Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

28.12.2009 | Nýjustu fréttir

Uppskeruhátíð ÍTÁ 2009 - þriðjudaginn 29. des.kl. 20:00

Árborg_merkiHin árlega uppskeruhátíð Íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar verður haldin í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands þriðjudaginn 29. des. kl. 20:00. Þar verða afhentir styrkir úr Afreks- og styrktarsjóðum Árborgar og íþróttafélaganna, þ.e. Umf Selfoss, Íþf. Suðra og Íþr. FSu. Hvatningarverðlaun verða veitt, afhentir styrkir fyrir afburðaárangur og jafnframt tilkynnt um kjör íþróttakonu og íþróttakarls árborgar 2009. Boðið verður upp á skemmtiatriði og kaffiveitingar. Allir eru velkomnir.

23.12.2009 | Handboltaakademía

B-lið 3. flokks tapaði naumlega fyrir Gróttu

Síðustu helgi spilaði 3. flokkur B lið sinn síðasta leik fyrir jól. Verkefnið var útileikur á móti Gróttu2 sem er einnig B lið í 2. deild Íslandsmótsins rétt eins og Selfoss 2. Leikurinn tapaðist 21-20 og skoraði Grótta sigurmarkið 11 sekúndum fyrir leikslok.

21.12.2009 | Handbolti

Selfoss sigraði HSK-mótið þriðja árið í röð

HSK-mót_2009_2589HSK-mót í meistaraflokki karla í handknattleik fór fram í Vallaskóla föstudaginn 18. desember s.l. Var þetta í þriðja skipti sem mótið er haldið eftir að það var endurvakið. Spilað var hraðmót þar sem hver leikur var 2x10 mín. Fjögur lið mættu til leiks, Árborg, Baldur, Dímon og Selfoss. Svo fór að lið Selfoss sigraði nokkuð örugglega. Í liðinu voru nokkrir liðsmenn úr 1. deildarliði Selfoss auk stráka úr 2. og 3. flokki. Úrslit leikja urðu eftirfarandi:

18.12.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur áfram í bikarnum

hand-boltamynd2Selfoss er komið í 8 liða úrslit í Bikarkeppninni í 2. flooks karla með naumum sigri á Fram 29-30 í gær. Andri Már Sveinsson skoraði sigurmarkið 9 sekúndum fyrir leikslok.

17.12.2009 | Handboltaakademía

Staðan í handboltanum um áramót

Heimasíðan ákvað að taka saman nokkur atriði um stöðuna hjá meistaraflokki nú um áramót. Mótið er nú tæplega hálfnað og hlé er á mótinu til 22. janúar, en þá byrjar fjörið aftur með heimaleik við ÍBV sem er í 3. sæti deildarinnar.

17.12.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur úr leik í bikarnum

Okkar drengir í 3. flokki sóttu Framara heim síðastliðinn þriðjudag og urðu því miður að játa sig sigraða 34-32 eftir að heimamenn leiddu í hálfleik 19-15. Selfoss lék mun betur en í leiknum á undan gegn sama Framliði. Nú var liðið einbeitt, þorði og lagði sig allt í verkefnið. Það dugði þó ekki að þessu sinni.

14.12.2009 | Handbolti

Jólatréssala 4. flokks kvenna

Íslensk jólatré af Suðurlandi verða til sölu helgina 19. og 20. desember á íþróttavellinum við Engjaveg. Opið laugardag og sunnudag kl. 10-18. Komum og kaupum íslensk tré og styðjum í leiðinni 4. fl. kenna í handbolta, sem er á leið á Partille Cup í Svíþjóð næsta sumar. Veljum íslenskt Stafafura, blágreni og rauðgreni.

14.12.2009 | Handboltaakademía

Þrír leikir hjá 2. og 3. flokki

Bæði 3. flokks liðin hafa leikið að undanförnu sem og yngra lið 2. flokks. Sigur náðist í tveimur leikjum af þremur. 92 lið Selfoss tapaði gegn Fram, 93 vann lið Þróttar og svo vann 91 (2. fl) lið Aftureldingar.

11.12.2009 | Handboltaakademía

Selfoss efst í deildinni eftir sigur á Víkingi

Í kvöld sóttu okkar menn Víkinga heim og unnu sigur 30-32. Staðan í hálfleik var 14-17 fyrir Selfoss. Sigurinn setur okkar menn á toppinn í jólafríinu og það sem skiptir meira máli er að Selfoss hefur unnið báða leikina við þetta sterka Víkingslið.

7.12.2009 | Handboltaakademía

Selfoss úr leik í Bikarnum

eimskipsbikarinnSelfoss tapaði í gær fyrir HK í 8 liða úrslitum í Bikarkeppninni. Leikurinn endaði 18-25 fyrir HK, en staðan í hálfleik hafði verið 9-10 fyrir gestina. Okkar menn náðu sér aldrei á strik í sókninni að þessu sinni og því fór sem fór. 

7.12.2009 | Handbolti

B-lið 4. flokks tapaði gegn Stjörnunni

B-lið 4. flokks karla lék gegn Stjörnunni í gær. Stjarnan er með hörkulið og vann m.a. A-lið ÍR í bikarnum. Selfyssingar léku gríðarlega vel lengst af í leiknum og var leikurinn í járnum löngum stundum. Í lokin hins vegar sigu Stjörnumenn nokkuð fram úr og náðu að sigra.

5.12.2009 | Handbolti

4. flokkur karla úr leik í bikar

4. flokkur Selfoss mætti Gróttu í bikar í gærkvöldi. Leikurinn var afar sérkennilegur og er óhætt að segja að lítið sem ekkert hafi fallið með Selfossi í leiknum. Eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik vann Grótta 28-21 sigur. Selfyssingar reyndu í leiknum en ólán þeirra var algjört þennan daginn og sem dæmi um það þá átti Selfoss heil 12 skot í annað hvort stöng eða slá í leiknum.

4.12.2009 | Handboltaakademía

Frábært jólahlaðborð handknattleiksdeildar

jÓlabjallaFimmtudaginn 3. des. hélt handknattleiksdeild Umf. Selfoss jólahlaðborð fyrir iðkendur í 3. flokki og upp úr. Auk þeirra mættu stjórn handknattleiksdeildar ásamt helstu styrktaraðilum handboltaakademíunnar. Alls voru um 75 manns sem gæddu sér að glæsilegum kræsingunum í Tíbrá.

30.11.2009 | Handbolti

4. flokkur karla spilaði tvo leiki á Akureyri

Strákarnir í 4. flokki Selfoss fór í gær ferð til Akureyrar og léku bæði A og B liðin gegn KA. Því miður var þetta ekki ferð til fjár því bæði lið töpuðu í æsispennandi leikjum. Möguleiki var í báðum leikjum að ná í það minnsta jafntefli og jafnvel sigri, en því miður fór ekki svo. B-liðið spilaði sinn besta leik í vetur og er það jákvætt. A-liðið hins vegar var langt frá sínu besta.

30.11.2009 | Handboltaakademía

Tap hjá hinu liði 2. flokks

Framarar gerðu góða ferð til Selfoss í gær og unnu okkar menn 33-35 í hörkuleik. Selfyssingar leiddu í 57 mínútur af 60 í leiknum, en það dugir víst ekki.  Í hálfleik stóð 19-17 fyrir heimamenn.

30.11.2009 | Handboltaakademía

Sigur á FH í 2. flokki

Í gær sunnudag tók A lið 2. flokks á móti FH. Gestirnir mættu frískir en það entist bara fram að hálfleik en þá var staðan 18-14 fyrir Selfoss. Í seinni hálfleik settu okkar með í 5. gír og unnu sanngjarnan sigur 42-25.

30.11.2009 | Handboltaakademía

Tap fyrir Haukum hjá B-liði 3. flokks

Á laugardaginn mætti B liðið okkar A liði Hauka í 2. deildinni á Íslandsmótinu í 3. flokki. Haukar hafa ekki tapað leik í vetur og tróna á toppi deildarinnar. Haukar unnu 31-27. Staðan í hálfleik var 14-13 fyrir Hauka.

27.11.2009 | Handboltaakademía

Sannfærandi sigur á Fjölni

Í kvöld tóku okkar menn á móti Fjölni í 1. deildinni í handbolta. Það var ljóst frá upphafi í hvað stefndi því að heimamenn settu strax í fluggírinn og héldu honum allan tímann. Staðan í hálfleik var orðin 18-6 og leikurinn endaði síðan með öruggum 19 marka sigri Selfyssinga, 36-17.

26.11.2009 | Handbolti

Selfoss fékk HK í 8 liða úrslitum Eimskips bikarsins

eimskipsbikarinnÁ þriðjudaginn var dregið í 8 liða úrslitum Eimskips bikars karla. Selfoss dróst á móti HK og verður leikurinn í Vallaskóla sunnudaginn 6. desember kl. 19:00. Í hinum leikjunum eigast við FH og Haukar, sama dag kl. 16:00, Valur og Fram mánudaginn 7. des kl. 19:30 og svo Víkingur og Grótta 7. des kl. 19:30. Nú verða Selfyssingar að þjappa sér vel saman og styðja strákana dyggilega í leiknum við HK.

24.11.2009 | Nýjustu fréttir

Hádegisfundur ÍSÍ - Ungt fólk 2009

ÍSÍ_merkiHádegisfundur ÍSÍ verður haldinn föstudagurinn 27. nóv. Jón Sigfússon framkvæmdastjóri og Álfgeir Logi Kristjánsson rannsóknarstjóri hjá Rannsóknum og Greiningu við HR munu fara yfir rannsóknina Ungt fólk 2009 og rýna í þá þætti sem snúa að íþróttum og/eða íþróttaiðkun. Fyrirlesturinn verður í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal frá kl. 12.00-13.00. Hann er ókeypis og öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.

23.11.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur B-lið gerði jafntefli við HK

Á laugardaginn mættu strákarnir okkar, sem eru í B liði 3. flokks og spila í 2. deild Íslandsmótsins, liði HK sem er eitt það besta í deildinni. Strákarnir ákváðu að gefa allt í leikinn og sjá hverju það myndi skila. Það skilaði jafntefli 37-37 en í hálfleik var 18-18. Frábær leikur hjá strákunum. 

23.11.2009 | Handbolti

Auglýsingarskilti fyrir heimaleiki Selfoss í 1. deild í handbolta

HandboltaskiltiLiðsmenn meistaraflokks Umf. Selfoss í handbolta ásamt stuðningsmönnum stóðu fyrir gerð auglýsingarskiltis fyrir heimaleiki liðsins í vetur. Verður skiltið notar til að minna á leiki liðsins og verður staðsett á Austurvegi á leikdag. Skiltið var gert með stuðningi BYKO og eru plöturnar með nöfnum keppnisliðanna framleiddar í númeragerð fangelsisins á Litla Hrauni. Fagform skiltagerð á Selfossi annaðist merkingu þess. Vilja liðsmenn meistaraflokks og stuðningsmenn þakka ofangreindum aðilum stuðninginn.

23.11.2009 | Handboltaakademía

91 og 92 léku um helgina

Eldra lið 3. flokks (92) og yngra lið 2. flokks (91) léku bæði um helgina og verður að segjast eins og er að útkoman var fjarri því sem menn höfðu óskað sér. Tap niðurstaðan í báðum leikjum. 92 tapaði í Hafnarfirði fyrir FH og 91 í Eyjum fyrir ÍBV.

22.11.2009 | Handbolti

Selfoss HSK meistari í 4. flokki (með myndum)

HSK mótið í 4. flokki í handknattleik fór fram í Vallaskóla í dag. Fjögur lið kepptu þar, tvö frá Selfossi auk þess sem Biskupstungur og Dímon frá Hvolsvelli léku á mótinu. Mótið gekk verulega vel og stóð Selfoss 1 að lokum uppi sem sigurvegari með fullt hús stiga (6 stig). Mikil barátta var milli hinna liðanna um sæti. Tveir af þremur leikjum þeirra lauk með jafntefli og náði Selfoss 2 að vinna Dímon með einu marki og tryggja sér þannig 2. sætið með 3 stig. Biskupstungur enduðu í 3. sæti með 2 stig og að lokum varð Dímon í 4. sæti með 1 stig.

21.11.2009 | Handbolti

HSK-mótið í 4. flokki á sunnudaginn

HSK-mótið í 4. flokki fer fram um helgina. Á mótinu eru bæði lið Selfoss í flokknum auk þess að Dímon og Biskupstungur munu taka þátt. Mótið fer fram á sunnudaginn og er fólk eindregið hvatt að mæta og sjá skemmtilegt handboltamót. Leikjafyrirkomulag er hér fyrir neðan.

20.11.2009 | Handboltaakademía

Sigur á ÍR

Í kvöld unnu okkar menn lið ÍR 32-28. Sigurinn var mun öruggari en tölurnar gefa til kynna, en Selfoss komst mest í 25-12 þegar um 19 mín. voru eftir af leiknum. Staðan í hálfleik var 16-9.

20.11.2009 | Handbolti

Stórleikur í handboltanum í kvöld kl. 19:30

IR_merkiLógó SelfossÍ kvöld sækja ÍR-ingar Selfyssinga heim í 1. deild karla í handbolta. Þetta verður án efa stórleikur, eins og ávallt þegar þessi lið hafa mæst undanfarin tímabil. Eftir 5 umferðir er Selfoss í 2. sæti deildarinnar með 8 stig, en ÍR-ingar eru í 3.-4. sæti ásamt Víkingum með 6 stig. Selfyssingar hafa bara tapað einum leik með einu marki gegn Aftureldingu sem er efst í deildinni með fullt hús stiga. Nú er um að gera að skella sér í Vallaskóla í kvöld og sjá spennandi viðureign. Leikur Selfoss og ÍR hefst kl. 19:30.

18.11.2009 | Handboltaakademía

Selfoss komið í 8 liða úrslit Bikarsins

Í gærkvöldi vann Selfoss lið Þróttar á útivelli 30 - 15 og er því komið í 8 liða úrslit Bikarkeppninnar. Sigurinn var sannfærandi eins og tölurnar gefa til kynna. Varnarleikur og markvarsla heldur áfram að vera aðall liðsins og þá lagaðist sóknarleikurinn aðeins frá síðustu leikjum.

18.11.2009 | Nýjustu fréttir

Er Sjónvarpið að mismuna félögum?

Í gærkvöldi áttust við Þróttur og Selfoss í 16 liða úrslitum Eimskips bikars karla í handbolta. Fór leikurinn fram í Laugardalshöllinni. Margir hafa eflaust beðið spenntir eftir úrslitunum í 10 fréttunum í Sjónvarpinu og að fá að sjá svipmyndir úr leiknum. Í lok fréttatímans var sagt frá leik Hauka og Hauka 2, sem einnig var í 16 liða úrslitunum og sýndar myndir úr þeim leik. Ekki var svo mikið sem minnst einu orði á leik Þróttar og Selfoss, hvað þá að sýndar væru myndir úr leiknum. Með þessu er Sjónvarpið augljóslega að mismuna félögum.

17.11.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur vann HK á heimavelli

Á sunnudaginn komu HK menn í heimsókn í 1. deildinni í 2. flokki. Okkar strákar voru mun betri í leiknum og skiluðu af sér 12 marka sigri 37 - 25 eftir að hafa leitt í hálfleik með 8 mörkum eða 17 - 9.

16.11.2009 | Handboltaakademía

91-liðið með sigur

Haukar frá Hafnarfirði sóttu okkar menn heim í gær og léku gegn 91-liði Selfoss. Ekki var leikurinn neitt áferðarfallegur, en tvö stig í hús fyrir okkar menn er jú það sem skiptir öllu. 30-22 sigur eftir að í hálfleik stóðu leikar 13-10.

16.11.2009 | Handboltaakademía

Sigur hjá 92-strákunum

Á laugardaginn unnu heimamenn á Selfossi lið Mosfellinga 35-26 eftir að í leikhléi hafi staðið 17-13. Leikurinn var sveiflukenndur, en lauk þó með öruggum sigri okkar manna.

15.11.2009 | Handbolti

A-lið 4. flokks sigraði HK á útivelli

A-liðið í 4. flokki fór í Kópavoginn í dag að leika við HK. Um var að ræða hörkuleik sem var jafn lengst af. Selfyssingar voru lengi í gang, en náðu að leiða 14-15 í hálfleik og vinna 25-31 í furðulegum leik. Strákarnir stóðu saman þegar mest á reyndi og héldu áfram þrátt fyrir mótlæti og geta þakkað því að þeir náðu að sigra leikinn.

14.11.2009 | Handboltaakademía

Sætur sigur í Eyjum

Fyrr í dag vann Selfoss lið ÍBV á erfiðasta útivelli landsins. Það var frekar sætur sigur því að í lokin stefndi allt í það að Selfoss myndi kasta frá sér sigrinum á sama hátt og gegn Aftureldingu á þriðjudaginn. Í þetta skipti var liðið þó ekki rænt sigrinum heldur má segja að liðið hafi í lokin stolið til baka því sem var búið að tapa niður, þ.e. sigri.

14.11.2009 | Handbolti

B-lið 4. flokks lék gegn FH

B-lið 4. flokks lék gegn FH í dag í Vallaskóla. Fyrri hálfleikur var jafn lengst af en í síðari hálfleik sigu FH-ingar fram úr og unnu 17-23. Selfoss bætti sig mikið frá seinasta leik þótt enn sé margt sem megi gera betur.

13.11.2009 | Handboltaakademía

Nóg um að vera um helgina í handboltanum

Hand_boltiÞað er margt að gerast í handboltanum hér á Selfossi um helgina. Á morgun fara fram tveir leikir í Vallaskóla. Kl. 13.00 Selfoss - UMFA í 3. fl. 1. deild. Strax á eftir þeim leik eða kl. 15.15 er leikur í 4. fl. B karla, Selfoss - FH. Á sunnudaginn fara fram þrír leikir. Kl. 12.15 Selfoss - Grótta í 3. fl. kvenna, tveir leikir í 2. fl. karla, kl. 17.00 og 18.45. Selfoss2 - Haukar2 og Selfoss - HK. Góða skemmtun og áfram Selfoss!

13.11.2009 | Handboltaakademía

Góður sigur hjá 92-liðinu

Gróttumenn af Seltjarnarnesi sóttu okkar heim á Selfoss í gærkvöld og léku í 3. flokki karla. Þeir höfðu ekki erindi sem erfiði og fóru heim tómhentir. Selfyssingar báru sigur úr býtum 38-33 eftir að hafa leitt í hálfleik 19-16.

11.11.2009 | Handboltaakademía

Ótrúlegt tap gegn UMFA á útivelli

Hvað á maður að segja annað en ótrúlegt! Selfoss átti sigurinn algjörlega skilinn í gær en á einhvern ótrúlegan hátt tapaðist leikurinn. Það má segja að það hafi verið margt smátt frekar en eitthvað eitt atriði sem varð til þess að leikurinn tapaðist. Sjá meira..

10.11.2009 | Handbolti

B-lið 4. flokks tapaði í bikar

Strákarnir í B-liði 4. flokks mættu Gróttu í bikarnum um helgina. Selfoss liðið náði sér aldrei á strik í leiknum. Frá fyrstu mínútu voru okkar menn langt frá sinni eðlilegu getu. Í sókninni vantaði alla ákveðni og leikmenn virkuðu smeykir. Varnarlega var liðið afar lengi í gang.

10.11.2009 | Handboltaakademía

Á leið á Partille-cup

Gamla myndin að þessu sinni er af 3.flokki karla á leið á Partille-cup trúlega sumarið 1992 eða 1993. Þjálfarar voru Einar Gunnar Sigurðsson og Daði Steinn. Þetta eru árgangar 1977 og 1978.Þarna voru kempur eins og Halli Geir, bræðurnir Gísli og Jói, Steindór Tryggva, Óttar, Bent o.fl.

9.11.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur B-lið vann ÍBV á heimvelli

Á föstudagskvöldið strax á eftir leiknum við Þrótt í mfl. tóku strákarnir í B-liði 3. flokks á móti ÍBV í 2. deild karla á Íslandsmótinu. Tæpri viku áður höfðu þeir spilað við ÍBV í Eyjum en þá vann ÍBV með 5 mörkum. Í þetta skipti snérist það við og Selfoss vann 29 - 26.

9.11.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur tapaði á Akureyri

Á laugardaginn fór 2. flokkur til Akureyrar og mætti þar heimamönnum. Akureyri er með eitt besta liðið á landinu og því var þetta mikilvægur leikur í toppbaráttu deildarinnar. Akureyri tapar mjög sjaldan á heimavelli og það breyttist ekkert í þetta skipti. Akureyri vann leikinn 33 - 31.

8.11.2009 | Handbolti

A-lið 4. flokks sigraði í fyrsta heimaleik sínum

Fyrsti heimaleikur A-liðs 4. flokks karla fór fram í Vallaskóla í dag. Hátt í 100 manns mættu á leikinn sem var vel leikinn af hálfu Selfoss. Strákarnir höfðu yfirhöndina nær allan leikinn og unnu að lokum góðan 32-25 sigur eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik. Liðið fer því vel af stað á heimavelli í vetur.

6.11.2009 | Handboltaakademía

Selfoss vann Þrótt í mfl. á heimavelli

Fyrr í kvöld mættu Þróttarar á Selfoss til þess að spila við Selfoss í 1. deild karla á Íslandsmótinu í handknattleik. Selfoss vann leikinn 35 - 22 eftir að hafa haft 11 marka forystu í hálfleik 21 - 10.   

6.11.2009 | Handbolti

Fyrstu heimaleikir 4. flokks karla

Hand_bolti4. flokkur karla leikur um helgina fyrstu heimaleiki sína í vetur. Á laugardag mætir A-liðið Haukum kl. 14:00. B-liðið leikur svo við Gróttu í bikar á sunnudag kl. 13:15. Fólk er eindregið hvatt til að mæta á leikina, en strákarnir í 4. flokki eru staðráðnir í að standa sig vel í vetur og vilja fá sem flesta til að koma á leikina í Vallaskóla í vetur.

5.11.2009 | Nýjustu fréttir

Ungmennaþing Árborgar verður í Pakkhúsinu 8. nóvember

UngmennaþingSunnudaginn 8. nóvember kl. 14:00 verður ungmennaþing Árborgar haldið í Pakkhúsinu, ungmennahúsi Árborgar að Austurvegi 2b, (fyrir aftan bókasafnið). Þingið er ætlað öllum ungmennum í Árborg á aldrinum 13 - 30 ára. Markmið þingsins er að skoðanir ungmenna úr öllum byggðarkjörnum Árborgar komi fram. Niðurstöður þingsins verða síðan afhent bæjarstjórn Árborgar.  Yfirskrift þingsins er: "Ekki sitja heima og röfla, komdu þinni skoðun á framfæri". Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar og Gylfi Þorkelsson, bæjarfulltrúi og formaður íþrótta- og tómstundanefndar munu ávarpa þingið. Boðið verður upp á léttar veitingar. Allir velkomnir

4.11.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur fór til Eyja

Strákarnir í B-liði 3. flokks fóru til Eyja um síðustu helgi. Nánast nýkomnir frá Ísafirði og Akureyri þar á undan. Í þetta skipti náðu þeir ekki að sigra "úti á landi" en A lið ÍBV reyndist betri aðilinn í þessum leik. Slæmur fyrri hálfleikur kostaði möguleika á sigri að þessu sinni

3.11.2009 | Handbolti

4. flokkur karla áfram í bikar

4. flokkur karla lék við Þrótt B í Laugardalshöllinni, en leikurinn var í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar í 4. flokki. Yfirburðir Selfoss voru miklir og unnu þeir að lokum 39-13 sigur. Drengirnir eru því komnir í 16-liða úrslit bikarsins og þurfa núna þrjá sigra til viðbótar til í að komast í sjálfan bikarúrslitaleikinn.

2.11.2009 | Handboltaakademía

Raggi í viðtali

Ragnar Jóhannsson er í viðtali á heimasíðunni í þesari viku. Ragnar er 19 ára unglingalandsliðsmaður. Hann lék með pressuliðinu gegn íslenska A-landsliðinu í siðustu viku og stóð sig mjög vel, skoraði 3 mörk með þrumuskotum og var hvergi banginn við stjörnurnar í landsliðinu. ....

30.10.2009 | Handbolti

Selfoss fékk Þrótt í 16-liða úrslitum Eimskips bikarsins

eimskipsbikarinnÍ hálfleik á pressuleiknum sem fram fór í gærkvöld var dregið í 16-liða úrslit karla og kvenna í Eimskips bikarnum. Selfyssingar drógust gegn Þrótti og eiga útileik. Leikið verður í 16-liða úrslitum hjá konunum 10. og 11. nóvember og hjá körlunum 15. og 16. nóvember. Stórleikur þessarar umferðar er án efa leikur Akureyrar og FH á Akureyri. Þá eigast einnig við Stjarnan og Grótta. Bikardráttinn má sjá hér að neðan...

30.10.2009 | Handboltaakademía

2.flokkur lék gegn Stjörnunni

Fyrir stuttu okkar menn í 91-liðinu Stjönumenn heim. Garðbæingar hafa á sterku liði að skipa og var því ljóst að um erfiðan leik yrði að ræða. Því miður náðu okkar menn alls ekki að leika eins og þeir eiga að geta best og unnu heimamenn sanngjarnan og öruggan sigur.

28.10.2009 | Handboltaakademía

Árni Steinn í viðtali

Síðuritari hafði fyrir nokkru síðan samband við einn af okkar ungu leikmönnum, örvhenta hornamanninn Árna Stein Steinþórsson. Var hann svo almennilegur að svara nokkrum spurningum varðandi handboltamál. Síðuritari hafði einnig samband við Arnar Gunnarsson sem þjálfað hefur drenginn í nærri sex ár og spurði hvað honum þætti um Árna Stein.

27.10.2009 | Handboltaakademía

Gamla myndin var tekin árið 1993

Gamla myndin var tekin árið 1993 eftir nauman sigur. Ásmundur Jónsson (16), Sigurjón Bjarnason (7), Grímur Hergeirsson(3) og Oliver Pálmason(20), þakka áhorendum stuðninginn. Ungur og efnilegur leikmaður Sævar Þór Gíslason hafði greinilega ekkert fengið að fara inná og var ennþá í flotta Rucanor gallanum eftir leik og ennþá með gleraugun á sér.

26.10.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur vann Hauka á heimavelli

A-liðið í 2. flokki spilaði sannkallaðan stórleik í gær gegn stjörnum prýddu liði Hauka. Byrjunarlið Haukamanna innihélt alls 6 landsliðsmenn og 1 fyrrum landsliðsmann. Við Selfyssingar eigum aðeins 1 slíkan og því var ljóst að þetta yrði erfiður leikur. Með Haukum spilar "okkar" maður Guðmundur Árni Ólafsson og var þetta hans fyrsti leikur á heimaslóðum.

26.10.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur vann á Ísafirði

Strákarnir í 3. flokki B sem spila í 2. deild Íslandsmótsins brugðu undir sig betri fætinum og spiluðu gegn Herði á Ísafirði á laugardaginn. Talsvert er um veikindi í þessu liði en það náðist í lið og alls fóru 8 leikmenn vestur, þar af 2 markmenn.

24.10.2009 | Handboltaakademía

Meistaraflokkur vann Víking í fyrsta heimaleik vetrarins

Ragnar_wideÍ gærkvöldið unnu okkar menn Víkinga á heimavelli 22 - 20 eftir að staðan hafði verið 10 - 11 í hálfleik fyrir gestina. Leikurinn var ekki sá besti sem hefur sést í Vallaskóla, en spennandi var hann og skemmtilegur fyrir áhorfendur. Í lið Selfoss vantaði alla þrjá leikstjórnendur liðsins að þessu sinni vegna meiðsla.

23.10.2009 | Nýjustu fréttir

Góður stuðningur úr Verkefnasjóði HSK

HSK_merkiStjórn Verkefnasjóðs HSK tilkynnti nýlega úthlutun úr sjóðnum í ár. Alls bárust 63 umsóknir til sjóðsins og af þeim fengu 55 úthlutað styrk. Umf. Selfoss sendi inn 29 umsóknir og fengu 26 styrk. Góður fengur er í stuðningi verkefnasjóðsins sem kemur sér vel fyrir félög og einstakar deildir þegar kreppir að á auglýsinga- og styrkjamarkaði.

23.10.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur lék við ÍR-inga í gær

Í gærkvöld sóttu strákarnir í 92-liðinu ÍR-inga heim. Heimamenn eru ávallt erfiðir og mátti því búast við hörkuleik. Sem og varð svo raunin.

21.10.2009 | Handboltaakademía

Góð helgi hjá 3. flokki

Á laugardaginn síðasta kom KA í heimsókn á Selfoss með liðin sín tvö og léku þau við Selfoss-92 og Selfoss-93. Jafntefli varð í leik 92-liðsins 35-35, en 93-strákarnir unnu sinn leik 33-24. 

20.10.2009 | Handbolti

Selfoss í 16-liða úrslit í Eimskips bikarnum

eimskipsbikarinnÍ gærkvöldi komumst Selfyssingar í 16 liða úrslit í Eimskips bikarnum með sigri á Aftureldingu 2. Það lið var skipað fyrrverandi leikmönnum Aftureldingar og sumir þeirra voru auk þess fyrrverandi landsliðs- og atvinnumenn. Okkar menn áttu ekki í teljandi vandræðum með andstæðingana að þessu sinni enda talsverður munur á úthaldi og líkamsstyrk liðanna. Staðan í hálfleik var 22 - 11 fyrir Selfoss og lokatölur urðu 38 - 19.

19.10.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur vann og tapaði í 2. umferð

Það var ólíku gengi að fagna um helgina hjá 2. fl. liðunum. A liðið spilaði á útivelli við Val/Þrótt og B liðið spilaði heima gegn nýliðum HKR (Reykjanesbær). A liðið tapaði óvænt, en B liðið vann sinn leik sannfærandi.

19.10.2009 | Handbolti

Selfyssingar unnu Landsbankamótið

Selfoss sigraði á Landsbankamótinu í handbolta í 6. flokki drengja sem haldið var í íþróttahúsi Vallaskóla og íþróttahúsi Fsu um helgina. Selfoss strákarnir höfðu talsverða yfirburði í undanriðlum og undanúrslitum og unnu svo FH-inga í hörku úrslitaleik 10-7. Selfoss var með tvö A-lið stráð til keppni og náði hitt liðið 10.-12. sæti af 43 liðum, þrátt fyrir veikindi lykilmanna.

16.10.2009 | Handbolti

Bikarleikir í Vallaskóla á mánudag kl. 18:30 og 20:15

eimskipsbikarinnLeikur Selfoss og Aftureldingar 2 í Eimskipsbikarnum hefur verið færður á Selfoss og fer hann fram í íþróttahúsi Vallaskóla mánudaginn 19. október kl. 18:30. Strax að þeim leik loknum eða kl. 20:15 leikur lið Árborgar við N1 deildarlið HK. Báðir leikirnir eru í 32-liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Aðgangseyrir á báða leikina er 500 kr. Frítt er inn fyrir 16 ára og yngri.

16.10.2009 | Nýjustu fréttir

Fjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst 2. nóvember

ÍSÍ_merkiHaustannarfjarnám ÍSÍ hefst mánudaginn 2. nóvember næstkomandi. Um er að ræða 1. stig almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ sem gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið tekur 8 vikur og jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu. Námið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa á þjálfun í einhverri íþróttagrein. Hlé verður gert á náminu frá miðjum desember og fram í janúar.  Lokaverkefni verður ekki skilað fyrr en á nýju ári. 

14.10.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur karla byrjar á tveimur sigrum

Íslandsmótið í 2. flokki karla hófst um síðustu helgi með útileik hjá Selfossi 2 og heimaleik hjá Selfossi 1. Yngra liðið spilaði við Fjölni á sunnudaginn og eldra liðið við Víking á mánudaginn. Sigruðu lið Selfoss í báðum leikjunum. Selfoss 2 spilar í 2. deild, en Selfoss 1 í 1. deild. Bæði liðin byrjuðu því vel og vonandi tekst þeim að halda sigurgöngunni áfram.

14.10.2009 | Handbolti

Fjórar Selfoss-stelpur í u-15 æfingahópi HSÍ

HSI_logoFjórar stelpur frá Selfossi voru valdar í u-15 æfingahóp HSÍ, en hópurinn kemur saman um helgina. Þær sem voru valdar eru Birta R. Antonsdóttir, Díana Sigmarsdóttir, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Kristrún Steinþórsdóttir. Þeir Hilmar Guðlaugsson og Sigurgeir Jónsson eru verkefnisstjórar. Fyrsta æfingin er í Digranesi í Kópavogi á föstudaginn.

12.10.2009 | Handbolti

Sigur í fyrsta leik

Á föstudaginn vann meistaraflokkur karla fyrsta leikinn sinn í 1. deildinni frekar sannfærandi. Mótherjinn var Fjölnir í Grafarvogi. Leikurinn endaði 32 - 14, en staðan í hálfleik var 11 - 5 fyrir okkar menn.

12.10.2009 | Handbolti

´97 strákarnir unnu fyrsta mót vetrarins

Strákarnir í 5.flokki drengja yngra ár unnu öruggan sigur í fyrstu umferð Íslandsmótsins í handknattleik en mótið fór fram í Digranesi í Kópavogi. Þessir strákar urðu Íslandsmeistarar í fyrra og byrja þetta keppnistímabil vel. Fyrirkomulag Íslandsmótsins er þannig að öll lið landsins etja kappi í fimm mótum yfir veturinn. Hvert mót telur til stig til Íslandsmeistaratitils. Selfoss-strákarnir unnu alla sína leiki mjög örugglega en unnu síðan gott lið KR í æsispennandi úrslitaleik.

11.10.2009 | Handbolti

4. flokkur karla lék í gær við FH A og B

Bæði lið 4. flokks Selfoss léku á laugardag gegn FH í Kaplakrika en þetta voru fyrstu leikir Íslandsmótsins í 4. flokki. Báðir leikirnir töpuðust þrátt fyrir góða möguleika hjá liðunum að vinna sína leiki. Í A-liðum vann FH 34-30 eftir að Selfoss hafi leitt meirihluta leiksins. Í B-liðum var jafnræði lengst af og vann FH þar 24-21.

10.10.2009 | Handbolti

Sigur í fyrsta leik hjá meistaraflokki

Selfoss vann í gærkvöld Fjölnismenn 32:14 á útivelli. Sigurinn var aldrei í hættu og öruggur 18 marka sigur í höfn. Staðan í hálfleik var 11:5.

9.10.2009 | Handbolti

Landsbankamótið í handbolta verður á Seflossi helgina 16.-18. október

Helgina 16.-18. okt. verður Landsbankamótið í handbolta hjá 6. flokki drengja haldið á Selfossi.  Handknattleiksdeild Umf. Selfoss heldur mótið sem er hluti af Íslandsmeistaramótinu í 6. flokki drengja eldra ár. Á Selfoss munu streyma 11 ára strákar.  Alls eru 43 lið skráð til leiks og búast má við um 450 keppendum og öðru eins af foreldrum og liðstjórum. Leikið verður í íþróttahúsi Vallaskóla og íþróttahúsi FSu Iðu.

9.10.2009 | Handboltaakademía

Norðurferð og frestun hjá 3.flokki karla

Um síðustu helgi fór 3. flokkur karla norður og atti þar kappi við KA og Þór. 92-liðið lék gegn KA á laugardegi og Þór á sunnudegi, en 93-liðið lék á laugardegi við KA. Þeir drengir léku aðeins einn leik þar sem Þór hefur eitt lið.

30.9.2009 | Handbolti

A-stigs dómaranámskeið HSÍ verða haldin í haust

HSI_logoDómaranefnd HSÍ mun bjóða aðildarfélögum HSÍ uppá A-stigs námskeið nú í haust líkt og gert var í vor. Námskeiðið munu fara fram hjá félögunum og á mánudagskvöldum. Miðað er við að hefja námskeiðið kl.19.00 og það sé búið um 22.00. Gert er ráð fyrir kaffipásu og verða félögin að útvega veitingar. Þátttakendur verða vera á eldra ári 4. flokks eða eldri. Lámarks fjöldi er 20 manns.

29.9.2009 | Handboltaakademía

Áfall fyrir meistarflokk og 2. flokk

Hörður "Sjóli" Másson er handarbrotinn og verður í gifsi a.m.k. næstu 2 vikurnar. Hann meiddist í leik Selfoss og Vals á Ragnarsmótinu þegar varnarmaður Vals hrinti honum í uppstökki með þeim afleiðingum að hann féll illa á hendina. Í fyrstu var talið að um slæma tognun væri að..

29.9.2009 | Handboltaakademía

3.flokkur: A liðið fer norður um næstu helgi - B-liðið leikur heima

Um næstu helgi fer 3.flokkur Selfoss norður til Akureyrar og etur þar kappi við lið KA og Þórs. Á laugardaginn kl 16 leika okkar menn við KA í KA-heimilinu og daginn eftir við Þórsara í Síðuskóla kl 13.

28.9.2009 | Handbolti

4. flokkur kvenna spilar í 1. deild í vetur

A-lið 4. flokks kvenna spilaði í forkeppni um sæti í 1. deild um síðustu helgi og var keppt í Vallaskóla. Fram vann Fylki sannfærandi í fyrsta leik 22-9 eftir að hafa verið yfir 4-14 í hálfleik. Selfoss vann Fylki örugglega 27-15. Í síðasta leiknum unnu síðan Selfoss-stelpur Fram 18-16 og tryggðu sér þar með sæti í 1. deild í vetur.

25.9.2009 | Handbolti

Leikjaplan 1. deildar í handbolta komið

HSI_logoHSÍ hefur sent frá sér endanlegt leikjaplan í 1. deild karla í handbolta. Selfyssingar leika í 1. deild í vetur ásamt Aftureldingu, ÍR, Víkingi, ÍBV, Fjölni og Þrótti. Fyrsti leikur Selfoss er útileikur við Fjölni föstudaginn 9. október. Síðan koma tveir heimaleikir, fyrst gegn Víkingi 23. okt. og svo gegn Þrótti 6. nóv. Annars lítur leikjaplanið eftirfarandi út:

20.9.2009 | Handbolti

4. flokkur spilar í 1. deild í vetur

Hand_boltiA-lið 4. flokks karla í handbolta lék í forkeppni um helgina, en þar var spilað um hvort liðið myndi leika í efri eða neðri deild á Íslandsmótinu í vetur. Það er skemmst frá því að segja að Selfoss vann 3 leiki mjög sannfærandi, gegn Þrótti, Fjölni og Haukum, en tapaði svo nokkuð illa fyrir Fram. Með því tryggði liðið sér sæti í efri deildinni í vetur og markmiði helgarinnar því náð. Liðið lék á köflum mjög fínan bolta en þessir fjórir leikir gefa strákunum nokkurn lærdóm.

15.9.2009 | Handboltaakademía

Gamla myndin

Hin vinsæli dagskrárliður gamla myndin hefur nún göngu sína að nýju eftir sumarfrí. Myndin að þessu sinni er af meistaraflokki keppnistímabilið 1995-96, þegar liðið lék undir stjórn Valdimars Grímssonar. Þetta lið fór í undanúrslitin í bikarkeppninni og féll út í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Takið sérstaklega eftir hátísku upphitunargöllunum frá ABM-sport.

14.9.2009 | Handboltaakademía

Verðlaun fyrir einstaklingsafrek á Ragnarsmótinu

Eins og áður hefur komið fram þá unnu FH bikarinn til varðveislu í 1 ár sem sigurvegarar á 20. Ragnarsmótinu og munu því verja titilinn að ári. Hér í nánar má svo sjá hvaða leikmenn voru valdir bestu leikmenn mótsins. Það voru starfsmenn Sport-TV sem skipuðu dómnefndina að þessu sinni enda viðstaddir alla leiki mótsins.

14.9.2009 | Handboltaakademía

Úrslit og markaskor á lokadegi Ragnarsmótsins

Á laugardaginn var spilað um sæti á mótinu. Í leik um 5. sætið mættust Stjarnan og Grótta, í leik um 3. sætið spiluðu heimamenn á Selfossi við Val og loks léku FH og Akureyri til úrslita á mótinu. Sjá meira í nánar..

11.9.2009 | Handbolti

Leikir laugardagsins á Ragnarsmótinu

hand-boltamynd2Við hvetjum alla til þess að koma í Vallaskóla á morgun laugardag og fylgjast með leikjum dagsins. Frítt er á alla leikina. Sérstaklega bendum við Selfyssingum á að koma og styðja við bakið á sínum mönnum en þeir spila við Bikarmeistara Vals kl. 18:00 um 3. sætið í mótinu.

 

11.9.2009 | Handbolti

Úrslit föstudags og markaskor á Ragnarsmótinu

hand-boltamynd2Í dag var á dagskrá fyrst leikur Stjörnunnar og Akureyrar og svo leikur Vals og Gróttu. Að sjálfsögðu voru leikirnir í beinni á Sport-TV. Í dag réðust einnig úrslitin í riðlakeppninni. Sjá meira í nánar...

10.9.2009 | Handbolti

Úrslit fimmtudags og markaskor á Ragnarsmótinu

hand-boltamynd2Leikir dagsins voru FH - Valur og Selfoss - Akureyri. Leikirnir voru afar ólíkir en báðir skemmtilegir fyrir áhorfendur. Fyrri leikurinn var mjög hraður og mikið skorað, en í þeim síðari bar meira á góðum varnarleik og markvörslu. Sjá meira í nánar...

9.9.2009 | Handbolti

Úrslit miðvikudags og markaskor á Ragnarsmótinu

hand-boltamynd2Fyrri leikur dagsins var leikur Selfoss á móti Stjörnunni. Síðari leikurinn var viðureign Gróttu og FH. Báðir leikirnir voru jafnir fram að hálfleik, en í síðari hálfleik náði annað liðið yfirhöndinni í báðum leikjunum. Úrslit og markaskor má sjá hér í meira..

7.9.2009 | Handbolti

Ragnarsmótið í beinni á netinu

raggi baldurRagnarsmótið í handknattleik hefst á miðvikudaginn kl. 18:30 með leik Selfoss og Stjörnunnar í A riðli og síðan leik FH og Gróttu í B riðli kl. 20:00. Leikirnir á mótinu verða sýndir beint á sporttv.is. Einnig verða tekin viðtöl meðan á mótinu stendur. Frábært framtak sem gerir þetta tuttugasta Ragnarsmót bara glæsilegra fyrir vikið.

4.9.2009 | Handboltaakademía

Raggi í hrikalegu formi

Ragnar_wideStórskyttan Ragnar Jóhannsson hefur verið í séræfingum hjá margföldum íslands- og norðurlandameistara í karate, Ingólfi Snorrasyni sem hefur einnig getið sér gott orð sem einkaþjálfari. Ragnar hefur bætt sig mjög mikið undanfarið og er í hrikalegu formi þessa dagana og mætir sterkur í komandi keppnistímabil í 1.deildinni með Selfoss og unglingalandsliðinu. Myndband af einni af æfingum þeirra félaga má sjá hér... http://www.youtube.com/watch?v=jG0mv3Uelzw&feature=channel_page

27.8.2009 | Handbolti

Systur þjálfa 5. flokk kvenna

Systurnar Inga Fríða og Guðfinna Tryggvadætur á Selfossi hafa tekið að sér að þjálfa 5. flokk kvenna í handbolta í vetur. Þær vilja rífa upp kvennaboltann á staðnum og leggja þannig sitt af mörkum til verkefnisins. „Það er spennandi að taka þátt í uppbyggingunni á handboltanum á Selfossi. Handbolti hefur verið mitt líf og yndi og nú þegar ég er hætt að spila sjálf þá lá beinast við að fara út í þjálfun því mér finnst það mjög spennandi, en ekki haft tíma til að gera það vegna æfinga og keppni hjá mér, en nú hef ég tíma“.

21.8.2009 | Handboltaakademía

Handboltaæfingar

hand-boltamynd2Æfingatímar handknattleiksdeildar eru klárir og hefjast æfingar mánudaginn 24. ágúst samkvæmt stundaskrá. Eins og áður hefur komið fram fær deildin ekki eins marga tíma í íþróttahúsum bæjarins og hún telur sig þurfa til að geta haldið úti fullri starfsemi. Því þurfa nokkrir flokkar að æfa saman. Yngriflokkaráð vill bjóða nýja þjálfara velkomna til starfa og allir iðkendur síðasta árs ásamt nýjum iðkendum eru jafnframt boðnir velkomnir.

21.8.2009 | Handbolti

Handboltaæfingar yngri flokka hefjast í næstu viku

Handboltaæfingar yngri flokka hefjast í næstu viku samkvæmt töflu. Æfingataflan verður hengd upp í skólum á mánudaginn. Einnig verður hún auglýst hér á vefnum og í Dagskránni í næstu viku. Foreldrafundur verða í byrjun september og er mikilvægt að við fáum sem flesta foreldra á þann fund til að kynna starfið.

20.8.2009 | Handbolti

Ragnarsmótið verður í september

Hand_boltiRagnarsmótið verður haldið daganna 9.-12. september í íþróttahúsi Vallaskóla. Mótið er nú haldið í 20 skipti og má því  segja að um stórafmæli sé að ræða. Ragnarsmótið hefur verið besta æfingamót landsins í mörg ár og svo eftirsótt að yfirleitt er mótið fullt um mitt sumar ár hvert. Dagskrá mótsins má sjá hér að neðan.

14.8.2009 | Nýjustu fréttir

Veglegir styrkir frá heiðursfélaga

Hafst_03Fimmtudagskvöldið 13. ágúst var haldið veglegt hóf í Tíbrá, félagsheimili Ungmennafélags Selfoss. Það var Hafsteinn Þorvaldsson, heiðursfélagi Umf. Selfoss, sem stóð fyrir hófinu. Hófið var m.a. haldið til að heiðra minningu eiginkonu hans Ragnhildar Ingvarsdóttur sem hefði orðið 80 ára þennan dag. Auk fjölskyldu Hafsteins mættu í hófið fulltrúar sjö deilda innan Umf. Selfoss, formaður Umf. Biskupstungna, formaður Umf. Vöku og formaður og framkvæmdastjóri HSK. Hafsteinn afhendi þessum aðilum, tíu talsins, peningastyrk að upphæð 100.000 kr. hver.

12.8.2009 | Handboltaakademía

Selfoss er toppstaður með mikið íþróttalíf

Aðalsteinn HalldórssonAðalsteinn Halldórsson er ungur drengur frá Akureyri og er hann fæddur 1991. Hann er að hefja sitt annað ár á Selfossi og stóð sig afar vel í fyrra og bætti sig mikið. Síðuritari innti Arnar þjálfara hans hvað honum þætti um Steina eins og hann er kallaður. Kvað Arnar hann vera duglegan og samviskusaman og með mikið skap sem öllum væri hollt að láta í ljós sem oftast. Arnar telur Aðalstein afar góða viðbót við þann hóp sem Selfoss hefur í liði vaskra sveina. Aðalsteinn var svo ljúfur að svara nokkrum spurningum fyrir okkur:

12.8.2009 | Handboltaakademía

Stefán Árnason þjálfar 4. fl. karla

Yngri flokkaráð handknattleiksdeildar hefur ráðið Stefán Árnason sem þjálfara 4. flokks karla. Stefán er einn fremsti unglingaþjálfari landsins hann hefur þjálfað KA undanfarin ár með topp árangri og hann var aðstoðarþjálfari úrvalsdeildarliðs Akureyrar á s.l. leiktíð. Hann er bróðir Adda þjálfara sem hefur gert frábæra hluti í yngri flokka starfinu á Selfossi og sonur Árna Stefánssonar þjálfara HK í meistaraflokki. Stefán hyggur á nám við íþróttakennaraskólann á Laugarvatni næstu 3 árin og verður því vonandi hjá okkur a.m.k. næstu þrjú árin. Æfingar í 4. flokki karla hefjast í vikunni.

7.8.2009 | Handboltaakademía

Þórir Ólafs fyrirliði hjá TUS-N-Lübbecke

Selfyssingurinn Þórir Ólafsson atvinnumaður í handbolta hjá TUS-N-Lübbecke í þýsku úrvalsdeildinni hefur verið gerður að fyrirliða liðsins. Þórir er að hefja sitt fimmta tímabil hjá liðinu og er reynslumesti leikmaður liðsins. Liðið hefur æft að kappi í 3 vikur og tekur um helgina þátt í móti í Póllandi. Þórir hefur átt fast sæti í landslisðhópi Guðmundar Guðmundssonar síðastliðið ár og hefur sett stefnuna á Heimsmeistaramótið sem haldið verður í Austurríki í janúar n.k.

4.8.2009 | Nýjustu fréttir

Selfoss útifánar til sölu á skrifstofunni

Lógó SelfossFyrir nokkru kom upp sú hugmynd að bjóða til sölu Selfoss útifána. Þá gætu menn flaggað heima hjá sér á leikdögum eða þegar eitthvað er um að vera hjá félaginu. Nú höfum við komið hugmyndinni í framkvæmd. Hægt er að kaupa fána (1x1,5m) á skrifstofu félagsins. Hvítir fánar með vínrauðu Selfossmerki kosta 4.500 kr. og vínrauðir fánar með hvítu merki kosta 7.500 kr. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins s. 482 2477 eða hjá framkvæmdastjóra s. 897 6323.

1.8.2009 | Handboltaakademía

Æfingar að hefjast að nýju hjá 3. flokki

Næstkomandi þriðjudag hefjast æfingar að nýju hjá 3. flokki karla í handbolta. Æfingin hefst 17.30, stundvíslega. 3. flokkur hefur verið í fríi frá því á Landsmóti UMFÍ sem fram fór á Akureyri. Þar fengu einmitt strákarnir gull eftir meðal annars frækilegan sigur á 2. flokki Akureyrar.

1.8.2009 | Handboltaakademía

Silfur var það hjá Einari og Ragnari

Strákunum í 19 ára landsliðinu tókst ekki að vinna fyrsta gull Íslands á heimsmeistaramóti þegar liðið mætti gríðarlega öflugu króatísku liðið í úrslitaleiknum á Heimsmeistaramóti 19 ára landsliða í Túnis í kvöld. Króatar unnu öruggan fimm marka sigur, 35-40.

30.7.2009 | Handboltaakademía

Glæsilegt framtak hjá Rúv!

Rúv hefur ákveðið að sýna stórviðburð þann sem úrslitaleikur Íslands og Króatíu er. Útsending hefst á morgun klukkan 19.30 og hvetjum við alla og ekki síst Selfyssinga að horfa á þennan leik.

http://mbl.is/mm/sport/handbolti/2009/07/30/urslitaleikur_islands_og_kroatiu_i_beinni_a_ruv/

 Áfram Ísland!

29.7.2009 | Handboltaakademía

Ísland í úrslitaleikinn á HM U-19

Rétt í þessu var Ísland að vinna heimamenn í Túnis, 33-31 eftir að hafa verið undir í hálfleik 14-15. Þeir mæta Króötum á föstudaginn kemur. Raggi komst ekki á blað og tók aðeins eitt skot í leiknum. Hann á því vonandi eitthvað inni fyrir leikinn á föstudaginn. Áfram Ísland!

27.7.2009 | Handboltaakademía

Raggi og félagar komnir í undanúrslit á HM

Fyrr í dag vann Ísland lið Noregs á heimsmeistaramótinu sem haldið er í Túnis. Ísland hefur unnið til þessa á mótinu, Púertó Ríkó, Frakkland og Brasilíu, en tapaði í hörkuleik gegn Svíum þar sem Ragnar okkar Jóhannsson skoraði 10 mörk. Ísland vann eins og fyrr segir Noreg og voru lokatölur 43-37 eftir að Norðmenn leiddu í hálfleik 21-20.

21.7.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur karla - samantekt

Í 3. flokki léku strákar fæddir 1991 og 1992 og saman stendur hann af hópi ungra drengja sem gríðarlega gaman er að þjálfa og þekkja. Metnaður þessa hóps er mikill og hefur sá hann skilað sér hægt og bítandi í gegnum árin. Tvö lið voru að venju skráð til leiks frá Selfossi í þessum aldursflokki, lék annað lið í efri deild og hitt í þeirri neðri. Liðin er að öllu jöfnu kölluð 91 liðið og 92 liðið.

20.7.2009 | Handbolti

Samantekt um 4. flokk karla

Í vetur voru á milli 27-32 strákar að æfa nokkuð reglulega með 4. flokki karla í handbolta. Tímabilið var skemmtilegt enda um afar skemmtilegan hóp ungra manna að ræða. Í upphafi var lagt upp með tvö lið en þriðja liðinu var bætt inn eftir forkeppnina til að tryggja að allir fengju að spila sem mest. Öll liðiin þrjú bættu sig mikið á árinu.

19.7.2009 | Handbolti

4. flokkur selfoss á Partille Cup

Í lok júnímánaðar fór 4. flokkur karla í handbolta til Gautaborgar til að taka þátt í hinu árlega handboltamóti, Partille Cup. Alls fóru 27 leikmenn, eða þrjú lið, ásamt fjórum fararstjórum og einum þjálfara. Svo vel tókst til í þessari ferð að mynduð var Þjóðstjórn á meðal fararstjóra og þjálfara. Þjóðstjórn þessi fékk nafnið ÞÁS og vakti hún mikla og verðskuldaða athygli.

19.7.2009 | Handboltaakademía

3.flokkur Selfoss Landsmótsmeistari

Landsmót UMFÍ fór fram 9.-12. júlí í afar góðu veðri á Akureyri. Þjálfari 3. flokks ákvað  á vordögum í samráði við leikmenn að taka þátt í landsmótinu og hafa gaman af, og auðvitað að vinna það. Selfyssingar léku undir merkjum HSK eins og gefur að skilja og öttu þar kappi við ÍBA (Akureyri), UMSE/UFA og UMFN.

2.7.2009 | Nýjustu fréttir

Styttist í Landsmót UMFÍ á Akureyri

Landsmót_UMFÍ_2009Nú styttist óðum í Landsmót UMFÍ, en mótið verður haldið á Akureyri dagana 9.-12. júlí næstkomandi. Eyjafjörður mun væntanlega skarta sínu fegursta og verður án efa gaman að koma þangað. Undirbúningur fyrir mótið er á lokastigi. Heimamenn hafa lagt mikinn metnað í mótið og verður öll aðstaða til fyrirmyndar. HSK mun senda öflugt keppnislið á Landsmótið og tekur þátt í 16 af 20 keppnisgreinum. Margir Selfyssingar eru í liði HSK, en alls munu um 200 keppendur víðs vegar af Suðurlandi keppa fyrir sambandið. Í veglegu Landsmótsblaði HSK, sem fylgir með Sunnlenska fréttablaðinu í dag, má sjá lista yfir alla keppendur.

1.7.2009 | Nýjustu fréttir

Góð aðsókn í íþrótta- og útivistarklúbbi barna

Íþróttaklúbbur_4Starfsemi íþrótta-og útivistarklúbbsins í sumar hefur gengið mjög vel. Námskeiðin sem eru fjölbreitt hafa verið mjög vel sótt og fá börnin að prófa hinar ýmsu greinar undir leiðsögn góðra þjálfara. Farið er í handbolta, frjálsar, júdó, fimleika, fullt af leikjum, í sund og svo er alltaf skemmtielg lokaferð í seinni vikunni. Hvert námskeið stendur í tvær vikur en einnig er hægt að hafa börnin í eina viku í senn. Meðfylgjandi myndir eru úr síðustu lokaferð.

9.6.2009 | Nýjustu fréttir

Velferðarsjóður barna styrkir Íþrótta- og útivistarklúbbinn

velferðarsjóður barnaÍþrótta- og útivistarklúbbur Umf. Selfoss hlaut í gær myndarlegan styrk úr Velferðarsjóði barna. Styrkurinn verður notaður til að niðurgreiða námskeiðin sem haldin verða í sumar. Er það m.a. gert til að tryggja börnum jafnan aðgang að námskeiðunum. Sveitarfélagið Árborg leggur verkefninu til fjármagn sem er liður í þjónustusamningi við Ungmennafélagið. Auk þess tengist það Vinnuskóla Árborgar. Klúbburinn er samstarfsverkefni allra deilda félagsins og veitir um 17 ungmennum vinnu í sumar.

6.6.2009 | Handboltaakademía

Fjórar handboltastelpur í unlingalandslið

Þær Kristrún Steinþórsdóttir, Birta Antonsdóttir, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Esther Hallsdóttir voru nú í vikunni valdar í unglingalandslið stúlkna fæddar 1994 og síðar. 30 stúlkur munu æfa saman um komandi helgi. Þessar stelpur voru lykilmenn í liði Selfoss sem varð íslandsmeistari í þessum flokki í vetur.

4.6.2009 | Handbolti

Átta ungmenni frá Selfoss valin í Handboltaskóla HSÍ

Átta ungmenni frá Selfossi voru valin í Handboltaskóla HSÍ, en í hann eru valin krakkar úr 8. bekk. Handboltaskóli HSÍ hefur verið starfræktur undanfarin 16 ár með góðum árangri. Í ár verður hann helgina 12. til 14. júní og gert er ráð fyrir yfir 100 krökkum sem æfa undir stjórn landsliðsþjálfara HSÍ.

4.6.2009 | Handbolti

Þrír Selfyssingar í U15 ára landsliði pilta

Þeir Janus Daði Smárason, Gísli Þór Axelsson og Gísli Örn Þórisson voru á dögunum valdir í 22 manna landsliðshóp pilta í handknattleik leikmanna fæddir 1994 og síðar. Strákarnir æfðu stíft um síðastliðna helgi og stóðu sig vel að sögn þjálfara. Þess má geta að þeir Janus og Gísli Þór, sem eru báðir á yngra ári, eru lykilmenn í öflugu liði Selfoss sem varð í 3. sæti á Íslandsmótinu í vetur.

25.5.2009 | Handboltaakademía

Glæsilegt lokahóf handboltans

97-íslm..2009Lokahóf yngri flokka starfs handknattleiksdeildar fór fram miðvikudaginn 20. maí. Keppt var í handboltaþrautum, en síðan var verðlaunaafhending og myndatökur. Í lokin var heljarmikil grillveisla í boði foreldra og unglingaráðs. Milli 150 og 200 krakka skemmtu sér hið besta og var hátíðin vel heppnuð í alla staði. Árangur vetrarins var mjög góður, fjórir íslandsmeistaratitlar, tvö brons og tveir flokkar í 4. sæti. Verðlaunahafar á hófinu urðu eftirfarandi...

22.5.2009 | Handbolti

Sex Selfoss-strákar á landsliðsæfingum u-21 og u-15

HSI_logoHeimir Ríkarðsson, landsliðsþjálfari u-21 landsliðs karla, hefur valið 25 manna æfingahóp sem kemur saman um helgina. Í hópnum, sem í eru 25 leikmenn, eru þrír Selfyssingar, þeir Birkir Bragason (markmaður), Guðmundur Árni Ólafsson og Ragnar Jóhannsson. Þá hafa einnig þrír ungir Selfyssingar verið valdir í æfingahóp u-15 ára landsliðs, þeir Gísli Þór Axelsson, Gísli Örn Þórisson og Janus Daði Smárason. Gísli og Janus eru báðir 14 ára þ.e. fæddir 95. Hópurinn saman stendur af 30 strákum og kemur saman til æfinga helgina 29.-31. maí.

22.5.2009 | Handbolti

Selfoss HSK-meistari í 5. flokki stráka og stelpna

HSK_merkiHSK-mótið í 5. flokki stráka og stelpna var haldið í annað skipti í Iðu fimmtudaginn 21. maí s.l. Sjö strákalið og tvö stelpulið tóku þátt í mótinu. Af þeim voru fjögur gestalið frá Haukum. Svo fór að Selfoss 1 sigraði bæði í stráka og stelpna flokki. Í lok móts voru afhent verðlaun og lið mótsins valið. Mótið var hraðmót þar sem leiktími var 1x15 mín. Úrslit urðu eftirfarandi:

18.5.2009 | Handboltaakademía

Landsleikur Ísland - Sviss á Selfossi

þriðjudagskvöldið 19.maí verður landsleikur í handbolta kvenna Íþróttahúsi Vallaskóla og hefst leikurinn klukkan 19:30 Íslenska liðið leikur vináttulandsleik við Sviss. Við hvetjum alla til að mæta og hvetja stelpurnar en þær eru að undirbúa sig fyrir undankeppni EM sem hefst í haust....Áfram Ísland.

