Næsti leikur hjá 3. flokki er á miðvikudaginn í næstu viku, en þá leikur 92-liðið gegn Þrótturum og fer leikurinn fram í Laugardalshöll. Öllum leikjum þangað til hefur verið frestað til annars tíma. Ástæðan er landsliðsæfingar yngri liða hjá HSÍ.
Leik 3. flokks (liðs-92) sem átti að fara fram í dag hefur verið frestað til miðvikud. 5. nóv. árið 2008, vonandi! 3. fl. 91-lið leikur á fimmtudaginn kemur í Vallaskóla við HK kl. 21.00. Hvetjum við alla handboltaáhugamenn að mæta og hvetja leikmenn framtíðarinnar til góðra verka. HK er með gott lið og afar færan þjálfara og því ljóst að hörkuleik er að ræða. Á laugardaginn á svo 92-liðið að leika við FH-2. Afar ósennilegt verður að teljast að sá leikur fari fram þar sem umrædda helgi eru landsliðsæfingar.
Hörður Másson (Sjóli) leikmaður 2. og meistaraflokks Selfoss í handknattleik hefur verið valinn í 21-árs lið Íslands í handbolta. Hópinn er hægt að sjá hér: http://www.hsi.is/default.asp?cat_id=49&module_id=220&element_id=4510
4. flokkur kvenna sigraði fyrsta deildarleikinn á tímabilinu gegn HK 19-12 í Vallaskóla á sunnudag. Jafnt var á öllum tölum framan af leiknum en Selfoss stelpurnar sigu fram úr í lok fyrrihálfleiks og stóðu leikar 9-6 þegar gengið var til leikhlés. Eftirleikurinn var Selfoss stelpum auðveldur og kláruðu þær leikinn eins og áður sagði 19-12.
Selfoss-strákarnir 6. flokki unnu þrefaldan sigur í fyrstu umferð Íslandsmótsins sem fór fram um helgina. Öll lið landsins í þessum aldursflokki vorum saman komin á fyrsta stórmótinu af fimm, þar sem um 700 keppendur kepptu í 65 liðum. Keppt er í flokki A, B og C liða og sigraði Selfoss í öllum flokkum. Það er mjög sjaldgæft að sama félag vinni í öllum flokkum og er þetta hreint út sagt frábær árangur hjá strákunum. Alls unnust 23 af þeim 24 sem Selfoss spilaði.
Fjölskyldumiðstöð Árborgar hefur ákveðið að bjóða börnum, sem þurfa að komast milli Sundhallar Selfoss/Vallaskóla og Sunnulækjarskóla vegna íþróttaæfinga eða annarra tómstunda, að nýta sér laus sæti í skólarútum sem eru á ferðum strax eftir hádegi. Sjá nánar tímaplan...
Afturelding tapaði fyrsta leik sínum á þessu keppnistímabili þegar liðið sótti Selfoss heim í gærkvöldi í 1. deild karla í handknattleik, lokatölur urðu 30:27. Mosfellingar voru marki yfir í hálfleik, 14:13. Um 500 áhorfendur voru á leiknum og rífandi stemning. Afturelding hafði forystu allan fyrri hálfleik og mest munaði fjórum mörkum á liðunum, 11:7. Leikmenn Aftureldingar héldu áfram að hafa frumkvæðið í leiknum fram eftir síðari hálfleik. Selfoss komst svo yfir 24:23 og unnu leikinn 30:27.
Selfoss vann á laugardaginn ótrúlegan sigur á Þrótti á útivelli í 1. deild karla er liðið vann 23 marka sigur, 14-37. Það var aldrei spurning hvort liðið mundi sigra þennan leik. Selfoss hreinlega valtaði yfir Þróttara. Selfoss leiddi með 13 mörkum í hálfleik og lokatölur urðu eins og áður sagði 14-37, eða 23 marka munur sem verður að teljast fullmikið í deildarkeppni í handbolta.
Hjá Umf. Sefloss er í gangi vinna sem miðar að því að fleiri deildir innan félagsins hljóti útnefningu sem fyrirmyndardeildir ÍSÍ. Handknattleiksdeild er komin langt á leið með vinnu við sína handbók og knattspyrnudeild og frjálsíþróttadeild hafa ákveðið að fara í sína vinnu. Fimleikadeild félagsins fékk fyrstu útnefninguna 2007, sem jafnframt var fyrsta útnefningin á Suðurlandi. Sunddeild Umf. Selfoss fékk síðan útnefningu á aðalfundi félagsins í vor.
| Fjölnir | - | Selfoss | 14 | : | 32 |
| Selfoss | - | Víkingur | 22 | : | 20 |
| Selfoss | - | Þróttur | 35 | : | 22 |
| Afturelding | - | Selfoss | 26 | : | 25 |
| ÍBV | - | Selfoss | 23 | : | 25 |
| Selfoss | - | ÍR | 32 | : | 28 |
| Selfoss | - | Fjölnir | 36 | : | 17 |
| Víkingur | - | Selfoss | 30 | : | 32 |
| Selfoss | - | ÍBV | 33 | : | 29 |
| Þróttur | - | Selfoss | 20 | : | 44 |
| Selfoss | - | Afturelding | 32 | : | 23 |
| ÍR | - | Selfoss | 30 | : | 28 |
| Víkingur | - | Selfoss | 27 | : | 33 |
| Selfoss | - | Fjölnir | 34 | : | 17 |
| Selfoss | - | ÍR | 30 | : | 21 |
| ÍBV | - | Selfoss | 32 | : | 28 |
| Þróttur | - | Selfoss | 23 | : | 31 |
| Selfoss | - | Afturelding | 27 | : | 24 |
