Beint á leiðarkerfi vefsins

Handboltaakademía

Handboltaakademía - RSS

4.6.2010 | Handbolti

Viðurkenning frá Landsbankanum á Selfossi

Í tilefni af frábærum árangri meistarflokks karla í handbolta afhenti Landsbankinn á Selfossi handknattleiksdeildinni 100.000 kr. en árangurstenging er einn liður í samstarfssamningi sem hefur verið í gildi milli Landsbankans á Selfossi og Handknattleiksdeildar Umf. Selfoss um nokkurra ára skeið. 

Nú í vor náði lið meistaraflokks karla í handbolta þeim frábæra árangri að vinna Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild og tryggja sér með því sæti í úrvalsdeild á næsta leikári. Um leið og bankinn lýsir ánægju sinni með gott samstarf, óskar hann handknattleiksdeildinni allra heilla með von um áframhaldandi gott gengi í framtíðinni.  Síðasti vetur var ekki bara frábær hjá meistarflokki karla heldur einnig yngri flokkunum sem stóðu sig frábærlega á sínum mótum í vetur.

Landsbankinn óskar Handknattleiksdeild Umf. Selfoss innilega til hamingju með frábæran árangur á síðustu leiktíð. 


Á næstunni


www.fsu.iswww.arborg.iswww.husasmidjan.iswww.sghus.iswww.edalhus.isss.isvis.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta