Björgvin Þór Björgvinsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í handknattleik og verður því hægri hönd Sebastians Alexanderssonar þjálfara. Björgvin Þór var aðstoðarþjálfari Fram 2005-2006 þegar liðið varð Íslandsmeistari undir stjórn Guðmundar Þ. Guðmundssonar. Björgvin lék 48 landsleiki sem leikmaður með KA og Fram á árunum 1995-2001.
Björgvin er fæddur 1972. Hann hóf feril sinn hjá Breiðabliki, en lék með KA 1995-1998. Á þeim árum varð KA deildarmeistari 1996 og 1998, bikarmeistarar 1996 og Íslandsmeistari 1997. Árin 1998-2003 og 2005-2006 lék hann með Fram og varð bikarmeistari 2000 og Íslandsmeistari 2006.
Björgvin var aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki Fram 2005-2006 og þjálfaði 2. flokk karla. Árin 1998-2001 og 2004-2005 þjálfaði hann yngri flokka hjá Fram. Björgvin hefur auk þess sinnt knattspyrnuþjálfun hjá 3. flokki Völungs 1995 og 1999 og 7. og 6. fl. karla árið 1999.
Björgvin sagðist í viðtali við heimasíðuna hafa spilað með Basta hjá Fram 1998-2003 og að hann teldi sig þekkja hann ágætlega. Þeir hafi náð ágætlega saman jafnt innan vallar sem utan. Kvað hann mjög spennandi að koma aftur inn í handboltann. Það væri ótrúlegt að Selfoss skuli vera með lið í efstu deild bæði í handbolta og fótbolta og spila nánast eingöngu á heimamönnum.



