Einn aðalskipuleggandi mótsins síðustu ár hefur verið þjálfari mfl. karla, Sebastian Alexandersson. Heimasíðan spurði hann um þessar miklu vinsældir mótsins:
Það er verulega ánægjulegt hversu vel hefur til tekist með enduruppbyggingu mótsins síðustu ár. Við í deildinni höfum lagt mikla vinnu í það að auka vinsældir mótsins aftur. Ragnarsmótið var á sínum tíma ásamt Sjallamótinu á Akureyri fastur punktur í undirbúningi liðanna. Mótið hafði svo gott sem lagst af þegar ég kom hér til starfa fyrir 8 árum og það fyrsta sem við gerðum í sameiningu var að hefja mótið aftur til vegs og virðingar. Það virðist hafa tekist. Það er fáheyrt að liðin séu að skrá sig á mótið strax í maí þegar tímabilinu er bara nýlokið.
Ég vil einnig nota tækifærið og þakka VÍS fyrir stuðninginn síðustu 2 ár en þeir hafa styrkt mótið sérstaklega sem kemur sér vel enda fylgir mótinu þó nokkur kostnaður og engar eru tekjurnar þar sem ekkert þátttökugjald er til staðar. Það má heldur ekki gleyma því að mótið er haldið í minningu um Ragnar Hjálmtýsson sem lést í bílslysi aðeins 18 ára gamall og mótið er ávallt góð áminning um það hversu miklu forvarnir í umferðarmálum skipta máli.
Að lokum gleður það mig að tilkynna það að SportTV hefur þegar staðfest það að þeir muni sýna beint frá mótinu aftur í haust sem eru frábærar fréttir fyrir okkur.
21. Ragnarsmótið
1.- 4. september 2010
| A-riðill | B-riðill | |
| HK | Haukar | |
| FH | Fram | |
| Selfoss | Valur |
Miðvikudagur 1. sept:
HK – FH => kl. 18:30
Haukar – Fram => kl. 20:00
Fimmtudagur 2. sept:
HK – Selfoss => kl. 18:30
Haukar – Valur => kl. 20:00
Föstudagur 3. sept:
Selfoss – FH => kl. 18:30
Fram – Valur => kl. 20:00
Laugardagur 4. sept:
Leikur um 5. sæti => kl. 12:00
Leikur um 3. sæti => kl. 14:00
Leikur um 1. sæti => kl. 16:00
Auk farandbikars sem veittur er fyrir sigur á mótinu og er í vörslu FH síðan í fyrra verða veitt verðlaun fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti á mótinu. Einnig munu verða veitt verðlaun fyrir:
Besta leikmann
Besta sóknarmann
Besta varnarmann
Besta markmann
Markahæsta leikmann
Sérstök nefnd mun sjá um valið.