18.5.2009 | Handboltaakademía

Lokahóf yngriflokka

Lokahóf yngriflokka handknattleiksdeildar umf. Selfoss ,,SLÚTTIД hjá Handknattleiksdeild umf. Selfoss verður miðvikudaginn 20.maí. í Íþróttahúsi Vallaskóla.Frá klukkan 17-19, einstaklingskeppnir í handboltaþrautum, verðlaunafhending, myndatak og grillveisla. Mikilvægt að allir iðkendur mæti í búningum vegna myndatöku, foreldrar og forráðamenn þeirra eru hvattir til að mæta, það má taka með sér gesti.Unglingaráð handknattleiksdeildar umf. Selfoss

11.5.2009 | Handboltaakademía

Lokahóf handknattleiksdeildarinnar

Föstudaginn 8. maí var haldið stórglæsilegt lokahóf elstu flokka handknattleiksdeildar Selfoss. Hófið var haldið í Þingborg og mættu um 100 manns á það. Það var hin eina sanna "Lilja okkar" sem sá um matinn á hófinu. Fjölmargir góðir gestir heiðruðu okkur með því að mæta og eyddu þessari kvöldstund með okkur. Kunnum við þeim mestu þakkir fyrir.

11.5.2009 | Handboltaakademía

Selfyssingar unnu til verðlauna lokahófi HSÍ

Á lokahófi handknattleiksmanna síðasta laugardagskvöld voru m.a. veitt verðlaun fyrir hina ýmsu flokka í 1 . deild karla veturinn 2008 - 2009. Leikmenn frá Selfossi voru tilnefndir í öllum flokkum og tveir þeirra unnu verðlaunin sem þeir voru tilnefndir til...

7.5.2009 | Handboltaakademía

Myndir úr Eyjum

6e6Um síðast liðna helgi fór 6.flokkur drengja í handbolta til Vestmannaeyja og urðu tvöfaldir Íslandsmeistarar. Ferðin gekk í alla staði vel 24 strákar fóru, en nokkrir komust ekki vegna veikinda og ferminga. Um 25 foreldrar komu með í ferðina. gist var í Hamarsskóla í þrjár nætur, gott var í sjóinn báðar leiðir og skemmtu strákarnir sér hið besta alla helgina. Þegar ekki var verið að keppa var margt til gamans gert m.a. farið í skoðunarferð um Eyjuna og sprangað. Nokkur fyrirtæki studdu strákana til ferðarinnar, Guðnabakarí, HP kökugerð, MS og Krás og vill yngriflokkaráð koma til skila sérstöku þakklæti til þessa fyrirtækja. Hér fyrir neðan er nokkar myndir úr ferðinni.

4.5.2009 | Handboltaakademía

Tvöfaldir Íslandsmeistar í 6. flokki drengja

98 íslm..2009Strákarnir í 6. flokki urðu nú um helgina tvöfaldir Íslandsmeistarar í handknattleik. Lokamótið fór fram í Vestmannaeyjum og tryggðu Selfoss-strákarnir sér öruggan sigur bæði á eldra ári og yngra ári. Í flokki eldra árs (fæddir 1997) fékk Selfoss 28 stig, Valur varð í öðru sæti með 20 og KR í því þriðja með 20. Í flokki yngra árs (fæddir 1998) fékk Selfoss 26 stig Fram varð í öðru sæti með 22 og HK í því þriðja með 18. Strákarnir eru vel að þessu komnir, hafa æft vel og samviskusamlega í allan vetur. Þeir hafa sinnt félagslega þættinum vel og kringum þennan flokk er mjög öflugt foreldrasamstarf.

30.4.2009 | Handboltaakademía

Ragnar verður áfram á Selfossi

Ragnar Jóhannsson sem er 18 ára og átti 1 ár eftir af samningi sínum við Selfoss gerði nýjan 3 ára samning við félagið sem gildir til vors 2012. Önnur félög voru að reyna að fá hann til sín og sum án þess að fara rétta boðleið, þrátt fyrir að hann væri samningsbundinn. Með þessum nýja samningi er verið að senda skýr skilaboð um það að framtíð Ragnars er á Selfossi enn um sinn.

30.4.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur endaði í 4. sæti

Okkar menn í 3. flokki þurftu að játa sig sigraða í leik um 3. sætið á Íslandsmótinu gegn Þór um síðustu helgi. Lokatölur 26-24 eftir að Þór leiddi 13-11 í leikhléi.

27.4.2009 | Handboltaakademía

4. flokkur kvenna yngra ár Íslandsmeistarar

Stelpurnar í 4. flokki kvenna yngra ár urðu í gær Íslandsmeistarar eftir sigur á Fylki í úrslitaleik 18-14 í Vodafone Höllinni. Staðan í hálfleik var 10-6 fyrir Selfoss. Áður höfðu stelpurnar unnið Stjörnuna 28-18 í 8-liða úrslitum og FH 16-14 í undanúrslitum. Þessar stelpur urðu einnig á dögunum deildarmeistarar. Árangur stelpnanna er mjög athyglisverður í ljósi þessa, en flestar af þeim eru enn í 5. flokki. Þær urðu einmitt líka Íslandsmeistarar í sínum flokki á dögunum.

27.4.2009 | Handboltaakademía

Góð ferð á Húsavík

5.fl.kv deildmStrákar og stelpur í 5.flokki yngra ár (fædd 1996) fór á Húsavík í síðustu viku og kepptu í síðustu umferð Íslandsmótsins. Mótið stóð yfir í 3 daga og var gist í skólanum á Húsavík. Stelpurnar áttu góða möguleika á titlinum en til þess urðu þær að vinna mótið. Það tókst ekki og þær spiluðu undir getu og urðu að sætta sig við 4. sæti á mótinu og einnig á Íslandsmótinu samanlagt. Strákarnir aftur á móti léku mjög vel og urðu í 2.sæti á mótinu og unnu bronsverðlaun á mótinu samanlagt.

26.4.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur spilar um brons - en átti þó skilið að sigra

Í gær lék 3. flokkur Selfoss í undanúrslitum gegn Fram í Víkinni og tapaði þar óverðskuldað að mati síðuritara. Strákarnir stóðu sig frábærlega og börðust allan tímann og gáfu allt sitt í leikinn en því miður dugði það ekki. Liokatölur 33-30 Fram í vil eftir að staðan í hálfleik hafi verið 16-13.

24.4.2009 | Handboltaakademía

2 flokkur hefur lokið keppni

2 flokkur karla sem endaði í 2 sæti í deildarkeppninni tapaði í undanúrslitum fyrir FH 37 - 41 síðastliðinn miðvikudag. Staðan í hálfleik var 19 - 18 fyrir Selfoss. Leikurinn var gríðarlega hraður eins og alltaf þegar þessi lið mætast en skammt er síðan Selfoss vann FH 41 - 38.

24.4.2009 | Handbolti

4. flokkur kvenna í undanúrslit

4. flokkur kvenna eru komnar í undanúrslit eftir góðan sigur á Stjörnunni í 8-liða úrslitum. Leikurinn endaði 28-18 og Selfoss því komnar í undanúrslit og mæta þar FH.

23.4.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur Selfoss kominn í undanúrslit

Selfoss vann FH á þriðjudaginn í hörkuleik á Selfossi 32-30 eftir að hafa leitt í hálfleik 17-13. Selfyssingar leiddu yfirleitt með 3-6 mörkum en fóru illa með mörg dauðafæri sem annars hefðu gert sigurinn mun öruggari. Í lokin minnkuðu Hafnfirðingar muninn aðeins með því að spila framarlega og á þeim kafla voru okkar menn 1-2 leikmönnum færri.

21.4.2009 | Handboltaakademía

Leikur á Selfossi í kvöld

Lógó SelfossÍ kvöld kl. 21.00 leika í úrslitakeppni HSÍ 3.flokki heimamenn á Selfossi og FH úr Hafnarfirði. Að vanda leika Selfossliðin sína heimaleiki í Vallaskóla og hvetur heimasíðan Selfyssinga að mæta og horfa á og auðvitað hvetja leikmenn framtíðarinnar áfram. Áfram Selfoss!

20.4.2009 | Handboltaakademía

Viðtal við Sebastian þjálfara meistaraflokks

Þar sem meistaraflokkur hefur lokið keppni í vetur þá báðum við Sebastian um að gera samantekt á vetrinum. Við gefum honum bara orðið..

20.4.2009 | Handboltaakademía

Tímabilinu lokið hjá meistaraflokki

Selfoss tapaði fyrir Aftureldingu öðru sinni í gær og þar með er liðið úr leik í baráttunni um laust sæti í úrvalsdeild. Selfoss gaf allt í leikinn í gær en varnarleikur heimamanna var frábær. Það má með sanni segja að ef liðið hefði mætt svona ákveðið til leiks á föstudaginn að þá væri staðan núna 1 - 1 í einvíginu.

19.4.2009 | Handbolti

5. fl. karla með brons á Íslandsmótinu

5.fl_karla_apríl_2009Um helgina fór fram síðasta keppnishelgi 5. flokks karla, eldra ár, í handbolta á Ásvöllum í Hafnarfirði. Lið Selfoss stóð sig frábærlega á mótinu. Strákarnir unnu fjóra flotta sigra í 1. deild, en töpuðu fyrir FH í úrslitaleik. Liðið endaði í 3. sæti á Íslandsmótinu með 19 stig. Grótta varð í 2. sæti með 21 stig og FH-ingar urðu Íslandsmeistarar með 23 stig. Óhætt er að segja að Selfoss og FH séu með bestu lið landsins í þessum aldursflokki.

19.4.2009 | Handboltaakademía

Afurelding - Selfoss í beinni og fríar rútuferðir

Öðrum leik Selfoss og Aftureldingar í úrslitakeppninni um laust sæti í efstu deild karla í handknattleik, veður lýst beint á útvarpi Suðurland á fm 96,3. Leikurinn fer fram í Mosfellsbæ, Það verða þeir Gísli Felix Bjarnason og Einar Guðmundsson sem lýsa leiknum eins og þeir gerðu í fyrsta leiknum s.l. föstudag. Einnig hægt að hlusta í gegnum netið á www.963.is . Útsending er í boði Lögmanna Suðurlandi og hefst kl 16:30 í dag. Boðið verður uppá fría rútuferð fyrir stuðningmenn Selfoss-liðsins frá Vallaskóla meðan pláss leyfir. Lagt verður af stað kl. 14:30.

19.4.2009 | Handboltaakademía

Selfoss Íslandsmeistarar 5.flokks kvenna - eldra árs

5.kveislm5Selfoss varð í dag Íslandsmeistarar 5.flokks kvenna - eldra árs í handknattleik þegar lokamótinu í vetur lauk hjá FH. Selfoss-stelpurnar enduðu veturinn með 26 stig af 30 mögulegum, Afturelding varð í öðru sæti með 24 stig og Grótta í því þriðja með 22 stig. Stelpurnar voru öruggar með sigur fyrir mótið og þær fengu Íslandsmeistaratitilinn afhentar eftir mótið við mikin fögnuð.

18.4.2009 | Handboltaakademía

Silfur í utandeildarkeppninni

Utandeildarlið Selfoss í handbolta sigraði lið Jumboys frá Mosfellsbæ í örðum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitill í keppni utandeildarliða 32-27. Jumboys vann fyrri leik liðanna í Mosfellsbæ 30-23 og varð því Íslandsmeistari þetta árið. Liðið skipa gamlar kempur úr Aftureldingu með Bjarka Sigurðsson fyrrverandi landsliðsmann fremstan í flokki. Selfoss liðið lék vel í dag og átti um tíma möguleika á að vinna upp sjö marka forustu Mosfellinga. Það hafðist ekki en góður sigur á meisturunum engu að síður. Þeir Sævar Gíslason og Ívar Grétarsson voru bestu menn Selfoss, einnig átti Bergsveinn Magnússon góða spretti.

18.4.2009 | Handboltaakademía

Slæmt tap fyrir Aftureldingu

Afturelding vann góðan útisigur á Selfossi í fyrsta umspilsleik liðanna um sæti í efstu deild karla í handknattleik í kvöld, 31:24. Þarf liðið því aðeins einn sigur enn til að tryggja sér sæti í úrslitaleikjunum um sæti í efstu deild. Markahæstir Selfyssinga voru Guðmundur Árni Ólafsson með sex mörk og Helgi Héðinsson með fimm. Hjá gestunum gerði Bjarni Aron Þórðarson átta mörk en Jóhann Jóhannsson gerði sex.

17.4.2009 | Handboltaakademía

Selfoss - Afturelding í beinni

Leik Selfoss og Aftureldingar í úrslitakeppninni um laust sæti í efstu deild karla í handknattleik, veður lýst beint á útvarpi Suðurland á fm 96,3. Það verða þeir Gísli Felix Bjarnason og Einar Guðmundsson sem lýsa leiknum og það er einnig hægt að hlusta í gegnum netið á www.963.is . Útsending er í boði Lögmanna Suðurlandi og hefst kl 19:30.

 

16.4.2009 | Handboltaakademía

Þórir Hergeirs tekur við norska kvennalandsliðinu!

Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson hefur verið ráðin þjálfari kvennalandsliðs heims- og ólympíumeistara Noregs í handknattleik. Þetta kemur fram í norskum fjölmiðlum í dag. Þórir tekur við af Marit Brevik en hann hefur verið aðstoðarþjálfari hennar í 12 ár. Þórir er borinn og barnfæddur Selfyssingur og þjálfaði á Selfossi áður en hann fluttist til Noregs 1986. Þórir er bróðir Ragnheiðar bæjarstjóra og Guðrúnar formanns unglingaráðs handknattleiksdeildar. Yngri bróðir hans Grímur lék einnig lengi með Selfoss í efstu deild.

15.4.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur vann Víking og endaði í 2. sæti

Í gærkvöldi fóru strákarnir í Víkina og sigruðu Víkinga og náðu með því 2. sætinu í deildinni. Leikurinn endaði 25-33 en í hálfleik leiddi okkar menn 15-19. Í lið Selfoss vantaði Ragnar en hann er enn að jafna sig af meiðslunum sem hann hlaut á móti FH um daginn.

15.4.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur í öðru sæti

Eyþór_wide2. flokkur karla tryggði sér annað sætið í 1. deild með öruggum sigri á Víkingi í Víkinni í gærkvöldi. Þessi úrslita þýða að strákarnir fá heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni en þar mætir liðið FH. Í hinum undanúrslitaleiknum leika Akureyri og Víkingur. Ljósmyndari handbolti.is var á staðnum og smellti af eftirfarandi myndum. http://www.handbolti.is/?p=300&gal=78473

15.4.2009 | Handboltaakademía

Úrslitin ráðast í handboltanum á næstunni

Nú fara í hönd spennandi tímar í handboltanum á Seflossi, úrslitin ráðast á Íslandsmótunum í öllum flokkum. Meistaraflokkur á í vændum spennandi leiki við Aftureldingu og Stjörnuna eða ÍR um sæti í úrvalsdeild að ári. 2. flokkur náði 2. sæti í deildinni í vetur og leikur við FH í úrslitakeppninni og verður sá leikur á Selfossi. Það lið sem vinnur þá viðreign leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. B-lið meistaraflokks tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á dögunum.

14.4.2009 | Handboltaakademía

4. flokkur kvenna varð Íslandsmeistari 1988

Gamla myndin að þessu sinni var tekin þegar 4. flokkur kvenna varð Íslandsmeistari 1988. Berglind Sigurðardóttir fyrirliði tekur við hamingjuóskum af Birni Gíslasyni formanni Ungmennafélags Selfoss. Kvennaboltinn á Selfossi er á mikilli upppleið þessa dagana og hugsanlegt að Íslandsmeistaratitill vinnist aftur eftir margra ára hlé.

6.4.2009 | Handboltaakademía

2. fl. vann enn einu sinni - nú UMFA á útivelli

Sigurganga 2. flokks karla heldur áfram. Nú vann liðið Aftureldingu 18-24 á afar erfiðum útivelli. Mörg lið hafa lent í vandræðum í Mosfellsbænum í vetur. Með sigrinum er Selfoss komið í 2. sætið og getur haldið því ef þeir ná sigri í síðasta leik deildarkeppninnar gegn Víkingum.

6.4.2009 | Handboltaakademía

Selfoss Íslandsmeistari B liða í mfl. karla

Þótt ekki hafi farið mikið fyrir fréttum af B liði meistaraflokks í vetur þá er það með mikilli ánægju að heimasíðan greinir frá því að Selfoss vann B deildina og eru því Íslandsmeistarar. Þeir spiluðu sinn síðasta leik í gær og fengu að honum loknum afhentan veglegan bikar og gullverðlaun. Til hamingju með titilinn strákar!

6.4.2009 | Handboltaakademía

Sigur í síðasta leik deildarinnar

Meistaraflokkur Selfoss fór til Vestmannaeyja og spilaði þar sinn síðasta deildarleik í vetur. Okkar menn unnu leikinn með 1 marki og það kom úr vítakasti Guðmundar Árna eftir að leiktíminn var liðinn. Talsvert vantaði í lið Selfoss í þessum leik og margir fengu að spreyta sig en leikurinn var víst góð skemmtun fyrir áhorfendur.

5.4.2009 | Handboltaakademía

Frábær frammistaða hjá 92 liðinu en dugði skammt

Í gær lék 92 liðið (B-liðið) sinn síðasta deildarleik og voru gestirnir að þessu sinni Grótta. Selfyssingar áttu möguleika að fara í svokallað umspil með sigri í leiknum og því alveg ljóst að menn ætluðu að selja sig dýrt. Það gerðu leikmenn svo sannarlega en því miður dugði það ekki til gegn A liði Gróttu. Lokatölur voru 23-24 eftir að hvort lið skoraði 12 mörk í fyrri hálfleik.

4.4.2009 | Handboltaakademía

2. og 3. flokkur í toppbaráttu

Annar flokkur karla (´88-´90) á góða möguleika á að ná 2.sæti í 1.deild Íslandsmótsins, liðið á eftir að leika við Aftureldingu og Víking, og með sigri í þeim leikjum tryggir liðið sér annað sætið og heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni. 3.flokkur (´91-´92) missti lið Fram framúr sér á endasprettinum og hafnar í 3.sæti í 1.deild.  tvö óvænt töp m.a. fyrir Stjörnunni reynast liðinu dýrkeypt. En liðið á samt góða möguleika á Íslandsmeistaratitli með góðri frammistöðu í úrslitakeppninni. Sigurður Már Guðmundsson er byrjaður að leika að nýju eftir að hafa verið meiddur í allan vetur. Staðan í deildunum tveimur er eftirfarandi..

3.4.2009 | Handboltaakademía

Guðmundur Árni og Birkir valdir í u-21 landslið karla

HSI_logoHeimir Ríkarðsson, landsliðsþjálfari u-21 árs landsliðs karla, valdi 17 manna hóp til undirbúnings fyrir forkeppni HM sem fram fer um páskana í Hollandi. Í hópnum eru tveir Selfyssingar, þeir Birkir Bragason markmaður og Guðmundur Árni Ólafsson hornamaður. Fyrsti leikurinn er gegn Hollandi 10. apríl. Síðan er leikið gegn Ungverjum og loks Bretum.

3.4.2009 | Handboltaakademía

Sigur gegn Val

Strákarnir í 91 liði Selfoss unnu í gærkvöld Valsmenn 31-24. Heimamenn léku ekki vel í leiknum og voru undir 70% af leiknum, enda lék liðið afar illa. Mikið grimari, einbeittari og viljugri Valsmenn leiddu í hálfleik 12-13. Í fyrri hálfleik tókst Selfyssingum að misnota 12 dauðafæri.

3.4.2009 | Handboltaakademía

Tap gegn ÍBV

92 liðið tapaði fyrir heimamönnum í ÍBV síðastliðinn miðvikudag, 31-27 eftir að hafa verið undir 13-10 í hálfleik. Selfyssingar voru undir nær allan leikinn og verður þessi leikur að flokkast sem einn lélegasti leikur tímabilsins af þeirra hálfu.

2.4.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur karla 1986

Gamla myndin er af 3. flokki karla árið 1986. Þetta eru piltar fæddir 1970 og 1971. Sítt að aftan greinilega í tísku. Þrír af þessu drengjum áttu eftir að leika með A-landsliði Ísland, þeir Magnús Sigurðsson, Einar Gunnar Sigurðsson og Gústaf Bjarnason. Þjálfari var Steindór Gunnarsson sem einnig þjálfaði meistaraflokk í þrjú keppnistímabil.

31.3.2009 | Handboltaakademía

Þrír sigrar hjá unglingaflokki kvenna

Hand_bolti3. flokkur kvenna hefur haft nóg að gera að undanförnu og spiluðu þrjá leiki á 11 dögum og spila aftur í kvöld gegn sterku liði ÍR í Austurbergi. Mikil meiðsli hafa verið í liðinu. Í dag eru 4 leikmenn meiddir og munar um minna í 12 manna hópi.

31.3.2009 | Handboltaakademía

Sigur gegn FH á heimavelli í 2. flokki

hsi_logoEinhver hraðasti og skemmtilegasti leikur sem hefur verið spilaður á Selfossi fór fram í gærkvöldið þegar FH kom í heimsókn. Leikurinn endaði 41 - 38 fyrir Selfoss en staðan í hálfleik var 25 - 19 fyrir okkar menn. Það er ljóst að það eru aðeins örfá lið á Íslandi sem ráða við að spila á þessum hraða. Selfoss og FH eru meðal þeirra enda líklega tvö bestu sóknarlið landsins í þessum aldursflokki.

30.3.2009 | Handboltaakademía

Góður sigur á Aftureldingu

Selfoss vann Aftureldingu síðasta föstudagskvöld 32 - 30 og tryggðu þar með 2 sætið í deildinni og heimaleikjarétt í 1. umferð úrslitakeppninnar um laust sæti í efstu deild. Staðan í hálfleik var 13 -15 fyrir gestina en góður kafli í upphafi seinni hálfleiks skilaði sigri og 2 sætinu. 

30.3.2009 | Handboltaakademía

Þrír deildarmeistaratitlar í kvennaflokkum á einni viku !

Selfoss hefur unnið þrjá deildarmeistaratitla í kvennaflokkum á einni viku ! Um síðustu helgi unnu stelpurnar í 5.flokki kvenna eldra ár deildarmeistaratitilinn og nú um helgina unnu stöllur þeirra í 5.flokki kvenna yngra ár deildarmeistaratitilinn. Síðan fékk 4.flokkur kvenna yngra ár deildarmeistaratitilinn afhentan eftir glæsilegan sigur á Fram í æsispennandi leik að viðstöddum fjölmörgum áhofendum í íþróttahúsi Vallaskóla á sunnudagskvöldið.

30.3.2009 | Handboltaakademía

Selfoss-91 vann KA örugglega

KA menn sóttu okkur Selfyssinga heim á laugardaginn. Fyrirfram var búist við hörkuleik enda KA með marga góða einstaklinga innan sinna raða. Sú varð þó ekki raunin því norðanmenn áttu ekki möguleika gegn heimamönnum sem leiddu í hálfleik 17-11.

26.3.2009 | Handbolti

Meistaraflokkur kvenna 1991

Gamla myndi er af meistaraflokki kvenna 1991. Þetta var öflugur hópur sem lék undir stjórn Kristjönu Aradóttur en hún og Þorgeir Ingi Njálsson eiginmaður hennar sem var formaður deildarinnar á þessum tíma unnu mikið starfs fyrir deildina.

24.3.2009 | Handbolti

5. flokkur kvenna deildarmeistari í annað skipti í vetur

5.kv eldir des5. flokkur kvenna spilaði á sínu öðru deildarmóti um helgina, en mótið fór fram í Austurbergi og var í umsjá ÍR. Selfoss-1 vann m.a. Gróttu, Val og Aftureldingu og stóð uppi sem sigurvegari mótsins. Stelpurnar tryggðu sér fyrsta sætið annað deildarmótið í röð og eru í mjög vænlegri stöðu fyrir seinasta mótið. Stelpurnar í Selfoss-2 stóðu sig einnig vel og hafa sýnt miklar framfarir í vetur.

24.3.2009 | Handbolti

Við ætlum að sjálfsögðu að vinna Aftureldingu

MicaelMicael sem spilar á línunni hjá Selfoss kom til félagsins 2006 og er að ljúka sínu 3. tímabili. Áður spilaði hann eitt tímabil með ÍBV. Micael er fæddur í Tékklandi og byrjaði að leika handbolta þar. Hann hefur spilað yfir 10 landsleiki fyrir Tékkland. Við lögðum nokkrar spurningar fyrir hann...

23.3.2009 | Handboltaakademía

Fjöldi landsliðsmanna

Um þessar mundir eru nokkur fjöldi leikmanna Selfoss í karlaflokki að æfa og spila með landsliðum Íslands og er um að ræða leikmenn í 17 ára, 19 ára og 21. árs og A landsliðum Íslands. Þessir leikmenn eru eftirfarandi:

23.3.2009 | Handbolti

Tvö töp fyrir FH í Hafnarfirði

Lið Selfoss 91 og 92 töpuðu bæði fyrir FH síðasstliðinn föstudaginn. 91 tapaði 29-27 eftir að staðan var 16-14 í hálfleik, en 92 tapaði 34-26 eftir að staðan var 17-13 í hálfleik.

23.3.2009 | Handboltaakademía

Selfoss í toppbaráttu í öllum flokkum

Þegar ein umferð er eftir af Íslandsmeistaramótinu í yngri flokknum í handbolta, er Selfoss með mjög góða stöðu í 6. flokki drengja og 5. flokki stúlkna, eldra ári. Í þessum flokkum er Selfoss með nokkuð örugga forustu. Í 5. flokki pilta eldra ár er Selfoss komið upp í 4. sæti eftir góða frammistöðu um helgina og 6. flokka stelpurnar hafa einnig staðið sig vel. Strákar og stelpur í 5. flokki yngra ár keppa síðan um næstu helgi og eru líka bæði í toppbaráttu. Hér fyrir neðan má sjá stöðuna í þessum flokkum.. .

23.3.2009 | Handbolti

Selfoss í öðru sæti á Landsbankamótnu

li-logoLandsbankamótið í 5. flokki pilta (fæddir 1995) fór fram á Selfossi um helgina. Alls voru 30 lið skráð til leiks og leiknir 120 leikir í íþróttahúsi Vallaskóla og íþróttahúsinu Iðu. Mótafyrirkomulag var þannig að leikið var í sex deildum, 1. deild, 2. deild A og B, 3. deild A og B og 4. deild. Þetta er sjöunda árið í röð sem Landsbankamótið er haldið á Selfossi. Mikil hefð er komin á mótahaldið og gekk skipulagið mjög vel fyrir sig.

19.3.2009 | Handboltaakademía

Sigur á Akureyri í 2. flokki

Birkir2. flokkur er heldur betur á góðri siglingu þessa dagana. Það sem af er mars mánaðar höfðu þeir unnið Val og Fram á útivelli með 8 mörkum og HK með 10 mörkum á heimavelli. Nú var röðin kominn að því að fara norður að spila við topplið Akureyrar. Akureyri hefur leitt deildina sannfærandi í allan vetur og eiga deildarmeistaratitilinn vísan.

19.3.2009 | Handbolti

Aðalfundur handknattleiksdeildar í kvöld kl. 21:00

Aðalfundur handknattleiksdeildar Ufm. Selfoss verður haldinn í Tíbrá í kvöld og hefst fundruinn kl. 21:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 13. grein laga félagsins. Viljum hvetja sem flesta til að mæta.

18.3.2009 | Handbolti

Sigurganga 4. flokks kvenna heldur áfram

Stelpurnar okkar í 4. flokki lögðu ÍR mjög sannfærandi síðastliðinn sunnudag. Stelpurnar héldu áfram að spila mjög framliggjandi vörn með þær Hönnu, Kristrúnu og Estheri í fararbroddi. Við þeirri vörn höfðu ÍR stelpurnar fá sem engin svör og öll 5 mörkin sem þær skoruðu í fyrri hálfleik komu eftir víti eða hnoð þar sem að ÍR stelpurnar fengu frákast eða boltinn datt fyrir þær. Sóknarleikurinn hjá Selfoss var aftur á móti með ágætum og náðu stelpurnar að skapa sér ýmis færi úr flestum stöðum og var staðan í hálfleik 14-5 fyrir Selfoss.

16.3.2009 | Handbolti

Olís styrkir handboltann

Olíssamningur_2009Nýverið var undirritaður styrktarsamningur á milli handknattleiksdeildar Umf. Selfoss og Olís. Með samningnum er staðfestur stuðningur olís við handboltastarfið á Selfossi. Á meðfylgjandi mynd handsala Ingvar Guðmundsson, Olís og Jón Ragnar Ólafsson frá handknattleiksdeildinni samninginn.

16.3.2009 | Handboltaakademía

Sigur gegn HK í 2. flokki

Í gær vann 2. flokkur lið HK á heimavelli 40-30. Sigurinn var aldrei í hættu því að heimamenn réðu ferðinni frá upphafi. Liðið spilaði vel og allir liðsmenn að skiluðu sínu hlutverki vel. Liðið virkar þétt og öruggt í sínu spili enda veitir ekki af þar sem framundan eru leikir við þrjú af bestu liðinum í deildinni.

15.3.2009 | Handboltaakademía

Selfoss-2 vann Hörð í Vallaskóla

Harðarmenn frá Ísafirði heimsóttu Selfoss2 í gær og fór leikurinn fram strax á eftir leik eldra liðsins. Afar gaman er að sjá að menn leggi rækt við handboltann á Ísafirði og vonandi mun það starf ganga og blómstra. Selfyssingar virkuðu aftur á móti afar áhugalausir og léku arfaslaka vörn. Þeir nenntu ekki að spila hraðan leik sem hefur hingað til fært þeim auðveldari mörk en ella. Í leikhléi stóð 17-10 en leiknum lauk 33-16.

15.3.2009 | Handboltaakademía

Selfoss vann Þór í 3. flokki karla

Selfoss-91 vann Þór frá Akureyri í hörkuleik á Selfossi 33-31. Í hálfleik stóð 19-15 fyrir heimamenn eftir að þeir höfðu mest náð átta marka forystu 17-9. Síðustu átta mínútur hálfleiksins skoruðu Þórsarar 6-2 og munaði þar miklu um klaufaleg mistök Selfyssingar sem gáfu Þórsurum mörg auðveld mörk í kjölfarið.

13.3.2009 | Handboltaakademía

Sigur hjá 92-liðinu gegn Aftureldingu

Selfoss-92 vann í gær UMFA 30-22 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 15-11. Selfoss fór vel af stað og komst í 6-1 og 12-6, en þá skoruðu gestirnir fimm mörk án þess að heimamenn næðu að svara. Í síðari hálfleik var munurinn á bilinu 3-5 mörk, en Selfoss komst í átta marka mun 27-19 og sá munur hélst út leikinn.

13.3.2009 | Handboltaakademía

Sigur á útivelli á móti Haukum U

Í gærkvöldi vann Selfoss lið Hauka U 25 - 38. Staðan í hálfleik var 13 - 16. Í byrjun seinni hálfleiks bættu Selfyssingar í og leikurinn var afgreiddur á 10 mínútum. Það dugði að þessu sinni. Enn og aftur vantaði í liðið vegna meiðsla en kom ekki að sök frekar en hingað til.

12.3.2009 | Handboltaakademía

Leikir í 3. flokki

Í kvöld kl. 20.45 leikur 92-lið okkar á Selfossi gegn UMFA úr Mosfellsbæ. Gestir okkar hafa fínu liði á að skipa og eru þjálfaðir af Karli Erlingssyni, en hann er afar fær þjálfari og hefur gert marga góða hluti fyrir íslenskan handbolta. Fyrri leik liðanna lauk með öruggum sigri okkar manna að Varmá í Mosfellsbæ. Lið Selfoss hefur breyst talsvert síðan þá og er því spurning hvað verður í kvöld.

11.3.2009 | Handboltaakademía

Stelpurnar í 3. flokki unnu HK á útivelli

Síðasta laugardag fóru stelpurnar í 3. flokki í Digranesið og unnu þar góðan sigur á útivelli 22-28. Framfarirnar halda áfram og alltaf fleiri og fleiri leikmenn að taka þátt í aðgerðum liðsins. Það má því segja að breiddin sé að aukast í liðinu sem eru frábærar fréttir.

9.3.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur vann Fram á útivelli

Í gær, sunnudag, unnu strákarnir í 2. flokki Fram 27 - 35 á útivelli. Í lið Selfoss vantaði Baldur, Hemma og Gumma vegna meiðsla og Sjóli var veikur. Þá spilaði Helgi bara 5 mín. en hann missteig sig illa á föstudaginn í leiknum við ÍR. Leikurinn var jafn til að byrja með en svo skildu leiðir.

9.3.2009 | Handboltaakademía

Sigur á ÍR í deildinni

Síðast liðið föstudagskvöld vann M.fl. lið ÍR 29 - 26 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 16 -13 fyrir okkar menn. Sigurinn var mikilvægur í baráttunni um 2 sætið í deildinni. Selfoss hefur nú 4 stiga forskot á ÍR og UMFA þegar 3 umferðir eru eftir af deildinni. 

9.3.2009 | Handboltaakademía

Tap gegn Stjörnunni

3.flokkur tapaði í lélegum og miklum sirkusleik gegn Stjörnunni í gær, 28-26. Selfoss var alltaf yfir sem dæmi 10-5, 23-18 en þá gerðist margt sem ekkert á skylt við handbolta.

5.3.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur vann Val á útivelli

Á þriðjudagskvöldið unnu strákarnir í 2. flokki Val 24 - 32. Staðan í hálfleik var 15 - 13 fyrir Val. Okkar menn voru frekar rólegir í fyrri hálfleiknum en allir voru sammála um það í hálfleik að spýta aðeins í lófana og klára seinni hálfleik með sóma.

4.3.2009 | Handbolti

4. flokkur kvenna sigraði HK 20:15

Stelpurnar í 4. flokki gerðu sér ferð í Digranes um helgina og sótti þangað 2 stig. Fyrri hálfleikur var mjög jafn og spiluðu stelpurnar nýja vörn eða svo kallaða 3-3 vörn og gekk hún mjög vel. Mikið af fríköstum fengust og HK-stelpurnar komust ekki langt. Í fyrrihálfleik skiptust liðin á að skora þótt að Selfoss hefði alltaf verið skrefinu á undan. Okkar stelpur tóku síðan góða rispu í lok hálfleiksins og skildu fjögur mörk liðin að í leikhléi, 12-8. Í seinni hálfleik var svipað upp á teningnum og gáfu okkar stelpur aldrei færi á sér. Leikurinn endaði síðan 20-15.

3.3.2009 | Handboltaakademía

Gamla myndin

gamla6Gamla myndin að þessu sinni er af 4. flokki kvenna sem varð íslandsmeistari einhvern tíma á níunda áratug síðustu aldar. Þessi hópur var undir stjórn Gríms Hergeirssonar og þrjár af stelpunum, þær Hulda Bjarnadóttir, Auður Hermannsdóttir og Inga Fríða Tryggadóttir, áttu síðar eftir að leika með A-landsliði Íslands.

3.3.2009 | Handboltaakademía

Dagur Sigurðsson gestaþjálfari hjá akademíunni

Það var mikill fengur í því að fá Dag Sigurðsson landsliðsþjálfara Austurríkis og verðandi þjálfara úrvalsdeildarliðs Fusche Berlin í Þýskalandi til að taka æfingu hjá okkur í handboltaakademíunni. Æfingin gekk vel og var margt sem strákarnir lærðu af því að fá hann i heimsókn.

2.3.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur tapaði fyrir Haukum

Selfoss tapaði fyrir Haukum 30 - 32 í 2. flokki karla. Haukar sem eru með gott lið og eru í baráttunni við Selfoss um sæti í 4 liða úrslitum stálu sigrinum í lokin en þeir komust í eina skiptið yfir í leiknum þegar innan við mínúta var eftir af leiknum.

26.2.2009 | Handboltaakademía

Góður sigur á Val í gærkvöld

91-lið okkar Selfyssinga sótti Valsmenn heim að Hlíðarenda í gærkvöld en þar eru heimamenn ávallt erfiðir viðureignar. Heimamenn byrjuðu mun betur í leiknum og komust fljótlega í 5-1 og virtust okkar drengir ekki ætla að byrja þenna leik. Í stöðunni 7-5 fyrir Valsmenn breyttu okkar menn stöðunni í 7-9 sér í hag, en Valsmenn svöruðu með þremur mörkum og komust yfir á ný. Okkar drengir svöruðu með þremur mörkum til baka og leiddu svo í hálfleik 12-14.

 

24.2.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur vann Val í gær á heimavelli

2. flokkur vann leikinn 36 - 26 en staðan í hálfleik var 17 - 14 fyrir Selfoss. Eftir þokkalegan fyrri hálfleik þá settu Selfyssingar í 5 gír og skelltu jafnframt í lás í vörninni. Valur náði aðeins að skora 4 mörk á fyrstu 20 mín. seinni hálfleiks, en þá var staðan orðin 29 - 18. Eftir það jafnaðist leikurinn.

23.2.2009 | Handboltaakademía

Jafntefli hjá 91-liðinu gegn Fram

Í gær sótti 91-liðið Framara heim í Safamýri. Selfyssingar voru talsvert betri í leiknum en sú frammistaða dugði þó aðeins fyrir einu stigi. Er 20 mínútur voru til leiksloka var staðan 26-17 fyrir Selfoss en leikurinn endaði 38-38. Í hálfleik stóð 21-13 fyrir Selfoss. Síðuritari innti Arnar þjálfara eftir útskýringum á því hvað gerðist:

21.2.2009 | Handbolti

Sigur gegn Þrótti á heimavelli

Guðmundur_ÁrniSelfoss vann Þrótt í gærkvöldið 49 - 25 en staðan í hálfleik var 25 - 11. Sannfærandi sigur þar sem liðið slakaði ekkert á nema þá helst síðustu mínútur leiksins. Marga fastamenn vantaði í liðið og allir fengu mikið að spila. Ekki munaði miklu að liðið næði 50 mörkunum en skot Guðmundar á lokasekúndunum for í stöngina. Það hefði þá orðið 20 mark hans í leiknum hefði hann skorað.

18.2.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur úr leik í Bikarnum

Í gærkvöldi töpuðu strákarnir í 2. flokki fyrir Akureyri 37 - 30 í undanúrslitum bikarkeppninnar. Eftir góðan fyrri hálfleik sem endaði 14 - 15 fyrir Selfoss þá sátu okkar menn eftir og spiluðu skelfilega í síðari hálfleik. Vörn og markvarsla var í molum og sóknarleikurinn mjög ómarkviss. Allt of fáir áttu góðan dag í liðinu og því er Akureyri komið verðskuldað í úrslitaleikinn.

17.2.2009 | Handbolti

Tveir sigurleikir hjá 4. flokki kvenna um helgina

4. flokkur kvenna spilaði 2 leiki um helgina. Fyrst á föstudeginum gegn ÍBV á heimavelli og síðan á sunnudeginum gegn FH í Kaplakrika. Leikurinn á móti ÍBV byrjaði mjög vel og komust okkar stelpur í 4-1. Þá slökuðu þær á og staðan í hálfleik því 8-6. Í seinni hálfleik spiluðu stelpurnar alveg skelfilega og náði ÍBV að jafna leikinn. En með smá vilja þá komust Selfoss stelpurnar framúr og kláruðu leikinn 13-11.

16.2.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur vann UMFA á heimavelli

Strákarnir í 2. fl. hafa heldur betur snúið við blaðinu og eru nú komnir í 3. sæti í deildinni. Um helgina unnu þeir UMFA 33-23 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 13-12 fyrir heimamenn. Þrátt fyrir að vera í 3. sætinu eru ekki nema 2 stig í 10. sætið, þannig að þeir verða að vera á tánum í næstu deildarleikjum.

13.2.2009 | Handboltaakademía

Tveir sigrar á ÍR í 3. flokki

Í gærkvöld komu ÍR-ingar í heimsókn til Selfoss og öttu þar kappi við heimamenn. Leikirnir voru tveir og unnu okkar menn þá báða, með afar misjafnri spilamennsku þó. 91-liðið lék fyrri leikinn og vann 25-24 í afar lélegum leik þar sem varnarleikurinn var hörmung, þrátt fyrir að fá aðeins 24 mörk á sig. 92-drengirnir unnu 39-23 og var sigurinn aldrei í hættu né nokkur spurning í þeim leik.

12.2.2009 | Handboltaakademía

Meistaraflokkur 1988-1989

Gamla myndin í dag er af meistaraflokki karla í handbolta veturinn 1988-1989. Þjálfari á þessum tíma var Guðmundur Magnússon (Dadú). Þarna eru kappar eins og Magnús Sigurðsson, Einar Gunnar Sigurðsson, Sigurður Þórðarson, Grímur Hergeirsson o.fl.

12.2.2009 | Handboltaakademía

Sendiherra handboltans á Nýja Sjálandi

Fyrir stuttu fór Orri Davíðsson alla leið til Nýja Sjálands, en lengra er víst ekki hægt að komast frá Íslandi. Orri verður þar sem skiptinemi í 11 mánuði. Við vonum að hann byrji að stunda handbolta að nýju er hann kemur aftur. Annars er ekki ósennilegt að hann muni kenna þeim í Hringadróttinssögulandinu hvernig á að spila hina göfugu íþrótt handbolta.

12.2.2009 | Handboltaakademía

Grótta komin í úrvalsdeildina

Grótta vann Selfoss í gærkvöldi 32-31 og kom sigurmarkið úr víti þegar leiktíminn var liðinn. Það þýðir að Selfoss þarf að fara í úrslitakeppnina til að ná takmarki sínu um sæti í úrvalsdeild. "Ég óska Gróttu til hamingju með úrvalsdeildarsætið. Það voru hlutir að gerast í seinni hálfleik sem eru þess eðlis að það þjónar ekki hagsmunum okkar að tala um þá og því vill ég að öðru leiti ekki tjá mig um leikinn" sagði Sebastian eftir leik í gær.

10.2.2009 | Handbolti

Rútuferð á leik Gróttu og Selfoss í 1. deild

Farin verður rútuferð á leik Gróttu og Selfoss í 1. deildinni, en leikurinn fram fer á Seltjarnarnesi miðvikudaginn 11. febrúar. Lagt verður af stað frá íþróttahúsi Vallaskóla kl. 18:00. Leikurinn hefst kl. 19:30. Hér er í raun um úrslitaleik að ræða í baráttunni um að komast upp í úrvalsdeild. Fyrir leikinn er Grótta með 26 stig en Selfoss 24. Áfram Selfoss!

7.2.2009 | Handboltaakademía

Selfoss úr leik í Bikarnum

MicaelÞað var troðfullt í Vallaskóla í gærkvöldi þegar Selfoss mætti Gróttu í undanúrslitum Bikarkeppni HSÍ. Grótta vann leikinn 30 - 31 eftir framlengingu í leik þar sem Selfoss fékk nokkur tækifæri til þess að sigra leikinn en mistókt að klára verkefnið þegar mest á reyndi.

6.2.2009 | Handbolti

Stemning í Vallaskóla í kvöld

Klukkan 1930 í kvöld hefst leikur Selfoss og Gróttu í undanúrslitum Eimskipsbikar HSÍ. Forsala á miðum hefur gengið vel fyrir leikinn og er fólk hvatt til að koma tímanlega fyrir leik og ræða margir um að vera mættir 1830. Það er líklega best að vera mættur klukkustund fyrir leik til að ná góðu sæti.

Enn er hægt að verða sér út um miða, bara mæta í Vallaskóla klst fyrir leik og tryggja sér miða. Nú mætum við sunnlendingar og stöndum saman.

Áfram Selfoss!

5.2.2009 | Handbolti

Viðtal við Arnar aðstoðarþjálfara meistaraflokks

eimskipsbikarinnSíðuritari hafði samband við Arnar Gunnarsson, aðstoðarmann Sebastíans Alexandersonar, vegna leiks Selfoss gegn Gróttu annað kvöld í bikarkeppni HSÍ. Arnar eða Addi eins og flestir þekkja hann á Selfossi tók vel í það að svara nokkrum laufléttum spurningum.

4.2.2009 | Handbolti

Birkir markmaður svarar nokkrum spurningum

eimskipsbikarinnMarkmaðurinn okkar ungi og skemmtilegi Birkir Fannar Bragason, sem sumir kjósa að kalla Bikk Van Quick, tók vel í það að svara nokkrum spurningum varðandi leik Selfoss gegn Gróttu. Sá leikur er í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ og fer fram á morgun, föstudaginn 6. feb. kl. 19:30.

3.2.2009 | Handbolti

6.fl kvenna lék um helgina

A-lið átti leik við FH snemma á laugardagsmorguninn og var greinilegt að stelpurnar mættu ekki tilbúnar til leiks né á réttum tíma fyrir leik og það er eitthvað sem þarf að bæta. Leikurinn endaði með tveggja marka sigri FH 9-7 eftir að Selfoss hafði leitt nánast allan leikinn, þetta þýddi að Selfossi þurfti að vinna næstu tvo leiki sem voru við Fram og Fjölni.

