Beint á leiðarkerfi vefsins

Handboltaakademía

Handboltaakademía - RSS

29.12.2008 | Handbolti

Heimaleikur við Gróttu í undanúrslitum Eimskipsbikarsins

eimskipsbikarinnDregið var í 4-liða úrslit Eimskipsbikarsins, í hálfleik í leik Fram og Hauka í deildabikarnum í Laugardalshöll í gær. Segja má að Selfoss hafi dottið í lukkupottinn því liðið fékk heimaleik við Gróttu. Það lið sem sigrar í þeirri viðureign leikur til úrslita í bikarkeppninni við annað hvort Val eða FH. Valsmenn fengu heimaleik gegn FH í hinum undanúrslitaleiknum. Ljóst er að það verða 1. deildarlið og úrvalsdeildarlið sem leika til úrslita. Leikirnir í undanúrslitum fara fram 7. og 8. febrúar.

25.12.2008 | Handboltaakademía

Gestaþjálfari og leikur hjá 3. flokki

Á morgun (26.des) verður gestaþjálfari fyrir strákana í akademíu Selfoss í handbolta, fyrir þá sem eru á fyrsta, öðru og þriðja ári. Æfingin verður í Vallaskóla kl. 14-16. Fjallað verður um þessa æfingu eftir jól og þá kunngert hver þessi góði gestur er.

23.12.2008 | Handbolti

Bikardráttur verður í hálfleik úrslitaleikja í N1 deildarbikarnum

HSI_logoÍ hálfleik á úrslitaleikjum kvenna og karla í N1 deildarbikarnum verður dregið í 8 liða úrslit kvenna og 4 liða úrslit karla í Eimskipsbikarnum. Kvennaleikurinn hefst kl.13.30 og karlaleikurinn hefst kl.15.50. Liðin sem verða í pottinum hjá kvennaliðunum eru: FH, Fram, Fylkir, Grótta, Haukar, KA/Þór, Stjarnan og Valur. Hjá karla liðunum eru það: FH, Grótta, Selfoss og Valur.

23.12.2008 | Handboltaakademía

Gamla myndin 4

Gamla myndin þessa vikuna er af stuðningsmannasveit Selfossliðsins 1991. Þetta var á þeim tímum þegar íþróttahúsið var fullt á hverjum einasta leik. Þarna má sjá Ævar Österby fremstan í flokki, en hann var aðalmaðurinn í þessu hópi. Þarna má einnig sjá Hilmar í Selós, Bjarka Hilmars, Gunna Gråns o.fl.

17.12.2008 | Handboltaakademía

Gamla myndin

Gamla myndir að þessu sinni var tekin í leikhléi þegar Valdimar Grímsson var þjálfari Selfossliðsis keppnistímabilið 1995-1996. Þar má sjá þekkta kappa eins og Einar Gunnar Sigurðsson, Erling Richardsson, Hallgrím Jónasson og Erling Klemensson. Valda á vinstri hönd er Gísli Óskarsson sem var aðstoðarþjálfari.

17.12.2008 | Handboltaakademía

Sigur hjá 91

Strákarnir í eldra liði 3.flokks, eða 91-liðið vann HK-ingar fyrir stuttu. Eftir jafnræði framan af stungu okkar menn af í lok fyrri hálfleiks og leiddu heimamenn 19-13. Mestur varð munurinn 30-17 í síðari hálfleik en lokatölur þó 37-26.

17.12.2008 | Handboltaakademía

92-liðið tapaði fyrir FH

Okkar menn töpuðu gegn FH um helgina, en þetta sama lið varð Íslandsmeistari í 4. flokki A-liða eftir skrautlegan úrslitaleik gegn KA síðastliðið vor. Hafnfirðingar hafa að flestra mati á að skipa langbesta liðinu í deildinni og eru þar leikmenn sem eiga mun meira heima í efri deildar liði þeirra. Því var ljóst að um erfiðan leik yrði að ræða.

 

15.12.2008 | Handboltaakademía

2. flokkur tapaði illa fyrir FH

Á laugardag spiluðu strákarnir í 2. flokki við FH á útivelli og töpuðu illa. Leikurinn endaði 42 - 27. Staðan í hálfleik var 20 - 15. Það var aðeins í fyrri hálfleik sem strákarnir héldu í við FH. Þetta var 6 leikurinn á 13 dögum hjá þessum hópi og þeir voru hreinlega búnir á því í seinni hálfleik. Í liðið vantaði Halla, Gumma og Birki að þessu sinni og munar um minna.

