Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

27.11.2008 | Handboltaakademía

Stelpurnar í 3 flokki úr leik í bikarnum

Í gærkvöldi duttu stelpurnar út úr Bikarkeppninni í hörkuleik á móti Stjörnunni 19 - 21. Þessi sömu lið gerðu jafntefli 22 - 22 í deildinni ekki alls fyrir löngu. Varnarleikur og markvarsla Selfoss var frábær en sóknarleikurinn varð liðinu að falli að þessu sinni.

27.11.2008 | Handboltaakademía

2 flokkur kominn á sigurbraut

2 flokkur karla spilaði 2 leiki nú í nóvember og vann þá báða. Fyrri leikurinn var í Bikarkeppninni á móti Val og sá seinni í deildinni á móti Fram. Báðir leikirnir fóru fram á heimavelli. Strákarnir í 2 flokki sem byrjuðu veturinn frekar illa eru smám saman að ná saman og góðu kaflarnir eru að verða bæði fleiri og betri. Það er ljóst að leikur liðsins á bara eftir að batna í vetur.

25.11.2008 | Handboltaakademía

92-liđiđ vann ÍBV í döprum leik

Á laugardaginn vann 92-lið Selfoss gestina frá Vestmannaeyjum 24-20, eftir að í hléi hafið staðið 13-10 heimamönnum í vil. Leikurinn var lélegur og frekar hægur. Selfyssingar voru til að mynda allt of hægir í sóknarleik sínum og staðir. Sigurinn var þó aldrei í hættu en menn geta mun betur en þeir sýndu á laugardag. Næsti leikur hjá þessu liði er 1. des heima í bikarnum gegn Val kl. 19:30.

25.11.2008 | Handbolti

4. flokkur kvenna áfram í bikarnum

4. flokkur kvenna mætti Fram í 32-liða úrslitum bikarkeppni HSÍ í gær. Leikurinn var jafn allan leikinn. Fram stelpurnar byrjuðu betur og komust í 2-5, en Selfoss saxaði hægt og rólega á forskotið og í hálfleik var staðan 7-8 fyrir Fram. Selfoss stelpurnar komu síðan sterkar inn í seinni hálfleikinn og náðu fljótt yfirhöndinni í leiknum og leiddu með 4 mörkum á tímabili. Leikurinn endaði 19-16 og komust stelpurnar því áfram. Það voru landsliðsmennirnir 3 hjá Selfossi sem stóðu sig best, þær Kristrún, Hrafnhildur Hanna og Birta Rós. Einnig spilaði Esther Hallsdóttir sinn besta varnarleik á tímabilinu og Díana Sigmarsdóttir kom sterk inn í seinni hálfleik.

25.11.2008 | Handbolti

Landsbankamótiđ hjá stelpunum í 5. flokki

Nú um helgina fór fram fjölmennt handboltamót á Selfossi, þegar Landsbankamótið í 5. flokki kvenna, yngra ár, fór fram. Um 250 keppendur mættu til leiks, 25 lið lið tóku þátt og leiknir voru 50 leikir á þremur dögum. Mótið tókst mjög vel, allar tímasetningar stóðust. 20 piltar úr handboltaakademíu Fsu dæmdu leikina. 25 tímaverðir úr 5. og 4. flokki kvenna sáu um skráningar.

22.11.2008 | Handbolti

Selfoss lagđi ÍR í toppslagnum

Selfyssingar hrósuðu sigri gegn ÍR-ingum, 30:31, þegar liðin áttust við í toppslag í 1. deild karla í handknattleik í Austurbergi í gærkvöld. Selfyssingar höfðu yfir í hálfleik, 15:13. Eftir sigur liðsins eru Grótta, Selfoss og ÍR efst og jöfn með 14 stig. Þar á eftir koma Haukar B og Afturelding með 10 stig.Hjá Selfyssingum voru þeir Ramunas Mikalonis og Guðmundur Ólafsson atkvæðamestir með 7 mörk hvor. Atli Kristinsson kom næstur með 5 mörk.

21.11.2008 | Handbolti

Selfoss - Stjarnan í 8-liđa úrslitum í bikarnum

Selfoss fékk úrvalsdeildarlið Stjörnunnar í 8-liða úrslitum bikarkeppinnar, en dregið var í hádeginu í dag. Leikur inn fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla annað hvort 7. eða 8. desember. Stjarnan er sem stendur í næst neðsta sæti úrvalsdeildarinnar og hefur ekki gengið vel það sem af er þessu keppnistímabili. Selfoss á því ágætis möguleika á að komast í undanúrslit keppninnar.

21.11.2008 | Handboltaakademía

Ţrjár stelpur valdar í handboltalandsliđ

5kv4Þær Kristrún Steinþórsdóttir, Birta Antonsdóttir og Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir voru í dag valdar í undir 15 ára landsliðs Íslands í handbolta. Liðið kemur saman um aðra helgi. Þetta er frábær viðurkenning fyrir stelpurnar sem eru allar hluti af mjög sterkum flokki sem leikur undir stjórn Halldórs Stefáns Haraldssonar.

20.11.2008 | Handbolti

Landsbankamótiđ um helgina hjá 5. flokki stúlkna

Nú um helgina verður Landsbankamótið í handbolta hjá 5. flokki stúlkna haldið á Selfossi.  Handknattleiksdeild Umf. Selfoss heldur mótið sem er hluti af Íslandsmeistaramótinu í 5. flokki stúlkna. Á Selfoss munu streyma stelpur á aldrinum 10-11 ára. Alls eru 25 lið skráð til leiks og búast má við um 250 keppendum og öðru eins af foreldrum og liðstjórum. Leikið verður í  íþróttahúsi Vallaskóla og íþróttahúsi FSu Iðu.

20.11.2008 | Nýjustu fréttir

Skilabođ til ţeirra sem starfa ađ íţrótta- ćskulýđs- og tómstundamálum

Í ljósi efnahagsástandsins og þeirrar óvissu sem ríkir nú í samfélaginu hefur menntamálaráðherra látið vinna samantekt varðandi möguleg úrræði um sálrænan stuðning við börn og ungmenni. Markmiðið með vinnunni er að styðja þá sem starfa að íþrótta- æskulýðs- og tómstundamálum til að veita börnum og ungmennum viðeigandi stuðning og stuðla þannig að velferð þeirra. Þessi samantekt fylgir hér með þegar fréttin er opnuð...

20.11.2008 | Handboltaakademía

Tap gegn Fram í lélegum leik

91-liðið tapaði á heimavelli gegn Frömurum frá Reykjavík 33-31 eftir að jafnt hafi staðið í fyrri hálfleik, 1616. Leikurinn var spennandi og jafn nánast allan leikinn, Selfysssingar náðu mest tveggja marka forustu í fyrri hálfleik, en Framarar komust yfir þrjú mörk í þeim síðari. Heimamenn náðu að komast yfir 31-30 en þrjú síðustu mörk leiksins voru Framara.

17.11.2008 | Handbolti

6. flokkur kvenna keppti um helgina

6. flokkur kvenna stóð sig vel á Íslandsmótinu sem haldið var í Fylkisheimilinu í Árbænum um helgina. Selfoss sendi A- og B-lið á mótið og stóðu bæði lið sig vel.

17.11.2008 | Handbolti

Gullverđlaun hjá A- og B-liđum Selfoss í 6. flokki karla

Selfoss-strákarnir 6. flokki unnu tvöfaldan sigur í annarri umferð Íslandsmótsins sem fór fram um helgina. Öll lið landsins í þessum aldursflokki vorum saman komin á fyrsta stórmótinu af fimm, þar sem um 600 keppendur kepptu í 60 liðum. Keppt er í flokki A-, B- og C-liða. Sigraði Selfoss í flokki A- og B-liða, en töpuðu einum leik í flokki C-liða og unni silfur þar í þetta sinn. Á síðasta móti unnu Selfyssingar þrefalt.

16.11.2008 | Handboltaakademía

Góđur sigur 92 á ÍR

92-strákarnir hjá Selfossi unnu í gær ÍR-2 örugglega 42-19 i Austurbergi. Í hálfleik stóð 22-11 fyrir Selfoss. Aldrei var spurning um það hvoru megin sigurinn lenti. Selfoss lék 3-2-1 í leiknum en hafa verið að æfa þá vörn undanfarið og gekk margt ágætlega í þeirri vörn í gær.

16.11.2008 | Handboltaakademía

Góđur sigur 91 á ÍR

91-lið Selfoss lék í gær við heimamenn í ÍR í gær. Okkar menn höfðu sigur 32-21 eftir að hafa leitt í hálfleik 14-12. Selfyssingar fóru ágætlega af stað í leiknum og komust í 5-2 en þá kom hörmulegur kafli þar sem menn hættu að sækja á markið og horfðu á ÍR-inga taka öll fráköst sem í boði voru og var tekið leikhlé er ÍR-ingar voru komnir yfr 6-9. Selfyssingar náðu að snúa leiknum sér í vil og leiddu 14-12 í hálfleik.

16.11.2008 | Handbolti

4. flokkur kvenna vann ÍR 21-14

4. flokkur kvenna gerði góða ferð til Reykjavíkur þegar þær mættu ÍR í Austurbergi.
Selfoss stelpurnar byrjuðu leikinn skelfilega ílla og hafa þær sjaldan sést spila svona ílla eins og raun bar vitni. Stelpurnar lentu meðal annars 7-4 undir. Í lok fyrri hálfleiks kom þó smá neisti í liðið og Birta tók nokkra mikilvæga bolta í markinu, því náðu þær að jafna leikinn rétt undir lok hálfleiksins og stóðu leikar 8-8.

15.11.2008 | Handboltaakademía

Slćmt tap gegn Gróttu

GRÓTTA frá Seltjarnarnesi lagði Selfoss, 34:28, þegar liðin mættust í 1. deildinni í handbolta karla í gærkvöldi á Selfossi að viðstöddum um 400 áhorfendum.
Grótta skaust þar með í efsta sæti deildarinnar með 12 stig líkt og Selfoss og ÍR en Selfoss hefur leikið einum leik meira en hin tvö liðin. Í hinum leik gærkvöldsins vann Afturelding lið Þróttar 34:21 og er Afturelding í fimmta sæti með 8 stig en Þróttur er enn án stiga eftir átta leiki.

14.11.2008 | Handbolti

Toppslagur í kvöld kl. 19.30 gegn Gróttu

Í kvöld fer fram einn af stærri leikjum ársins í 1. deild karla á Selfossi þar sem að Selfyssingar taka á móti Gróttu. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og fer fram í íþróttahúsinu við Vallaskóla.
Selfyssingar sem sitja í 2. sæti hafa farið vel af stað í 1. deildinni í vetur, eftir 7 leiki hafa þeir unnið 6 og tapað einum. Síðustu tvær viðureignir Selfoss í deildinni hafa farið svona:

14.11.2008 | Handboltaakademía

Ţórir samdi á ný viđ N-Lübbecke

Þórir Ólafsson, landsliðsmaður í handknattleik, skrifaði í gær undir nýjan samning við þýska handknattleiksliðið N-Lübbecke. Hann gildir fyrir tvö næstu tímabil eða til vorsins 2011. Þórir leikur nú sitt fjórða tímabil með félaginu og hefur spilað þar lengst allra núverandi leikmanna þess. Þrjú ár í efstu deild, en N-Lübbecke féll í vor og er nú með yfirburðastöðu í norðurriðli 2. deildar, hefur unnið 13 fyrstu leikina á tímabilinu, í deild og bikar.

13.11.2008 | Handbolti

Hafsteinn styrkir heimaleikinn viđ Gróttu sem fram fer á föstudaginn

Okkar ágæti heiðursfélagi Hafsteinn Þorvaldsson tók sig til og styrkti næsta heimaleik Selfoss í handboltanum með 30.000 kr. framlagi. Framlagið nýtist til að kaupa 40 miða sem verða gefnir og greiða stærstan hluta auglýsingakostnaðar vegna leiksins. Hafsteinn sýnir þarna stórhug sinn í verki og kemur styrkurinn að góðum notum. Hafsteinn hvetur alla, unga sem aldna, að mæta á leikinn við Gróttu sem verður föstudagskvöldið 14. nóv. kl. 19:30 í íþróttahúsi Vallaskóla. Nú standa allir saman og hvetja Selfoss.

10.11.2008 | Handbolti

Selfoss áfram í Eimskips Bikarnum

eimskipsbikarinnSelfoss vann stórsigur á Akureyri 2, 46:23, í Eimskips Bikarnum í dag. Selfoss hafði mikla yfirburði í leiknum og leiddi með 13 mörkum í hálfleik 23:10 og unnu síðan með 23 mörkum eins og áður sagði, 46:23.

10.11.2008 | Handbolti

4. flokkur kvenna lagđi FH

Stelpurnar í 4. flokki eru áfram taplausar eftir að þær sigruðu FH í gær, en FH hafði sigrað alla sína leiki hingað til. Leikurinn byrjaði jafnt en þegar líða tók á hálfleikin fóru Selfoss stelpurnar að síga framúr og staðan í hálfleik 9-4. FH stelpurnar komu mjög grimmar til leiks í síðari hálfleik og minnkuðu forskotið hægt og rólega, 2 mörk var munurinn á tímabili, en nær komust þær ekki og Selfoss stelpurnar unnu leikinn 16-14.

9.11.2008 | Handboltaakademía

Selfoss-92 sigrađi Hörđ

Í gær komu Ísfirðingar í heimsókn til okkar á Selfoss með lið þeirra er heitir Hörður. Í því liði eru margir flottir íþróttamenn sem byrjuðu að æfa handbolta nú í haust. Enn vantar því smá upp á hjá þeim en þegar líða fer á veturinn munu þeir eflaust eflast þar sem margir þessara stráka geta vel spilað. Leikurinn endaði 48-19 okkar strákum í hag eftir að staðan í hálfleik hafi verið 23-9.

8.11.2008 | Handboltaakademía

Selfoss lagđi Ungmennin

Selfoss vann góðan sigur á Haukum U, 33-21, á heimavelli í 1. deild karla í kvöld. Selfoss hafði mikla yfirburði í leiknum og leiddi m.a. með átta mörkum í hálfleik, 17-9 og jók síðan muninn í síðari hálfleik og vann að lokum tólf marka sigur eins og áður sagði, 33-21.
Stórskyttan Atli Kristinsson og markvörðurinn Birkir Bragason voru bestu menn Selfossar í kvöld.
Erfitt er að nefna einhvern leikmanna Hauka U sem skaraði fram úr í kvöld þar sem leikur liðsins var frekar dapur í kvöld.

7.11.2008 | Nýjustu fréttir

Hvađ er EVRÓVÍSIR?

Ef þú ert á aldrinu 13-30 ára og þig langar t.d. að læra hárgreiðslu eða blómaskreytingar í öðru landi, læra nýtt tungumál, fara í sjálfboðavinnu, eða vinna í öðru landi í sumarfríinu þínu þá getur þú haft samband við Evróvísi á Íslandi. Þar getur þú fengið svar við þínum spurningum.

7.11.2008 | Handboltaakademía

Selfoss´91 vann FH í gćrkvöld

Selfoss ´91 gerði sér lítið fyrir og vann besta lið landsins í þessum aldursflokki. Það verður að teljast gríðarlega góður sigur að vinna jafn gott lið og FH er talið vera. Sigur hafðist með minnsta mun 27-26 eftir að heimamenn leiddu í hálfleik 14-12.

6.11.2008 | Handboltaakademía

Selfoss - FH í 3. flokki í kvöld

Í kvöld kl 21.00 fer fram í Vallaskóla leikur Selfoss og FH í 3. flokki. FH eru að margra mati með besta lið landsins í 3. flokki og fengu þar að auki þrjá sterka leikmenn frá vinum sínum úr Haukum fyrir tímabilið. Ljóst þykir því að Selfyssingar eiga verulega erfiðan leik fyrir höndum í kvöld. Við hvetjum alla til að mæta og horfa á leikmenn framtíðarinnar og öskra þá áfram. Ekki veitir af því að FH hefur frábæru liði á að skipa og þurfa okkar menn að eiga toppleik til að eiga möguleika gegn slíku liði.

