Uppskeruhátið ÍTÁ var haldin í hátíðasal FSu í gærkvöldi. Þar voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur á árinu, afhentir styrkir úr afrekssjóðum og að lokum tilkynnt um val á íþróttakarli og íþróttakonu Árborgar 2010. Þau Ragnar Jóhannsson handknattleiksmaður og Guðmunda Brynja Óladóttir knattspyrnukona, bæði úr Umf. Selfoss, urðu fyrir valinu að þessu sinni.
Uppskeruhátíð íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar, ÍTÁ, verður haldin í kvöld þriðjudaginn 28. desember kl.20:00 við hátíðlega athöfn í hátíðarsal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hátíðin er eins og nafnið ber til kynna uppgjör íþróttafólks í Árborg á árinu 2010 en þar verður afreksíþróttafólk ársins heiðrað......
Enn er að bætast við landsliðsmenn Selfoss í yngri landsliðum HSÍ. Gísli
Þór Axelsson og Janus Daði Smárason hafa nú verið valdir í U-17 hópinn.
Þeir tveir eru enn í 4. flokki og því á yngra ári í þessu landsliði.
Gísli og Janus hafa verið að spila stór hlutverk bæði með 4. flokki og
3. flokki hjá Selfossi í vetur.
Valið hefur verið u-19 ára landslið karla sem fer til Þýskalands á milli jóla og nýárs. Liðið tekur þar þátt í Victors Cup ásamt landsliðum Egyptalands, Finnlands, Póllands, Sviss, Slóvakíu og Þýskalands en þar að auki tekur úrvalslið Saar héraðs þátt.
Ragnar Jóhannsson skoraði sjö mörk og var markahæsti leikmaður U21 árs liðs Íslands í handbolta sem tapaði fyrir Noregi á Selfossi í gærkvöldi, 32-35. Fjórir Selfyssingar eru í landsliði Íslands; Ragnar, Guðmundur Árni Ólafsson og Bjarki Már Elísson auk þjálfarans Einars Guðmundssonar. Bjarki Már skoraði 2 mörk í leiknum og Guðmundur 1.
U21 árs lið Íslands og Noregs í handbolta mætast í íþróttahúsi Vallaskóla á Selfossi kl. 19:30 í kvöld. Þetta er síðasti leikur liðanna í þriggja leikja æfingaleikjatörn en liðin léku í Hafnarfirði í gær og í fyrradag. Ísland vann fyrsta leikinn 29-27 en í gær gerðu þau jafntefli, 25-25. Í liði Íslands eru Selfyssingarnir Ragnar Jóhannsson, Guðmundur Árni Ólafsson og Bjarki Már Elísson. Fjórði Selfyssingurinn, Einar Guðmundsson, er annar þjálfara liðsins. Bæði lið eru að búa sig úr fyrir undankeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer 7. - 9. janúar víðsvegar um Evrópu.
Átta ungmenni frá Selfossi voru valin í landsliðshópa skipað leikmönnum 15 ára og yngri sem æfa af kappi um jólin. Þær Thelma Björk Einarsdóttir, Þuríður Guðjónsdóttir, Harpa Sólveig Brynjarsdóttir, Katrín Magnúsdóttir og Dagmar Öder Einarsdóttir voru valdar í stúlknalandsliðið og þeir Ómar Ingi Magnússon, Hergeir Grímsson og Guðjón Ágústsson voru valdir í piltalandsliðið. Alls hafa 22 leikmenn frá Selfossi verið valdir í ungmennalandslið á þessu ári og hafa aldrei verið fleiri.
Selfoss lék við Gróttu í A-liðum 4. flokks karla í gær. Um hörkuleik var að ræða enda Grótta skammt á eftir Selfossi í deildinni. Selfyssingar voru alltaf með góð tök á leiknum og alltaf einu til tveimur skrefum á undan. Selfoss vann að lokum 31-27 sigur.
Mánudaginn 20. desember leikur unglingalandslið Íslands í handknattleik skipað leikmönnum 20 ára og yngri landsleik við Norðmenn í íþróttahúsi Vallaskóla og hefst leikurinn kl 19:30. Þetta er þriðji leikur landanna á þessari helgi. Hinir tveir leikirnir fara fram í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði laugardaginn 18. des og sunnudaginn 19. des. Með íslenska liðinu leika Selfyssingarnir Ragnar Jóhannsson og Guðmundur Árni Ólafsson. Þjálfari liðsins er Einar Guðmundsson.
4. flokkur karla hélt norður á Akureyri um helgina ar sem A-liðið lék einn leik gegn KA. Ákveðið var að fara á föstudegi og búa til skemmtilega ferð en leikurinn við KA var svo á laugardag. Það reyndist mikið gæfuspor því leikurinn gegn KA vannst sannfærandi 21-35 og leikmenn bjuggu til góða ferð þar sem þeir skemmtu sér mikið saman.
Strákarnir í Selfoss-1 í 3.flokki unnu HK sannfærandi fyrir stuttu á útivelli. Lokatölur 36-28 og höfðu Selfyssingar yfir í hálfleik 19-17.
5. flokkur karla í handbolta verður með jólatréssölu í Jólagarðinum fimmtudagana 9. og 16. des kl. 18-21 og tvær síðustu helgarnar fyrir jól kl. 13-18. Jólatrén eru frá Skógrækt ríkisins. Þetta eru falleg, íslensk tré sem eru ræktuð án allra eiturefna. Jólatréssalan er liður í fjáröflun strákanna fyrir Gautaborgarferð milli jóla- og nýárs, á Norden Cup, sem haldin er þar ár hvert með þátttöku allra sterkustu félagsliða Norðurlanda í yngri flokkunum. Hvetjum við alla Ungmennafélagsmenn og aðra velunnara að koma og versla sér tré.
Bæði liðin í 4. flokki karla léku um helgina. A-liðið lék gegn FH á laugardag og tapaði 25-23 eftir að hafa verið mun betri framan af leik. B-liðið aftur á móti vann stóran sigur á ÍR 13-29. Báðir leikir voru á útivelli.
Þær stöllur Díana Kristín Sigmarsdóttir og Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir voru valdar til að æfa með U17 ára landsliði Íslands, en æfingarnar fóru fram um helgina. Þar stóðu þær sig báðar mjög vel. Þremur stúlkum úr U17 hópnum voru boðaðar á æfingar með U19 ára landsliðinu og var Díana ein þeirra. Sannarlega efnilegar handboltastúlkur þar á ferð sem eiga framtíðina fyrir sér í handboltanum.
Síðuritari fékk þær fréttir að eftir leik Selfoss og Víkinga í 3.flokki um síðastliðna helgi hefði foreldrar Víkinga boðið okkar drengjum í kaffi eftir leik. Gæddu drengirnir þar sér á ýmsu góðgæti og drukku djúsa af ýmsum tegnundum.
Finnst síðuritara sem og öllum sem að liðinu koma þetta frábært framtak og til eftirbreytni. Þökkum við Víkingum afar mikið og vel fyrir og vonum að þeim komi til með að ganga sem best í vetur.
B-lið 4. flokks karla spilaði fyrsta heimaleik sinn í vetur á sunnudag. Leikurinn var gegn HK sem hefur að skipa liði með marga fína leikmenn. Selfoss náði strax góðu forskoti og leiddi 15-10 í hálfleik. Sóknarleikur liðsins hafði þá verið mjög vel útfærður og varnarleikurinn góður einnig. Í síðari hálfleik var Selfoss alltaf með leikinn og vann að lokum 28-23.
Leikur A-liðs 2. flokks hefur verið afar kaflaskiptur það sem af er tímabilinu. Sem dæmi hefur liðið unnið þrjá af fjórum útileikjum en ekki enn unnið heimaleik en tapað þar öllum þremur. Það sem áður þótti óvinnandi vígi er nú leikur einn fyrir gestina. Augljóst er að hugarfarsbreyting þarf að vera í þeim efnum. Akureyri vann okkar menn í fyrradag 32-27 eftir að þeir leiddu 13-11.
Strákarnir í 4. flokki eru á fullu í fjáröflun vegna ferðar á Partille Cup í Svíþjóð næsta sumar. Þeir hafa látið búa til sokka með merki Umf. Selfoss sem þeir bjóða til sölu. Sokkarnir eru í stærðunum 30-32, 33-35, 36-39, 40-43 og 44-47 og kostar hvert par 1.000 krónur. Hægt er að fá 3 pör fyrir 2.500 kr. Sokkarnir verða seldir á öllum heimaleikjum meistaraflokks Selfoss og ungmennaliðs Selfoss í vetur. Einnig eru þeir til sölu hjá Baldvini og Þorvaldi gegn staðgreiðslu. Sokkarnir eru tilvaldir í jólapakkann handa íþróttafólki.
Valsmenn úr Reykjavík sóttu 93-lið okkar Selfyssinga heim í gærkvöld. Unnu gestirnir 26-23 en í hálfleik stóð 16-10 fyrir Valsmenn. Því miður léku okkar menn undir getu í gær og því fór sem fór.
Síðastliðinn mánudag var dregið í 8-liða úrslitum Eimskipsbikars karla. Selfoss fékk þar heimaleik á móti Val. Ljóst er að um hörku leik verður að ræða. Liðin mættust í Vallaskóla í byrjun október og þá vann Selfoss 32:30. Í hinum viðureignunum eigast við Víkingur og Akureyri í Víkinni, Fram og Haukar í Safamýri og svo ÍR og FH í Seljaskóla. Leikirnir fara fram 5. og 6. desember.
Áfram halda stelpurnar í 4. flokki að standa sig vel. Fimmtudaginn 11. nóv. kepptu þær við Stjörnuna í 32-liða úrslitum bikarsins og unnu leikinn með 8 mörkum. Laugardaginn 13. nóv. léku bæði liðin við Fylki. A-liðið gerði jafntefli 22:22, en B-liðið sigraði 8:15. Um helgina unnu stelpurnar svo báða leikina sína.
Stelpurnar í meistaraflokki kvenna mættu liði Vals á sunnudaginn. Í hálfleik voru þær átta mörkum undir en með mikilli baráttu tókst þeim að vinna síðari hálfleik með þremur mörkum og töpuðu því leiknum (33-28). Þess má geta að í lið Vals léku þrjár stelpur sem voru í landsliði Íslands fyrir þremur árum. Stelpurnar eru ákveðnar að standa sig vel í vetur og bæta sig í hverjum leik sem þær spila. Verður áhugavert að fylgjast með þeim í vetur.
Áfram halda stelpurnar í 4. flokki kvenna í handbolta að standa sig vel. Fimmtudaginn 11. nóv. kepptu þær við Stjörnuna í 32-liða úrslitum bikarsins og unnu leikinn með 8 mörkum. Um helgina gerði A-liðið jafntefli við Fylki og eru þær nú í 2. sæti í 1. deild en eiga leik til góða. Með sigri í þeim leik þá verða þær efstar því þær eru með betri markatölu en liðið í öðru sæti. Þá sigraði B-liðið Fylkisstelpur um helgina með 7 mörkum og eru nú í efsta sæti í 1. deild. Sannarlega frábær árangur hjá stelpunum sem ætla sér að halda áfram á sömu braut í vetur.
Í gær fór A-lið 4. flokks karla og lék gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ. Liðið lék mun betri varnarleik í þessum leik en að undanförnu og skilaði það sannfærandi sigri. Lokatölur urðu 17-23 sigur okkar manna og er þessi leikur klárlega eitthvað sem liðið getur byggt á fyrir næstu verkefni.
Í kvöld koma Húsvíkingar í heimsókn á Selfoss og leika við okkar menn í 94-liðinu. Strákarnir hafa farið vel af stað í haust og unnið þrjá leik af fjórum. Það er síðuritara mikið fagnaðarefni að Völsungar séu komnir með lið í 3.flokki til að leika á Íslandsmóti. Frá Húsavík koma margir frábærir íþróttamenn og væri það okkur á Selfossi sannkallað gleðiefni tækist Húsvíkingum að koma upp meistaraflokks liði til keppni í deild elstu flokka.
Hefst leikurinn kl 21 eða strax á eftir leik meistaraflokks í bikarnum við Hamra frá Akureyri.
4. flokkur karla spilaði við Hauka á Ásvöllum í dag. Bæði A- og B-lið unnu leiki sína með einu marki eftir mikinn darraðardans, A-liðið vann 35-34 sigur og B-liðið 20-19. A-liðið hefur því unnið alla þrjá leiki sína í deildinni til þessa, en þetta var fyrsti leikur B-liðsins.
Eins og kom fram á heimasíðunni voru 10 Selfoss drengir valdir í yngri landslið Íslands sem höfðu verkefni um helgina. Einn þeirra Janus Daði Smárason fór með liði sínu, U-17 landsliðinu, til Noregs þar sem Ísland lék þrjá leiki við heimamenn. Janus var fyrirliði íslenska liðsins og lék meiri hluta leikjanna sem leikstjórnandi.
Í hádeginu í dag var dregið í 16-liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Selfyssingar drógust á móti liði Hamranna frá Akureyri sem leikur í utandeildinni. Einu N1 deildar liðin sem lentu saman voru Akureyri og Afturelding. Af öðrum viðureignum má nefna að 1. deildar liðin ÍR og Stjarnan drógust saman og Valur 2 og Valur eigast við. Leikirnir fara fram 14.-15. nóvember nk. Sjá leiki hér.
Um næstu helgi er æfingahelgi hjá unglingalandsliðum Íslands í handknattleik. Selfoss á 10 drengi í fjórum unglingalandsliðum. Þeir Ragnar Jóhannson, Árni Steinn Steinþórsson, Einar Héðinsson og Helgi Hlynsson eru í U20 hópnum, en hann fer til Makedóníu í byrjun janúar 2011. Einar Sverrisson er í U18 hópnum og Janus Daði Smárason í U16 hópnum. Þeir Ómar Ingi Magnússon, Hergeir Grímsson, Sævar Ingi Eiðsson og Árni Guðmundsson eru í U14 hópnum. Janus Daði er á leið til Noregs með sínu landsliði í lok mánaðarins.
A-lið 4. flokks karla mætti FH2 í gær í Vallaskóla. Selfoss var yfir allan leikinn og vann að lokum 9 marka sigur, 31-22 eftir að hafa leitt 17-13 í hálfleik. Þetta er annar sigurleikur liðsins í jafn mörgum leikjum í vetur.
Selfoss tapaði fyrir Aftureldingu 24-26 s.l. fimmtudagskvöld í hörku leik. Yfir 500 áhorfendur voru á leiknum og mikil stemming á pöllunum. Fjölmennur hópur stuðningmanna Aftureldingar fylgdi sínum mönnum. Hér fyrir neðan eru myndir sem Hermann Snorri tók á leiknum. http://www.flickr.com/photos/hermann-e-520/
Selfyssingar fá Aftureldingu í heimsókn í kvöld í N1 deildinni. Án efa verður um hörku leik að ræða. Bæði lið komu upp úr 1. deild í vor og ætla sér að vera á meðal þeirra bestu. Eftir þrjá leiki er Selfoss með 2 stig, en Mosfellingar eru án stiga. Leikurinn er í íþróttahúsi Vallaskóla og hefst kl. 19.30. Búast má við miklu fjöri á pöllunum því Afturelding á kröftugan stuðningsmannahóp. Mjaltavélin, stuðningsmannaklúbbur Selfoss, mun líka mæta og láta vel í sér heyra. Nú er um að gera að mæta og láta Áfram Selfoss! hljóma ærlega. Ungmennaliðið leikur svo við Stjörnuna í 1. deildinni í Vallaskóla á morgun föstudag kl. 19.30.
Selfosskrakkarnir á eldra ári í 5. flokki unnu bæði í stelpu- og strákaflokki í fyrstu umferð á Íslandsmótinu um helgina, en mótið fór fram í Vestmannaeyjum. Strákarnir unnu örugga sigra í efstu deild gegn KR, Haukum, Val, Víkingi og ÍBV. En stelpurnar unnu einng efstu deild eftir harða keppni við HK, Fram, Fylki, FH og ÍR. B-liðin stóðu sig einnig vel stelpurnar unnu til að mynda 3. deildina með yfirburðum. Alls fóru 34 krakkar frá Selfossi í þess ferð og skemmtu sér mjög vel. Auk leikjanna voru kvöldvökur og sundlaugarferðir o.fl. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir úr ferðinni.
Tvö af skemmtilegustu handboltaliðum landsins, FH og Selfoss, eigast við í beinni útsendingu hér á SportTv.is á fimmtudaginn klukkan 19:30 í þriðju umferð N1 deildar karla. FH hefur byrjað mótið frábærlega með tveimur stórum sigrum, á Aftureldingu og nágrönum sínum í Haukum. Selfoss sýndi styrk sinn í annarri umferð með frábærum sigri á Val í æsispennandi leik.
A lið 2.flokks tapaði í vikunni gegn FH í fremur slökum leik þar sem okkar menn sáu aldrei til sólar. Mikið var um forföll í liði Selfoss í leiknum vegna meiðsla og annarra mála. Hálfleikstölur 14-10 fyrir heimamenn og lokatölur 28-23.
B liðið vann svo Fjölni á útivelli 31-26 eftir að Fjölnismenn leiddu 14-13 í hálfleik en okkar menn snéru dæminu við og unnu að lokum 31-26 eftir að hafa mest náð 9 marka forskoti. Athygli vakti góð frammistaða Brynjars í markinu en hann varði 24 skot og þar af 2 vítaköst. Gaman að fá hann svona ferskan inn. Bæði þessi lið spila svo á sunnudaginn heima gegn Val. Leikirnir eru kl 13.30 og 15.00.
Um síðustu helgi lék B lið 3.flokks gegn HKR-ingum í Keflavík. Þar hafðist sigur 42-11 en í hálfleik stóð 19-3. Í gær lék svo A liðið við Fram en tapaði í fremur slökum leik 23-29 eftir að í hálfleik hafi staðið 11-11.
4. flokkur karla lék sinn fyrsta leik um helgina. Leikurinn var í Vallaskóla gegn Stjörnunni en Selfoss gerði jafntefli við sama lið í forkeppninni vetrarins sem var haldin á dögunum. Selfyssingar voru smá stund í gang en voru mun betri aðilinn eftir því sem á leið. Staðan var 10-10 í hálfleik og unnu okkar menn svo 23-21 sigur að lokum.
Selfoss sigraði Val í fyrsta heimaleik liðsins í N1-deildinni að viðstöddum um 500 áhorfendum. Hermann Snorri Hoffritz ungur og efnilegur ljósmyndari tók myndir af þessum fyrsta heimaleik Selfoss s.l. fimtudag. Myndirnar má nálgast á heimasíðu Hermanns http://www.flickr.com/photos/hermann-e-520/
Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni er verið að starta Mjaltavélinni, stuðningsmannaklúbbi handboltans, um þessar mundir. Hægt er að ganga í klúbbinn hjá Gylfa í Flügger búðinni eða í anddyri Vallaskóla fyrir leikinn í kvöld, ef fólk er tímanlega á ferðinni. Við undirritun fær fólk félagsskírteini sem gildir á alla heimaleiki. Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma því að fyrsti heimaleikur Selfoss í N1 deildinni er í kvöld kl. 19:30 gegn Val.
Samfélag í nýjan búning er yfirskrift nýrrar stefnu sem Landsbankinn hefur sett sér um stuðning bankans við íþróttafélög. Landsbankinn styrkir íþróttafélög um land allt og markmiðið er að tengja saman stuðning bankans við íþróttir og mannúðarmál. Í vikunni kynnti bankinn samstarfsaðila sína en á meðal þeirra er handknattleiksdeild Umf. Selfoss. Landsbankinn og handknattleiksdeildin styðja saman Einstök börn og keppnisbúningar Selfoss verða merktir málefninu.
Strákarnir á eldra ári í 5. flokki í handbolta verða með kökubasar í Kjarnanum á morgun föstudag 1. október frá kl. 13:00. Strákarnir eru að safna vegna ferðar til Vestmannaeyja um miðjan mánuðinn. Nú er um að gera að drífa sig og kaupa eitthvað gott bakkelsi og styrkja strákana í leiðinni.
Fræðslunet Suðurlands í samvinnu við HSK mun halda námskeið um ungmennafélagshreyfinguna á Suðurlandi í 100 ár á átta kvöldum í október og nóvember í Iðu á Selfossi. Námskeiðið fer fram á mánudagskvöldum kl. 19:30 - 21:40.
4. flokkur karla tryggði sér um helgina sæti í 1. deild (efri deild) á Íslandsmótinu í vetur þegar liðið vann þrjá leiki og gerði eitt jafntefli í fjórum leikjum í svokallaðri forkeppni fyrir veturinn. Selfoss vann því þennan riðil forkeppninnar.
4. flokkur karla hefur leik um helgina en þá leikur liðið í forkeppni um í hvaða deild Selfoss verður í þennan veturinn. Mikið hefur verið í gangi hjá flokknum hingað til og nokkuð síðan æfingar hófust, en flokkurinn fór t.d. í æfingaferð til Vestmannaeyja fyrir skömmu.
Margir muna eftir "Mjaltavélinni", stuðningsmannaklúbbi meistaraflokks, sem var svo öflug á árum áður. Nú hefur verið ákveðið að endurræsa hana og gera hana enn þá afkastarmeiri og flottari í samræmi við stöðu liðsins í íslenskum handknattleik.
Í tilefni af því að fyrsta æfingamóti tímabilsins er lokið ákvað heimasíðan að rekja garnirnar úr "nýliðanum" í Selfossliðinu Guðjóni Finni Drengssyni. Guðjón stóð sig feykivel í sínum fyrstu leikjum með liðinu og endaði sem markahæsti leikmaður liðsins á mótinu með 23 mörk.
Lokastaðan í mótinu varð sú að Selfoss varð í 1. sæti, Haukar í 2. sæti, HK í 3. sæti, Fram í 4. sæti, FH í 5. sæti og Valur rak lestina í 6. sæti. Þá voru í mótslok veitt verðlaun fyrir einstaklingsframtak í mótinu og voru það SportTv menn sem skipuðu dómnefndina annað árið í röð. Niðurstaðan var eftirfarandi..
21. Ragnarsmótinu lauk á laugardaginn með þremur leikjum. FH vann Val í leik um 5. sætið. HK vann Fram í leik um 3. sætið og Selfoss vann Hauka í leik um 1. sætið. Að úrlsitaleiknum loknum var verðlaunaafhending liða og einstakra leikmanna. Þetta er aðeins í annað skipti sem Selfoss vinnur mótið, en það gerðist síðast 1990.
Í tengslum við landsleik Íslands og Noregs í knattspyrnu, sem fram fór í síðustu viku, voru staddir hér á landi forráðamenn Norsk toppfotballsenter. Þeir leituðu til Handknattleikssambands Íslands og vildu fá að kynna sér þjálfunaraðferðir okkar í handbolta. Voru þeir mjög áhugasamir um að vita hvernir stæði á því að þessi litla þjóð gæti verið í fremstu röð í heiminum í handbolta, bæði í A-landsliði og unglingalandsliðum. Leitað var til Einars Guðmundssonar, unglingalandsliðsþjálfari, og hélt hann tveggja tíma fyrirlestur fyrir norðmennina með umræðum á eftir. Í fyrirlestrinum fór Einar yfir það hvers vegna Íslendingar framleiddu svona góða handboltamenn ár eftir ár og hvernig hann sæi þetta sem unglingalandsliðsþjálfari.
Í kvöld lauk riðlakeppninni á Ragnarsmótinu með leikjum Selfoss og FH og svo leik Vals og Fram. Það er ljóst eftir kvöldið að Selfoss spilar á morgun til úrslita við Hauka kl. 16:00. HK og Fram mætast kl. 14:00 í leik um 3 sætið og kl. 12:00 spila FH og Valur um 5 sætið. Við hvetjum alla til þess að líta við á morgun. Úrslit kvöldsins voru..
Í sumum miðlum hefur dagskrá laugardagsins á Ragnarsmótinu verið birt þannig að leikirnir um sæti séu kl. 12, 16 og 18 sem er því miður ekki rétt. Hið RÉTTA er að leikurinn um 5. sætið er kl. 12:00. Leikurinn um 3. sætið er kl. 14:00 og úrslitaleikurinn er kl. 16:00. Beðist er velvirðingar á því ef að þessi miskilningur hefur valdið vandræðum.
Í gær áttust við HK og Selfoss annars vegar og Haukar og Valur hins vegar. Selfoss vann nauman 1 marks sigur í spennandi leik og Haukar unnu þægilegan sigur annan leikinn í röð og ljóst að þeir spila til úrslita á morgun. Það sem af er mótsins þá virka Haukarnir bestir og verða greinilega ógnarsterkir í vetur.
Tveir leikir fóru fram í gærkvöldi á Ragnarsmótinu. Fyrst mættust FH og HK og strax á eftir mættust Haukar og Fram. Úrslit og markaskorarar í meira..
Í dag hefst 21. Ragnarsmótið í Vallaskóla kl. 18:30 en þá eigast við HK og FH í A riðli og strax á eftir kl. 20:00 spila Haukar og Fram. Á morgun kl. 18:30 spilar Selfoss svo sinn fyrsta opinbera leik tímabilsins gegn HK. Við hvetjum alla til þess að kíkja á mótið enda frítt er á alla leiki mótsins. VÍS styrkir mótið eins og undanfarin ár. Það eru Selfyssingar eða leikmenn sem hafa spilað með Selfossi í öllum liðunum...
Handboltaæfingar yngri flokka hefjast í mánudaginn 23. ágúst samkvæmt töflu. Æfingataflan einnig verður hengd upp í skólum og auglýst í Dagskránni í næstu viku. Foreldrafundur verða í byrjun september og er mikilvægt að við fáum sem flesta foreldra á þann fund til að kynna starfið.
Yngriflokkaráð hefur samið við sjö aðalþjálfara sem allir hafa mikla reynslu og hafa annaðhvort íþróttakennaramenntun eða kennaramenntun. Ásamt þeim eru sex aðstoðarþjálfarar þar sem margir flokkar eru mjög fjölmennir. Þetta sem skiptir miklu máli til að halda úti hinu öfluga starfi sem verið hefur hjá deildinni undanfarin ár. Yngriflokkastarf handknattleiksdeildar hefur verið í fremstu röð á landinu undanfarin ár og ekki er ætlunin að slaka neitt á í þeim efnum. Handknattleiksdeildin mun dagana 1.-3. apríl verða með stórt handboltamót í 7. flokki drengja og stúlkna.
Æfingatíma verða eftirfarandi :
Þrjár stelpur frá Selfossi, þær Birta R. Antonsdóttir, Díana Sigmarsdóttir og Kristrún Steinþórsdóttir, voru valdar á æfingar með u-16 ára landsliði kvenna í handbolta. Liðið mun æfa fimmtudaginn 12. ágúst og leika svo tvo æfingarleiki 13. og 14. ágúst gegn Lier IL frá Noregi. Verkefnastjórar eru Hilmar Guðlaugsson og Sigurgeir Jónsson.
Þeir Ragnar Jóhannsson og Árni Steinn Steinþórsson eru á leið á Evrópumeistarmótið í handknattleik landsliða skipað leikmönnum 20 ára og yngri. Þjálfari landsliðsins er Selfyssingurinn Einar Guðmundsson, en þetta lið hafnaði í öðru sæti á heimsmeistaramótinu sem haldið var í Túnis í fyrra og í fjórða sæti á Evrópumeistaramótinu sem haldið var í Tékklandi fyrir tveimur árum. Mótið í ár er haldið í Bratislava í Slóvakíu dagana 28. júlí - 8. ágúst. Liðið hefur undirbúið sig af kappi allan júlí mánuð og ættu strákarnir að vera vel undirbúnir undir átökin. Þriðji Selfyssingurinn Guðmundur Árni Ólafsson, núverandi leikmaður Hauka, er einnig leikmaður í þessu landsliði.
Handknattleiksdeild Umf. Selfoss hefur gert samning við Guðjón Finn Drengsson fyrir komandi keppnistímabil. Guðjón á að baki ein 11 ár í meistaraflokki með Fram og býr því yfir mikilli reynslu. Hann hefur verið þekktur fyrir mikla baráttu, gott keppnisskap og fyrir það að vera góður liðsmaður í velgengni og ennþá betri liðsmaður í mótlæti.
Það er ljóst að Ragnarsmótið er orðið vinsælasta undirbúningsmót landsins í handboltanum sem er enn ein rósin í hnappagatið fyrir uppbyggingarstarf handboltans hér á Selfossi. Það hefur aldrei áður verið jafn mikil ásókn í mótið og núna enda varð fullbókað á það núna strax í lok maí. Leikjafyrirkomulagið o.fl má sjá hér að neðan..
Handknattleiksdeild Umf. Selfoss verður með handboltaskóla fyrir börn á aldrinum 9-13 ára (4.-7. bekkur) í sumar. Fyrra tímabilið verður dagana 7.-25. júní og það síðara 9.-20. ágúst. Æfingar verða í Íþróttahúsi Vallaskóla alla virka daga kl. 10:00-12:00. Þjálfari verður Sigrún Arna Brynjarsdóttir íþróttakennaranemi.
Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður fimmtudaginn 20.maí í sal Vallaskóla kl. 18-19. Á dagskránni er verðlaunafhending, myndataka og grillveisla. Einnig verður sérstakur heiðursgestur. Á staðnum verður líka mátun á nýjum búningum fyrir næsta keppnistímabil. Foreldrar og forráðamenn eru eindregið hvattir til að mæta með krökkunum.
Í dag fór fram æfingaleikur milli 1997 liða Selfoss og KR (5. flokkur yngra ár). Síðuritari viðurkennir að hafa sinnt yngstu flokkunum ekki nægilega þennan veturinn og skrifað alltof lítið en úr því verður bætt næsta vetur. Selfoss og KR voru tvö bestu liðin í þessum árgangi í vetur og varð KR Íslandsmeistari. Liðin tóku æfingaleik í Vallaskóla í dag þar sem spilaður var 3 x 15 mínútna leikur. Selfoss vann alla leikhlutana og að lokum 27-23 sigur í bráðskemmtilegum leik. 9 leikmenn Selfoss skoruðu í leiknum og var skemmtilegt að sjá góða liðsheild hjá liðinu.
Dagana 8.-10. júní verður fræðslunefnd HSÍ með þjálfaranámskeið í tengslum við landsleiki Íslands og Danmerkur. Meðal fyrirlesara verða Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, Ulrik Wilbek, landsliðsþjálfari Danmerkur, Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður og Aron Kristjánsson, þjálfari Íslandsmeistara Hauka.
Stelpurnar í 4. flokki kvenna í handbolta verða með bingó í Íþróttahúsi Vallaskóla miðvikudaginn 12. maí kl. 20:00. Fjöldinn allur af flottum vinningum verður í boði eins og t.d. símtæki, handboltar, bakpokar, lambalæri, hársnyrtivörur o.fl. o.fl. Spjaldið kostar 500 kr. og sjoppa verður á staðnum. Stelpurnar munu einnig ganga í hús fimmtudaginn 13. maí og selja nýjar eplakökur frá Guðnabakaríi. Þær vonast eftir góðum viðtökum, en þær eru að safna fyrir ferð á Partille Cup í sumar.
Á lokahófi HSÍ um helgina hlaut Ragnar Jóhannsson þrenn verðlaun fyrir frammistöðu sína í vetur. Þá var Sebastian einnig valinn þjálfari ársins í 1. deild auk þess sem að hann fékk tilnefningu sem besti markmaður deildarinnar.
Selfoss mun senda lið til keppni í meistaraflokki kvenna á næsta keppnistímabili, en m.fl. kvenna hefur ekki verið starfræktur á Selfossi síðast liðin áratug. Stofnfundur m.fl. kvenna var haldinn í síðustu viku, þar mættu flölmargir leikmenn og er mikill hugur í stelpunum. Selfoss hefur verið í fremstu röð í yngriflokkum kvenna undanfarin á og stofnum meistaraflokks rökrétt framhald að því. Stefnt er á að vera í 2.deild næstu tvö árin og reyna svo að taka skrefið í úrvalsdeildina eftir tvö tímabil.
Laugardaginn 1. maí var haldið lokahóf meistaraflokks, 2. flokks og 3. flokks karla ásamt handboltaakademíunni. Um 150 manns mættu í Félagslund í tilefni dagsins. Veitingarnarnar voru stórglæsilegar að vanda og þökkum við Lilju og hennar fólki kærlega fyrir þær. Veislustjóri var Gústaf Lilliendahl og óhætt er að segja að hann hafi verið frábær.
Aðalfundur Ungmennafélags Selfoss var haldinn í gær í félagsheimilinu Tíbrá. Mjög góð mæting var á fundinum, en alls mættu 48 af 55 kjörnum fulltrúum, tveir heiðursfélagar, auk fleiri gesta. Lögð var fram vönduð ársskýrsla þar sem fram kom yfirlit yfir starf félagsins og deilda innan þess. Starfið 2009 var mjög öflugt og náðust margir frábærir árangrar bæði íþróttalega og félagslega. Rekstur félagsins gekk vel og voru flestar deildir reknar með rekstrarafgangi.
5. flokkur fór á Húsavíkurmótið um seinustu helgi. Bæði stráka og stelpu flokkarnir fóru á mótið. Ferðin var skemmtileg í alla staði og var okkar fólk var til fyrirmyndar. Hér koma nokkrar skemmtilegar myndir frá ferðinni.
Aðalfundur Ungmennafélags Selfoss verður haldinn á morgun fimmtudaginn 29. apríl í félagsheimilinu Tíbrá. Fundurinn hefst kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Einnig verða veittar viðurkenningar til íþróttakarls og íþróttakonu Umf. Selfoss auk viðurkenninga fyrir góð störf í þágu félagsins. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa kjörnir fulltrúar skv. lögum félagsins. Allir félagsmenn og velunnarar eru velkomnir.
Um síðustu helgi lauk Íslandsmótinu í handknattleik í 5. flokki kvenna og karla á yngra ári. Síðasta umferðin var leikin á Húsavík og áttu Selfyssingar þrjú lið á mótinu. Þetta var löng ferð frá miðvikudegi til sunnudags. Keppt var einhverja leiki alla dagana.
A-lið 4. flokks karla lék gegn Fram í gærkvöldi í 8-liða úrslitum Íslandsmót. Selfyssingar náðu sér aldrei á strik og töpuðu 27-21 en áttu þrátt fyrir það fínan möguleika mestan hluta leiksins.
Þessa dagana æfir íslenska landsliðið í handbolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri af miklum móð. Einar Guðmundsson þjálfar liðið og stýrir af festu. Eiga Selfyssingar tvo leikmenn í liðinu, þá Ragnar Jóhannsson sem er örvhent skytta og Árna Stein Steinþórsson, sem er örvhentur hornamaður.
B-lið 4. flokks karla í handbolta spilaði í umspili á föstudag gegn KA um að komast í úrslitakeppni. Selfoss drengir unnu þar sannfærandi sigur 21-16 og léku þ.a.l. í 8-liða úrslitum í dag gegn deildarmeisturum Stjörnunnar. Þar sýndu strákarnir að þeir eru með hörku lið en Selfoss var yfir nær allan tímann. Framlengja þurfti leikinn eftir mikinn darraðardans og unnu Stjörnumenn að lokum eftir framlenginguna.
Það var hvergi slegið slöku við í handboltanum um páskana. Nóg var um að vera í handboltanum, margar æfingar sem og leikir. Á Skírdag lék 2. flokkur gegn ÍR í úrslitakeppninni.
M.fl. vann Þrótt á útivelli í gær í næst síðustu umferð 1. deildarinnar 23-31. Staðan í hálfleik var 16-15 fyrir Þrótti. Það er því ljóst að um hreinan úrslitaleik gegn UMFA verður að ræða á Selfossi þann 7. apríl um laust sæti í úrvalsdeildinni.
Meistaraflokkur tapaði fyrr í dag fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum 32-28. Tapið þýðir að UMFA er komið á toppinn. Síðuritari komst ekki til Eyja með hátt í 20 stuðningsmönnum Selfossliðsins en náði tali af Sebastian Alexanderssyni þjálfara liðsins nú um kvöldmatarleitið...
Stelpurnar í 5. flokki eldra ár sigruðu í efstu deild 4. umferðar Íslandsmótsins sem fram fór á Selfossi um helgina. Selfoss-stelpurnar unnu alla sína leiki sannfærandi og eru klárlega með besta lið landsins þessa dagana í sínum aldursflokki. Helgina áður höfðu stöllur þeirra á yngra árinu einnig unnið efstu deildina í sínum aldursflokki. Frábær árangur hjá þessum sigursælum stelpum. Systurnar Inga Fríða og Guðfinna Tryggvadætur eru þjálfarar beggja liðanna og hafa gert frábæra hluti með þessar stelpur í vetur.
Bæði liðin í 4. flokki karla léku seinasta leik sinn í deild í dag. B-liðið mætti Fjölni og vann þar sinn annan leik í vetur. Lokatölur urðu 19-15 sigur í ansi furðulegum leik. A-liðið mætti Aftureldingu en tapaði eftir hörkuleik 28-23. Báðir leikir voru á útivelli.
A-lið 4. flokks karla lék sinn seinasta heimaleik í deild á laugardaginn er liðið fékk ÍR í heimsókn. Selfoss var mun öflugara í leiknum og vann 32-24 sigur en heimamenn leiddu 18-12 í hálfleik. Selfoss vann því alla 8 heimaleiki sína í vetur í deild og tókst ætlunarverk sitt á því sviðinu.
4. flokkur karla leikur sinn seinasta heimaleik í deild um helgina er A-liðið mætir ÍR. Leikurinn fer fram á laugardaginn kl. 14:00 í Vallaskóla. Strákarnir í A-liðinu hafa unnið alla 7 heimaleiki sína í vetur og stefna að því að vinna þann áttunda á laugardaginn.
Bæði liðin í 4. flokki karla léku gegn KA í Vallaskóla í gær. Síðuritari brá sér á völlinn en Selfoss náði í þrjú stig að þessu sinni. A-liðið vann 33-31 sigur eftir að hafa leitt 17-13 í hálfleik. B-liðið gerði jafntefli 26-26 í afar dramatískum leik en þeir voru 10-12 undir í hálfleik.
Í gærkvöldi unnu Selfyssingar Fjölni 34-17 í 1. deildinni og eru því enn efstir í deildinni stigi á undan Aftureldingu sem vann Víking í gær. Staðan í hálfleik var 16-8 fyrir Selfoss.
Þriðja umferðin í 1. deildinni hófst síðasta föstudagskvöld. Selfoss byrjaði hana á útileik á móti Víkingum. Leikurinn vannst 27-33. Í hálfleik hafði staðan verið 11-13 fyrir okkar menn. Sigurinn var mikilvægur enda Víkingar með gott lið.
Bæði liðin í 4. flokki karla léku um helgina. B-liðið fór í Kaplakrika og náði í 19-19 jafntefli gegn FH eftir að hafa verið í nær vonlausri stöðu stuttu fyrir leikslok. A-liðið vann ÍR í Austurbergi 31-34, en sá leikur var jafn allan tímann.
Mótanefnd HSÍ hefur nú raðað niður leikjum í umferð 3 á Íslandsmótinu í 1. deild karla. Selfoss á fyrst útileik við Víking föstudaginn 19. febrúar, en síðasti leikurinn er heimaleikur gegn Aftureldingu og fer hann fram miðvikudaginn 7. apríl. Efsta liðið fer beint upp í úrvalsdeild, en liðin í 2.-4 sæti fara í umspil ásamt liðinu í 7. sæti í úrvalsdeild. Leikjaniðurröðun er eftirfarandi:
A og B lið 4. flokks karla léku á höfuðborgarsvæðinu í gær. B-liðið mætti efsta liði deildarinnar, Stjörnunni, og lék góðan leik lengst af. Það dugði þó ekki og Stjarnan vann 21-18. A-liðið mætti Haukum. Eftir mjög rólega byrjun vannst 22-27 sigur.
Stórleikurinn í gærkvöldi við Aftureldingu endaði með 9 marka sigri okkar manna. Lokatölur 32-23, en í hálfleik höfðu gestirnir 2 marka forystu 13-15. Stórkostleg stemmning var í húsinu sem var nánast fullt. Stuðningsmenn beggja liða háðu einnig sína baráttu á pöllunum þar sem heimamenn höfðu vinninginn alveg eins og inn á vellinum.
Selfyssingar í 92-liði 3. flokks unnu í gærkvöld gesti sína úr Breiðholtinu. Eftir að ÍR-ingar höfðu verið mun sterkari allan fyrri hálfleikinn komust heimamenn yfir undir lok hans og leiddu í hálfleik 15-13. Lokatölur urðu 34-26.
Hvert barn á aldrinum 6-18 ára sem á lögheimili í Sveitarfélaginu Árborg á rétt á svonefndum hvatagreisðlum til niðurgreiðslu á skipulögðu íþróttastarfi í Árborg. Þessi upphæð er kr. 10.000 á hvert barn fyrir viðurkennt námskeið eða æfingar sem standa í 10 vikur eða lengur. Mín Árborg er íbúagátt Sveitarfélagsins Árborgar og þar er hægt að sækja um hvatagreiðslurnar rafrænt. Farið er inn á íbúagáttina í gegnum heimasíðu Árborgar www.arborg.is eða ibuagatt.arborg.is. Til að fá aðgang að gáttinni er valin „nýskráning" og verður síðan lykilorð sent í heimabanka viðkomandi eða að náð sé í það í afgreiðslu Ráðhúss Árborgar.
Bæði lið 4. flokks karla léku við Gróttu í gær í Vallaskóla. Báðir leikir voru mjög jafnir og spennandi og fóru leikar svo að í A-liðum vann Selfoss 30-29 en í B-liðum vann Grótta 22-26.
Bæði lið 4. flokks fóru í Framhúsið í dag að leika. B-liðið lék vel lengst af, en slæmur kafli í byrjun seinni hálfleiks kostaði það að liðið tapaði 30-24. A-liðið mætti aldrei til leiks og tapaði að lokum 34-28.
Elstu strákarnir okkar í Akrinum á Selfossi fengu afar góðan gest til sín á æfingu miðvikudaginn síðastliðinn. Það var enginn annar en Þórir Ólafsson, fyrirliði þýska úrvalsdeildarliðsins Lübecke, er mætti á staðinn.
Strákarnir í Selfoss-2 í 2.flokki (eða 91-drengirnir) unnu í gær Fjölnismenn er sóttu okkur heim. Okkar menn voru sterkari aðilinn allan leikinn en Fjölnismenn aldrei langt undan en Selfoss hélt í síðari hálfleik 4-6 marka forskoti og lét það aldrei af hendi. Sigur 26-18 staðreynd eftir að í leikhléi hafi staðið 15-11 fyrir Selfoss.
Bæði lið 4. flokks karla mættu FH í dag í Vallaskóla. A-liðið var að leika þriðja leik sinn á átta dögum og núna gegn liðinu í toppsætinu. Það vantaði þó besta leikmann FH og munaði mikið um það. Selfyssingar voru nokkra stund í gang og leiddu 13-11 í hálfleik. Þeir unnu svo að lokum 10 marka sigur 29-19. B-liðið lék ágætlega lengi vel en inn á milli voru kaflar sem voru ekki nægilega góðir. FH vann leikinn hjá B-liðum 25-26 en Selfoss átti skot í stöng á seinustu sekúndum leiksins þar sem þeir gátu jafnað.
A-lið 4. flokks mætti Fram í gærkvöldi, en Framarar eru með eitt besta lið landsins og í 2. sæti deildarinnar. Annað stórt verkefni var því í vændum fyrir liðið. Selfyssingar stóðust aðra áskorun sína á fimm dögum og unnu leikinn 22-21 eftir afar dramadískar lokamínútur þar sem hreinlega allt var undir.
Í 4. flokki mætti Selfoss liði Aftureldingar í A-liðum. Fyrir leikinn var Afturelding með besta árangur liðanna í 4. flokki. Það var því ljóst að afar erfitt verkefni væri í vændum fyrir Selfyssinga. Þeir voru hins vegar tilbúnir í það verkefni svo um munaði. Með frábærum varnarleik og framúrskarandi hugarfari vann Selfoss 26-23 eftir að hafa leitt 14-12 í hálfleik.
B-lið 4. flokks mætti Fjölni í dag. Strákarnir voru nokkuð lengi í gang og fyrri hálfleikur ekki nægilega góður. Síðari hálfleikurinn var mun betri og vann Selfoss 18-14 sigur í leiknum.
Helgina 15.-16. janúar verður haldið B-stigs dómaranámskeið hjá dómaranefnd HSÍ. Gert er ráð fyrir að námskeiðið standi frá 17-21 á föstudeginum og frá 10-14 á laugardeginum. Skráning fer fram á robert@hsi.is og stendur til þriðjudagsins 12. janúar.
B-lið 4. flokks lék gegn Fram í gær en Fram er með öflugri liðum deildarinnar. Strákarnir léku mjög vel á köflum og héldu áfram allan leikinn. Það dugði ekki til að þessu sinni og tap 23-27 niðurstaðan en ljóst er að hægt er að byggja á fjölmörgum jákvæðum hlutum í leiknum.
Jólin verða kvödd á Selfossi með glæsilegri þrettándagleði miðvikudaginn 6. janúar. Farin verður blysför frá Tryggvaskála að brennustæði við tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt verður í þrettándabálkesti. Glæsileg flugeldasýnig verður, jólasveinar kveðja og álfar og tröll mæta á svæðið. Gaman væri að sjá sem flesta í trölla-, álfa- eða jólasveinabúningum. Vinsamlegast fylgist með útvarpsfréttum ef veðurútlit er tvísýnd.
