Beint á leiðarkerfi vefsins

Handboltaakademía

Handboltaakademía - RSS

2.9.2010 | Handboltaakademía

Úrslit á Ragnarsmótinu í gær

HK - FH: 35-32 (15-15)
Leikurinn var frekar jafn allan tíman og liðin skiptust á að hafa forystuna. Um miðjan seinni hálfleik sigu HK menn framúr og héldu forystunni til leiksloka og þrátt fyrir að FH hafi aldrei vantað mikið uppá til að ná þeim þá dugði það ekki til og HK vann sanngjarnan sigur. Selfyssingarnir í liði HK, Bjarki Már og "Sjóli" stóðu sig vel og áttu báðir stóran þátt í sigrinum. Hvorugur Selfyssingurinn, Ársæll né Ari, spiluðu með FH.

Markaskorarar HK:
Atli Ævar Ingólfsson 12
Bjarki Már Elísson 7
Hörður "Sjóli" Másson 5  (& 5 stoðsendingar)
Ólafur Bjarki Ragnarsson  5
Vilhelm Gauti Bergsveinsson  3
Sigurjón Björnsson  2
Björn Björnsson  1

Markaskorarar FH:
Bogi Eggertsson  8
Ásbjörn Friðriksson  7
Benedikt Kristinsson  5
Hermann Björnsson  4
Atli Rúnar Steinþórsson  3
Þorkell Magnússon  3
Bjarki Jónsson  1
Sverrir Garðarsson  1

Haukar - Fram: 31-24 (14-11)
Haukar byrjuðu mun betur og voru fljótlega komnir í 9-4 en þá tóku Framarar við sér og minnkuðu muninn í 11-10. Þá tóku Haukar aftur við sér og staðan í hálfleik var 11-14. Síðari hálfleikur var keimlíkur þeim fyrri. Haukar tóku tvo kippi í upphafi og aftur í enda hálfleiksins en Fram átti miðkaflann. Haukar unnu því sannfærandi 7 marka sigur. Selfyssingarnir í Fram komu báðir við sögu. Haraldur spilaði fyrri hálfleikinn og Ástgeir spilaði síðustu 15 mínúturnar í leiknum og varði þokkalega eða 4 skot. Það sama var uppi á tengingnum í Haukaliðinu. Guðmundur Árni spilaði um 15 mín. í leiknum og Gísli Guðmundsson stjórnaði liðinu ásamt Halldóri Ingólfssyni. Þá má ekki gleyma dómurum leiksins sem voru einnig Selfyssingar. Þeir Ramunas Mikalonis og Guðni Ingvarsson, sem voru síðustu helgi að taka dómaraprófið, stóðu sig mjög vel í sínum fyrsta leik sem dómarar. Gaman að Selfoss sé loksins búið eignast dómarpar í handboltanum. 

Markaskorarar Hauka:
Björgvin Hólmgeirsson  6
Einar Örn Jónsson  4
Guðmundur Árni Ólafsson  4
Tjörvi Þorgeirsson  3
Sveinn Þorgeirsson  3
Gísli Jón Þórisson  3 
Þórður Rafn Guðmundsson  3
Stefán Rafn Stefánsson  2
Freyr Brynjarsson  2
Heimir Óli Heimisson  1

Markaskorarar Fram:
Jóhann Gunnar Einarsson  8
Andri Berg Haraldsson  5
Matthías Daðason  3
Haraldur Þorvarðarson  2
Arnar Birkir Hálfdánarson  1
Sigfús Páll Sigfússon  1
Róbert Aron Hostert  1
Grétar Garðarsson  1
Halldór Jóhann Sigfússon  1
Einar Rafn Eiðsson  1

 


Á næstunni


www.fsu.iswww.arborg.iswww.husasmidjan.iswww.sghus.iswww.edalhus.isss.isvis.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta