26.2.2009 | Handboltaakademía
91-lið okkar Selfyssinga sótti Valsmenn heim að Hlíðarenda í gærkvöld en þar eru heimamenn ávallt erfiðir viðureignar. Heimamenn byrjuðu mun betur í leiknum og komust fljótlega í 5-1 og virtust okkar drengir ekki ætla að byrja þenna leik. Í stöðunni 7-5 fyrir Valsmenn breyttu okkar menn stöðunni í 7-9 sér í hag, en Valsmenn svöruðu með þremur mörkum og komust yfir á ný. Okkar drengir svöruðu með þremur mörkum til baka og leiddu svo í hálfleik 12-14.
24.2.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur vann leikinn 36 - 26 en staðan í hálfleik var 17 - 14 fyrir Selfoss. Eftir þokkalegan fyrri hálfleik þá settu Selfyssingar í 5 gír og skelltu jafnframt í lás í vörninni. Valur náði aðeins að skora 4 mörk á fyrstu 20 mín. seinni hálfleiks, en þá var staðan orðin 29 - 18. Eftir það jafnaðist leikurinn.
23.2.2009 | Handboltaakademía
Í gær sótti 91-liðið Framara heim í Safamýri. Selfyssingar voru talsvert betri í leiknum en sú frammistaða dugði þó aðeins fyrir einu stigi. Er 20 mínútur voru til leiksloka var staðan 26-17 fyrir Selfoss en leikurinn endaði 38-38. Í hálfleik stóð 21-13 fyrir Selfoss. Síðuritari innti Arnar þjálfara eftir útskýringum á því hvað gerðist:
21.2.2009 | Handbolti
_1860120444.jpg)
Selfoss vann Þrótt í gærkvöldið 49 - 25 en staðan í hálfleik var 25 - 11. Sannfærandi sigur þar sem liðið slakaði ekkert á nema þá helst síðustu mínútur leiksins. Marga fastamenn vantaði í liðið og allir fengu mikið að spila. Ekki munaði miklu að liðið næði 50 mörkunum en skot Guðmundar á lokasekúndunum for í stöngina. Það hefði þá orðið 20 mark hans í leiknum hefði hann skorað.
18.2.2009 | Handboltaakademía
2. flokkur úr leik í Bikarnum
Í gærkvöldi töpuðu strákarnir í 2. flokki fyrir Akureyri 37 - 30 í undanúrslitum bikarkeppninnar. Eftir góðan fyrri hálfleik sem endaði 14 - 15 fyrir Selfoss þá sátu okkar menn eftir og spiluðu skelfilega í síðari hálfleik. Vörn og markvarsla var í molum og sóknarleikurinn mjög ómarkviss. Allt of fáir áttu góðan dag í liðinu og því er Akureyri komið verðskuldað í úrslitaleikinn.
17.2.2009 | Handbolti
4. flokkur kvenna spilaði 2 leiki um helgina. Fyrst á föstudeginum gegn ÍBV á heimavelli og síðan á sunnudeginum gegn FH í Kaplakrika. Leikurinn á móti ÍBV byrjaði mjög vel og komust okkar stelpur í 4-1. Þá slökuðu þær á og staðan í hálfleik því 8-6. Í seinni hálfleik spiluðu stelpurnar alveg skelfilega og náði ÍBV að jafna leikinn. En með smá vilja þá komust Selfoss stelpurnar framúr og kláruðu leikinn 13-11.
16.2.2009 | Handboltaakademía

Strákarnir í 2. fl. hafa heldur betur snúið við blaðinu og eru nú komnir í 3. sæti í deildinni. Um helgina unnu þeir UMFA 33-23 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 13-12 fyrir heimamenn. Þrátt fyrir að vera í 3. sætinu eru ekki nema 2 stig í 10. sætið, þannig að þeir verða að vera á tánum í næstu deildarleikjum.
13.2.2009 | Handboltaakademía
Í gærkvöld komu ÍR-ingar í heimsókn til Selfoss og öttu þar kappi við heimamenn. Leikirnir voru tveir og unnu okkar menn þá báða, með afar misjafnri spilamennsku þó. 91-liðið lék fyrri leikinn og vann 25-24 í afar lélegum leik þar sem varnarleikurinn var hörmung, þrátt fyrir að fá aðeins 24 mörk á sig. 92-drengirnir unnu 39-23 og var sigurinn aldrei í hættu né nokkur spurning í þeim leik.
12.2.2009 | Handboltaakademía

Gamla myndin í dag er af meistaraflokki karla í handbolta veturinn 1988-1989. Þjálfari á þessum tíma var Guðmundur Magnússon (Dadú). Þarna eru kappar eins og Magnús Sigurðsson, Einar Gunnar Sigurðsson, Sigurður Þórðarson, Grímur Hergeirsson o.fl.
12.2.2009 | Handboltaakademía

Fyrir stuttu fór Orri Davíðsson alla leið til Nýja Sjálands, en lengra er víst ekki hægt að komast frá Íslandi. Orri verður þar sem skiptinemi í 11 mánuði. Við vonum að hann byrji að stunda handbolta að nýju er hann kemur aftur. Annars er ekki ósennilegt að hann muni kenna þeim í Hringadróttinssögulandinu hvernig á að spila hina göfugu íþrótt handbolta.
12.2.2009 | Handboltaakademía

Grótta vann Selfoss í gærkvöldi 32-31 og kom sigurmarkið úr víti þegar leiktíminn var liðinn. Það þýðir að Selfoss þarf að fara í úrslitakeppnina til að ná takmarki sínu um sæti í úrvalsdeild. "Ég óska Gróttu til hamingju með úrvalsdeildarsætið. Það voru hlutir að gerast í seinni hálfleik sem eru þess eðlis að það þjónar ekki hagsmunum okkar að tala um þá og því vill ég að öðru leiti ekki tjá mig um leikinn" sagði Sebastian eftir leik í gær.
10.2.2009 | Handbolti
Rútuferđ á leik Gróttu og Selfoss í 1. deild
Farin verður rútuferð á leik Gróttu og Selfoss í 1. deildinni, en leikurinn fram fer á Seltjarnarnesi miðvikudaginn 11. febrúar. Lagt verður af stað frá íþróttahúsi Vallaskóla kl. 18:00. Leikurinn hefst kl. 19:30. Hér er í raun um úrslitaleik að ræða í baráttunni um að komast upp í úrvalsdeild. Fyrir leikinn er Grótta með 26 stig en Selfoss 24. Áfram Selfoss!
7.2.2009 | Handboltaakademía

Það var troðfullt í Vallaskóla í gærkvöldi þegar Selfoss mætti Gróttu í undanúrslitum Bikarkeppni HSÍ. Grótta vann leikinn 30 - 31 eftir framlengingu í leik þar sem Selfoss fékk nokkur tækifæri til þess að sigra leikinn en mistókt að klára verkefnið þegar mest á reyndi.
6.2.2009 | Handbolti
Stemning í Vallaskóla í kvöld
Klukkan 1930 í kvöld hefst leikur Selfoss og Gróttu í undanúrslitum Eimskipsbikar HSÍ. Forsala á miðum hefur gengið vel fyrir leikinn og er fólk hvatt til að koma tímanlega fyrir leik og ræða margir um að vera mættir 1830. Það er líklega best að vera mættur klukkustund fyrir leik til að ná góðu sæti.
Enn er hægt að verða sér út um miða, bara mæta í Vallaskóla klst fyrir leik og tryggja sér miða. Nú mætum við sunnlendingar og stöndum saman.
Áfram Selfoss!
5.2.2009 | Handbolti

Síðuritari hafði samband við Arnar Gunnarsson, aðstoðarmann Sebastíans Alexandersonar, vegna leiks Selfoss gegn Gróttu annað kvöld í bikarkeppni HSÍ. Arnar eða Addi eins og flestir þekkja hann á Selfossi tók vel í það að svara nokkrum laufléttum spurningum.
4.2.2009 | Handbolti

Markmaðurinn okkar ungi og skemmtilegi Birkir Fannar Bragason, sem sumir kjósa að kalla
Bikk Van Quick, tók vel í það að svara nokkrum spurningum varðandi leik Selfoss gegn Gróttu. Sá leikur er í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ og fer fram á morgun,
föstudaginn 6. feb. kl. 19:30.
3.2.2009 | Handbolti
A-lið átti leik við FH snemma á laugardagsmorguninn og var greinilegt að stelpurnar mættu ekki tilbúnar til leiks né á réttum tíma fyrir leik og það er eitthvað sem þarf að bæta. Leikurinn endaði með tveggja marka sigri FH 9-7 eftir að Selfoss hafði leitt nánast allan leikinn, þetta þýddi að Selfossi þurfti að vinna næstu tvo leiki sem voru við Fram og Fjölni.
2.2.2009 | Handbolti

A-lið 5. flokks kvenna, yngra ár eða stelpur fæddar árið 1996 og yngri, léku til úrslita á deildarbikarmóti HSÍ og höfnuðu í 2, sæti.
2.2.2009 | Handboltaakademía
Selfoss-strákarnir í 6. flokki A-liða urðu deildarbikarmeistarar um síðastliðna helgi, en mótið fór fram í Digranesi í Kópavogi. Öll lið landsins voru þar mætt til leiks á sjálfstæðu móti þar sem keppt er um einn titil. B-liðið varði í þriðja sæti og C-liðið vann til silfurverðlauna.
2.2.2009 | Handboltaakademía
Strákarnir náðu að landa enn einum sigrinum í deildinni að þessu sinni þrátt fyrir að það hafi vantað alls 8 leikmenn í liðið. Sem betur fer féll niður leikur í 3 flokki þannig að þeir þurftu ekki að mæta 8 í leikinn. Sigur vannst að lokum 28 - 33 eftir mikinn barning fram eftir leik. Staðan í hálfleik var 14 - 15 fyrir Selfoss.
2.2.2009 | Handboltaakademía
Annan leikinn í röð töpuðu stelpurnar naumt fyrir andstæðingi sínum. Að þessu sinni 22 - 24 fyrir Víkingi. Víkingur er með gott lið enda í toppbaráttunni með ÍR og Stjörnunni. Stelpurnar spiluðu frábæra vörn og voru með topp markvörslu á bak við hana. Þá er sóknin alltaf að batna.
2.2.2009 | Handbolti

Á föstudaginn vann Selfoss lið Fjölnis 38 - 20 en staðan í hálfleik var 15 - 7. Marga fastaleikmenn vantaði í lið Selfoss en það kom ekki að sök að þessu sinni þar sem aðrir nýttu tækifærið og stóðu sig vel. Enn einn nýlíðinn úr 3 flokki spilaði sinn fyrsta Meistaraflokksleik fyrir félagið.
2.2.2009 | Handboltaakademía
Um helgina léku á Selfossi 92-liðið gegn Þrótti. Laugardalsmenn hafa góðu liði á að skipa og var alveg á hreinu að ekkert yrði gefið í leiknum. Í lið okkar vantaði Erling Snæ, Árni Felix, Guðbjörn Tryggvason og Einar Sverrisson, sem fékk þá góðu hugmynd að skella sér á snjóbretti með ekki skemmtilegum afleiðingum. Svo er Orri Davíðsson farinn til Nýja Sjálands sem skiptinemi og verður þar í 11 mánuði. Hans verður sárt saknað og kemur fljótlega smá pistill um þann góða dreng.
2.2.2009 | Handboltaakademía
Á fimmtudaginn síðastliðinn unnu 91-strákarnir Hauka 46-22, en í leikhléi stóð 18-11. Þetta lið átti að leika gegn Val í gær í Reykjavík en var frestað sökum þess að Valsmenn ná ekki í lið sökum meiðsla. Líklega fer sá leikur fram laugardaginn næsta.