Hálfur mánuður var liðinn frá síðasta leik og tæpur mánuður síðan að liðið spilaði síðast á heimavelli. Í upphafi leiks var því talsvert um ákafa og voru menn að reyna að gera of mikið í einu á mjög skömmum tíma. Mikið af opnum tækifærum fóru forgörðum en vörnin hélt þó frá upphafi.
Fjölnismenn hafa bætt sig verulega í vetur og náðu að halda í við Selfoss fyrstu 25 mín. í leiknum. Þá var staðan 11-8 fyrir okkar menn. Þó var engin óþolinmæði né einbeitingaleysi sjánlegt á liðinu. Á síðustu 5 mín. fyrri hálfleiks hrökk allt í réttan gýr og staðan í hálfleik var 16-8. Þessi 5-0 kafli okkar manna varð svo bara byrjunin á því sem koma skyldi. Síðari hálfleikur byrjaði á sömu nótum og jafnt og þétt jókst munurinn þar til að í leikslok var kominn 17 marka munur. Lokatölur 34-17.
Þó nokkuð er um meiðsli í liðinu og því nokkur ný andlit í leikmannahópnum að þessu sinni. Trausti Eiríksson og Gunnar Ingi Jónsson spiluðu sína fyrstu deildarleiki í vetur og þá fengu Sveinbjörn Jóhannsson, Matthías Halldórsson og Atli Hjörvar Einarsson að spila en enginn þeirra hefur verið reglulega í hóp í vetur. Það er óhætt að segja að allir hafi staðið sig vel og liðið virkaði sem ein heild. Allir leikmenn fengu talsvert að spila og alls 12 náðu að skora mark í leiknum. Ívar Grétarsson stóð þó upp úr og spilaði sinn besta leik í vetur.
Markaskorarar:
Atli Kristinsson 7
Ívar Grétarsson 5
Ragnar Jóhannsson 4
Matthías Halldórsson 3
Sveinbjörn Jóhannsson 3
Hörður Bjarnarson 2
Hörður Másson 2
Trausti Eiríksson 2
Gunnar Ingi Jónsson 2
Ramunas Mikalonis 2
Atli Hjörvar Einarsson 1
Birkir Bragason 1
Ástgeir Sigmarsson spilaði fyrri hálfleikinn og varði 9 skot og fékk á sig 8 mörk
Birkir Bragason spilaði síðari hálfleikinn og varði 12 skot og fékk á sig 9 mörk
Nú kemur aftur hálfsmánaðar pása á milli leikja þar sem Selfoss situr hjá í 3. umferð 3. umferðar. Næsti leikur verður því á heimavelli á móti ÍR FIMMTUDAGINN 18. mars. kl. 19:30. Leikurinn er á fimmtudegi þar sem húsið er upptekið vegna fjölliðamóts þessa helgi í 5 fl. kvenna.
Áfram Selfoss



