Beint á leiðarkerfi vefsins

Handboltaakademía

Handboltaakademía - RSS

30.1.2009 | Handboltaakademía

Sigur hjá 3.flokki í gær

91-lið Selfoss í flokki vann Hauka úr Hafnarfirði með 24ja marka mun í gærkvöld, 46-22 eftir að hafa leitt 18-11 í hálfleik. Selfoss lék afar vel á köflum í leiknum og menn sem voru skuldum vafnir eftir leik sama liðs gegn HK á dögunum greiddu aðeins til baka í gærkvöld. Tölfræði kemur eftir eða um helgi en gleðifréttirnar eru þær að Matthías gat leikið aðeins í gær og skoraði nokkur falleg mörk með þrumuskotum og stóð vörnina vel og þá er Andri Halls að braggast sem og Aðalsteinn. Enda hefur þjálfari liðsins fyrir löngu síðan bannað meiðsli og veikindi.

Á morgun leikur 92-liðið heima kl 16 gegn Þrótturum úr Laugardal og á sunnudaginn er aftur leikur hjá 91-drengjum, nú á útivelli gegn Valsmönnum og fer leikurinn fram að Hlíðarenda kl 18.30.

29.1.2009 | Handboltaakademía

Gamla myndin

Gamla myndin að þessu sinni er tekin þegar Siggi Sveins hellir vatni yfir Einar Þorvarðar í miðju sjónvarpsviðtali við Arnar Björnsson eftir leik keppnistímabilið 1992-1993.

29.1.2009 | Handboltaakademía

Leikur hjá 3.flokki í kvöld

Í kvöld koma Haukar úr Hafnarfirði í heimsókn til 91-liðsins og hefst leikurinn kl 21.00 í Vallaskóla.

Um hörkuleik er að ræða eins og venja er hjá þessum flokki. Mikið er um meiðsli hjá 91-liðinu en Matthías og Aðalsteinn Halldórssynir eru báðir meiddir og ekki með í kvöld og þá hefur Andri Hallsson einnig verið meiddur.

Á laugardaginn kl 16 í Vallaskóla koma svo Þróttarar í heimsókn og leika við 92-liðið.

29.1.2009 | Handboltaakademía

Stelpurnar töpuðu í hörkuleik

Stelpurnar fóru í Garðabæ um helgina og kepptu við Stjörnuna í 3 sinn í vetur. Fyrstu tveir leikirnir voru gríðarlega spennandi og ekki varð breyting á því á sunnudaginn. Fyrsti leikurinn endaði jafntefli, sá næsti í Bikarkeppninni endaði með 1 marks sigri Stjörnunnar og þessi leikur gerði það sömuleiðis. Lokastaðan var 26 - 25 en staðan í hálfleik hafði verið 11 - 16 fyrir Selfoss.

27.1.2009 | Handboltaakademía

2 fl. í undanúrslit í bikarnum eftir dramatískan leik

Í gærkvöldi mættust Afturelding og Selfoss í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar í 2 flokki í Mosfellsbæ. Selfoss vann leikinn eftir tvær framlengingar með minnsta mun 36 - 37 og allt of stórum skammti af dramatík og spennu. Leikurinn var "ekta" bikarleikur sem bauð upp á allt sem hægt er að hugsa sér í handboltaleik.

26.1.2009 | Handboltaakademía

Mikið um meiðsli í 2 fl. og m.fl.

sjóliÞað er með ólíkindum hvað leikmenn liðanna tveggja hafa verið óheppnir með meiðsli upp á síðkastið. Alls hafa hvorki né færri en 12 leikmenn úr 20 manna æfingahópi verið eitthvað frá síðustu vikur. Hér fyrir neðan er listinn..

26.1.2009 | Handboltaakademía

Tveir sigrar hjá 2 flokki

Á undanfarinni viku spilaði 2 flokkur tvo leiki, báða á heimavelli, á móti Stjörnunni og Fjölni. Báðir leikirnir unnust sannfæarandi og er 2 flokkur kominn á smá skrið, loksins segja sumir. Fyrri leikurinn á móti Stjörnunni fór 35 - 25 og sá síðari á móti Fjölni 35 - 23.

26.1.2009 | Handbolti

Meistaraflokkur í 2. sæti eftir sigur á Haukum U

Á laugardaginn unnu strákarnir okkar gríðarlega mikilvægan sigur á Haukum á útivelli. Lokatölur urðu 21 - 29 en í hálfleik var 10 - 18. Það vantaði talsvert í lið Selfoss vegna meiðsla en með góðri vörn og frábærum hraðaupphlaupum í fyrri hálfleik vannst sigur á erfiðum útivelli þar sem bestu lið deildarinnar hafa öll tapað eða þá unnið nauma sigra.

23.1.2009 | Handboltaakademía

Staðan í 3. flokki 2. deild

Svipuð staða er uppi í 2. deild 3. flokks karla. Þar hafa okkar menn staðið sig vel og hér er einnig ómögulegt að spá fyrir um lokastöðu. Ekki síst þar sem tvö bestu liðin FH og við á Selfossi munum væntanlega færa bestu leikmenn B-liða sinna í A-liðin áður en tímabilið er úti. Selfoss er búið að fara á afar erfiða útivelli gegn Þrótti og UMFA og sótt þar sigur í báðum leikjum. Sem og er liðið búið að leika gegn Gróttu á útivelli eins og frægt er og tapaði þar, óverðskuldað.

23.1.2009 | Handboltaakademía

Staðan í 3. flokki 1. deild

Keppni í 1. deild í 3. flokki karla er mjög jöfn og spennandi. Selfoss er búið að fara á afar erfiða útivelli þar sem Haukar og ÍR spila og sóttu þar fjögur stig. Einnig er liðið búið að fara norður en tapaði þar báðum leikjum fyrir stuttu. Sennilega ræðst það ekki fyrr en í lok tímabilsins hvar liðin enda og ómögulegt að segja hvernig það allt saman fer.

22.1.2009 | Handboltaakademía

91-liðið vann í gær en lék afar illa

Selfyssingar í 91-liðinu sóttu HK menn heim í gærkvöld, ljóst var að um hörkuleik væri að ræða þar sem HK-ingar eru með gott lið og afar færan þjálfara. Það varð svo raunin og eftir mikinn barning og þrautagöngu unnu okkar menn með einu marki, 30-29.

20.1.2009 | Handboltaakademía

92-liðið tapaði í sirkusleik

Um síðustu helgi lék 92-lið okkar á Selfossi gegn Gróttu á Seltjarnarnesi. Sá leikur tapaðist 26-27 í mikilli sirkussýningu. Selfoss byrjaði mun betur og komst í 11-6 en heimamenn náði að minnka muninn í 12-11 fyrir leikhlé.

19.1.2009 | Handboltaakademía

Mikilvægur sigur hjá 2. flokki á móti ÍR

Hið meiðslum hrjáða lið 2. flokks þjappaði sér saman og spilaði góðan leik á móti sterku liði ÍR sem var í 3. sæti fyrir þennan leik. ÍR vann fyrri leik liðanna á Selfossi og því var mikilvægt að ná sigri í Reykjavík. 2. flokkur virðist vera að ná áttum nú um áramót og nóg er eftir af mótinu þannig að enn má stefna á að ná í úrslit. Leikurinn endaði 32 - 38 en í hálfleik var staðan 13 - 17.

19.1.2009 | Handboltaakademía

Sigur á Fjölni í Meistarafokki

Síðasta föstudagskvöld mættu Fjölnismenn á Selfoss. Leikurinn endaði 32 - 22 fyrir Selfoss en staðan í hálfleik var 11 - 10 fyrir okkar menn og máttu þeir teljast heppnir að vera ekki undir í hálfleik. Marga leikmenn vantar í Selfossliðið um þessar mundir en það er enginn afsökun. Okkar menn spiluðu betur í síðari hálfleik og unnu. Þrír leikmenn úr 3 flokki spiluðu sinn fyrsta leik fyrir hönd félagisns og stóðu sig allir vel.

15.1.2009 | Handboltaakademía

Norðurferð 3. flokks

Síðastliðna helgi fór A-lið 3.flokks norður til Akureyrar og lék á laugardegi við KA og á sunnudegi við Þór. Báðir leikir þessir töpuðust en voru þeir þó misjafnlega leiknir af okkar mönnum.

14.1.2009 | Nýjustu fréttir

Sýndu hvað í þér býr

NámskeiðsteikningMiðvikudaginn 21. janúar næstkomandi verður haldið félagsmálanámskeið í Tíbrá sem ber yfirskriftina "Sýndu hvað í þér býr". Farið verður í ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku, fundahöldum og félagsmálastörfum. Námskeiðið er einungis ein kvöldstund þ.e. frá kl. 18:00-22:00. Framkvæmdastjórn Umf. Selfoss hefur ákveðið að bjóða öllum félögum í Umf. Selfoss frítt á námsekiðið. Sjá nánar... 

12.1.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur gerði jafntefli við Víking

Á sunnudaginn komu 2. flokkur Víkings í heimsókn en þeir hafa 3 landsliðsmenn úr U-20 innanborðs. Leikurinn endaði 31 - 31, en í hálfleik var einnig jafnt 16 - 16. Í lið Selfoss vantaði Baldur, Gumma og Eyþór vegna meiðsla og þá gat Óskar Kúld lítið sem ekkert beitt sér, líka vegna meiðsla.

12.1.2009 | Handboltaakademía

Stelpurnar töpuðu fyrir ÍR

Besta lið deildarinnar, ÍR, kom í heimsókn á laugardaginn en þær hafa ekki tapað leik í vetur. Okkar stelpur spiluðu líklega sinn besta handbolta í vetur síðustu 40 mín. leiksins en slæm byrjun varð þeim að falli að þessu sinni. Leikurinn endaði 23 - 28 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 13 - 16. Þær voru komnar 8 - 16 undir eftir 20 mín. en eftir það var baráttan og viljinn til fyrirmyndar og voru þær betri en toppliðið það sem eftir lifði leiks.

10.1.2009 | Handbolti

Meistaraflokkur byrjar árið vel

BirkirÁ fimmtudagskvöldið komu Eyjamenn í heimsókn og léku við Selfoss í 1. deildinni. Í bæði lið vantaði mikilvæga leikmenn vegna meiðsla og annarra fjarvista. Ljóst var strax í upphafi í hvað stefndi því okkar menn tóku öll völd á vellinum og héldu þeim til loka leiksins. Hálfleikstölur voru 19:6 og lokatölur 35:18. Tölfræði og nánari umfjöllun...

8.1.2009 | Handbolti

Fyrsti leikur meistaraflokks á nýju ári er í kvöld

HSI_logoKeppni í 1. deild karla hefst að nýju í kvöld með leik Selfoss og ÍBV í Vallaskóla og hefst leikurinn kl. 19:30. Selfyssingar eru í 2.-3 sæti ásamt ÍR-ingum með 16 stig að loknum 11 umferðum. Grótta er tveimur stigum ofar og því efst í deildinni. Eyjamenn eru í 6. sæti með 8 stig. Selfoss vann fyrri leik liðanna í Eyjum í miklum markaleik 34:42.

Á næstunni


www.fsu.iswww.arborg.iswww.husasmidjan.iswww.sghus.iswww.edalhus.isss.isvis.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta