Þeir Guðmundur Árnason frá Baldvin & Þorvaldi og Eiður Sigurðarson frá Smíðanda á Selfossi komi færandi hendi á æfingu hjá 6.fl drengja á dögunum. Þeir gáfu öllum strákunum upphitunarpeysur í nafni fyrirtækja sinna. Strákarnir voru að vonum himinlifandi með þessa höfðinglegu gjöf og ganga nú um allt stoltir í sínum Selfoss peysum. Meðfylgjandi myndir voru tekna við afhendinguna.
Ekkert verður af innbyrðisviðureign Selfossliðanna í 3 fl. á fimmtudaginn kemur þar sem mikið er um meiðsli í 90 liðinu. Það var ljóst eftir æfingu í gær að aðeins 6 leikmenn af 10 í 90 liðinu eru leikfærir og því nær 90 liðið ekki í lið. Leikurinn hefur því verið færður til 10 febrúar kl. 19:30
Enn einu sinni tapar 2 fl. naumt þrátt fyrir að spila vel. Nú fyrir Stjörnunni sem er með gríðarlega sterkt lið. Leikurinn endaði 26 - 28 en staðan í hálfleik var 13 - 19. Leikurinn byrjaði skelfilega hjá okkar mönnum og eftir u.þ.b. 15 mín. var staðan..
Selfoss tapaði fyrir FH í bikarkeppninni í gærkvöldi í framlengdum leik 28 - 32 en staðan að loknum venjulegum leiktíma var 24 - 24. Eftir fyrri hluta framlengingarinnar var enn jafnt 26 - 26 en FH vann svo 28 - 32 og seinni helming framlengingarinnar 2 - 6...
Í kvöld mætast tvö bestu lið landsins í 3 fl., Selfoss og FH, í 16-liða úrslitum Bikarkeppninnar. Fyrsta viðureign liðanna í vetur endaði 27 - 26 fyrir FH en sá leikur var spilaður á heimavelli FH og er það eina tap Selfoss í vetur.
Í gærkvöldi tapaði 2. flokkur fyrir Haukum 29 - 25 á Ásvöllum eftir að staðan í hálfleik var 15 - 13 fyrir heimamenn. Selfossliðið sýndi góða kafla í leiknum en duttu niður þess á milli. Þegar upp var staðið voru þessir slæmu kaflar liðinu allt of dýrir.
Selfoss ´90 vann stórsigur á Þórsurum frá Akureyri í 1.deild íslandsmótsins á laugardaginn. Lokatölur urðu 50-35 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 29-14. Selfoss i komust í 17-7 strax í byrjun og þá voru úrslitin ráðin, strákarnir misstu einbeitingu í síðari hálfleik og jafnaðist leikurinn nokkuð.
www.handbolti.is tók stutt viðtal við hinn unga og efnilega Gústaf Lilliendahl en Gústaf var markhæstur Selfyssinga gegn Þrótturum, sem fram fór fyrr í kvöld og var með 10 mörk úr 10 skotum.
Það var ekki mikið um dýrðir í snæfiþöktum Mjólkurbænum þegar neðsta lið 1 deilar, Þróttur mætti liði Selfyssinga. Leikurinn fór rólega af stað og voru það Þróttarar sem skoruðu 2 fyrstu mörk leiksins og komust í 0-2. Þróttarar spiluðu langar sóknir og drápu niður allt tempó sem virtist virka á hið hraða og spræka lið Selfyssinga. Selfyssingum líkaði illa að vera í vörn mest allan fyrri hálfleikin og sást það á sóknarleiknum en hann einkenndist af ótímabærum skotum og tæknifeilum.
Síðasta sunnudag var Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari kvenna og ein helsta landsliðshetja Íslands gestaþjálfari hjá akademíunni. Hann var með 2. árið á æfingu og var þemað varnarleikur. Það var virkilega gaman og fræðandi að láta Júlíus segja strákunum til með varnarleikinn en Júlíus er að mati fréttaritara besti varnarmaður Íslands enn sem komið er.
Um síðustu helgi vann 3. flokkur Fram á útivelli 28-34 og 2. fl. vann IBV á heimavelli 25-21. Beðist er velvirðingar á því hversu seint þetta er sett inn. Á laugardeginum vann..
Meistaraflokkur Selfoss mætir Þrótti í 1.deild íslandsmótsins á föstudagskvöldið og hefst leikurinn kl 19:15. Á laugardaginn mæta síðan stelpurnar í unglingaflokki HK kl 13:30 og strax á eftir leika Selfoss ´90 og Þór í unglingaflokki karla. Á sunnudaginn leika svo Selfoss og Valur í 4.flokki karla A-lið. Allir leikirnir fara fram í íþróttahúsi Vallaskóla
Nú er komið að hinum létt geggjaða Herði Bjarnarsyni handboltakappa að sýna okkur hina hliðina á sér. Hörður spilar í hægra horni með Selfyssingum í 1. deildinni. (Það er spurning hvort það er hægri eða vinstri hliðin sem við fáum að sjá?). Viðtalið byrtist á handbolti.is
3. fl. kvenna kepptu fyrsta leik sinn eftir jólafrí á laugardaginn á móti KR og var spilað í DHL höllinni. Leikurinn byrjaði hægt og voru stelpurnar á hælunum í vörn til að byrja með og óöruggar í sókninni. En síðan fóru þær að spila góða vörn og einnig var markvarslan mjög góð. Eftir það voru stelpurnar komnar í gang og fóru inn í klefa í hálfleik með 5 marka forskot 11-6.
Föstudaginn 18. janúar verður opin æfing í Iðu íþróttahúsi FSu. Foreldar eru hvattir til að mæta og sjá strákana spila innbyrðis. Allir eiga að mæta í búningum. Æfingin er frá kl. 16:30-17:30 og verða fulltrúar frá unglingaráði á staðnum og taka á móti greiðslum æfingagjalda. Fulltrúar frá fyrirtækjunum Baldvin & Þorvaldur og Smíðanda á Selfossi mæta með peysur sem þeir ætla að gefa stráknum. Framundan er síðan vinavika 21.-27. janúar, mót hjá 7. fl. 2.-3. febrúar og hjá 6. fl. 8.-10. febrúar.
Fyrir stuttu kom eldra lið FH í heimsókn og lék gegn yngra liði Selfoss í 3. flokki karla. Selfyssingar náðu sér aldrei á strik og virtust enga trú hafa á verkefninu og lentu fljótlega undir, þó voru þeir ekki langt undan. Í stöðunni 5-7 breyttu FH-ingar stöðunni í 5-14 sér í vil.
Haukar 2 og Selfoss mættust í miklum baráttuleik á Ásvöllum í kvöld. Leikurinn endaði 25-32 Selfyssingum í vil. Það stóð ekki steinn yfir steini hjá gestunum frá Selfossi í byrjun leiks á meðan ungir og sprækir Haukamenn léku við hvern sinn fingur og skoruðu mörkin í öllum regnbogans litum í fyrri hálfleik gegn andlausri vörn Selfyssinga. Haukamenn leiddu allan fyrri hálfleikinn úr stöðunni 4-4 í 8-5, 10-6 og hálfleikstölur voru svo 17-13 heimamönnum í vil.
www.handbolti.is tók skrautlegt viðtal við Sebastian Alexandersson þjálfara Selfyssinga vegna leiks Hauka 2 og Selfoss sem fram fer á morgun. Er viðtalið birt hér á síðunni.
Þórir Ólafsson kom í heimsókn á æfingu hjá 6.flokki drengja í gær. Eftir æfinguna ræddi Þórir við strákana, sagði þeim frá lífi atvinnumannsins, gaf þeim góð ráð varðandi æfingar og hvað möguleika þeir ættu. Strákarnir hlustuðu af athygli og svona heimsókn er mjög hvetjandi fyrir unga og metnaðarfullu drengi. Af 39 manna hópi sögðust 38 stefna hiklaust á atvinnumennsku í handbolta.
Síðasta föstudagskvöld töpuðu strákarnir í hörkuleik á móti taplausum FH-ingum en þeir sitja á toppi deildarinnar. Leikurinn endaði 27 - 30 fyrir FH. Selfoss átti alla möguleika á að vinna þennan leik en..
Heimasíðan fékk hinn snjalla þjálfara Arnar Gunnarsson eða Adda eins og hann er oftast kallaður í viðtal til að fara yfir stöðu handboltans á Selfossi. Addi hefur náð frábærum árangri sem þjálfari yngri flokka á Selfossi, hann hefur til að mynda skilað þremur Íslands- og deildarmeistaratitlum síðustu tvö ár. Hann er í dag þjálfari 91- liðsins og 4. flokks karla, auk þess að sopila með meistaraflokki.
UMFÍ bíður ungmennum á aldrinum 16 – 20 ára sem eru án tóbaks og vímuefna í skemmtigferð að Laugum. Leikir, útvist, kvöldvökur og fleira þar sem hinn eini sanni ungmennafélagsandi ræður ríkjum. Þátttakendum stendur til boða að gerast sjálfboðaliðar í starfi Flott án fíknar í kjölfar ferðarinnar. Lagt verður af stað frá Þjónustumiðstöð UMFÍ, að Laugavegi 170, föstudaginn 18. janúar kl. 20.00 og komið til baka sunnudaginn 20. janúar kl. 16.00. Áhugasamir skrái sig á netfangið: gudrun@umfi.is Allar nánari upplýsingar eru gefnar í Þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568-2929.
Landslið Íslands skipað leikmönnum undir 18 ára varð í öðru sæti á Hela-Cup í Þýskalandi milli jóla og nýárs, en átta sterk landslið tóku þátt í mótinu. Selfoss átti þarna fimm fulltrúa, þá Ragnar Jóhannsson, Einar Héðinsson Guðmund Árni Ólafsson og Bjarka Má Elísson sem leikmenn og þjálfarann Einar Guðmundsson. Hér fyrir neðan eru myndir af okkar stráknum á mótinu.
Þær Hildur Öder Einarsdóttir og Thelma Sif Kristjánsdóttir voru valdar í landsliðshóp stúlkna fæddar 1990 og 1991 í handknattleik. Hildur og Thelma sem báðar eru fæddar 1991 og eru báðar örvhentar. Þetta er í fyrsta skiptið í 10 ár sem Selfoss eignast leikmenn í kvennalandslið og ætti þetta að vera hvatning í allt kvennastarf deildarinnar. Fyrsta æfing liðsins er laugardaginn 5. janúar kl. 12.15 í Fylkishöll.



