Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

6.6.2008 | Handboltaakademía

Handboltaskóli Landsbankans 9.-20.júní

Handknattleiksdeild umf. Selfoss í samvinnu við Landsbankann verður með handboltaskóla fyrir börn áaldrinum 8-12 ára (3.-6.bekkur) dagana 9.-20. júní í sumarÆfingarnar verða í Íþróttahúsi Vallaskóla alla virka morgna frá kl 10:00-12:00 Þjálfari er Eyþór Lárusson leikmaður m.fl.Farið verður í almenna leiki og tækniæfingar tengdar handbolta, mikil áhersla verður lögð á fjölbreytta hreyfingu, keppni og spil.   Skráning er á staðnum og verðinu er mjög stillt í hóf aðeins kr.2500.  

 

6.6.2008 | Handboltaakademía

Lokahóf elstu flokka félagsins og handboltaakademíunnar

Lokahófið var haldið fyrir nokkrum vikum og beðist er velvirðingar á því hversu seint umfjöllunin kemur. Hófið var haldið í Tíbrá og voru alls um 100 manns mættir. Lilja sem sér um mötuneyti akademíunnar sá um matinn en boðið var uppá stórglæsilegt hlaðborð og voru borðin hlaðin af mat. 

1.6.2008 | Handboltaakademía

Selfyssingar á úrtaksćfingum HSÍ

Þeir Gísli Þór Axelsson, Sverrir Pálsson, Jóhann Erlingsson og Gísli Örn Þórisson voru um síðast liðna helgi á úrtaksæfingum fyrir leikmenn fæddir 1994 og síðar. Um er að ræða 60 manna æfingahóp sem síðar verður valið úr unglingalandslið í haust. Selfoss strákarnir stóðu sig allir mjög vel á  æfingunum og sérstaka athygli vakti Gísli Þór enda hefur önnur eins stórskytta ekki komið fram lengi í íslenskum handbolta. Gísli er reyndar fæddur 1995 og því einu ári yngri en flestir á æfingunum.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta