Á Selfossi var svo blásið til meiriháttar gleði á 17. júní þegar handknattleiksdeildin var með Orkuboltann, fjórða árið í röð. Eins og áður var þetta haldið í Vallaskóla á meðan setning og hátíðardagskrá stóð yfir. Fyrst fengu börnin að spreyta sig í vítaköstum á móti markmönnum meistaraflokks og voru langar raðir barna eins og alltaf. Því næst voru það fulltrúar fyrirtækja í Árborg sem tóku áskorun Orkunnar um að keppa í vítakeppni.
