Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolta-akademían Selfossi

Handboltaakademía FSu og Umf. Selfoss
- Hollusta - Forvarnir - Árangur

Markmiðin:
Handboltaaakademían er sérstaklega ætluð ungu afreksfólki 16 til 20 ára sem villl vinna að því að þroskast og verða betri í handknattleik. Hér gefst ungu fólki tækifæri til að æfa við bestu aðstæður og fá námið viðurkennt sem hluti af afreksíþróttum, sem styrkir og bætir einstaklingana og undirbýr þá að takast á við áskoranir framtíðarinnar. Reiknað er með að nemendur stundi sína íþrótt við skólann alla virka daga vikunnar og fá fyrir það námseiningar í framhaldsskóla. Nemendur munu leika undir merkjum Umf. Selfoss á Íslandsmótinu í handknattleik í unglingaflokkum og jafnvel vera hluti af meistaraflokki félagsins.

Menntunin:
Handboltaakadmía er sér námsgrein innan skólans þar sem allir hefðbundnir þættir íþróttarinnar eru þjálfaðir. Auk þess verða sérstakar áherslur lagðar á atriði sem ekki hafa verið stunduð markvisst áður á Íslandi við þjálfun ungra afreksmanna í handbolta. Um er að ræða hluti eins og markmiðssetningu, næringarfræði, sálfræði íþróttarinnar, uppbygging á sjálfsöryggi og andlegum styrk. 

Áfangalýsingin:
Lögð er áhersla á einstaklinginn, getu hans í handknattleik og framfarir. Með miklum og vel skipulögðum æfingum í handknattleik og í þjálfun þrekþátta er stefnt að því að byggja upp einstaklinga sem áhuga hafa á að ná langt í sinni íþrótt. Með mati í upphafi áfangans verða persónuleg markmið sett fyrir hvern og einn. Nemendur gangast undir strangar æfingar, mætinga- og agareglur með það að markmiði að þeir læri af reynslunni hvernig hægt er að ná árangri.  Einnig þurfa nemendur að læra að vera hluti af liðsheild þar sem einstaklingurinn þarf að gera upp við sig og forgangsraða hlutum í sínu lífi út frá þörfum heildarinnar.

Áfangamarkmiðin :
- Auka tæknilega færni og leikskilning í handknattleik.
- Bæta líkamlegt ástand til að standast kröfur íþróttarinnar.
- Efla andlegan styrk og vitund til að ná árangri í íþróttinni.
- Tileinka sér þann aga og réttan lífsstíl til að ná árangri í íþróttinni.
- Læra að setja raunhæf markmið á sviði allra þátta er tengjast þjálfuninni.
- Vera hluti af liðsheild sem virkar og skemmtilegt er að vera hluti af.

Skyldur nemanda:

Eðlileg námsframvinda:

  • Nemandinn gerir sér grein fyrir að með seinkun á námi miðað við útskrift á 8 önnum (17-18 einingar á önn) fyrirgerir hann rétti sínum til áframhaldandi þátttöku í Handboltaakademíu FSu.
  • Kröfur um mætingu og vinnusemi á æfingar/leiki er mjög mikil. Þetta á einnig við um mætingu í öðru námi á vegum FSu.

Agi og nám:

  • Strangar reglur gilda fyrir nemendur í Handboltaakademíunni. Þeir eru skuldbundnir til að standa sig í skólanum. Það verða gerðar til þeirra kröfur varðandi námsframvindu, fylgst verður með námsárangri og þeir hvattir áfram.

Lífstíll og lífsvenjur:

  • Nemandinn temur sér góðar venjur í námi, mataræði og hvíld. Forgangsröðun í daglegu lífi nemanda er nám - íþróttir - aðrar frístundir.  Fjölskyldan og mikilvægi góðs fjölskyldulífs er yfir þessa forgangsröðun hafin.
  • Nemandinn veit að neysla áfengis, eiturlyfja, eða annarra ólöglegra lyfja er ekki umborin. Brot á þessu varðar brottvísun úr handboltaakademíunni.

Umfang æfinga:

  • Reiknað er með lágmark 8 æfingum á viku:
    - Ýmist tvo morgna frá kl: 07:00 - 07:55 fyrir skóla eða á skólatíma í íþróttasal þar sem áhersla er lögð á tækni og einstaklingsþjálfun. Þetta getur verið misjafnt eftir því á hvaða ári nemendur eru.  
    - Tvær æfingar á skólatíma í þreksal undir handleiðslu styrktarþjálfara til að hámarka líkamlegt atgervi og fyrirbyggja meiðsli eins og hægt er.
    - Þrjár til fimm æfingar með unglingaflokkum Selfoss á kvöldin þar sem lögð er áhersla á liðsþjálfun, liðsspil og taktík.

Iðkendafjöldi:
Síðustu 5 ár hefur verið að jafnaði um 30 nemendur í þessu námi. Í þessum hópi hafa verið nemendur frá Selfossi, Egilstöðum, Vestmannaeyjum, Akureyri, Reykjavík og víðar. Val á þátttakendum verður byggt á viðtölum þeirra sjálfra og aðstandenda þeirra ásamt fyrri frammistöðu í handbolta og hefðbundnu námi. 

Þjálfarar/Kennarar:
Sebastian Alexandersson hefur yfirumsjón með Handboltaakademíunni sem yfirþjálfari. Hann hefur allar þær þjálfunargráður sem hægt er að taka á Íslandi ásamt því að vera með BA-próf í sálfræði frá Háskóla Íslands. Hann á að baki um 20 ár í handknattleiksþjálfun bæði í yngri flokkum og meistaraflokki. Hann hefur verið við störf hjá Umf. Selfoss í frá árinu 2003.

Honum til aðstoðar verða hverju sinni ráðnir hæfir einstaklingar hver á sínu sviði til þess að sjá um ýmist sérþjálfun, líkamsþjálfun og/eða flokkaþjálfun þeirra flokka sem falla undir rekstur Handboltaakademíunnar.

Faglegir samstarfsaðilar:
Handboltaakademían mun leitast við að vera í samstarfi alla þá fagaðila sem geta aðstoðað við starf hennar. Reglulega er leitað til fyrirtækja, sérsambanda eða námstofnanna með það fyrir augum að bæta starfið hverju sinni eins vel kostur gefst.

Kostnaður:
Handknattleiksdeild Umf. Selfoss stendur straum af öllum kostnaði vegna verkefnisins eins og þjálfarakostnaði, mótagjöldum, dómarakostnaði, ferðakostnaði, áhöldum o.s.frv.

Styrktaraðilar:
Það er ljóst að við þurfum á góðum stuðningi að halda til þess að halda þessum rekstri í fremstu röð.  Það er því talsverður þrýstingur á okkur að vinna þetta vel og skipulega. Fjármagn er forsenda fyrir því að svona verkefni standi undir væntingum. Því er mikilvægt að fá nægt fjármagn til þess að tryggja að þetta sé komið til að vera, bæði frá opinberum aðilum og fyrirtækjum.

Iðkendagjald:
Hver iðkandi hefur í vetur greitt 10.900 kr. á mán. fyrir þátttöku sína í verkefninu. Þetta iðkendagjald er innheimt með gíróseðli mánaðarlega í 10 mánuði, frá 1.sept. til 30 júní.
Innifalið í gjaldinu er:
- öll þjálfun (æfingagjöld falla þá niður í staðinn)
- æfingafatnaður og sokkar
- bolti
- keppnisbúningur til eignar
- merktur upphitunargalli (bara á fyrsta ári)
- allur ferðakostnaður og gisting ef farið er út á land
- tryggingar (hvetjum áhugasama að kynna sér innihald þeirra)
- klístur, teip og annar aðbúnaður sem þarf til æfinga
- aðgengi að sjúkraþjálfara
- fyrirlestrar í samvinnu við FSu um ýmis atriði er skipta máli í lífi og starfi iðkenda

Að auki verður reynt eins mikið kostur gefst að standa fyrir ýmsum uppákomum (t.d. óvissuferðum, bíóferðum, jólahlaðborði o.s.frv.) og jafnframt leitast við að fá færa gestaþjálfara eða kunna leikmenn til þess að koma í heimsókn

Mötuneyti:
Fjórum sinnum í viku er heitur matur í hádeginu í Tíbrá, félagsheimili UMFS. Þar fá iðkendur nóg að borða af hollum og góðum mat sem henta afreksmönnum í íþróttum. Vel er hugað að næringagildi og hollustu matsins sem boðinn er. Greitt er aukalega fyrir mötuneytið.

Annar kostnaður:
Fyrir þá sem koma til Selfoss frá öðrum stöðum til þess að vera í þessu námi og þurfa að vera á heimavist FSu þá bætist húsaleiga við iðkendagjaldið. Heimavistin er í nýlegu húsi sem var byggt sérstaklega fyrir þessa starfsemi. Hún er einstaklega glæsileg og öll aðstaða til fyrirmyndar. Gert er ráð fyrir tveimur nemendum í hvert herbergi. Þess ber þó að geta að hægt er fá bæði húsleigubætur og dreifbýlisstyrk til þess að stunda þetta nám. Þetta tvennt dugir fyrir húsaleigunni þannig að ekki er nauðsynlegt að leggja út fyrir henni sérstaklega.

 


Á næstunni


www.fsu.iswww.arborg.iswww.husasmidjan.iswww.sghus.iswww.edalhus.isss.isvis.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta