Beint á leiðarkerfi vefsins

Handboltaakademía

Handboltaakademía - RSS

30.9.2008 | Handbolti

92-liðið leikur í 2. deild í vetur

92-lið 3. flokks karla lék um helgina í millirðli sínum sem skar úr um hvort liðið kæmist í efri eða neðri deild. Liðið þurfti að vinna að báða sína leiki til þess að eiga möguleika en jafnvel gat það farið þannig að þeir tveir sigrar dygðu ekki.

30.9.2008 | Handbolti

Tveir í liði vikunnar

Tveir Selfyssingar þeir Guðmundur Árni Ólafsson og Michal Dostalik voru valdir í lið 2. umferðar hjá handboltavefnum handbolti.is. Selfoss var einnig valið það félag sem var með bestu umgjörðina en um 400 áhorfendur voru á leiknum gegn ÍR. Selfoss fær reyndar athugasemdir um að koma ekki leikskýrslunni til skila á réttum tíma en þess má geta að faxtækið í íþróttahúsinu hefur verið bilað í 5 ár. Úr því þarf að bæta strax.

30.9.2008 | Handbolti

Skammarleg frammistaða

Á föstudaginn sl. tapaði Selfoss fyrir ÍR á heimavelli í næstefstu deild í handbolta. Leikurinn endaði 30-35 eftir að ÍR hafi leitt 15-16 í leikhléi. ÍR-ingar voru mun ákveðnari og áttu sigurinn svo sannarlega skilinn.

25.9.2008 | Handboltaakademía

Basti á ekki sjéns

Birkir Fannar Bragason, markmann Selfossliðsins, er kosinn var maður 1. umferðar í 1. deild karla um síðast liðna helgi. Hann var af því tilefni í létt spjall við handboltavefinn handbolti.is. Birkir verður í eldlínunni á morgun þegar Selfoss leikur sinn fyrsta heimaleik gegn ÍR í íþróttahúsi Vallaskóla. Leikurinn hefst kl 19:15.

21.9.2008 | Handbolti

Undankeppni 3.flokks karla

handboltamarkUm helgina fór fram undankeppni 3.flokks fyrir komandi tímabil. 91-liðið lék á Selfossi í riðli með KA, Gróttu, Þrótti og FH-2. 92-liðið lék í Strandgötu gegn Haukum, HK, Þór og Fjölni. 91-liðið vann alla sína leiki örugglega og er því komið í fyrstu deild. 92-liðið tapaði tveimur leikjum, gerði eitt jafntefli og vann einn. Liðið leikur í milliriðlum um næstu helgi.

20.9.2008 | Handbolti

Selfoss vann Gróttu 25-29 út á Nesi í kvöld í 1. deild karla

Grótta byrjaði að krafti í leiknum og komst m.a. í 4-0 en þá var eins og allt færi í baklás hjá Gróttu þar sem Selfoss náði að breyta stöðunni í 6-12.  Skömmu fyrir leikhlé náði Grótta að minnka muninn í þrjú mörk og staðan var því 11-14 í hálfleik. Jafnræði var með liðunum í upphafi seinni hálfleiks. Um miðjan seinni hálfleik hafði Grótta tækifæri á að ná tveggja marka forystu í stöðunni 22-21 en Zoltan Belaný náði ekki að nýta sitt færi. Selfoss var síðan sterkari á endasprettinum og vann að lokum góðan fjögra marka sigur á Gróttu 25-29.

20.9.2008 | Handbolti

Selfoss sigraði á Seltjarnarnesi

Selfyssingar gerðu góða ferð á Seltjarnarnesið í 1. deild handboltans í kvöld en aðkomumennirnir sigruðu lið Gróttu, 29:25. Var þetta fyrsti leikur beggja liða í deildinni en báðum er spáð góðu gengi. Var leikurinn þó afar kaflaskiptur og mikið var um mistök sem eðlilegt verður að teljast í fyrsta leik. Grótta komst snemma vel yfir í leiknum en misstu það niður og var staðan 11:14 í leikhléi.

 

19.9.2008 | Handbolti

Bjarkir Sigurðsson spáir Selfossi sigri

Bjarki Sigurðsson, fyrrverandi landsliðsmaður sem og fyrrverandi þjálfari Aftureldingar, spáir í hvernig liðunum muni ganga í 1. deildinni í vetur á handbolti.is og hann eins og svo margir aðrir spá Selfossi sigri í deildinni. Selfoss leikur sinn fyrsta leik í deildinni í kvöld kl 19:30 gegn Gróttu á Seltjarnarnesi.

19.9.2008 | Handbolti

Morgunblaðið fjallar um 1. deildina

Keppni í 1. deild karla í handknattleik, næst efstu deild, hefst í kvöld með þremur leikjum sem allir hefjast klukkan 19.30. ÍR tekur á móti nýliðum ÍBV í íþróttahúsinu Austurbergi, Afturelding sækir Þrótt heim í Laugardalshöll og Grótta fær Selfoss í heimsókn í íþróttamiðstöðina á Seltjarnarnesi.

18.9.2008 | Handboltaakademía

Sebastian í viðtali

Sebastian Alexandersson, þjálfari meistaraflokks handknattleiksdeildar sem spáð er efsta sæti í 1. deild karla, var í athyglisverðu viðtali á handbolti.is um veturinn framundan. Þar var hann meðal annars spurður um möguleika liðsins í vetur, væntingar og framtíðarhorfur.

17.9.2008 | Handboltaakademía

Selfoss spáð sigri í 1.deild karla

Selfoss er spáð sigri í 1.deild karla af fyrirliðum, þjálfurum og forráðamönnum annara liða í fyrstu deildinni í vetur. Þetta sýnir að önnur lið hafa mikla trú á hinu unga liði Selfoss og því uppbyggingarstarfi sem unnið hefur verið í handboltanum á Selfossi undanfarin ár. Það er því ljóst að það er skemmtilegur vetur framundan í handboltanum og framtíðin lofar góðu.

17.9.2008 | Handboltaakademía

´94 strákarnir með yfirburði

Strákarnir í 4.flokki karla B-liða fæddir 1994 stóðu sig vel í undankeppninni fyrir deildarskiptingu íslandsmótsins í handbolta. Þeir léku í Hafnarfirði og sigruðu alla sína leiki með yfirburðum og verða í 1.deild í vetur. Drengirnir fæddir 1993 eða 4.flokkur A-lið fóru norður á Akureyri og léku tvo leiki gegn sterkum liðum KA og Gróttu og töpuðu báðum en komast þó í milliriðil og eiga enn möguleika á að verða í 1.deild.

5.9.2008 | Handboltaakademía

Æfingatímar handboltans

handboltakallÆfingar handknattleiksdeildar eru nú komnar í fullan gang, iðkendum hefur fjölgað mikið í haust og er það eflaust góðu gengi íslenska handboltalandsliðsins að þakka. Sannkallað handboltaæði hefur gripið um sig og krakkar leika sér í handbolta um alla ganga í skólunum. Hinsvegar er engin útihandboltavöllur á Selfossi og er það verr. Vel heppnað grunnskólamót var í vikunni og voru þar þó nokkrir sem stigu sín fyrstu spor á handboltavellinum. Handknattleiksdeild hefur reyndar aðeins færri æfingatíma til umráða í vetur vegna mikilla þrengsla í íþróttahúsum bæjarins. Það er nokkuð ljóst að það þarf að byggja nýtt íþróttahús á næstu árum og spurning um hvort það eigi ekki að fara í forgang í uppbyggingu íþróttamannvirkja. Æfingatímar hafa verið auglýstir í staðarblöðum og hanga upp í íþróttahúsinu í Vallaskóla. Æfingatímar eru sem hér segir :

2.9.2008 | Handboltaakademía

Grunnskólamót í handbolta

Fimmtudaginn 4. september fer fram Grunnskólamót í handbolta. Leikið verður með minni-bolta reglum; þ.e. lítill völlur, mjúkur bolti, færri reglur og allir geta tekið þátt. Allir sem vilja mega koma og taka þátt. Skipt verður í lið á staðnum en reynt að keppa eftir bekkjardeildum. Allir þjálfarar handknattleiksdeildar verða á staðnum og athuga hvort framtíðar landsliðsmenn leynist ekki í hópnum.

 

 


Á næstunni


www.fsu.iswww.arborg.iswww.husasmidjan.iswww.sghus.iswww.edalhus.isss.isvis.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta