Æfingatímar handknattleiksdeildar eru klárir og hefjast æfingar mánudaginn 24. ágúst samkvæmt stundaskrá. Eins og áður hefur komið fram fær deildin ekki eins marga tíma í íþróttahúsum bæjarins og hún telur sig þurfa til að geta haldið úti fullri starfsemi. Því þurfa nokkrir flokkar að æfa saman. Yngriflokkaráð vill bjóða nýja þjálfara velkomna til starfa og allir iðkendur síðasta árs ásamt nýjum iðkendum eru jafnframt boðnir velkomnir.
Handboltaæfingar yngri flokka hefjast í næstu viku samkvæmt töflu. Æfingataflan verður hengd upp í skólum á mánudaginn. Einnig verður hún auglýst hér á vefnum og í Dagskránni í næstu viku. Foreldrafundur verða í byrjun september og er mikilvægt að við fáum sem flesta foreldra á þann fund til að kynna starfið.
Ragnarsmótið verður haldið daganna 9.-12. september í íþróttahúsi Vallaskóla. Mótið er nú haldið í 20 skipti og má því segja að um stórafmæli sé að ræða. Ragnarsmótið hefur verið besta æfingamót landsins í mörg ár og svo eftirsótt að yfirleitt er mótið fullt um mitt sumar ár hvert. Dagskrá mótsins má sjá hér að neðan.
Fimmtudagskvöldið 13. ágúst var haldið veglegt hóf í Tíbrá, félagsheimili Ungmennafélags Selfoss. Það var Hafsteinn Þorvaldsson, heiðursfélagi Umf. Selfoss, sem stóð fyrir hófinu. Hófið var m.a. haldið til að heiðra minningu eiginkonu hans Ragnhildar Ingvarsdóttur sem hefði orðið 80 ára þennan dag. Auk fjölskyldu Hafsteins mættu í hófið fulltrúar sjö deilda innan Umf. Selfoss, formaður Umf. Biskupstungna, formaður Umf. Vöku og formaður og framkvæmdastjóri HSK. Hafsteinn afhendi þessum aðilum, tíu talsins, peningastyrk að upphæð 100.000 kr. hver.
Yngri flokkaráð handknattleiksdeildar hefur ráðið Stefán Árnason sem þjálfara 4. flokks karla. Stefán er einn fremsti unglingaþjálfari landsins hann hefur þjálfað KA undanfarin ár með topp árangri og hann var aðstoðarþjálfari úrvalsdeildarliðs Akureyrar á s.l. leiktíð. Hann er bróðir Adda þjálfara sem hefur gert frábæra hluti í yngri flokka starfinu á Selfossi og sonur Árna Stefánssonar þjálfara HK í meistaraflokki. Stefán hyggur á nám við íþróttakennaraskólann á Laugarvatni næstu 3 árin og verður því vonandi hjá okkur a.m.k. næstu þrjú árin. Æfingar í 4. flokki karla hefjast í vikunni.
Selfyssingurinn Þórir Ólafsson atvinnumaður í handbolta hjá TUS-N-Lübbecke í þýsku úrvalsdeildinni hefur verið gerður að fyrirliða liðsins. Þórir er að hefja sitt fimmta tímabil hjá liðinu og er reynslumesti leikmaður liðsins. Liðið hefur æft að kappi í 3 vikur og tekur um helgina þátt í móti í Póllandi. Þórir hefur átt fast sæti í landslisðhópi Guðmundar Guðmundssonar síðastliðið ár og hefur sett stefnuna á Heimsmeistaramótið sem haldið verður í Austurríki í janúar n.k.
Fyrir nokkru kom upp sú hugmynd að bjóða til sölu Selfoss útifána. Þá gætu menn flaggað heima hjá sér á leikdögum eða þegar eitthvað er um að vera hjá félaginu. Nú höfum við komið hugmyndinni í framkvæmd. Hægt er að kaupa fána (1x1,5m) á skrifstofu félagsins. Hvítir fánar með vínrauðu Selfossmerki kosta 4.500 kr. og vínrauðir fánar með hvítu merki kosta 7.500 kr. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins s. 482 2477 eða hjá framkvæmdastjóra s. 897 6323.
Næstkomandi þriðjudag hefjast æfingar að nýju hjá 3. flokki karla í handbolta. Æfingin hefst 17.30, stundvíslega. 3. flokkur hefur verið í fríi frá því á Landsmóti UMFÍ sem fram fór á Akureyri. Þar fengu einmitt strákarnir gull eftir meðal annars frækilegan sigur á 2. flokki Akureyrar.