15.12.2008 | Handbolti

Slæmt tap í Mosfellsbæ

Óskar_Kúld_wideMeistaraflokkur náði ekki að fylgja eftir góðum sigri á Stjörnunni í Bikarnum á mánudaginn þegar þeir mættu Aftureldingu á föstudagskvöldið. Leikurinn tapaðist 27 - 21 en staðan í hálfleik var 15 - 9. Selfossliðið var algjörlega bensínlaust bæði andlega og líkamlega í leiknum og voru aldrei þátttakendur í leiknum. Afturelding voru einir á vellinum og áttu því ekki erfitt með að landa auðveldum sigri að þessu sinni.

13.12.2008 | Handboltaakademía

Gullöld í uppsiglingu í íslenskum handknattleik

Í frétt í Morgunblaðinu í dag er athyglisvert viðtal við Wolfgang Gütschow þýskan umboðsmann sem heldur því fram að íslenski skólinn í handbolta sé einn sá besti í heimi og að íslendingar ættu á næstu árum eftir að eignast enn fleiri atvinnumenn í handbolta. Selfoss var í vor verðlaunað fyrir besta barna- og unglingastarfs landsins og Selfoss er í toppbaráttu í nær öllum árgöngum. Selfoss mun því að öllu líkindum eignast þó nokkra atvinnumenn í handbolta á komandi árum.

12.12.2008 | Handboltaakademía

92-liðið vann í Mosfellsbæ

Selfyssingar í 92-liðinu unnu í gær UMFA á útivelli 29-23 eftir að hafa leitt 15-12 í hálfleik. Selfoss var allan tímann sterkari en gátu leikið mun betur en þeir gerðu en léku þó mun betur en undanfarið. Menn eins og Orri og Einar náðu sér strik og skoraði sá fyrrnefndi nokkur mörk með þrumuskotum sem menn hafa saknað í langan tíma.

11.12.2008 | Handboltaakademía

Sigur hjá 91-liðinu

Í gærkvöld kom Stjarnan úr Garðabæ í heimsókn og atti kappi við 3. flokk Selfoss - 91 liðið. Selfoss vann örugglega 44-22 eftir að hafa leitt í hálfleik 21-14. Allir leikmenn liðsins lögðu sig í verkefnið og voru staðráðnir í að gefa sig alla í leikinn eftir vægast sagt hörmulegan leik í bikarnum gegn Þór fyrir stuttu.

10.12.2008 | Handbolti

Selfoss vann Stjörnuna 32:31 í 8-liða úrslitum Eimskipsbikarsins

eimskipsbikarinnSelfoss og Stjarnan áttust við í 8-liða úrslitum Eimskipsbikarsins í Vallaskóla s.l. mánudagskvöld. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann. Svo fór að Selfoss vann með einu marki 32:31 eftir að Birkir Fannar varði vítaskot á síðustu mínútu framlengingar. Selfoss er þar með komið í 4-liða úrslit bikarkeppninnar þar sem mótherjarnir verða Grótta, FH eða Valur. Frábær árangur.

9.12.2008 | Handboltaakademía

Grímur og Óli fóru til Essen ´87

Gamla myndin í þessari viku er af þeim Grími Hergeirssyni og Ólafi Einarssyni. Myndin var tekin af því tilefni að þeir félaga fengu að fara í heimsókn til þýska úrvalsdeildarliðsins Essen sem var á þeim tíma undir stjórn Jóhanns Inga Gunnarssonar. Alfreð Gíslason núverandi þjálfari Þýskalandsmeistara Kiel var leikmaðaur með Essen á þessum tíma.

8.12.2008 | Handbolti

Stórleikur í Eimskipsbikarnum á Selfossi í kvöld kl. 19:30

eimskipsbikarinnÍ kvöld kl. 19:30 mætir Selfoss Stjörnunni í 8-liða úrslitum Eimskipsbikars karla. Búast má við fjörugum og skemmtilegum leik. Þó að Stjarnan eigi að heita sterkari á pappírunum og spili í úrvalsdeild er gott að muna að í bikarleikjum getur allt gerst og ekkert lið getur bókað sigur. FH og Grótta eru komin í 4-liða úrslit eftir sigra á Haukum og Stjörnunni 2 í gær. Fram og Valur eigast einnig við í kvöld. Nú er um að gera að fjölmenna á pallana og láta í sér heyra. Góður stuðningur getur skipt sköpum. Áfram Selfoss!!!

8.12.2008 | Handboltaakademía

Selfoss - Akureyri í 2. flokki - tölfræði

Eins og fyrr hefur komið fram þá tapaði Selfoss fyrir Akureyri í 2. fl. 33:34 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 19:17. Akureyri komst yfir í fyrsta skipti í leiknum á síðustu mínútu leiksins og unnu dramatískan sigur. Okkar menn spiluðu vel í þessum leik og hefði þessi frammistaða hiklaust dugað til sannfærandi sigra bæði á móti ÍR og Haukum. Tölfræði hér..

8.12.2008 | Handboltaakademía

Sigur á Þrótti í 1. deildinni

Síðasta föstudagskvöld vann Selfoss lið Þróttar í 1. deildinni. Selfoss tók frumkvæðið strax í leiknum og vann 11 marka sigur 36 - 25. Staðan í hálfleik var 18 - 10 fyrir okkar menn. Marga fastamenn vantaði í lið Selfoss, ýmist vegna meiðsla eða hvíldar, þar sem 2. fl. er að spila þétt þessa daganna. Þar af leiðandi fengu margir leikmenn að spreyta sig í leiknum sem ekki eru fastamenn í meistaraflokki.

7.12.2008 | Handboltaakademía

2. flokkur tapaði í hörkuleik fyrir Akureyri

Í gær töpuðu strákarnir í 2. flokki með 1 marki fyrir Akureyri í hörkuleik. Okkar menn höfðu frumkvæðið nánast allan leikinn og lentu ekki undir fyrr en á síðustu mínútunni. Akureyri er með frábært lið og því var svekkjandi að vera ekki fyrstir til vinna þá. Guðmundur Árni meiddist illa á upphafsmínútunum eftir blokkeringu línumanns Akureyrar og munaði gríðarlega um það í svona jöfnum leik. Tölfræði kemur vænatanlega eftir helgi.

7.12.2008 | Handboltaakademía

Hörmulegt tap í sirkusleik!

Í gær tapaði Selfoss-91 gegn heimamönnum í Þór í bikarkeppni HSÍ afar illa. Lokatölur 36-24 eftir að heimamenn leiddu 18-11 í hálfleik. Okkar menn sáu aldrei til sólar í leiknum og Þór vann verðskuldaðan sigur.

5.12.2008 | Handboltaakademía

Félagskvöld

6.kanóv08Miðvikudagskvöldið 3.desember s.l. var haldið svokallað félagskvöld fyrir alla krakkana sem æfa handbolta í 5. og 6. flokki stráka og stelpna. Einar Guðmundsson yfirþjálfari var með fyrirlestur um það hvaða þýðingu það hefur fyrir börn og unglinga að stunda íþróttir, um mikilvægi mataræðis, félagsþroska, liðsanda o.fl. Einnig var farið yfir framtíðarsýn og markmið. Að þessu loknu var horft á nokkur vel valin handboltamyndbönd og svo fór allur hópurinn í sund og skemmti sér hið besta.

4.12.2008 | Handboltaakademía

Frestað hjá 3. flokki og bikarleikur framundan

Leik Selfoss og Stjörnunnar í 3. flokki sem fram átti að fara í kvöld hefur verið frestað til miðvikudagsins 10. desember nk. Það er okkur lítt að skapi hér á Selfossi. Á laugardaginn er hins vegar bikarleikur á Akureyri kl. 13.30 gegn Þór og verður þar eflaust hart barist. Þórsarar eru erfiðir heim að sækja og verður þetta því verðugt verkefni fyrir strákana. Þeir hafa nefnilega margt að sanna eftir frekar slakan leik gegn Fram á dögunum.

