Dagana 8.-10. júní verður fræðslunefnd HSÍ með þjálfaranámskeið í tengslum við landsleiki Íslands og Danmerkur.
Meðal fyrirlesara verða Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, Ulrik Wilbek, landsliðsþjálfari Danmerkur, Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður og Aron Kristjánsson, þjálfari Íslandsmeistara Hauka.
Nánari dagskrá verður send út þegar nær dregur.
Verð á námskeiðið er kr. 12.500 og eru miðar á landsleiki Íslands og Danmerkur innifaldir ásamt léttum veitingum.
Skráning fer fram á
robert@hsi.is fyrir þriðjudaginn 1.júní.
Nánari upplýsingar,
Róbert Geir Gíslason
Starfsmaður HSÍ
Engjavegi 6, 104 Reykjavík
Sími: 514-4202 / Fax: 514-4201
GSM: 820-0552
robert@hsi.is
http://www.hsi.is/