2.2.2009 | Handbolti

Selfoss stelpur í 2. sæti á Deildarbikarmóti HSÍ

5.kvy4A-lið 5. flokks kvenna, yngra ár eða stelpur fæddar árið 1996 og yngri, léku til úrslita á deildarbikarmóti HSÍ og höfnuðu í 2, sæti.

2.2.2009 | Handboltaakademía

Gull, silfur og brons hjá 6. flokki drengja

Selfoss-strákarnir í 6. flokki A-liða urðu deildarbikarmeistarar um síðastliðna helgi, en mótið fór fram í Digranesi í Kópavogi. Öll lið landsins voru þar mætt til leiks á sjálfstæðu móti þar sem keppt er um einn titil. B-liðið varði í þriðja sæti og C-liðið vann til silfurverðlauna.

2.2.2009 | Handboltaakademía

2 flokkur vann Stjörnuna á útivelli

Strákarnir náðu að landa enn einum sigrinum í deildinni að þessu sinni þrátt fyrir að það hafi vantað alls 8 leikmenn í liðið. Sem betur fer féll niður leikur í 3 flokki þannig að þeir þurftu ekki að mæta 8 í leikinn. Sigur vannst að lokum 28 - 33 eftir mikinn barning fram eftir leik. Staðan í hálfleik var 14 - 15 fyrir Selfoss.

2.2.2009 | Handboltaakademía

Stelpurnar töpuðu naumt fyrir Víkingi

Annan leikinn í röð töpuðu stelpurnar naumt fyrir andstæðingi sínum. Að þessu sinni 22 - 24 fyrir Víkingi. Víkingur er með gott lið enda í toppbaráttunni með ÍR og Stjörnunni. Stelpurnar spiluðu frábæra vörn og voru með topp markvörslu á bak við hana. Þá er sóknin alltaf að batna. 

2.2.2009 | Handbolti

Meistaraflokkur vann Fjölni

Á föstudaginn vann Selfoss lið Fjölnis 38 - 20 en staðan í hálfleik var 15 - 7. Marga fastaleikmenn vantaði í lið Selfoss en það kom ekki að sök að þessu sinni þar sem aðrir nýttu tækifærið og stóðu sig vel. Enn einn nýlíðinn úr 3 flokki spilaði sinn fyrsta Meistaraflokksleik fyrir félagið.

2.2.2009 | Handboltaakademía

Sigur hjá 92 gegn Þrótti

Um helgina léku á Selfossi 92-liðið gegn Þrótti. Laugardalsmenn hafa góðu liði á að skipa og var alveg á hreinu að ekkert yrði gefið í leiknum. Í lið okkar vantaði Erling Snæ, Árni Felix, Guðbjörn Tryggvason og Einar Sverrisson, sem fékk þá góðu hugmynd að skella sér á snjóbretti með ekki skemmtilegum afleiðingum. Svo er Orri Davíðsson farinn til Nýja Sjálands sem skiptinemi og verður þar í 11 mánuði. Hans verður sárt saknað og kemur fljótlega smá pistill um þann góða dreng.

2.2.2009 | Handboltaakademía

Tölfræði frá Haukaleik í 3. flokki

Á fimmtudaginn síðastliðinn unnu 91-strákarnir Hauka 46-22, en í leikhléi stóð 18-11. Þetta lið átti að leika gegn Val í gær í Reykjavík en var frestað sökum þess að Valsmenn ná ekki í lið sökum meiðsla. Líklega fer sá leikur fram laugardaginn næsta.

30.1.2009 | Handboltaakademía

Sigur hjá 3.flokki í gær

91-lið Selfoss í flokki vann Hauka úr Hafnarfirði með 24ja marka mun í gærkvöld, 46-22 eftir að hafa leitt 18-11 í hálfleik. Selfoss lék afar vel á köflum í leiknum og menn sem voru skuldum vafnir eftir leik sama liðs gegn HK á dögunum greiddu aðeins til baka í gærkvöld. Tölfræði kemur eftir eða um helgi en gleðifréttirnar eru þær að Matthías gat leikið aðeins í gær og skoraði nokkur falleg mörk með þrumuskotum og stóð vörnina vel og þá er Andri Halls að braggast sem og Aðalsteinn. Enda hefur þjálfari liðsins fyrir löngu síðan bannað meiðsli og veikindi.

Á morgun leikur 92-liðið heima kl 16 gegn Þrótturum úr Laugardal og á sunnudaginn er aftur leikur hjá 91-drengjum, nú á útivelli gegn Valsmönnum og fer leikurinn fram að Hlíðarenda kl 18.30.

29.1.2009 | Handboltaakademía

Gamla myndin

Gamla myndin að þessu sinni er tekin þegar Siggi Sveins hellir vatni yfir Einar Þorvarðar í miðju sjónvarpsviðtali við Arnar Björnsson eftir leik keppnistímabilið 1992-1993.

29.1.2009 | Handboltaakademía

Leikur hjá 3.flokki í kvöld

Í kvöld koma Haukar úr Hafnarfirði í heimsókn til 91-liðsins og hefst leikurinn kl 21.00 í Vallaskóla.

Um hörkuleik er að ræða eins og venja er hjá þessum flokki. Mikið er um meiðsli hjá 91-liðinu en Matthías og Aðalsteinn Halldórssynir eru báðir meiddir og ekki með í kvöld og þá hefur Andri Hallsson einnig verið meiddur.

Á laugardaginn kl 16 í Vallaskóla koma svo Þróttarar í heimsókn og leika við 92-liðið.

29.1.2009 | Handboltaakademía

Stelpurnar töpuðu í hörkuleik

Stelpurnar fóru í Garðabæ um helgina og kepptu við Stjörnuna í 3 sinn í vetur. Fyrstu tveir leikirnir voru gríðarlega spennandi og ekki varð breyting á því á sunnudaginn. Fyrsti leikurinn endaði jafntefli, sá næsti í Bikarkeppninni endaði með 1 marks sigri Stjörnunnar og þessi leikur gerði það sömuleiðis. Lokastaðan var 26 - 25 en staðan í hálfleik hafði verið 11 - 16 fyrir Selfoss.

27.1.2009 | Handboltaakademía

2 fl. í undanúrslit í bikarnum eftir dramatískan leik

Í gærkvöldi mættust Afturelding og Selfoss í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar í 2 flokki í Mosfellsbæ. Selfoss vann leikinn eftir tvær framlengingar með minnsta mun 36 - 37 og allt of stórum skammti af dramatík og spennu. Leikurinn var "ekta" bikarleikur sem bauð upp á allt sem hægt er að hugsa sér í handboltaleik.

26.1.2009 | Handboltaakademía

Mikið um meiðsli í 2 fl. og m.fl.

sjóliÞað er með ólíkindum hvað leikmenn liðanna tveggja hafa verið óheppnir með meiðsli upp á síðkastið. Alls hafa hvorki né færri en 12 leikmenn úr 20 manna æfingahópi verið eitthvað frá síðustu vikur. Hér fyrir neðan er listinn..

26.1.2009 | Handboltaakademía

Tveir sigrar hjá 2 flokki

Á undanfarinni viku spilaði 2 flokkur tvo leiki, báða á heimavelli, á móti Stjörnunni og Fjölni. Báðir leikirnir unnust sannfæarandi og er 2 flokkur kominn á smá skrið, loksins segja sumir. Fyrri leikurinn á móti Stjörnunni fór 35 - 25 og sá síðari á móti Fjölni 35 - 23.

26.1.2009 | Handbolti

Meistaraflokkur í 2. sæti eftir sigur á Haukum U

Á laugardaginn unnu strákarnir okkar gríðarlega mikilvægan sigur á Haukum á útivelli. Lokatölur urðu 21 - 29 en í hálfleik var 10 - 18. Það vantaði talsvert í lið Selfoss vegna meiðsla en með góðri vörn og frábærum hraðaupphlaupum í fyrri hálfleik vannst sigur á erfiðum útivelli þar sem bestu lið deildarinnar hafa öll tapað eða þá unnið nauma sigra.

23.1.2009 | Handboltaakademía

Staðan í 3. flokki 2. deild

Svipuð staða er uppi í 2. deild 3. flokks karla. Þar hafa okkar menn staðið sig vel og hér er einnig ómögulegt að spá fyrir um lokastöðu. Ekki síst þar sem tvö bestu liðin FH og við á Selfossi munum væntanlega færa bestu leikmenn B-liða sinna í A-liðin áður en tímabilið er úti. Selfoss er búið að fara á afar erfiða útivelli gegn Þrótti og UMFA og sótt þar sigur í báðum leikjum. Sem og er liðið búið að leika gegn Gróttu á útivelli eins og frægt er og tapaði þar, óverðskuldað.

23.1.2009 | Handboltaakademía

Staðan í 3. flokki 1. deild

Keppni í 1. deild í 3. flokki karla er mjög jöfn og spennandi. Selfoss er búið að fara á afar erfiða útivelli þar sem Haukar og ÍR spila og sóttu þar fjögur stig. Einnig er liðið búið að fara norður en tapaði þar báðum leikjum fyrir stuttu. Sennilega ræðst það ekki fyrr en í lok tímabilsins hvar liðin enda og ómögulegt að segja hvernig það allt saman fer.

22.1.2009 | Handboltaakademía

91-liðið vann í gær en lék afar illa

Selfyssingar í 91-liðinu sóttu HK menn heim í gærkvöld, ljóst var að um hörkuleik væri að ræða þar sem HK-ingar eru með gott lið og afar færan þjálfara. Það varð svo raunin og eftir mikinn barning og þrautagöngu unnu okkar menn með einu marki, 30-29.

20.1.2009 | Handboltaakademía

92-liðið tapaði í sirkusleik

Um síðustu helgi lék 92-lið okkar á Selfossi gegn Gróttu á Seltjarnarnesi. Sá leikur tapaðist 26-27 í mikilli sirkussýningu. Selfoss byrjaði mun betur og komst í 11-6 en heimamenn náði að minnka muninn í 12-11 fyrir leikhlé.

19.1.2009 | Handboltaakademía

Mikilvægur sigur hjá 2. flokki á móti ÍR

Hið meiðslum hrjáða lið 2. flokks þjappaði sér saman og spilaði góðan leik á móti sterku liði ÍR sem var í 3. sæti fyrir þennan leik. ÍR vann fyrri leik liðanna á Selfossi og því var mikilvægt að ná sigri í Reykjavík. 2. flokkur virðist vera að ná áttum nú um áramót og nóg er eftir af mótinu þannig að enn má stefna á að ná í úrslit. Leikurinn endaði 32 - 38 en í hálfleik var staðan 13 - 17.

19.1.2009 | Handboltaakademía

Sigur á Fjölni í Meistarafokki

Síðasta föstudagskvöld mættu Fjölnismenn á Selfoss. Leikurinn endaði 32 - 22 fyrir Selfoss en staðan í hálfleik var 11 - 10 fyrir okkar menn og máttu þeir teljast heppnir að vera ekki undir í hálfleik. Marga leikmenn vantar í Selfossliðið um þessar mundir en það er enginn afsökun. Okkar menn spiluðu betur í síðari hálfleik og unnu. Þrír leikmenn úr 3 flokki spiluðu sinn fyrsta leik fyrir hönd félagisns og stóðu sig allir vel.

15.1.2009 | Handboltaakademía

Norðurferð 3. flokks

Síðastliðna helgi fór A-lið 3.flokks norður til Akureyrar og lék á laugardegi við KA og á sunnudegi við Þór. Báðir leikir þessir töpuðust en voru þeir þó misjafnlega leiknir af okkar mönnum.

14.1.2009 | Nýjustu fréttir

Sýndu hvað í þér býr

NámskeiðsteikningMiðvikudaginn 21. janúar næstkomandi verður haldið félagsmálanámskeið í Tíbrá sem ber yfirskriftina "Sýndu hvað í þér býr". Farið verður í ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku, fundahöldum og félagsmálastörfum. Námskeiðið er einungis ein kvöldstund þ.e. frá kl. 18:00-22:00. Framkvæmdastjórn Umf. Selfoss hefur ákveðið að bjóða öllum félögum í Umf. Selfoss frítt á námsekiðið. Sjá nánar... 

12.1.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur gerði jafntefli við Víking

Á sunnudaginn komu 2. flokkur Víkings í heimsókn en þeir hafa 3 landsliðsmenn úr U-20 innanborðs. Leikurinn endaði 31 - 31, en í hálfleik var einnig jafnt 16 - 16. Í lið Selfoss vantaði Baldur, Gumma og Eyþór vegna meiðsla og þá gat Óskar Kúld lítið sem ekkert beitt sér, líka vegna meiðsla.

12.1.2009 | Handboltaakademía

Stelpurnar töpuðu fyrir ÍR

Besta lið deildarinnar, ÍR, kom í heimsókn á laugardaginn en þær hafa ekki tapað leik í vetur. Okkar stelpur spiluðu líklega sinn besta handbolta í vetur síðustu 40 mín. leiksins en slæm byrjun varð þeim að falli að þessu sinni. Leikurinn endaði 23 - 28 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 13 - 16. Þær voru komnar 8 - 16 undir eftir 20 mín. en eftir það var baráttan og viljinn til fyrirmyndar og voru þær betri en toppliðið það sem eftir lifði leiks.

10.1.2009 | Handbolti

Meistaraflokkur byrjar árið vel

BirkirÁ fimmtudagskvöldið komu Eyjamenn í heimsókn og léku við Selfoss í 1. deildinni. Í bæði lið vantaði mikilvæga leikmenn vegna meiðsla og annarra fjarvista. Ljóst var strax í upphafi í hvað stefndi því okkar menn tóku öll völd á vellinum og héldu þeim til loka leiksins. Hálfleikstölur voru 19:6 og lokatölur 35:18. Tölfræði og nánari umfjöllun...

8.1.2009 | Handbolti

Fyrsti leikur meistaraflokks á nýju ári er í kvöld

HSI_logoKeppni í 1. deild karla hefst að nýju í kvöld með leik Selfoss og ÍBV í Vallaskóla og hefst leikurinn kl. 19:30. Selfyssingar eru í 2.-3 sæti ásamt ÍR-ingum með 16 stig að loknum 11 umferðum. Grótta er tveimur stigum ofar og því efst í deildinni. Eyjamenn eru í 6. sæti með 8 stig. Selfoss vann fyrri leik liðanna í Eyjum í miklum markaleik 34:42.

Á næstunni


Nýjustu úrslit

  • Mfl. karla 1. deild 2009-2010:

Fjölnir -  Selfoss 14 : 32
Selfoss -  Víkingur   22 : 20
Selfoss -  Þróttur 35 : 22
Afturelding  -  Selfoss 26 : 25 
ÍBV -  Selfoss 23 : 25
Selfoss -  ÍR 32 : 28
Selfoss -  Fjölnir 36 : 17
Víkingur -  Selfoss 30 : 32 
Selfoss - ÍBV 33 : 29
Þróttur - Selfoss 20 : 44
Selfoss - Afturelding 32 : 23
ÍR - Selfoss 30 : 28
Víkingur - Selfoss 27 : 33
Selfoss - Fjölnir 34 : 17
Selfoss - ÍR 30 : 21
ÍBV - Selfoss 32 : 28
Þróttur - Selfoss 23 : 31
Selfoss - Afturelding 27 : 24

Selfoss - sigurvegari í 1. deild 2010
byko.islyfogheilsa.iswww.olis.iswww.orkusalan.islandsbankinn.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta