Í síðustu viku lék 2.flokkur tvo leiki gegn Val. Þann fyrri í bikarnum heima á Selfossi og hinn síðari að Híðarenda.
Nú er keppnistímabil yngri flokka í handknattleik um það bil rúmlega hálfnað. Þegar staða allra flokka er skoðuð kemur í ljós að Selfoss á lið í fremstu röð í öllum flokkum. Selfoss er með lið í efstu deild í öllum flokkum, ásamt því að tefla fram b-liði í 2.deild í öllum flokkum. Ljóst er að fá félög sem geta státað af viðlíka árangri. Auk þess urðu strákarnir í 5. flokki í öðru sæti á Norðurlandamóti félagsliða á dögunum.
Heimasíðan hafði samband við þjálfara mfl. varðandi stöðuna á liðinu og gengið á æfingum núna í aðdraganda seinni hluta Íslandsmótsins. Liðið er aðeins 2 stigum frá því að komast í umspilssæti og aðeins 6 stigum frá öruggu sæti. Hins vegar eru enn 20 stig í pottinum.
Ragnar var í heimsókn hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Gummersbach um síðustu helgi og æfði þar með liðinu. Ragnar stóð sig það vel að þeir vildu fá hann aftur út til þess að skoða hann betur. Ragnar fer út í fyrramálið og mun um helgina spila með þeim 2 æfingaleiki í Frakklandi. Þetta eru góðar fréttir fyrir Ragnar og viðurkenning fyrir haldboltastarfið á Selfossi. Við óskum honum alls hins besta í ferðinni.
Selfoss-2 í 3. flokki (94-liðið) lék síðasta laugardag heima gegn Fjölnismönnum og unnu örugglega 37-24 en heimamenn leiddu í hálfleik 18-10.
Síðastliðinn fimmtudag kom landsliðsmaðurinn Logi Geirsson í heimsókn á Selfoss og stjórnaði æfingu hjá 5. fl. drengja og stúlkna, ásamt því að halda fyrirlestur um hvað þarf til að ná árangri í handbolta. Logi brýndi fyrir krökkunum mikilvægi hollrar næringar, svefns, reglusemi og mikilvægi þessa að setja sér markmið og leiðir að markmiðunum. Það voru þau Soffía Pálsdóttir og Ásgeir Vilhjálmsson sem höfðu veg og vanda að komu Loga á Selfoss....
Um helgina lék Selfoss-2 í 3. flokki alls þrjá leiki á norðurlandi um helgina, tvo á Akureyri og einn á Húsavík. Strákarnir unnu Þórsara og Völsunga á laugardeginum en þurftu að játa sig sigraða gegn KA-2 á sunnudeginum. Vissulega tók það mikið á að spila þrjá leiki á innan við sólarhring, sér í lagi þar sem leikirnir við Þór og Völsung voru grófir og tóku mikið á líkamlega. Áttu strákarnir því ekki mikla orku í leiknum gegn KA-2.
3.flokkur Selfoss þetta tímabilið er afar fjölmennur. Rétt um 30 strákar æfa handbolta með þessum flokki og er því nóg um að vera er kemur að samkeppni, samheldni og dugnaði. Þessi hópur er skemmtilegur að mati síðuritara og hefur hann haft gaman af því að horfa á liðin leika.



