Nú er rétt um mánuður í að N1 deildir karla og kvenna fari af stað og líkt og í fyrra ætlar SportTV að fylgjast vel með undirbúningsmótum fyrir Íslandsmótið. Fyrsta stóra æfingamótið verður Ragnarsmótið á Selfossi en það hefst á miðvikudagskvöld og lýkur á laugardaginn. SportTV mun sýna alla leiki mótsins líkt og í fyrra þegar SportTV hóf útsendingar sýnar frá þessu sama móti.
SportTV heldur því upp á eins árs afmæli sitt með því að endurtaka leikinn frá því í fyrra á Ragnarsmótinu. Mótið er hið glæsilegasta í ár og munu sex af átta liðum N1 deildar karla etja kappi. Í A-riðli mætast HK, Selfoss og FH sem á titil að verja. Í B-riðli leika Haukar, Fram og Valur.
Leikjaplanið er eftirfarandi:
Miðvikudagur 1. sept:
HK - FH kl. 18:30
Haukar - Fram kl. 20:00
Fimmtudagur 2. sept:
HK - Selfoss kl. 18:30
Haukar- Valur kl. 20:00
Föstudagur 3. sept:
Selfoss - FH kl. 18:30
Fram - Valur kl. 20:00
Laugardagur 4. sept:
Leikur um 5 sæti kl. 12:00
Leikur um 3 sæti kl. 14:00
Leikur um 1 sæti kl. 16:00



