Íslenska unglingalandsliðið í handbolta vann Norðmenn tvisvar og tapaði einu sinni í þremur leikjum í Drammen í Noregi um helgina. Með liðinu leika þrír Selfyssingar þeir Guðmundur Árni Ólafsson, Ragnar Jóhannsson og Einar Héðinsson. Liðið byrjaði frekar illa og tapaði fyrsta leiknum 32-26 eftir að hafa leitt í hálfleik 15-16. Ragnar og Guðmundur voru í byrjunarliði en Einar kom inn á í seinni hálfleik. Guðmundur var besti maður liðsins og skoraði 10 mörk, en Ragnar skoraði aðeins eitt mark.
Bæði A og B lið 4. flokks léku um helgina. B-liðið tapaði 16-22 fyrir Haukum á heimavelli , en A-liðið vann Val 20-30 á útivelli. Í vetur eru liðin tvö í 4. flokki en í fyrra voru þau þrjú. Í fyrra æfðu rúmlega 30 strákar í 4. flokki en í vetur eru þeir 24.
Aukasýning verður á Pabbanum, með Bjarna Hauki Þórssyni, á Selfossi í sal FSu sunnudaginn 11. nóvember kl. 20:00. Allur ágóði af sýningunni rennur til uppbyggingar handknattleiksdeildar Umf. Selfoss. Mætum og sýnum stuðning. Þess má geta að hátt í 20.000 manns hafa séð Pabbann, en sýningin hefur fengið ágæta dóma. Auglýsingu um sýninguna má sjá hér... Pabbinn_auglýsing ( jpg, 2.77 mb ).
Strákarnir í 5. flokki karla stóðu sig frábærlega í 1. umferð Íslandsmótsins í handbolta sem haldið var í Vestmannaeyjum helgina 12.-14. okt. Strákarnir í A-liðinu unna alla sína leiki í riðlakeppninni og í milliriðlinum. Þeir léku því til úrslita við Fram og höfnuðu í öðru sæti á mótinu eftir að hafa tapað úrslitaleiknum með einu marki14-13. Guðni Ingvarsson og Eyþór Lárusson þjálfara þessa stráka sem margir eru á yngra ári, en sá hópur varð deildarmeistari í fyrra.
Guðmundur Árni Ólafsson stóð sig vel með undir 20 ára landsliði Íslands í handknattleik sem lék tvo landleiki við Dani í Skjern í Danmörku. Íslendingar töpuðu reyndar báðum leikjunum fyrst 31-26 og þá gerði Guðmundur Árni 1 mark, en í síðari leiknum töpuðu strákarnir 24-23 og þá gerði okkar maður tvö mörk. Þess má geta að Danir eru Evrópumeistarar í þessu aldursflokki. Guðmundur kemur heim í dag og fer svo aftur út á föstudaginn með undir 18 ára landsliðinu.
Selfoss tapaði á útivelli fyrir FH 29-24 s.l. föstudagskvöld. Staðan í hálfleik var 13-12. Eftir góðan fyrri hálfleik kom afleitur 15 mínútna kafli sem FH-ingar nýttu sér til fulls. Náðu þeir forystu og héldu henni til loka leiks. Varnarleikur Selfoss var góður en sóknin agalaus og ómarkviss. Af þeim sökum skoruðu FH-ingar mörg mörk úr hraðaupphlaupum sem dugði þeim til sigurs.
Á laugardaginn komu Þórsarar alla leið frá Akureyri í heimsókn. Til að byrja með var lítið af fólki á leiknum en áhorfendafjöldinn jókst eftir því sem leið á leikinn og var á bilinu 50-100 mættu þegar flestir voru. Leikurinn var mjög hægur og virtist framliggjandi vörn Þórsara fara illa með sóknarleik Selfysinga.
Í gærkvöldi unnu strákarnir Stjörnuna á heimavelli 36 - 22. Staðan í hálfleik var 18 - 11. Allt liðið lék vel en Guðmundur Árni og Helgi áttu stórleik. Guðmundur skoraði 17 mörk úr 22 skotum og Helgi varði 27 skot þar af 1 víti. Hjá Stjörnunni var Svavar Ólafsson langbestur og varði mjög vel.
BT sem er einn aðalstyrktaraðili handboltaakademíunnar og handknattleiksdeildin hafa ákveðið að hafa keppni í vetur um bestu músina en hún hefur verið lukkudýr á heimaleikjum meistaraflokks, 2. flokks og 3 flokks undanfarið 1 ár. Áhorfendur á hverjum leik munu fá seðil til að meta frammistöðu músarinnar. Sá sem er besta músin fær svo úttekt hjá BT. Keppnin hefst 1. nóvember á næsta heimaleik meistaraflokks á móti Haukum 2.
Húsasmiðjan hefur framlengt samstarfssamning sinn við handboltaakademíu FSu og UMFS um 1 ár. Samningurinn var undirritaður í þessari viku. Þar með má segja að Húsasmiðjan hafi enn eitt árið lagt sitt af mörkunum til samfélagins á Selfossi með því að styrkja þetta forvarnar- og æskulýðsstarf.
Íþróttasíðan handbolti.is birti skemmtilega frétt um Arnar Gunnarson fyrirliði Selfossliðsins í gær, þar sem náðust skemmtilegar myndir af kappanum í leik Selfoss og Gróttu. Við látum fylgja með tengli yfir á þessa annars frábæru síðu og þar er hægt að skoða myndirnar úr Gróttuleiknum sem Selfoss vann eftirminnilega.
Guðmundur Árni Ólafsson hefur verið valinn í landslið leikmanna sem fæddir eru 1988. Guðmundur er fæddur árið 1990 og er því að spila tvö ár upp fyrir sig. Mjög sjaldgæft er að leikmenn spili í unglingalandsliði með leikmönnum sem eru tveimur árum eldri. Guðmundur Árni fer á næstunni í tvær keppnisferðir með báðum unglingalandsliðunum. Heimasíðan lagði nokkrar spurningar fyrir Guðmund af þessu tilefni.
Það var mikil stemming og góður leikur sem boðið var upp á í gærkvöldi þegar Selfoss sigraði Víking með 40 mörkum gegn 32, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 21-16. Leikurinn var jafn framan af en undir lok fyrri hálfleiks sigu Selfyssingar fram úr og náðu 5 marka forustu. Það bil náðu Víkingar aldrei að brúa og heimamenn juku forskotið jafnt og þétt í seinni hálfleik.
Strákarnir í 2. flokki töpuðu 24-25 fyrir UMFA á laugardaginn á heimavelli. Leikurinn var jafn allan tímann og fengu Selfyssingar tækifæri til þess að vinna leikinn í síðustu sókninni sinni en misstu boltann og UMFA skoraði úr hraðaupphlaupi og vann. Steinar Logi olnbogabrottnaði eftir gróft brot og verður frá í a.m.k. 1 mánuð.
Síðastliðinn föstudag tapaði Selfossliðið fyrir ÍR í skrautlegum leik á útivelli 26-24. ÍR sem er talið langsterkasta liðið í deildinni átti enginn svör við góðum leik okkar manna fyrr en á 45 min. leiksins, en þá breyttist leikurinn í lygilegan farsa.
Guðmunudr Árni Ólafsson hefur verið valinn í landslið leikmanna sem fæddir eru 1988. Guðmundur er fæddur árið 1990 og er því að spila tvö ár upp fyrir sig. Mjög sjaldgæft er að leikmenn spili í unglingalandsliði með tveimur árum eldri leikmönnum og undirstrikar það hvað Guðmundur Árni hefur náð langt og hversu einstakur leikmaður hann er. Guðmundur fer með U-88 landsliðinu til Danmerkur í keppnisferð helgina 20.-21. okt. og strax helgina eftir fer hann með U-90 landsliðinu til Noregs.
Hér koma drög að dagskrá fyrir fyrirhugaða Vestmannaeyjaferð ferð 5. flokks handbolta um næstu helgi. Mæting á Þorlákshafnarbryggju kl. 11:00 föstudaginn 12. október. Þeir foreldrar sem ekki geta komið sínum strákum þurfa að tryggja að þeir hafi far á höfnina. Leikjafyrirkomulag má sjá á vefsíðunni www.hsi.is undir liðnum “mótamál/yngri flokkar”. Sjá nánar...
Eftir hetjulega baráttumisstu strákarnir af gullnu tækifæri til að slá úrvalsdeildarlið Akureyrar út úr bikarkeppninni. Þegar rétt innan við 2 mín. voru eftir af leiknum var staðan jöfn 25 -25 og Selfoss með boltann..
Í kvöld kl. 20:00 fer fram í Vallaskóla leikur í HSK-mótinu í handknattleik. Þar eigast við Selfoss 1 og Selfoss 2 í meistaraflokki karla. Ekki hefur verið keppt á HSK-móti í handbolta um nokkurt skeið og er hér verið að endurvekja þá hefð. Vonandi verður keppt í fleiri flokkum á næsta ári.
Fyrsti leikur meistaraflokks á Íslandsmótinu í handbolta fór fram í Vallaskóla í gærkvöldi. Á milli 250 og 300 áhorfendur mættu á leikinn og var góð stemmning í stúkunni og stuðningur áhorfenda til fyrirmyndar. Selfoss vann góðan sigur 28-24, en þurfti þó að hafa fyrir honum.
Þeir félagar
Ragnar Jóhannsson, Guðmundur Árni Ólafsson og Einar Héðinsson eru á leið til Noregs með unglingalandsliðinu síðustu helgina í október. Unglingalandsliðið mun leika þrjá æfingaleiki gegn Norðmönnum í Drammen. Unglingalandsliðið fer svo aftur út á milli jóla og nýjárs og tekur þátt á sterku móti í Þýskalandi.
Í kvöld (fimmtudag) kl. 19:30 verður fyrsti leikur meistaraflokks Selfoss í 1. deild karla í handbolta þegar Grótta kemur í heimsókn. Síðan er annar heimaleikur í Vallaskóla á sunnudag 7. okt kl. 18:00 gegn úrvalsdeildaliði Akureyrar (KA/Þór) í 32-liða Bikarkeppni HSí. Heyrst hefur að Sebastian þjálfari ætli að dusta rikið af keppnisskónum fyrir þann leik. Síðan leikur Selfoss 2 við Víking 2 í Víkinni laugardaginn 6. okt kl. 18:00. Nú er bara að drífa sig á völlinn og rífa upp stemmninguna. Áfram Selfoss!!!
Selfoss dróst á móti úrvalsdeildarliði Akureyrar í 32-liða úrslitum karla í Bikarkeppni HSÍ. Leikurinn verður á Selfossi sunnudaginn 7. október kl. 18:00. Selfoss 2 dróst á móti Víkingi 2 og verður sá leikur í Víkinni. Önnur lið sem drógust saman voru:
Selfoss leikur sinn fyrsta leik í 1.deild íslandsmótsins á keppnistímabili heima gegn Gróttu n.k. fimmtudag.
Af því tilefni lagði heimsíðan nokkra spurningar fyrir Sebastian þjálfara liðsins. Sebastian er að hefja sitt fimmta tímabil sem þjálfari meistaraflokks en hann er einnig aðalþjálfari handbolta-akademíu Fsu þar sem leikmenn unglingaflokks og 2. flokks eru, en þeir eru líka margir í meistaraflokkshópnum.
