Anton Freyr Traustason hefur verið valin í unglingalandslið leikmanna fæddir 1992 og síðar. Anton kemur úr Þorlákshöfn og er örvhentur hornamaður sem einnig getur leikið sem skytta. Hópurinn er skipaður 28 leikönnum og kemur saman um næstu helgi. Hópinn má sjá HÉR. Heimasíðan óskar Antoni til hamingju með áfangann og þetta verður honum vonandi hvatning til frekari afreka á handboltasviðinu.
Lokahóf barna- og unglingastarfs handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður föstudaginn 23. maí kl. 16:00 í Íþróttahúsi Vallaskóla. Á dagskránni eru leikir, skemmtiatriði, verðlaunaafhending, myndataka, grillveisla og softball-mót. Mikilvægt að allir iðkendur mæti í búningum vegna myndatöku, foreldrar og forráðamenn þeirra eru hvattir til að mæta. Það má taka með sér gesti.
Þórir Ólafsson er óviss um hvort hann verði áfram hjá þýska handboltaliðinu Lübbecke en hann meiddist öðru sinni á æfingu í vikunni. Þórir hefur verið frá lengst af á tímabilinu eftir að hann þríbrotnaði á viðbeini. Hann byrjaði aftur að æfa í apríl og hefur verið að komast í sitt besta form. Á þriðjudaginn meiddist hann hins vegar öðru sinni eftir að hafa lent illa eftir samstuð við félaga sinn.
Liðið skipuðu í vetur þeir Ómar Ingi, Oliver, Richard, Elvar, Magnús, Hákon, Símon, Eiríkur, Sindri, Andri Orri og Guðlaugur.
Undankeppni fyrir Evrópumót landsliða í handknattleik skipað leikmönnum 18 ára og yngri lauk um helgina. 8.riðill var leikinn í Reykjavík og átti Selfoss fjóra fulltrúa þá Ragnar Jóhannsson, Guðmund Árna Ólafsson, Bjarka Má Elísson og Einar Héðinsson.
Íslenska liðið er undir stjórn Einars Guðmundssonar og hafði talsverða yfirburði í þessum riðli og unnu alla sína leiki með 12-15 marka mun. Liðið hefur þar með tryggt sér sæti í lokakeppninni um Evrópumeistaratitilinn sem haldin verður í Brno í Tékklandi dagana 8.-17 ágúst n.k
Ísland sigraði Tyrkland 42-27 í síðasta leiknum í undankeppni EM U-18 ára liða karla, en undankeppnin fór fram í Austurbergi nú um helgina. Staðan í hálfleik var 17-11 Íslandi í vil.Fyrir leikinn var ljóst að Ísland kæmist áframá úrslitakeppni EM 18 ára liða sem fer fram í Tékklandi í ágúst, enda sigruðu strákarnir Letta 43-31 á föstudag og Finna 38-24 í gær, laugardag.
U-18 ára karlalandslið Íslands sigraði í dag Finna 38-24 í undankeppni EM U-18 ára liða og tryggði sér með því sæti á úrslitakeppni EM U-18 ára liða sem fer fram í Tékklandi í ágúst. Markahæstir hjá Íslandi voru Aron Pálmarsson með 8 mörk og Sigurður Ágústsson og Ragnar Jóhannsson með 6 mörk hvor. Ragnar átti mjög góðan leik í vörn og sókn. Guðmundur Árni gerði 3 mörk
Íslenska u-18 ára landslið karla hóf í dag leik í undankeppni fyrir EM sem fram fer í Austurbergi í fyrsta leik sínum lögðu strákarnir Lettland að velli 43-31 eftir að hafa verið 21-17 yfir í hálfleik.Selfyssingurinn Guðmundur Árni Ólafsson átti stórleik fyrir íslenska liðið og skoraði mörk í öllum regnbogans litum. Markahæstir hjá Íslandi voru: Guðmundur Árni Ólafsson með 13 mörk og þeir Aron Pálmarsson og Oddur Grétarsson skoruðu 7 hvor. Ragnar Jóhannson skoraði þrjú mörk og Bkarki Már Elísson 2. Einar Héðinsson lék ekki vegna meiðsla Í fyrri leik dagsins lögðu Finnir lið Tyrkja að velli 31-25 eftir að hafa verið 18-13 yfir í hálfleik.
Síðasta föstudagskvöld spilaði M.fl. sinn síðasta leik í 1. deildinni í vetur. Andstæðingurinn var Þróttur. Leikurinn vannst sannfærandi 42 - 21. Allir fengu að spila talsvert en Sebastian skipti liðinu í tvennt og léku "eldri" í 15 mín. og "yngri" í 15 mín. í hvorum hálfleik.
Samkvæmt nýrri mælingur voru yfir 37.000 heimsóknir á heimasíðu félagsins umfs.is í aprílmánuði. Að meðaltali eru þetta 1.236 heimsóknir á síðuna á dag sem verður að teljast harla gott hjá íþróttafélagi eins og Umf. Selfoss. Samkvæmt tölfræðinni voru síðuflettingar yfir 95.000.
| Fjölnir | - | Selfoss | 14 | : | 32 |
| Selfoss | - | Víkingur | 22 | : | 20 |
| Selfoss | - | Þróttur | 35 | : | 22 |
| Afturelding | - | Selfoss | 26 | : | 25 |
| ÍBV | - | Selfoss | 23 | : | 25 |
| Selfoss | - | ÍR | 32 | : | 28 |
| Selfoss | - | Fjölnir | 36 | : | 17 |
| Víkingur | - | Selfoss | 30 | : | 32 |
| Selfoss | - | ÍBV | 33 | : | 29 |
| Þróttur | - | Selfoss | 20 | : | 44 |
| Selfoss | - | Afturelding | 32 | : | 23 |
| ÍR | - | Selfoss | 30 | : | 28 |
| Víkingur | - | Selfoss | 27 | : | 33 |
| Selfoss | - | Fjölnir | 34 | : | 17 |
| Selfoss | - | ÍR | 30 | : | 21 |
| ÍBV | - | Selfoss | 32 | : | 28 |
| Þróttur | - | Selfoss | 23 | : | 31 |
| Selfoss | - | Afturelding | 27 | : | 24 |
