14.12.2011 | Handboltaakademía
Í gærkvöldi unnu strákarnir í 3. flokki lið Aftureldingar í hörkuleik með minnsta mun 24-23. Staðan í hálfleik var 12-11 fyrir Selfoss.
13.12.2011 | Handboltaakademía
Stelpurnar unnu lið Fylkis3 í deildinni í gær á útivelli 18-22. Staðan í hálfleik var 9-12 fyrir Selfoss. Fylkir3 sem er efst í 2. deild var þarna að tapa sínum fyrsta leik í deildinni í vetur.
12.12.2011 | Handbolti
FH-ingar sóttu ákveðna og grimma okkar menn í 2.flokki heim í gær. Fór svo að okkar menn höfðu sigur 32 - 27 eftir að hafa haft yfir í hálfleik 17 - 15.
11.12.2011 | Handboltaakademía
Í gær fóru stelpurnar í A liðinu í Kaplakrika til að mæta FH. Leikurinn vannst 29-18 en staðan í hálfleik var 15-6.
8.12.2011 | Handboltaakademía
Ragna Valdís Sigurjónsdóttir leikmaður meistaraflokks kvenna varð fyrir því óláni að slíta krossband í hné á æfingu á dögunum og verður ekkert meira með á þessu keppnistímabili. Þetta er mikið áfall fyrir Selfoss liðið sem er í harðari toppbaráttu í 2.deild Íslandsmótsins.
8.12.2011 | Handboltaakademía
Í gær unnu stelpurnar Fylki3 sem eru efstar og taplausar í 2. deildinni sem Selfoss er einnig þátttakandi í og það á útivelli. Þær létu það ekkert á sig fá slógu toppliðið út og eru komnar í 8-liða úrslit Bikarkeppninnar. Leikurinn endaði 24-31 en staðan í hálfleik var 11-14 fyrir Selfoss.
7.12.2011 | Handbolti
Um síðastliðna helgi sótti 2. flokkur Garðbæinga heim og höfðu okkar menn sigur 27-24 eftir að hafa yfir í leikhléi 15-12.
5.12.2011 | Handboltaakademía
Í gær unnu stelpurnar lið Fjölnis 34-21 í Vallaskóla. Staðan í hálfleik var 16-13 fyrir Selfoss. Góður sigur hjá stelpunum að þessu sinni.
4.12.2011 | Handboltaakademía
Strákarnir í 3 fl. kk. héldu áfram á sigurbrautinni í gær þegar þeir unnu Stjörnuna á útivelli 32-40. Staðan í hálfleik var 18-19 fyrir okkar stráka.
4.12.2011 | Handboltaakademía
Á föstudagskvöldið tóku stelpurnar á móti liði Aftureldingar. Leikurinn vannst 23-19 eftir að staðan hafi verið 11-8 í hálfleik fyrir Selfoss. Frábær vörn og markvarsla skóp þennan sigur í síðasta leik ársins hjá stelpunum í Mfl.
1.12.2011 | Handbolti
Kökubasar í Kjarnanum á föstudag
Föstudaginn 2. desember verður 4. flokkur kvenna í handbolta með kökubasar í Kjarnanum frá kl. 13. Til sölu verða tertur, smákökur, lagkökur o.fl. Kökubasar þessi er liður í fjáröflun stelpnanna fyrir ferð á Norden Cup í handbolta nú um jólin.