Í gærkvöldi var dregið í 32 liða úrslitum Eimskips bikarsins. Selfoss sendi tvö lið til leiks og fékk 1. deildar liðið útileik við Hauka 2. Selfoss 2 fékk heimaleik við HK 2. Af öðrum áhugaverðum viðureignum má nefna Valur-HK, Stjarnan-Víkingur, ÍR-Afturelding og ÍBV-Fram. Íslandsmeistarar Hauka sitja hjá í fyrstu umferð.
4. flokkur A-lið lék um helgina í milliriðli sínum um að komast áfram í 1. deild í keppni A-liða. Það tókst ekki þar sem liðið gerði jafntefli við Þrótt og tapaði illa fyrir FH. Liðið leikur því í 2. deild í vetur.
Á föstudaginn sl. tapaði Selfoss fyrir ÍR á heimavelli í næstefstu deild í handbolta. Leikurinn endaði 30-35 eftir að ÍR hafi leitt 15-16 í leikhléi. ÍR-ingar voru mun ákveðnari og áttu sigurinn svo sannarlega skilinn.
Selfyssingarnir Birki Fannar Bragason markmaður og Ramunas Mikalonis hægri skytta voru valdir í lið fyrstu umferðar á handbolti.is. Fín viðurkenning fyrir þessa leikmenn sem báðir áttu stórleik í leiknum gegn Gróttu á föstudaginn. Einnig er Sebastían Alexandersson valinn sem þjálfari fyrstu umferðar.
Um helgina fór fram undankeppni 3.flokks fyrir komandi tímabil. 91-liðið lék á Selfossi í riðli með KA, Gróttu, Þrótti og FH-2. 92-liðið lék í Strandgötu gegn Haukum, HK, Þór og Fjölni. 91-liðið vann alla sína leiki örugglega og er því komið í fyrstu deild. 92-liðið tapaði tveimur leikjum, gerði eitt jafntefli og vann einn. Liðið leikur í milliriðlum um næstu helgi.
Keppni í 1. deild karla í handknattleik, næst efstu deild, hefst í kvöld með þremur leikjum sem allir hefjast klukkan 19.30. ÍR tekur á móti nýliðum ÍBV í íþróttahúsinu Austurbergi, Afturelding sækir Þrótt heim í Laugardalshöll og Grótta fær Selfoss í heimsókn í íþróttamiðstöðina á Seltjarnarnesi.
Sebastian Alexandersson, þjálfari meistaraflokks handknattleiksdeildar sem spáð er efsta sæti í 1. deild karla, var í athyglisverðu viðtali á handbolti.is um veturinn framundan. Þar var hann meðal annars spurður um möguleika liðsins í vetur, væntingar og framtíðarhorfur.
Strákarnir í 4.flokki karla B-liða fæddir 1994 stóðu sig vel í undankeppninni fyrir deildarskiptingu íslandsmótsins í handbolta. Þeir léku í Hafnarfirði og sigruðu alla sína leiki með yfirburðum og verða í 1.deild í vetur. Drengirnir fæddir 1993 eða 4.flokkur A-lið fóru norður á Akureyri og léku tvo leiki gegn sterkum liðum KA og Gróttu og töpuðu báðum en komast þó í milliriðil og eiga enn möguleika á að verða í 1.deild.
Æfingar handknattleiksdeildar eru nú komnar í fullan gang, iðkendum hefur fjölgað mikið í haust og er það eflaust góðu gengi íslenska handboltalandsliðsins að þakka. Sannkallað handboltaæði hefur gripið um sig og krakkar leika sér í handbolta um alla ganga í skólunum. Hinsvegar er engin útihandboltavöllur á Selfossi og er það verr. Vel heppnað grunnskólamót var í vikunni og voru þar þó nokkrir sem stigu sín fyrstu spor á handboltavellinum. Handknattleiksdeild hefur reyndar aðeins færri æfingatíma til umráða í vetur vegna mikilla þrengsla í íþróttahúsum bæjarins. Það er nokkuð ljóst að það þarf að byggja nýtt íþróttahús á næstu árum og spurning um hvort það eigi ekki að fara í forgang í uppbyggingu íþróttamannvirkja. Æfingatímar hafa verið auglýstir í staðarblöðum og hanga upp í íþróttahúsinu í Vallaskóla. Æfingatímar eru sem hér segir :
Fimmtudaginn 4. september fer fram Grunnskólamót í handbolta. Leikið verður með minni-bolta reglum; þ.e. lítill völlur, mjúkur bolti, færri reglur og allir geta tekið þátt. Allir sem vilja mega koma og taka þátt. Skipt verður í lið á staðnum en reynt að keppa eftir bekkjardeildum. Allir þjálfarar handknattleiksdeildar verða á staðnum og athuga hvort framtíðar landsliðsmenn leynist ekki í hópnum.