6.11.2008 | Handboltaakademía

Sigur í skrípaleik

Í gærkvöld sótti 92 -liðið Þróttara úr Reykjavík heim. Þessi leikur mun sennilega seint gleymast leikmönnum Selfoss þar sem sú íþrótt sem leikin var í gærkvöld á fátt skylt við handknattleik. Sigur hafðist í leiknum 22-21eftir mikinn sirkus og húllumhæ. Í hálfleik leiddu Selfyssingar 13-10.

5.11.2008 | Nýjustu fréttir

Forvarnir og áhrif efnahagsástandsins rćdd á fundi ađalstjórnar

Lógó SelfossAðalstjórn Umf. Selfoss hélt fund í gærkvöldi í Tíbrá og var það 11. fundur aðalstjórnar á árinu. Fundir aðalstjórnar eru að jafnaði einu sinni í mánuði. Á fundinum var m.a. samþykkt ný fræðslu- og forvarnarstefna félagsins og ákveðið að halda sérstakan forvarnadag félagsins. Áhrif efnahagsástandsins voru rædd og ákveðið að hefja undirbúning að auknum systkynaafslætt sem mun nýtast barnmörgum fjölskyldum þar sem börn eru í fleiri en einni íþróttagrein...

4.11.2008 | Handbolti

Tveir spennandi leikir framundan í handboltanum

hand-boltamynd2Framundan eru tveir leikir hér heima hjá meistaraflokki karla í handbolta. Á föstudagskvöldið kl. 19:30 verður leikið við Hauka U í 1. deildinni. Síðan er annar heimaleikur í Vallaskóla á sunnudaginn við Akureyri 2 í Eimskipsbikarnum. Hefst sá leikur kl. 15:00. Í hálfleik í bikarleiknum verður skotkeppni. Nú er um að gera að drífa sig á völlinn og sjá flottan handbolta. Á síðasta heimaleik við Aftureldingu mættu hátt í 500 manns. 

2.11.2008 | Handbolti

4. flokkur kvenna fór til eyja um helgina

4. flokkur kvenna fór til eyja að spila við eyjastelpurnar í ÍBV. Flogið var frá Bakka í 9 sæta rellu öllum stelpunum til mikillar hamingju og voru ófá öskrin sem að grey flugmaðurinn þurfti að upplifa á meðan hann var að sinna vinnu sinni. Þegar komið var til eyja var okkur skutlað uppá gistiheimili. Stelpurnar gistu eins og sardínur í dós á meðan Halldór og Hermann þjálfarar fengu undir sig tveggja hæða hús alveg einir, enda algjörir kóngar þar á ferð. Við hentum frá okkur dótinu og komum okkur upp í íþróttahús enda stutt í leik ÍBV-Selfoss.

Á nćstunni


Nýjustu úrslit

  • Mfl. karla 1. deild 2009-2010:

Fjölnir -  Selfoss 14 : 32
Selfoss -  Víkingur   22 : 20
Selfoss -  Þróttur 35 : 22
Afturelding  -  Selfoss 26 : 25 
ÍBV -  Selfoss 23 : 25
Selfoss -  ÍR 32 : 28
Selfoss -  Fjölnir 36 : 17
Víkingur -  Selfoss 30 : 32 
Selfoss - ÍBV 33 : 29
Þróttur - Selfoss 20 : 44
Selfoss - Afturelding 32 : 23
ÍR - Selfoss 30 : 28
Víkingur - Selfoss 27 : 33
Selfoss - Fjölnir 34 : 17
Selfoss - ÍR 30 : 21
ÍBV - Selfoss 32 : 28
Þróttur - Selfoss 23 : 31
Selfoss - Afturelding 27 : 24

Selfoss - sigurvegari í 1. deild 2010
byko.islyfogheilsa.iswww.olis.iswww.orkusalan.islandsbankinn.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta