Handboltaæfingar hefjast mánudaginn 25. ágúst um leið og skólarnir byrja. Um 250 einstaklingar að æfa handbolta á Selfossi í dag og þeim hefur fjölgað um helming á síðustu 3 árum. Handknattleiksdeild Umf. Selfoss hefur skipað sér í fremstu röð í yngri flokkastarfi á Íslandi að undanförnu og var í vor veitt verðlaun fyrir besta yngri flokka starf á landinu. Hjá handknattleiksdeildinni starfa vel menntaðir og metnaðarfullir þjálfarar. Allir mega koma og prófa handbolta og sjá hvernig þeim líkar. Vinamiðar verða sendir heim með öllum iðkendum. Það verða síðan foreldrafundir í byrjun september það sem starfið verður kynnt nánar.
Í dag unnu Íslendingar Spánverja í undanúrslitaleik Ólympíuleikanna í handbolta í Peking. Þessi sigur án vafa eitt mesta afrek í íslenskri íþróttasögu. ÍSLAND LEIKUR TIL GULLVERÐLAUNA!! Leikurinn verður sýndur í sjónvarpinu kl. 07:45 á sunnudagsmorgun. Ljóst er að margir Selfyssingar munu fara snemma á fætur til að fylgjast með leiknum, eins og trúlega landsmenn flestir.
Í gærkvöldi spiluðu annars vegar Selfoss og Fram og hins vegar Valur og FH. Í fyrri leiknum unnu Framarar okkar menn 35 - 30 eftir að staðan í hálfleik var 16 - 13 fyrir Fram. Í síðari leiknum þá skildu Valur og FH jöfn 32 - 32, en staðan í hálfleik var 20 - 17 fyrir Val. Markaskorarar...
Ragnarsmótið í handbolta hefst í kvöld í íþróttahúsi Vallaskóla með tveimur leikjum. Fram og Stjarnan hefja leik kl. 18:30 og í kjölfarið, eða kl. 20:00, mætast færeyska liðið Neisti og FH. Á morgun fimmtudag 21. leikur Selfoss við Fram kl. 18:30 og síðan á eftir þeim leik Valur og FH kl. 20:00. Síðasta umferðin er svo á föstudag en þá eigast við Selfoss og Stjarnan kl. 18:00 og Neisti og Valur kl. 19:30. Úrslitaleikirnir hefjast svo á laugardag kl. 12:00. Úrslit verða birt jafnóðum í viðburðadagatalinu.
Undanfarið hafa birst hér á heimasíðu félagsins fréttir af frábærri frammistöðu íslenska landsliðsins á Ólympíuleikunum. Er hér um að ræða sömu fréttir og hafa birst í fjölmiðlum og netmiðlum á degi hverjum. Einnig komu nýlega inn fréttir af leikjum úr enska boltanum. Án efa hafa margir yndi af þessum fréttum og gaman þegar okkar fólk fjallar um þessa atburði út frá eigin brjósti. Stjórn félagsins vill þó beina þeim tilmælum til hlutaðeigandi að aðalsíða félagsins sé ekki notuð undir þessar fréttir þar sem þær eru meira almenns eðlis og fjalla ekki beint um okkar fólk. Meira en velkomið er að birta þær á síðum viðkomandi deilda, svo fremi að viðkomandi deildir séu því fylgjandi.
Því miður fyrir áhugasama lesendur verður ekki hægt að lesa áfram um afrek íslenska landsliðsins á Ólympíuleikunum í Peking þar sem umfjöllun um landsliðið þykir ekki við hæfi og er henni líkt við umfjöllun um enskan bolta. Við bendum því fólki á þetta: Ísland mun mæta Póllandi í 8-liða úrslitum á Ólympíuleikunum í Peking en það varð ljóst í gær. Leikurinn mun hefjast kl.06.15 og verður sýndur beint á RÚV. Aðrir leikir í 8-liða úrslitum eru: Frakkland - Rússland, Danmörk - Króatía og Suður-Kórea - Spánn.
Strákarnir í 18-ára landsliðinu töpuðu í dag fyrir Norðmönnum 33-34 eftir að hafa leitt 18-15 í hálfleik. Mest komust Íslendingar í 26-20 í síðari hálfleik en náðu ekki að klára verkefnið. Ragnar skoraði 7 mörk í leiknum, Guðmundur Árni 4 og Bjarki 1. Þetta tap setur strik í reikningin. Á morgun verða þeir að vinna Frakka sem hafa geysilega sterku liði á að skipa.
Ísland vann hreint stórkostlegan fjögurra marka sigur á heimsmeisturum Þjóðverja á Ólympíuleikunum í Peking, 33-29. Allt liðið átti stórkostlegan leik. Frábær byrjun Íslands á þessum leikum gefur vonandi fyrirheit um fleiri sigra og kannski eitthvað meira, hver veit? Það er glæsilegt og mikið afrek íslenska liðsins að leggja það þýska að velli.
Ragnarsmótið í handbolta hefst miðvikudaginn 20. ágúst með tveimur leikjum. Að vanda eru sex lið skráð til leiks, fjögur úrvalsdeildarlið (Valur, Fram, Stjarnan og FH) auk Selfoss og gestaliðs sem er Neisti frá Færeyjum. Mótið er jafnan eitt vinsælasta upphitunarmót fyrir komandi keppnistímabil. Leikinn er fullur leiktími 2x30 mín. Frítt er inn á alla leiki og hvetjum við alla til að mæta í íþróttahús Vallaskóla. Leikjaplanið fylgir hér:
18 ára landslið Íslands í handknattleik sigraði Dani í kvöld í lokalokaleik sínum í riðlakeppni úrslitakeppni Evrópumóts landsliða. Strákarnir höfðu áður leikið tvo leiki í riðlinum, gegn Finnum á föstudag og heimamönnum Tékkum á laugardag. Það var því ljóst fyrir leikinn að sigurliðið myndi fara með stigin úr þessum leik í milliriðil.
Ríkissjónvarpið sýnir frá talsvert mörgum handboltaleikjum, ekki bara með Íslandi. Við hvetjum fólk til að horfa á þessa leiki því eflaust er geysilega skemmtilegt mót í uppsiglingu. Leikirnir og tímasetningar eru hér:
Íslenska handboltalandsliðið fékk óskabyrjun á Ólympíuleikunum í Peking með því að vinna sigur á Rússum, 33-31. Ísland náði snemma frumkvæðinu í leiknum og náðu Rússar aldrei yfirhöndinni. Þegar rúmar fimm mínútur voru til leiksloka var forysta Íslands orðin sjö mörk en liðið hleypti þá Rússum óþarflega nálægt sér. Arnór Atlason skoraði svo markið sem gulltryggði endanlega sigur íslenska liðsins þegar ein og hálf mínúta var til leiksloka og breytti stöðunni í 32-28.
Landslið Íslands í handbolta skipað leikmönnum fæddum 1990 og fyrr er komið í átta liða úrslit á Evrópumótinu sem haldið er í Tékklandi. Það sem meira er að mótið fer fram í Brno sem er heimabær Michal Dostalic leikmanns Selfoss. Í landsliðshópnum eru fjórir Selfysingar.
Þriðji flokkur félagsins hóf æfingar í gærkvöld og má segja að strákarnir hafi tekið vel á því. Þessi flokkur leikur í undankeppninni þar sem ræðst í hvaða deild liðin verða um miðjan september. Stefnan er auðvitað sett á að ná því þriðja árið í röð að vera með bæði lið 3. flokks í efri deild. Það tekst ekki nema menn gefi allt í þær æfingar sem framundan eru, því eins og allir vita; er aðeins hægt að taka það út sem lagt hefur verið inn.