4.12.2008 | Handboltaakademía

Gestaþjálfari í handboltanum

Laugardaginn síðastliðinn fengu strákarnir í 3. flokki góðan gest í heimsókn. Drengirnir voru búnir að nauða mikið í þjálfara sínum um að fá Venna Páer (Vernharð Þorleifsson) sem gestaþjálfara. Það vildu þeir þó vita að ekki yrði neitt um handbolta á æfingunni sem og vissu menn að þessi æfing yrði ekki auðveld. Sem og raunin varð.

4.12.2008 | Handboltaakademía

Akademían í jólamat hjá Rauða Húsinu

Síðasta sunnudagskvöld bauð Rauða Húsið Handboltaakademíunni í mat. Iðkendur hafa verið duglegir við æfingar og keppni og því var þetta vel til fundið hjá Rauða Húsinu. Boðið var upp á glæsilega 3ja rétta máltíð til að lyfta sér upp svona rétt fyrir prófin. Þetta er þriðja árið í röð sem Rauða Húsið býður í mat rétt fyrir jólaprófin og þökkum við í Handboltaakademíunni þeim kærlega fyrir boðið. Þúsund þakkir frá okkur til Rauða Hússins.

4.12.2008 | Handbolti

5. flokkur kvenna deildarmeistarar !!!

Stelpurnar í 5. flokki kvenna unnu um helgina efstu deild í sínum árgangi og eru því bestar á landinu um þessar mundir. Þær sigruðu alla sína leiki mjög örugglega og það eru þessar stelpur sem verða kjarninn í framtíðarlið Selfoss í kvenna handbolta. Liðið er undir stjórn Halldórs Stefáns Haraldssonar sem hefur gert frábæra hluti með þetta lið. Strákarnir stóðu sig líka vel því þeir unnu 2. deild A og færast því upp í 1. deild.

2.12.2008 | Handboltaakademía

Gamla myndin

Á þriðjudögum í vetur ætlum við að vera með gömlu mynd vikunar eins og í fyrra. Örn Grétarsson hjá Prentmet hefur lánað handknattleiksdeildinni fullt af myndum sem nú er búið að setja á tölutækt form. Fyrsta myndin er úr leik Selfoss og Fram í 1.deildinni 1992. Þarna á Einar Gunnar Sigurðsson línusendingu á Jón Þórir Jónsson sem nær til boltans þó stuttur sé. Gústaf Bjarnason fylgist spenntur með. Áhorfendapallanir troðfullir af áhorfendum.

2.12.2008 | Handboltaakademía

2. flokkur gerði góða ferð í Kópavoginn

Í gærkvöldi vann 2. flokkur karla góðan sigur á núverandi Íslandsmeisturum HK á útivelli, úrslitin urðu 28 - 37. HK hefur mörgum góðum leikmönnum á að skipa, en í lið þeirra vantaði í gær Ólaf Bjarka og Sveinbjörn, hvoru tveggja landsliðsmenn. Hjá Selfossi vantaði Guðmund Árna, Óskar Kúld og Baldur Þór sem er enn að jafna sig eftir aðgerð í haust.

2.12.2008 | Handboltaakademía

Góður sigur hjá stelpunum í 3 fl.

Á laugardaginn unnu stelpurnar í 3. flokki Val 30 - 19 eftir að hafa leitt í hálfleik 13 - 12. Vörn og markvarsla var góð eins og ávallt og sóknin lagaðist mikið þegar á leikinn leið. Allir leikmenn liðsins náðu að leggja eitthvað framlag til leiksins. Er það mjög jákvætt upp á framhaldið að það séu alltaf fleiri og fleiri leikmenn sem þora að beita sér í leikjum.

1.12.2008 | Handboltaakademía

92-liðið úr leik í bikarnum

Í kvöld tapaði 92-liðið í bikarnum gegn Hlíðarendapiltum úr Val. Leikurinn var jafn fyrri hluta fyrri hálfleiks upp í 8-8 og þá kom skelfilegur kafli og staðan orðin 9-15 fyrir Val. Okkar menn náðu að laga stöðuna fyrir leikhlé og staðan þá 13-16. Lokatölur urðu 24:33.

Á næstunni


www.fsu.iswww.arborg.iswww.husasmidjan.iswww.sghus.iswww.edalhus.isss.isvis.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta