31.3.2009 | Handboltaakademía
3. flokkur kvenna hefur haft nóg að gera að undanförnu og spiluðu þrjá leiki á 11 dögum og spila aftur í kvöld gegn sterku liði ÍR í Austurbergi. Mikil meiðsli hafa verið í liðinu. Í dag eru 4 leikmenn meiddir og munar um minna í 12 manna hópi.
31.3.2009 | Handboltaakademía

Einhver hraðasti og skemmtilegasti leikur sem hefur verið spilaður á Selfossi fór fram í gærkvöldið þegar FH kom í heimsókn. Leikurinn endaði 41 - 38 fyrir Selfoss en staðan í hálfleik var 25 - 19 fyrir okkar menn. Það er ljóst að það eru aðeins örfá lið á Íslandi sem ráða við að spila á þessum hraða. Selfoss og FH eru meðal þeirra enda líklega tvö bestu sóknarlið landsins í þessum aldursflokki.
30.3.2009 | Handboltaakademía

Selfoss vann Aftureldingu síðasta föstudagskvöld 32 - 30 og tryggðu þar með 2 sætið í deildinni og heimaleikjarétt í 1. umferð úrslitakeppninnar um laust sæti í efstu deild. Staðan í hálfleik var 13 -15 fyrir gestina en góður kafli í upphafi seinni hálfleiks skilaði sigri og 2 sætinu.
30.3.2009 | Handboltaakademía
Selfoss hefur unnið þrjá deildarmeistaratitla í kvennaflokkum á einni viku ! Um síðustu helgi unnu stelpurnar í 5.flokki kvenna eldra ár deildarmeistaratitilinn og nú um helgina unnu stöllur þeirra í 5.flokki kvenna yngra ár deildarmeistaratitilinn. Síðan fékk 4.flokkur kvenna yngra ár deildarmeistaratitilinn afhentan eftir glæsilegan sigur á Fram í æsispennandi leik að viðstöddum fjölmörgum áhofendum í íþróttahúsi Vallaskóla á sunnudagskvöldið.
30.3.2009 | Handboltaakademía
KA menn sóttu okkur Selfyssinga heim á laugardaginn. Fyrirfram var búist við hörkuleik enda KA með marga góða einstaklinga innan sinna raða. Sú varð þó ekki raunin því norðanmenn áttu ekki möguleika gegn heimamönnum sem leiddu í hálfleik 17-11.
26.3.2009 | Handbolti

Gamla myndi er af meistaraflokki kvenna 1991. Þetta var öflugur hópur sem lék undir stjórn Kristjönu Aradóttur en hún og Þorgeir Ingi Njálsson eiginmaður hennar sem var formaður deildarinnar á þessum tíma unnu mikið starfs fyrir deildina.
24.3.2009 | Handbolti
5. flokkur kvenna spilaði á sínu öðru deildarmóti um helgina, en mótið fór fram í Austurbergi og var í umsjá ÍR. Selfoss-1 vann m.a. Gróttu, Val og Aftureldingu og stóð uppi sem sigurvegari mótsins. Stelpurnar tryggðu sér fyrsta sætið annað deildarmótið í röð og eru í mjög vænlegri stöðu fyrir seinasta mótið. Stelpurnar í Selfoss-2 stóðu sig einnig vel og hafa sýnt miklar framfarir í vetur.
24.3.2009 | Handbolti

Micael sem spilar á línunni hjá Selfoss kom til félagsins 2006 og er að ljúka sínu 3. tímabili. Áður spilaði hann eitt tímabil með ÍBV. Micael er fæddur í Tékklandi og byrjaði að leika handbolta þar. Hann hefur spilað yfir 10 landsleiki fyrir Tékkland. Við lögðum nokkrar spurningar fyrir hann...
23.3.2009 | Handboltaakademía

Um þessar mundir eru nokkur fjöldi leikmanna Selfoss í karlaflokki að æfa og spila með landsliðum Íslands og er um að ræða leikmenn í 17 ára, 19 ára og 21. árs og A landsliðum Íslands. Þessir leikmenn eru eftirfarandi:
23.3.2009 | Handbolti
Lið Selfoss 91 og 92 töpuðu bæði fyrir FH síðasstliðinn föstudaginn. 91 tapaði 29-27 eftir að staðan var 16-14 í hálfleik, en 92 tapaði 34-26 eftir að staðan var 17-13 í hálfleik.
23.3.2009 | Handboltaakademía
Þegar ein umferð er eftir af Íslandsmeistaramótinu í yngri flokknum í handbolta, er Selfoss með mjög góða stöðu í 6. flokki drengja og 5. flokki stúlkna, eldra ári. Í þessum flokkum er Selfoss með nokkuð örugga forustu. Í 5. flokki pilta eldra ár er Selfoss komið upp í 4. sæti eftir góða frammistöðu um helgina og 6. flokka stelpurnar hafa einnig staðið sig vel. Strákar og stelpur í 5. flokki yngra ár keppa síðan um næstu helgi og eru líka bæði í toppbaráttu. Hér fyrir neðan má sjá stöðuna í þessum flokkum.. .
23.3.2009 | Handbolti
Landsbankamótið í 5. flokki pilta (fæddir 1995) fór fram á Selfossi um helgina. Alls voru 30 lið skráð til leiks og leiknir 120 leikir í íþróttahúsi Vallaskóla og íþróttahúsinu Iðu. Mótafyrirkomulag var þannig að leikið var í sex deildum, 1. deild, 2. deild A og B, 3. deild A og B og 4. deild. Þetta er sjöunda árið í röð sem Landsbankamótið er haldið á Selfossi. Mikil hefð er komin á mótahaldið og gekk skipulagið mjög vel fyrir sig.
19.3.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur er heldur betur á góðri siglingu þessa dagana. Það sem af er mars mánaðar höfðu þeir unnið Val og Fram á útivelli með 8 mörkum og HK með 10 mörkum á heimavelli. Nú var röðin kominn að því að fara norður að spila við topplið Akureyrar. Akureyri hefur leitt deildina sannfærandi í allan vetur og eiga deildarmeistaratitilinn vísan.
19.3.2009 | Handbolti
Ađalfundur handknattleiksdeildar í kvöld kl. 21:00
Aðalfundur handknattleiksdeildar Ufm. Selfoss verður haldinn í Tíbrá í kvöld og hefst fundruinn kl. 21:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 13. grein laga félagsins. Viljum hvetja sem flesta til að mæta.
18.3.2009 | Handbolti
Stelpurnar okkar í 4. flokki lögðu ÍR mjög sannfærandi síðastliðinn sunnudag. Stelpurnar héldu áfram að spila mjög framliggjandi vörn með þær Hönnu, Kristrúnu og Estheri í fararbroddi. Við þeirri vörn höfðu ÍR stelpurnar fá sem engin svör og öll 5 mörkin sem þær skoruðu í fyrri hálfleik komu eftir víti eða hnoð þar sem að ÍR stelpurnar fengu frákast eða boltinn datt fyrir þær. Sóknarleikurinn hjá Selfoss var aftur á móti með ágætum og náðu stelpurnar að skapa sér ýmis færi úr flestum stöðum og var staðan í hálfleik 14-5 fyrir Selfoss.
16.3.2009 | Handbolti

Nýverið var undirritaður styrktarsamningur á milli handknattleiksdeildar Umf. Selfoss og Olís. Með samningnum er staðfestur stuðningur olís við handboltastarfið á Selfossi. Á meðfylgjandi mynd handsala Ingvar Guðmundsson, Olís og Jón Ragnar Ólafsson frá handknattleiksdeildinni samninginn.
16.3.2009 | Handboltaakademía

Í gær vann 2. flokkur lið HK á heimavelli 40-30. Sigurinn var aldrei í hættu því að heimamenn réðu ferðinni frá upphafi. Liðið spilaði vel og allir liðsmenn að skiluðu sínu hlutverki vel. Liðið virkar þétt og öruggt í sínu spili enda veitir ekki af þar sem framundan eru leikir við þrjú af bestu liðinum í deildinni.
15.3.2009 | Handboltaakademía
Harðarmenn frá Ísafirði heimsóttu Selfoss2 í gær og fór leikurinn fram strax á eftir leik eldra liðsins. Afar gaman er að sjá að menn leggi rækt við handboltann á Ísafirði og vonandi mun það starf ganga og blómstra. Selfyssingar virkuðu aftur á móti afar áhugalausir og léku arfaslaka vörn. Þeir nenntu ekki að spila hraðan leik sem hefur hingað til fært þeim auðveldari mörk en ella. Í leikhléi stóð 17-10 en leiknum lauk 33-16.
15.3.2009 | Handboltaakademía
Selfoss-91 vann Þór frá Akureyri í hörkuleik á Selfossi 33-31. Í hálfleik stóð 19-15 fyrir heimamenn eftir að þeir höfðu mest náð átta marka forystu 17-9. Síðustu átta mínútur hálfleiksins skoruðu Þórsarar 6-2 og munaði þar miklu um klaufaleg mistök Selfyssingar sem gáfu Þórsurum mörg auðveld mörk í kjölfarið.
13.3.2009 | Handboltaakademía
Selfoss-92 vann í gær UMFA 30-22 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 15-11. Selfoss fór vel af stað og komst í 6-1 og 12-6, en þá skoruðu gestirnir fimm mörk án þess að heimamenn næðu að svara. Í síðari hálfleik var munurinn á bilinu 3-5 mörk, en Selfoss komst í átta marka mun 27-19 og sá munur hélst út leikinn.
13.3.2009 | Handboltaakademía

Í gærkvöldi vann Selfoss lið Hauka U 25 - 38. Staðan í hálfleik var 13 - 16. Í byrjun seinni hálfleiks bættu Selfyssingar í og leikurinn var afgreiddur á 10 mínútum. Það dugði að þessu sinni. Enn og aftur vantaði í liðið vegna meiðsla en kom ekki að sök frekar en hingað til.
12.3.2009 | Handboltaakademía
Í kvöld kl. 20.45 leikur 92-lið okkar á Selfossi gegn UMFA úr Mosfellsbæ. Gestir okkar hafa fínu liði á að skipa og eru þjálfaðir af Karli Erlingssyni, en hann er afar fær þjálfari og hefur gert marga góða hluti fyrir íslenskan handbolta. Fyrri leik liðanna lauk með öruggum sigri okkar manna að Varmá í Mosfellsbæ. Lið Selfoss hefur breyst talsvert síðan þá og er því spurning hvað verður í kvöld.
11.3.2009 | Handboltaakademía
Síðasta laugardag fóru stelpurnar í 3. flokki í Digranesið og unnu þar góðan sigur á útivelli 22-28. Framfarirnar halda áfram og alltaf fleiri og fleiri leikmenn að taka þátt í aðgerðum liðsins. Það má því segja að breiddin sé að aukast í liðinu sem eru frábærar fréttir.
9.3.2009 | Handboltaakademía

Í gær, sunnudag, unnu strákarnir í 2. flokki Fram 27 - 35 á útivelli. Í lið Selfoss vantaði Baldur, Hemma og Gumma vegna meiðsla og Sjóli var veikur. Þá spilaði Helgi bara 5 mín. en hann missteig sig illa á föstudaginn í leiknum við ÍR. Leikurinn var jafn til að byrja með en svo skildu leiðir.
9.3.2009 | Handboltaakademía

Síðast liðið föstudagskvöld vann M.fl. lið ÍR 29 - 26 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 16 -13 fyrir okkar menn. Sigurinn var mikilvægur í baráttunni um 2 sætið í deildinni. Selfoss hefur nú 4 stiga forskot á ÍR og UMFA þegar 3 umferðir eru eftir af deildinni.
9.3.2009 | Handboltaakademía
3.flokkur tapaði í lélegum og miklum sirkusleik gegn Stjörnunni í gær, 28-26. Selfoss var alltaf yfir sem dæmi 10-5, 23-18 en þá gerðist margt sem ekkert á skylt við handbolta.
5.3.2009 | Handboltaakademía

Á þriðjudagskvöldið unnu strákarnir í 2. flokki Val 24 - 32. Staðan í hálfleik var 15 - 13 fyrir Val. Okkar menn voru frekar rólegir í fyrri hálfleiknum en allir voru sammála um það í hálfleik að spýta aðeins í lófana og klára seinni hálfleik með sóma.
4.3.2009 | Handbolti
Stelpurnar í 4. flokki gerðu sér ferð í Digranes um helgina og sótti þangað 2 stig. Fyrri hálfleikur var mjög jafn og spiluðu stelpurnar nýja vörn eða svo kallaða 3-3 vörn og gekk hún mjög vel. Mikið af fríköstum fengust og HK-stelpurnar komust ekki langt. Í fyrrihálfleik skiptust liðin á að skora þótt að Selfoss hefði alltaf verið skrefinu á undan. Okkar stelpur tóku síðan góða rispu í lok hálfleiksins og skildu fjögur mörk liðin að í leikhléi, 12-8. Í seinni hálfleik var svipað upp á teningnum og gáfu okkar stelpur aldrei færi á sér. Leikurinn endaði síðan 20-15.
3.3.2009 | Handboltaakademía

Gamla myndin að þessu sinni er af 4. flokki kvenna sem varð íslandsmeistari einhvern tíma á níunda áratug síðustu aldar. Þessi hópur var undir stjórn Gríms Hergeirssonar og þrjár af stelpunum, þær Hulda Bjarnadóttir, Auður Hermannsdóttir og Inga Fríða Tryggadóttir, áttu síðar eftir að leika með A-landsliði Íslands.
3.3.2009 | Handboltaakademía
Það var mikill fengur í því að fá Dag Sigurðsson landsliðsþjálfara Austurríkis og verðandi þjálfara úrvalsdeildarliðs Fusche Berlin í Þýskalandi til að taka æfingu hjá okkur í handboltaakademíunni. Æfingin gekk vel og var margt sem strákarnir lærðu af því að fá hann i heimsókn.
2.3.2009 | Handboltaakademía

Selfoss tapaði fyrir Haukum 30 - 32 í 2. flokki karla. Haukar sem eru með gott lið og eru í baráttunni við Selfoss um sæti í 4 liða úrslitum stálu sigrinum í lokin en þeir komust í eina skiptið yfir í leiknum þegar innan við mínúta var eftir af leiknum.