar í íþróttahúsi Vallaskóla.
Við tókum stutt viðtal við við Sebastian Alexandersson fyrir viðureign ÍR og Selfoss í 1. deildinni sem fer fram í kvöld, mánudag. Sebastian var spurður hvort þetta yrði ekki bara auðvelt. Auðvelt er afstætt hugtak. Síðast þegar við mættum þeim í Austurbergi þá var þetta frekar auðvelt fyrir okkur, en alls ekki fyrir dómarana sem því miður fóru á taugum síðustu 15 mín. leiksins. Þegar við spiluðum við þá hér á Selfossi þá var þetta frekar auðvelt fyrir þá nema að þeir gátu bara ekki skorað hjá mér af neinu viti.
Á miðvikudag lék Selfoss 91 gegn FH 91. Þetta eru líklega tvö bestu lið landsins sem skipuð eru leikmönnum fæddum 1991 og því mátti búast við hörkuleik. Bæði lið leika nokkuð öflugan varnarleik en mjög ósvipaðan engu að síður. FH grimma 3-2-1 vörn en Selfyssingar öfluga 6-0 vörn. Lokatölur urðu 22-21 fyrir FH eftir að staðan í leikhléi hafði verið 11-11.
Við hvetjum ALLA til þess að gefa sér tíma til þess að mæta á sunnudaginn kl. 19:30 á innbyrðis viðureign Selfossliðanna í 1. deild 3. fl. karla. Síðast þegar liðin mættust þá vann 90-liðið 21 - 20 í dramatískum leik. Búast má við frábærri skemmtun og það er öruggt að Selfoss fær stig í þessum leik.
Selfoss vann mikilvægan sigur í toppbaráttunni í 1 deild á laugardaginn. Leikurinn endaði 47 - 37 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 22- 17 fyrir Selfoss. Sóknarleikur og hraðupphlaup einkenndu leikinn og lítið var um varnarleik og markvörslu að þessu sinni sem þó var betri hjá okkar mönnum og gerði það líklega gæfumuninn.
Selfoss og Grótta mættust á Selfossi á Föstudaginn var. Selfoss og Grótta mætust á föstudaginn var í 1 deild karla á Selfossi Liðin voru frekar jöfn þótt að Selfyssingar væru alltaf einu skrefi á undan.Staðan í hálfleik var 15-12 Í seinni hálfleik náðu leikmenn Gróttu aðeins að klóra í bakkan en allt kom fyrir ekki og Selfyssingar sigruðu leikinn 32-30
7. flokkur drengja vann alla sína leiki í á fjölliðamóti um helgina, mótið fór fram í Digranesi í Kópavogi og var önnur umferð íslandsmótsins. Strákarnir í A-liðinu unnu alla sína leiki með talsverðum yfirburðum en þessir strákar hafa aldrei tapað leik á íslandsmóti. Þeir leika mjög hraðan handbolta og eru komnir mjög langt í íþrótt sinni miðaða við jafnaldra annars staðar frá. Strákarnir í B-liðinu unnu líka alla sína fjóra leiki þó öllu meiri spenna væri í þeirra leikjum.
Þeir Guðmundur Árnason frá Baldvin & Þorvaldi og Eiður Sigurðarson frá Smíðanda á Selfossi komi færandi hendi á æfingu hjá 6.fl drengja á dögunum. Þeir gáfu öllum strákunum upphitunarpeysur í nafni fyrirtækja sinna. Strákarnir voru að vonum himinlifandi með þessa höfðinglegu gjöf og ganga nú um allt stoltir í sínum Selfoss peysum. Meðfylgjandi myndir voru tekna við afhendinguna.
Ekkert verður af innbyrðisviðureign Selfossliðanna í 3 fl. á fimmtudaginn kemur þar sem mikið er um meiðsli í 90 liðinu. Það var ljóst eftir æfingu í gær að aðeins 6 leikmenn af 10 í 90 liðinu eru leikfærir og því nær 90 liðið ekki í lið. Leikurinn hefur því verið færður til 10 febrúar kl. 19:30
Enn einu sinni tapar 2 fl. naumt þrátt fyrir að spila vel. Nú fyrir Stjörnunni sem er með gríðarlega sterkt lið. Leikurinn endaði 26 - 28 en staðan í hálfleik var 13 - 19. Leikurinn byrjaði skelfilega hjá okkar mönnum og eftir u.þ.b. 15 mín. var staðan..
Selfoss tapaði fyrir FH í bikarkeppninni í gærkvöldi í framlengdum leik 28 - 32 en staðan að loknum venjulegum leiktíma var 24 - 24. Eftir fyrri hluta framlengingarinnar var enn jafnt 26 - 26 en FH vann svo 28 - 32 og seinni helming framlengingarinnar 2 - 6...
Í kvöld mætast tvö bestu lið landsins í 3 fl., Selfoss og FH, í 16-liða úrslitum Bikarkeppninnar. Fyrsta viðureign liðanna í vetur endaði 27 - 26 fyrir FH en sá leikur var spilaður á heimavelli FH og er það eina tap Selfoss í vetur.
Í gærkvöldi tapaði 2. flokkur fyrir Haukum 29 - 25 á Ásvöllum eftir að staðan í hálfleik var 15 - 13 fyrir heimamenn. Selfossliðið sýndi góða kafla í leiknum en duttu niður þess á milli. Þegar upp var staðið voru þessir slæmu kaflar liðinu allt of dýrir.
Selfoss ´90 vann stórsigur á Þórsurum frá Akureyri í 1.deild íslandsmótsins á laugardaginn. Lokatölur urðu 50-35 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 29-14. Selfoss i komust í 17-7 strax í byrjun og þá voru úrslitin ráðin, strákarnir misstu einbeitingu í síðari hálfleik og jafnaðist leikurinn nokkuð.
www.handbolti.is tók stutt viðtal við hinn unga og efnilega Gústaf Lilliendahl en Gústaf var markhæstur Selfyssinga gegn Þrótturum, sem fram fór fyrr í kvöld og var með 10 mörk úr 10 skotum.
Það var ekki mikið um dýrðir í snæfiþöktum Mjólkurbænum þegar neðsta lið 1 deilar, Þróttur mætti liði Selfyssinga. Leikurinn fór rólega af stað og voru það Þróttarar sem skoruðu 2 fyrstu mörk leiksins og komust í 0-2. Þróttarar spiluðu langar sóknir og drápu niður allt tempó sem virtist virka á hið hraða og spræka lið Selfyssinga. Selfyssingum líkaði illa að vera í vörn mest allan fyrri hálfleikin og sást það á sóknarleiknum en hann einkenndist af ótímabærum skotum og tæknifeilum.
Síðasta sunnudag var Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari kvenna og ein helsta landsliðshetja Íslands gestaþjálfari hjá akademíunni. Hann var með 2. árið á æfingu og var þemað varnarleikur. Það var virkilega gaman og fræðandi að láta Júlíus segja strákunum til með varnarleikinn en Júlíus er að mati fréttaritara besti varnarmaður Íslands enn sem komið er.
Um síðustu helgi vann 3. flokkur Fram á útivelli 28-34 og 2. fl. vann IBV á heimavelli 25-21. Beðist er velvirðingar á því hversu seint þetta er sett inn. Á laugardeginum vann..
Meistaraflokkur Selfoss mætir Þrótti í 1.deild íslandsmótsins á föstudagskvöldið og hefst leikurinn kl 19:15. Á laugardaginn mæta síðan stelpurnar í unglingaflokki HK kl 13:30 og strax á eftir leika Selfoss ´90 og Þór í unglingaflokki karla. Á sunnudaginn leika svo Selfoss og Valur í 4.flokki karla A-lið. Allir leikirnir fara fram í íþróttahúsi Vallaskóla
Nú er komið að hinum létt geggjaða Herði Bjarnarsyni handboltakappa að sýna okkur hina hliðina á sér. Hörður spilar í hægra horni með Selfyssingum í 1. deildinni. (Það er spurning hvort það er hægri eða vinstri hliðin sem við fáum að sjá?). Viðtalið byrtist á handbolti.is
3. fl. kvenna kepptu fyrsta leik sinn eftir jólafrí á laugardaginn á móti KR og var spilað í DHL höllinni. Leikurinn byrjaði hægt og voru stelpurnar á hælunum í vörn til að byrja með og óöruggar í sókninni. En síðan fóru þær að spila góða vörn og einnig var markvarslan mjög góð. Eftir það voru stelpurnar komnar í gang og fóru inn í klefa í hálfleik með 5 marka forskot 11-6.
Föstudaginn 18. janúar verður opin æfing í Iðu íþróttahúsi FSu. Foreldar eru hvattir til að mæta og sjá strákana spila innbyrðis. Allir eiga að mæta í búningum. Æfingin er frá kl. 16:30-17:30 og verða fulltrúar frá unglingaráði á staðnum og taka á móti greiðslum æfingagjalda. Fulltrúar frá fyrirtækjunum Baldvin & Þorvaldur og Smíðanda á Selfossi mæta með peysur sem þeir ætla að gefa stráknum. Framundan er síðan vinavika 21.-27. janúar, mót hjá 7. fl. 2.-3. febrúar og hjá 6. fl. 8.-10. febrúar.
Fyrir stuttu kom eldra lið FH í heimsókn og lék gegn yngra liði Selfoss í 3. flokki karla. Selfyssingar náðu sér aldrei á strik og virtust enga trú hafa á verkefninu og lentu fljótlega undir, þó voru þeir ekki langt undan. Í stöðunni 5-7 breyttu FH-ingar stöðunni í 5-14 sér í vil.
Haukar 2 og Selfoss mættust í miklum baráttuleik á Ásvöllum í kvöld. Leikurinn endaði 25-32 Selfyssingum í vil. Það stóð ekki steinn yfir steini hjá gestunum frá Selfossi í byrjun leiks á meðan ungir og sprækir Haukamenn léku við hvern sinn fingur og skoruðu mörkin í öllum regnbogans litum í fyrri hálfleik gegn andlausri vörn Selfyssinga. Haukamenn leiddu allan fyrri hálfleikinn úr stöðunni 4-4 í 8-5, 10-6 og hálfleikstölur voru svo 17-13 heimamönnum í vil.
www.handbolti.is tók skrautlegt viðtal við Sebastian Alexandersson þjálfara Selfyssinga vegna leiks Hauka 2 og Selfoss sem fram fer á morgun. Er viðtalið birt hér á síðunni.
Þórir Ólafsson kom í heimsókn á æfingu hjá 6.flokki drengja í gær. Eftir æfinguna ræddi Þórir við strákana, sagði þeim frá lífi atvinnumannsins, gaf þeim góð ráð varðandi æfingar og hvað möguleika þeir ættu. Strákarnir hlustuðu af athygli og svona heimsókn er mjög hvetjandi fyrir unga og metnaðarfullu drengi. Af 39 manna hópi sögðust 38 stefna hiklaust á atvinnumennsku í handbolta.
Síðasta föstudagskvöld töpuðu strákarnir í hörkuleik á móti taplausum FH-ingum en þeir sitja á toppi deildarinnar. Leikurinn endaði 27 - 30 fyrir FH. Selfoss átti alla möguleika á að vinna þennan leik en..
Heimasíðan fékk hinn snjalla þjálfara Arnar Gunnarsson eða Adda eins og hann er oftast kallaður í viðtal til að fara yfir stöðu handboltans á Selfossi. Addi hefur náð frábærum árangri sem þjálfari yngri flokka á Selfossi, hann hefur til að mynda skilað þremur Íslands- og deildarmeistaratitlum síðustu tvö ár. Hann er í dag þjálfari 91- liðsins og 4. flokks karla, auk þess að sopila með meistaraflokki.
UMFÍ bíður ungmennum á aldrinum 16 – 20 ára sem eru án tóbaks og vímuefna í skemmtigferð að Laugum. Leikir, útvist, kvöldvökur og fleira þar sem hinn eini sanni ungmennafélagsandi ræður ríkjum. Þátttakendum stendur til boða að gerast sjálfboðaliðar í starfi Flott án fíknar í kjölfar ferðarinnar. Lagt verður af stað frá Þjónustumiðstöð UMFÍ, að Laugavegi 170, föstudaginn 18. janúar kl. 20.00 og komið til baka sunnudaginn 20. janúar kl. 16.00. Áhugasamir skrái sig á netfangið: gudrun@umfi.is Allar nánari upplýsingar eru gefnar í Þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568-2929.
Landslið Íslands skipað leikmönnum undir 18 ára varð í öðru sæti á Hela-Cup í Þýskalandi milli jóla og nýárs, en átta sterk landslið tóku þátt í mótinu. Selfoss átti þarna fimm fulltrúa, þá Ragnar Jóhannsson, Einar Héðinsson Guðmund Árni Ólafsson og Bjarka Má Elísson sem leikmenn og þjálfarann Einar Guðmundsson. Hér fyrir neðan eru myndir af okkar stráknum á mótinu.
Þær Hildur Öder Einarsdóttir og Thelma Sif Kristjánsdóttir voru valdar í landsliðshóp stúlkna fæddar 1990 og 1991 í handknattleik. Hildur og Thelma sem báðar eru fæddar 1991 og eru báðar örvhentar. Þetta er í fyrsta skiptið í 10 ár sem Selfoss eignast leikmenn í kvennalandslið og ætti þetta að vera hvatning í allt kvennastarf deildarinnar. Fyrsta æfing liðsins er laugardaginn 5. janúar kl. 12.15 í Fylkishöll.



