Á föstudagskvöldið unnu okkar menn Hauka 2 í 1. deildinni á útivelli 32 - 37 en staðan í hálfleik hafði verið 13 - 16 okkar mönnum í hag. Þetta var næst síðasti leikur vetrarins hjá liðinu en sá síðasti er næstkomandi föstudag 2. maí á Sefossi kl. 19:00
Strákarnir í unglingaflokki urðu nú fyrir stundu Íslandsmeistarar þegar þeir unnu Hauka 33-30 í úrslitaleik. Selfoss hafði forustu nær allan leikinn og unnu verðskuldað. Glæsilegur árangur hjá frábæru SELFOSSLIÐI. Meira síðar..
Í dag kl. 16.30 fer rúta frá Vallaskóla stundvíslega. Handboltaáhugafólk getur þá fengið FRÍTT far með þessari sömu rútu og séð úrslitaleik Selfoss og Hauka í 3. flokki í handbolta. Sá leikur hefst kl. 18.00 í Austurbergi. Við hvetjum alla stuðningsmenn að grípa þetta tækifæri og hvetja strákana til sigurs. Áfram Selfoss!
Unglingaflokkur karla vann í dag stórsigur á Stjörnunni í undanúrslitum íslandsmótsins í handbolta. Lokatölur urðu 35-20. Selfoss liðið hafði talsverða yfirburði allan leikinn og leikur á morgun til úrslita við Hauka sem unnu FH í tvíframlengdum leik. Úrslitaleikurinn fer fram í íþróttahúsinu við Austurberg í Breiðholti kl 18:00 sunnudag. Um að gera að koma og hvetja strákana til sigurs.
Í gærkvöldi tóku okkar strákar á móti Þór í 8 liða úrslitum á heimavelli fyrir framan 150 áhorfendur. Selfossliðið mætti tilbúið til leiks og tóku strax öll völd á vellinum. Leikurinn endaði með öruggum sigri okkar manna 41-30, en staðan í hálfleik var 25-16.
Í gær lék B lið 4.flokks gegn FH og fór leikurinn fram í Strandgötu í Hafnarfirði. Strákarnir í þessu liði hafa bætt sig jafnt og þétt allt tímabilið og enduðu tímabilið í 6. sæti. Sem þýddi, leikur gegn 3. sætinu, sem var FH.
Strákarnir stóðu sig frábærlega í gær en urðu að játa sig sigraða 20-14. Staðan í hálfleik 12-9 fyrir FH og náðu okkar menn að minnka muninn í 14-12 og gátu farið niður í eitt mark. Þá komu þrjú hafnfirsk mörk í röð og þá varð róðurinn full þungur fyrir okkar menn. Allir leikmenn stóðu sig frábærlega, er því erfitt að taka einhvern út. Flottur leikur en dugði skammt.
Í gærkvöldi léku Selfyssingar gegn FH hér heima í Vallaskóla. Hafnfirðingar áttu ekki mikið í ákveðna heimamenn og lauk leiknum með tíu marka sigri okkar manna, 42-32 eftir að okkar menn leiddu í hálfleik 21-13.
Umfjöllun væntanleg.
Síðastliðinn laugardag fór 6.flokkur drengja til Hafnarfjarðar og spilaði við FH í íþróttahúsinu við Kaplakrika. Bæði félög eru með fjögur lið, leikið verður í tveimur sölum samtímis 1x20 mín.leikir, þrír leikir á lið. Liðin skiptu á milli sín sigrunum, Selfoss vann í B-liði og C-liði en FH var sterkara í B2 og A-liðum en reyndar náði Selfoss jafntefli í síðasta leiknum í A-liðum. En FH er með lang-besta liðið í þessum aldursflokki. Á meðan A-lið Selfoss hefur verið í 5-10 sæti á íslandsmótinu í vetur .
Selfyssingurinn Þórir Ólafsson, leikmaður TuS N-Lübbecke í Bundersligunni, ræddi framtíð sína við blaðamann DV á dögunum. Þar kom m.a. fram að Þórir hefði áhuga á að vera áfram í atvinnumennsku en nokkur félög höfðu falast eftir kröftum hans þ.a.m. Fram. Það er alveg ljóst að lið Selfoss sækist líka eftir þessum snjalla leikmanni en á Selfossi á Þórir sínar rætur og mun vonandi leika aftur með Selfoss áður en ferli hans líkur.
Kl. 19:15 í kvöld mæta Selfyssingar FH-ingum í 1. deild karla. Hafnfirðingar hafa nú þegar unnið sig upp í efstu deild og óskum við þeim til hamingju með að vera orðnir deildarmeistarar. Við hvetjum okkar FRÁBÆRA stuðningsfólk að mæta á pallana og öskra strákana okkar áfram. Vonandi fáum við jafn kröftugan leik og á móti ÍR-ingum um daginn. Það fer enginn frá Selfossi með tvö auðveld stig.
Heimsíðan tók þá Guðjón Ágústsson frá Stærribæ og Magnús Nielsen Filmer frá Borg tali á æfingu um daginn, þeir eru báðir úr Grímsnesinu og eru keyrðir á æfingar á Selfoss þrisvar sinnum í viku. Þeir eru tveir af 15 -20 krökkum sem æfa handbolta á Selfossi en búa í sveitunum í kring.
Í leik Selfoss og Víkings á föstudaginn síðastliðinn fengu tveir Selfyssingar rautt spjald. Ramunas Mikalonis elsti leikmaður Selfyssinga og Sebastían Alexandersson þjálfari liðsins.
Þeir verða því í banni í leiknum á föstudaginn kemur. Sá leikur er hér heima gegn toppliði FH.
Handknattleiksdeildin ætlar nú einu sinni í viku að birta gamlar myndir úr starfi deildarinnar. Myndin sem ríður á vaðið var tekin þegar Ramunas Mikalonis skrifaði undir samning við Selfoss í maí árið 2000. Ramunas hefur verið á Selfossi allar götur síðan, er sestur hér að og fyrir löngu talinn Selfyssingur. Þess má geta þó myndin sé í svart/hvítu voru komnar litaljósmyndir á þessum tíma. Jón Ragnar var formaður á þessum tíma og er unglegur að sjá.
Hannes Jón Jónsson og fyrrverandi leikmaður Selfoss hefur gert 2 ára samning við Hannover Burgdorf, sem er í 6. sæti í 2.deild nyrðri í Þýskalandi, en þetta er sama félag og Robertas Pauzuolis leikur með. Hannes Jón, sem er 28 ára lék með Selfoss á árunum 2000-2002 og lék þá m.a. með Robertas og verða þeir því samherjar á ný hjá þýska atvinnumannaliðinu.
Á föstudaginn lék meistaraflokkur gegn Víkingum í Reykjavík. Fyrirfram var búist við jöfnum og spennandi leik, sú varð reyndar ekki raunin og var stórt tap niðurstaðan 34-17. Það var reyndar vitað fyrirfram að leikurinn yrði Selfyssingum erfiður þar sem liðið saknaði nokkurra lykilmanna. Byrjunarliðið í leiknum var mjög ungt og voru ungu strákarnir greinilega ekki komnir niður á jörðina eftir glæsilegan sigur á ÍR fyrir stuttu.
Sebastian Alexandersson, þjálfari 1. deildarliðs Selfossar, ræðir stórleikinn gegn Víkingi sem fram fer í Víkinni kl. 19:00 í kvöld.
Þeir Sigurður Már Guðmundsson, Árni Steinn Steinþórsson og Matthías Örn Halldórsson voru valdir í landsliðshóp pilta fæddir 1991. En liðið kemur saman nú um helgina til æfinga. Áður höfði þeir Ragnar Jóhannsson, Guðmundur Árni Ólafsson, Bjarki Már Elísson og Einar Héðinsson verið valdir í landsliðið leikmann fæddir 1990.
Við höfum ákveðið að skyggnast ítarlega á bakvið tjöldin hjá þessum örfáu "gamlingjum" sem eru í Selfossliðinu í dag. Mönnum sem eru nýhættir eða að stíga sín síðustu spor í boltanum. Það er komið að þeim síðasta. Áður höfum við tekið þá Sebastian og Arnar en núna er það Ramunas Mikalonis.
Á laugardaginn lék 92-lið Selfoss gegn Víkingum í Víkinni. Selfyssingar unnu örugglega 16-25 eftir að hafa leitt 7-10 í hálfleik. Getumunur liðanna er talsverður og fengu menn að spreyta sig í hinum ýmsu stöðum sem þeir eru ekki vanir. 92-liðið hefur leikið vel í vetur og bætt sig jafnt og þétt sem einstaklingar og ekki síst sem lið.
Leikurinn var frábær skemmtun fyrir þá 412 áhorfendur sem mættu á leik liðsins gegn ÍR síðastliðinn föstudag. Stemmningin og stuðningurinn frábær og ekki vantaði dramatíkina heldur. Allir 4 leikir liðanna hafa verið svona spennandi og úrslitin ráðist á síðustu augnablikunum.
HSK-mót í handbolta í 5. flokki karla fór fram í Iðu laugardaginn 5. apríl. Tvö lið sendu samtals sex lið til leiks. Selfoss var með fjögur lið og Dímon tvö. Aku þess kepptu ÍR-ingar sem gestir með tvö lið. Liðunum átta var skipt í tvo riðla og var keppt um sæti að lokinni riðlakeppni. Selfoss A endaði sem HSK-meistari eftir góðan 12-5 sigur á ÍR A. Mótið fór mjög vel fram og skemmtu strákarnir sér hið besta. Úrslit urðu eftirfarandi:
Baldur Þór meiddist illa í leik gegn Gróttu á dögunum. Skoðun hefur nú leitt í ljós að hann er með slitið krossband og rifinn liðþófa í hægra hné. Ekki er vitað hversu fljótt hann kemst í aðgerð en við vonum að hann nái sér sem fyrst sjálfs síns og liðsins vegna.
Leik Selfossliðanna sem átti að vera á sunnudag hefur verið frestað til fimmtudagsins 10. apríl kl. 20:30 vegna landsliðsæfinga hjá U-90 og vegna útileiks í 2. flokki sem er móti Stjörnunni á sunnudaginn. Það er frestaður leikur frá síðsutu helgi.
Í gærkvöldi fóru strákarnir í sinn síðasta útileik í deildinni og höfðu sigur 28-34. Þeir unnu því 7 útileiki, gerðu 1 jafntefli og töpuðu 1. Strákarnir unnu alla heimleikina sína og eiga einmitt 2 heimaleiki eftir í deildinni. Sigur í öðrum þeirra tryggir þeim Deildarmeistaratitilinn. Leikurinn í gær..
Tékkinn Michal Dostalic línumaður Selfyssinga hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann af aganefnd HSÍ. Michal fékk rautt spjald í haust í leik gegn Haukum og fór þá í eins leiks bann.
| Fjölnir | - | Selfoss | 14 | : | 32 |
| Selfoss | - | Víkingur | 22 | : | 20 |
| Selfoss | - | Þróttur | 35 | : | 22 |
| Afturelding | - | Selfoss | 26 | : | 25 |
| ÍBV | - | Selfoss | 23 | : | 25 |
| Selfoss | - | ÍR | 32 | : | 28 |
| Selfoss | - | Fjölnir | 36 | : | 17 |
| Víkingur | - | Selfoss | 30 | : | 32 |
| Selfoss | - | ÍBV | 33 | : | 29 |
| Þróttur | - | Selfoss | 20 | : | 44 |
| Selfoss | - | Afturelding | 32 | : | 23 |
| ÍR | - | Selfoss | 30 | : | 28 |
| Víkingur | - | Selfoss | 27 | : | 33 |
| Selfoss | - | Fjölnir | 34 | : | 17 |
| Selfoss | - | ÍR | 30 | : | 21 |
| ÍBV | - | Selfoss | 32 | : | 28 |
| Þróttur | - | Selfoss | 23 | : | 31 |
| Selfoss | - | Afturelding | 27 | : | 24 |
