Beint á leiðarkerfi vefsins

Handboltaakademía

Handboltaakademía - RSS

3.9.2010 | Handboltaakademía

Úrslit í riðlunum og leikir um sæti á morgun

Selfoss-FH: 26-25 (9-13)
Selfyssingar byrjuðu leikinn afar illa og voru yfirspilaðir af FH í fyrri hálfleik og voru heppnir að vera aðeins 4 mörkum undir í hálfleik, 9-13. Allt annað var að sjá til liðsins í síðari hálfleik og eftir að Selfyssingar komust yfir 19-18 um miðjan síðari hálfleikinn þá voru þeir alltaf einu skrefi á undan. Leikurinn endaði í mikilli spennu og dramatík en annan leikinn í röð náðu Selfyssingar að koma í veg fyrir mark andstæðinganna í síðustu sókn leiksins og innbyrða aftur 1 marks sigur, 26-25. Það þýðir að liðið leikur til úrslita á mótinu í aðeins annað skipti á síðustu 10 árum. Selfyssingarnir í liði FH komu ekkert við sögu að þessu sinni.

Markaskorarar Selfoss:
Ragnar Jóhannsson  7
Guðjón Finnur Drengsson  6
Atli Kristinsson  5
Helgi Héðinsson  3
Gunnar Ingi Jónsson  2
Einar Héðinsson  2
Eyþór Lárusson  1

Markaskorarar FH:
Hermann Björnsson  8
Ásbjörn Friðriksson  4
Bogi Eggertsson  4
Þorkell Magnússon  3
Ísak Rafnsson  2
Atli Rúnar Steinþórsson  2
Sigurgeir Árni Ægisson  1
Bjarki Jónsson  1

 

Valur-Fram: 25-29 (15-14)
Leikurinn var jafn allan fyrri hálfleikinn og skiptust liðin á að ráða ferðinni án þess að hleypa hinu neitt framúr sér. Staðan í hálfleik var 15-14 fyrir Valsmenn.  Í síðari hálflleik hélt sama baráttan áfram og var leikurinn í járnum alveg þangað til rúmar 5 mínútur voru eftir af leiknum en þá náðu Framarar yfirhöndinni og unnu 4 marka sigur sem var þrátt fyrir jafnan leik samt aldrei í hættu í lokin. Selfyssingarnir í báðum liðum komu við sögu í dag en mismikið þó. Einar Örn byrjaði vel en spilaði lítið og Valdimar spilaði frábærlega fyrir liðið en var rólegur í markaskoruninni að þessu sinni. Hjá Fram spilaði Haraldur mikið og Ástgeir kom inn á og varði vítakast.

Markaskorarar Vals:
Anton Rúnarsson  7
Orri Freyr Gíslason  3
Arnar Guðmundsson  3
Aron Guðmundsson  3
Valdimar Fannar Þórsson  3
Einar Örn Guðmundsson  2
Finnur Ingi Stefánsson  1
Gunnar Harðarson  1
Jón Björgvin Pétursson  1
Vaselin Chakmakov  1

Markaskorarar Fram:
Einar Rafn Eiðsson  8
Róbert Aron Hostert  5
Matthías Daðason  4
Magnús Stefánsson  4
Andri Berg Haraldsson  4
Haraldur Þorvarðarson  2
Sigfús Páll Sigfússon  1
Jóhann Karl Reynisson  1

 

Við hvetjum alla að líta við á leiki morgundagsins og að sjálfsögðu alla Sunnlendinga að koma á úrslitaleikinn gegn Haukum kl. 16:00.

Áfram Selfoss





 


Á næstunni


www.fsu.iswww.arborg.iswww.husasmidjan.iswww.sghus.iswww.edalhus.isss.isvis.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta