Beint á leiðarkerfi vefsins

Handboltaakademía

Handboltaakademía - RSS

8.3.2010 | Handboltaakademía

93-liðið vann Víking heima

Heimamenn í Selfoss-2 í 3. flokki unnu í gær gesti sína úr Fossvoginum örugglega 39-26. Í hálfleik stóð 18-11. Sigurinn var aldrei í hættu og leiddu okkar menn alltaf með a.m.k. sex mörkum eftir að sú forusta náðist. Margir góðir hlutir sáust í leiknum og augljóst að menn hafa bætt sig mikið í vetur. Það er jú það sem skiptir öllu máli.

Vörn og markvarsla gekk ágætlega lengstum í leiknum og þá var sóknarleikurinn fínn eins og 39 mörk gefa til kynna.

Markaskor: Bjössi 7, Janus 7, Gísli Ax 6, Árni Geir 6, Gabbi 5, Jói Jón 4, Ingimar 2 og Sverrir 2. Bogi Thorarensen varði 24 skot og eitt víti.


Á næstunni


www.fsu.iswww.arborg.iswww.husasmidjan.iswww.sghus.iswww.edalhus.isss.isvis.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta