Eins og á móti Víkingum síðasta þriðjudag þá var sóknarleikurinn frekar slappur og lítið um hraðaupphlaup. Í staðinn virðist sem varnarleikur og markvarsla sé að styrkjast verulega. Það er vissulega ánægjulegt að þessir hlutir séu í lagi enda nauðsynlegir til að ná árangri.
Það vantar þó nokkuð í liðið vegna meiðsla og því lítil breidd í hópnum. Hins vegar þá virðist það ekki koma mikið niður á liðinu hvað varðar kraft og vilja til að spila vörn. Vissulega sér á úthaldinu og menn eru þreyttari og hægari en vanalega enda sumir að spila sinn 3 leik á 5 dögum í leiknum við FH.
FH hafði frumkvæðið framan af leik en um miðjan síðari hálfleik náðu okkar menn frumkvæðinu og náðu síðan mest 4 marka forystu þegar um 4 mín. voru til leiksloka. En fyrir frekar klaufalegar brottvísanir okkar manna þá náðu FH-ingar að hleypa spennu í leikinn í lokin enda leikmanni fleiri megnið af þeim kafla. Strákarnir náðu að halda forystunni og skora síðasta mark leiksins tæpum 10 sekúndum fyrir leikslok. Lokatölur 21-23 fyrir Selfoss.
Nú á liðið 2 heimaleiki eftir og hefur enn ekki tapað leik á heimavelli en þrátt fyrir að þeir klári þá leiki þá er deildarmeistaratitillinn ekki í sjónmáli nema Akureyri eða Haukar klúðri sínum málum allsvakalega. Nú er tapleikurinn á móti Val/Þrótti í upphafi móts að koma frekar fast í bakið á okkar mönnum.
Markaskorarar á móti FH
Raggi 8
Einar 4
Kúldi 3
Eyþór 2
Sjóli 2
Sveinbjörn 2
Trausti 1
Matti 1
Ástgeir varði 16 skot og fékk á sig 21 mark
Helgi varði 2 víti (bæði sem hann kom inná til að verja)



