Beint á leiðarkerfi vefsins

Handboltaakademía

Handboltaakademía - RSS

8.3.2010 | Handboltaakademía

Góður leikur hjá 92 en dugði því miður skammt

Í gær sóttu okkar menn í Selfoss-1 í 3. flokki Stjörnumenn heim í Garðabæinn. Leikurinn var hraður og mjög fjörugur og óhætt að segja að hiti hafi verið í húsinu og þá aðallega heimamönnum sem sættu sig ekki við mótspyrnu gesta sinna. Leikurinn endaði 38-34 fyrir Stjörnuna en okkar menn leiddu 21-18 í hálfleik.

Selfyssingar komust í 13-7 í fyrri hálfleik en leikurinn jafnaðist svo aðeins. Stjörnumenn náðu að jafna snemma í síðari hálfleik og komast yfir í fyrsta sinn er um 16 mínútur voru eftir. Leikurinn var í járnum það sem eftir lifði. Heimamenn áttu ekki von á mótspyrnu og höguðu sér samkvæmt því. Okkar mönnum var sýnd mikil vanvirðing og voru kallaðir mörgum ljótum nöfnum. Þá voru aðstandendur liðsins ekki látnir óáreittir er kemur að fúkyrðum. Orð eins og skítapakk og skítalið voru notuð óspart. Bæjarfélagið Selfoss fékk líka sína útreið. Síðuritari vill ekki hafa sum orðanna eftir.

Síðuritari man eftir leik liðanna í fyrra og hér umfjöllunin um þann leik: http://umfs.is/handbolti/forsida-handbolti/nr/2154/  Það virðist vera sem Selfoss fari í fínustu taugar einhverra en það er lítið sem við getum gert að því.

Strákarnir í Selfossliðinu stóðu sig vel í leiknum en náðu því miður ekki að knýja fram sigur en þeir áttu svo sannarlega möguleika. Toni meiddist sem dæmi snemma leiks og náðu ekki að leika meira. Það munaði þar afar miklu um.

Liðið náði að fylgja eftir stórleik sínum gegn FH fyrir stuttu er liðið vann óvænt. Selfyssingar fóru illa með nokkur góð færi í seinni hálfleik, hefðu þau farið inn er aldrei að vita hvernig leikurinn hefði endað. Ketill t.d. var ólíkur sjálfum sér í hve miklum fjölda færa hann misnotaði en hann mun koma sterkur til baka að mati ritara. Síðuritari heyrði lítillega í Adda þjálfara og vildi spyrja hann út í leikinn og framkomuna en hann vildi lítið tjá sig um hið síðara. Sagði hann liði sitt hefði átt að vinna en nýttu ekki sín færi til þess. Tók hann fram að liðið væri á réttri leið og væri með fleiri stig hefðu menn spilað meira með hjartanum líkt og í síðustu tveimur leikjum. Hann var fullviss um að liðið ynni alla þá leiki sem það ætti eftir.

Sjálfur er síðuritari nokkuð sáttur við leikinn en fannst vörnin ekki nægjanlega góð.

Tölfræði:

Einar 12 mörk og 5 stoðsendingar

Ketill 7 mörk  og 4 fráköst

Maggi 6 mörk

Felix 3 mörk og 5 stoðsendingar

Jóhann Gylfi 3 mörk og 10 brotin fríköst

Toni 2 mörk

Ingvi 1 mark og 6 brotin fríköst

Axel varð 7 skot og fékk á sig 32 en Bogi varði 5 (eitt víti) og fékk á sig 6.


Á næstunni


www.fsu.iswww.arborg.iswww.husasmidjan.iswww.sghus.iswww.edalhus.isss.isvis.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta