Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

30.4.2009 | Handboltaakademía

Ragnar verður áfram á Selfossi

Ragnar Jóhannsson sem er 18 ára og átti 1 ár eftir af samningi sínum við Selfoss gerði nýjan 3 ára samning við félagið sem gildir til vors 2012. Önnur félög voru að reyna að fá hann til sín og sum án þess að fara rétta boðleið, þrátt fyrir að hann væri samningsbundinn. Með þessum nýja samningi er verið að senda skýr skilaboð um það að framtíð Ragnars er á Selfossi enn um sinn.

30.4.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur endaði í 4. sæti

Okkar menn í 3. flokki þurftu að játa sig sigraða í leik um 3. sætið á Íslandsmótinu gegn Þór um síðustu helgi. Lokatölur 26-24 eftir að Þór leiddi 13-11 í leikhléi.

27.4.2009 | Handboltaakademía

4. flokkur kvenna yngra ár Íslandsmeistarar

Stelpurnar í 4. flokki kvenna yngra ár urðu í gær Íslandsmeistarar eftir sigur á Fylki í úrslitaleik 18-14 í Vodafone Höllinni. Staðan í hálfleik var 10-6 fyrir Selfoss. Áður höfðu stelpurnar unnið Stjörnuna 28-18 í 8-liða úrslitum og FH 16-14 í undanúrslitum. Þessar stelpur urðu einnig á dögunum deildarmeistarar. Árangur stelpnanna er mjög athyglisverður í ljósi þessa, en flestar af þeim eru enn í 5. flokki. Þær urðu einmitt líka Íslandsmeistarar í sínum flokki á dögunum.

27.4.2009 | Handboltaakademía

Góð ferð á Húsavík

5.fl.kv deildmStrákar og stelpur í 5.flokki yngra ár (fædd 1996) fór á Húsavík í síðustu viku og kepptu í síðustu umferð Íslandsmótsins. Mótið stóð yfir í 3 daga og var gist í skólanum á Húsavík. Stelpurnar áttu góða möguleika á titlinum en til þess urðu þær að vinna mótið. Það tókst ekki og þær spiluðu undir getu og urðu að sætta sig við 4. sæti á mótinu og einnig á Íslandsmótinu samanlagt. Strákarnir aftur á móti léku mjög vel og urðu í 2.sæti á mótinu og unnu bronsverðlaun á mótinu samanlagt.

26.4.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur spilar um brons - en átti þó skilið að sigra

Í gær lék 3. flokkur Selfoss í undanúrslitum gegn Fram í Víkinni og tapaði þar óverðskuldað að mati síðuritara. Strákarnir stóðu sig frábærlega og börðust allan tímann og gáfu allt sitt í leikinn en því miður dugði það ekki. Liokatölur 33-30 Fram í vil eftir að staðan í hálfleik hafi verið 16-13.

24.4.2009 | Handboltaakademía

2 flokkur hefur lokið keppni

2 flokkur karla sem endaði í 2 sæti í deildarkeppninni tapaði í undanúrslitum fyrir FH 37 - 41 síðastliðinn miðvikudag. Staðan í hálfleik var 19 - 18 fyrir Selfoss. Leikurinn var gríðarlega hraður eins og alltaf þegar þessi lið mætast en skammt er síðan Selfoss vann FH 41 - 38.

24.4.2009 | Handbolti

4. flokkur kvenna í undanúrslit

4. flokkur kvenna eru komnar í undanúrslit eftir góðan sigur á Stjörnunni í 8-liða úrslitum. Leikurinn endaði 28-18 og Selfoss því komnar í undanúrslit og mæta þar FH.

23.4.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur Selfoss kominn í undanúrslit

Selfoss vann FH á þriðjudaginn í hörkuleik á Selfossi 32-30 eftir að hafa leitt í hálfleik 17-13. Selfyssingar leiddu yfirleitt með 3-6 mörkum en fóru illa með mörg dauðafæri sem annars hefðu gert sigurinn mun öruggari. Í lokin minnkuðu Hafnfirðingar muninn aðeins með því að spila framarlega og á þeim kafla voru okkar menn 1-2 leikmönnum færri.

21.4.2009 | Handboltaakademía

Leikur á Selfossi í kvöld

Lógó SelfossÍ kvöld kl. 21.00 leika í úrslitakeppni HSÍ 3.flokki heimamenn á Selfossi og FH úr Hafnarfirði. Að vanda leika Selfossliðin sína heimaleiki í Vallaskóla og hvetur heimasíðan Selfyssinga að mæta og horfa á og auðvitað hvetja leikmenn framtíðarinnar áfram. Áfram Selfoss!

20.4.2009 | Handboltaakademía

Viðtal við Sebastian þjálfara meistaraflokks

Þar sem meistaraflokkur hefur lokið keppni í vetur þá báðum við Sebastian um að gera samantekt á vetrinum. Við gefum honum bara orðið..

20.4.2009 | Handboltaakademía

Tímabilinu lokið hjá meistaraflokki

Selfoss tapaði fyrir Aftureldingu öðru sinni í gær og þar með er liðið úr leik í baráttunni um laust sæti í úrvalsdeild. Selfoss gaf allt í leikinn í gær en varnarleikur heimamanna var frábær. Það má með sanni segja að ef liðið hefði mætt svona ákveðið til leiks á föstudaginn að þá væri staðan núna 1 - 1 í einvíginu.

19.4.2009 | Handbolti

5. fl. karla með brons á Íslandsmótinu

5.fl_karla_apríl_2009Um helgina fór fram síðasta keppnishelgi 5. flokks karla, eldra ár, í handbolta á Ásvöllum í Hafnarfirði. Lið Selfoss stóð sig frábærlega á mótinu. Strákarnir unnu fjóra flotta sigra í 1. deild, en töpuðu fyrir FH í úrslitaleik. Liðið endaði í 3. sæti á Íslandsmótinu með 19 stig. Grótta varð í 2. sæti með 21 stig og FH-ingar urðu Íslandsmeistarar með 23 stig. Óhætt er að segja að Selfoss og FH séu með bestu lið landsins í þessum aldursflokki.

19.4.2009 | Handboltaakademía

Afurelding - Selfoss í beinni og fríar rútuferðir

Öðrum leik Selfoss og Aftureldingar í úrslitakeppninni um laust sæti í efstu deild karla í handknattleik, veður lýst beint á útvarpi Suðurland á fm 96,3. Leikurinn fer fram í Mosfellsbæ, Það verða þeir Gísli Felix Bjarnason og Einar Guðmundsson sem lýsa leiknum eins og þeir gerðu í fyrsta leiknum s.l. föstudag. Einnig hægt að hlusta í gegnum netið á www.963.is . Útsending er í boði Lögmanna Suðurlandi og hefst kl 16:30 í dag. Boðið verður uppá fría rútuferð fyrir stuðningmenn Selfoss-liðsins frá Vallaskóla meðan pláss leyfir. Lagt verður af stað kl. 14:30.

19.4.2009 | Handboltaakademía

Selfoss Íslandsmeistarar 5.flokks kvenna - eldra árs

5.kveislm5Selfoss varð í dag Íslandsmeistarar 5.flokks kvenna - eldra árs í handknattleik þegar lokamótinu í vetur lauk hjá FH. Selfoss-stelpurnar enduðu veturinn með 26 stig af 30 mögulegum, Afturelding varð í öðru sæti með 24 stig og Grótta í því þriðja með 22 stig. Stelpurnar voru öruggar með sigur fyrir mótið og þær fengu Íslandsmeistaratitilinn afhentar eftir mótið við mikin fögnuð.

18.4.2009 | Handboltaakademía

Silfur í utandeildarkeppninni

Utandeildarlið Selfoss í handbolta sigraði lið Jumboys frá Mosfellsbæ í örðum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitill í keppni utandeildarliða 32-27. Jumboys vann fyrri leik liðanna í Mosfellsbæ 30-23 og varð því Íslandsmeistari þetta árið. Liðið skipa gamlar kempur úr Aftureldingu með Bjarka Sigurðsson fyrrverandi landsliðsmann fremstan í flokki. Selfoss liðið lék vel í dag og átti um tíma möguleika á að vinna upp sjö marka forustu Mosfellinga. Það hafðist ekki en góður sigur á meisturunum engu að síður. Þeir Sævar Gíslason og Ívar Grétarsson voru bestu menn Selfoss, einnig átti Bergsveinn Magnússon góða spretti.

18.4.2009 | Handboltaakademía

Slæmt tap fyrir Aftureldingu

Afturelding vann góðan útisigur á Selfossi í fyrsta umspilsleik liðanna um sæti í efstu deild karla í handknattleik í kvöld, 31:24. Þarf liðið því aðeins einn sigur enn til að tryggja sér sæti í úrslitaleikjunum um sæti í efstu deild. Markahæstir Selfyssinga voru Guðmundur Árni Ólafsson með sex mörk og Helgi Héðinsson með fimm. Hjá gestunum gerði Bjarni Aron Þórðarson átta mörk en Jóhann Jóhannsson gerði sex.

17.4.2009 | Handboltaakademía

Selfoss - Afturelding í beinni

Leik Selfoss og Aftureldingar í úrslitakeppninni um laust sæti í efstu deild karla í handknattleik, veður lýst beint á útvarpi Suðurland á fm 96,3. Það verða þeir Gísli Felix Bjarnason og Einar Guðmundsson sem lýsa leiknum og það er einnig hægt að hlusta í gegnum netið á www.963.is . Útsending er í boði Lögmanna Suðurlandi og hefst kl 19:30.

 

16.4.2009 | Handboltaakademía

Þórir Hergeirs tekur við norska kvennalandsliðinu!

Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson hefur verið ráðin þjálfari kvennalandsliðs heims- og ólympíumeistara Noregs í handknattleik. Þetta kemur fram í norskum fjölmiðlum í dag. Þórir tekur við af Marit Brevik en hann hefur verið aðstoðarþjálfari hennar í 12 ár. Þórir er borinn og barnfæddur Selfyssingur og þjálfaði á Selfossi áður en hann fluttist til Noregs 1986. Þórir er bróðir Ragnheiðar bæjarstjóra og Guðrúnar formanns unglingaráðs handknattleiksdeildar. Yngri bróðir hans Grímur lék einnig lengi með Selfoss í efstu deild.

15.4.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur vann Víking og endaði í 2. sæti

Í gærkvöldi fóru strákarnir í Víkina og sigruðu Víkinga og náðu með því 2. sætinu í deildinni. Leikurinn endaði 25-33 en í hálfleik leiddi okkar menn 15-19. Í lið Selfoss vantaði Ragnar en hann er enn að jafna sig af meiðslunum sem hann hlaut á móti FH um daginn.

15.4.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur í öðru sæti

Eyþór_wide2. flokkur karla tryggði sér annað sætið í 1. deild með öruggum sigri á Víkingi í Víkinni í gærkvöldi. Þessi úrslita þýða að strákarnir fá heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni en þar mætir liðið FH. Í hinum undanúrslitaleiknum leika Akureyri og Víkingur. Ljósmyndari handbolti.is var á staðnum og smellti af eftirfarandi myndum. http://www.handbolti.is/?p=300&gal=78473

15.4.2009 | Handboltaakademía

Úrslitin ráðast í handboltanum á næstunni

Nú fara í hönd spennandi tímar í handboltanum á Seflossi, úrslitin ráðast á Íslandsmótunum í öllum flokkum. Meistaraflokkur á í vændum spennandi leiki við Aftureldingu og Stjörnuna eða ÍR um sæti í úrvalsdeild að ári. 2. flokkur náði 2. sæti í deildinni í vetur og leikur við FH í úrslitakeppninni og verður sá leikur á Selfossi. Það lið sem vinnur þá viðreign leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. B-lið meistaraflokks tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á dögunum.

14.4.2009 | Handboltaakademía

4. flokkur kvenna varð Íslandsmeistari 1988

Gamla myndin að þessu sinni var tekin þegar 4. flokkur kvenna varð Íslandsmeistari 1988. Berglind Sigurðardóttir fyrirliði tekur við hamingjuóskum af Birni Gíslasyni formanni Ungmennafélags Selfoss. Kvennaboltinn á Selfossi er á mikilli upppleið þessa dagana og hugsanlegt að Íslandsmeistaratitill vinnist aftur eftir margra ára hlé.

6.4.2009 | Handboltaakademía

2. fl. vann enn einu sinni - nú UMFA á útivelli

Sigurganga 2. flokks karla heldur áfram. Nú vann liðið Aftureldingu 18-24 á afar erfiðum útivelli. Mörg lið hafa lent í vandræðum í Mosfellsbænum í vetur. Með sigrinum er Selfoss komið í 2. sætið og getur haldið því ef þeir ná sigri í síðasta leik deildarkeppninnar gegn Víkingum.

6.4.2009 | Handboltaakademía

Selfoss Íslandsmeistari B liða í mfl. karla

Þótt ekki hafi farið mikið fyrir fréttum af B liði meistaraflokks í vetur þá er það með mikilli ánægju að heimasíðan greinir frá því að Selfoss vann B deildina og eru því Íslandsmeistarar. Þeir spiluðu sinn síðasta leik í gær og fengu að honum loknum afhentan veglegan bikar og gullverðlaun. Til hamingju með titilinn strákar!

6.4.2009 | Handboltaakademía

Sigur í síðasta leik deildarinnar

Meistaraflokkur Selfoss fór til Vestmannaeyja og spilaði þar sinn síðasta deildarleik í vetur. Okkar menn unnu leikinn með 1 marki og það kom úr vítakasti Guðmundar Árna eftir að leiktíminn var liðinn. Talsvert vantaði í lið Selfoss í þessum leik og margir fengu að spreyta sig en leikurinn var víst góð skemmtun fyrir áhorfendur.

5.4.2009 | Handboltaakademía

Frábær frammistaða hjá 92 liðinu en dugði skammt

Í gær lék 92 liðið (B-liðið) sinn síðasta deildarleik og voru gestirnir að þessu sinni Grótta. Selfyssingar áttu möguleika að fara í svokallað umspil með sigri í leiknum og því alveg ljóst að menn ætluðu að selja sig dýrt. Það gerðu leikmenn svo sannarlega en því miður dugði það ekki til gegn A liði Gróttu. Lokatölur voru 23-24 eftir að hvort lið skoraði 12 mörk í fyrri hálfleik.

4.4.2009 | Handboltaakademía

2. og 3. flokkur í toppbaráttu

Annar flokkur karla (´88-´90) á góða möguleika á að ná 2.sæti í 1.deild Íslandsmótsins, liðið á eftir að leika við Aftureldingu og Víking, og með sigri í þeim leikjum tryggir liðið sér annað sætið og heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni. 3.flokkur (´91-´92) missti lið Fram framúr sér á endasprettinum og hafnar í 3.sæti í 1.deild.  tvö óvænt töp m.a. fyrir Stjörnunni reynast liðinu dýrkeypt. En liðið á samt góða möguleika á Íslandsmeistaratitli með góðri frammistöðu í úrslitakeppninni. Sigurður Már Guðmundsson er byrjaður að leika að nýju eftir að hafa verið meiddur í allan vetur. Staðan í deildunum tveimur er eftirfarandi..

3.4.2009 | Handboltaakademía

Guðmundur Árni og Birkir valdir í u-21 landslið karla

HSI_logoHeimir Ríkarðsson, landsliðsþjálfari u-21 árs landsliðs karla, valdi 17 manna hóp til undirbúnings fyrir forkeppni HM sem fram fer um páskana í Hollandi. Í hópnum eru tveir Selfyssingar, þeir Birkir Bragason markmaður og Guðmundur Árni Ólafsson hornamaður. Fyrsti leikurinn er gegn Hollandi 10. apríl. Síðan er leikið gegn Ungverjum og loks Bretum.

3.4.2009 | Handboltaakademía

Sigur gegn Val

Strákarnir í 91 liði Selfoss unnu í gærkvöld Valsmenn 31-24. Heimamenn léku ekki vel í leiknum og voru undir 70% af leiknum, enda lék liðið afar illa. Mikið grimari, einbeittari og viljugri Valsmenn leiddu í hálfleik 12-13. Í fyrri hálfleik tókst Selfyssingum að misnota 12 dauðafæri.

3.4.2009 | Handboltaakademía

Tap gegn ÍBV

92 liðið tapaði fyrir heimamönnum í ÍBV síðastliðinn miðvikudag, 31-27 eftir að hafa verið undir 13-10 í hálfleik. Selfyssingar voru undir nær allan leikinn og verður þessi leikur að flokkast sem einn lélegasti leikur tímabilsins af þeirra hálfu.

2.4.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur karla 1986

Gamla myndin er af 3. flokki karla árið 1986. Þetta eru piltar fæddir 1970 og 1971. Sítt að aftan greinilega í tísku. Þrír af þessu drengjum áttu eftir að leika með A-landsliði Ísland, þeir Magnús Sigurðsson, Einar Gunnar Sigurðsson og Gústaf Bjarnason. Þjálfari var Steindór Gunnarsson sem einnig þjálfaði meistaraflokk í þrjú keppnistímabil.

Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta