Bæði lið 4. flokks karla léku við Gróttu í gær í Vallaskóla. Báðir leikir voru mjög jafnir og spennandi og fóru leikar svo að í A-liðum vann Selfoss 30-29 en í B-liðum vann Grótta 22-26.
Bæði lið 4. flokks fóru í Framhúsið í dag að leika. B-liðið lék vel lengst af, en slæmur kafli í byrjun seinni hálfleiks kostaði það að liðið tapaði 30-24. A-liðið mætti aldrei til leiks og tapaði að lokum 34-28.
Elstu strákarnir okkar í Akrinum á Selfossi fengu afar góðan gest til sín á æfingu miðvikudaginn síðastliðinn. Það var enginn annar en Þórir Ólafsson, fyrirliði þýska úrvalsdeildarliðsins Lübecke, er mætti á staðinn.
Strákarnir í Selfoss-2 í 2.flokki (eða 91-drengirnir) unnu í gær Fjölnismenn er sóttu okkur heim. Okkar menn voru sterkari aðilinn allan leikinn en Fjölnismenn aldrei langt undan en Selfoss hélt í síðari hálfleik 4-6 marka forskoti og lét það aldrei af hendi. Sigur 26-18 staðreynd eftir að í leikhléi hafi staðið 15-11 fyrir Selfoss.
Bæði lið 4. flokks karla mættu FH í dag í Vallaskóla. A-liðið var að leika þriðja leik sinn á átta dögum og núna gegn liðinu í toppsætinu. Það vantaði þó besta leikmann FH og munaði mikið um það. Selfyssingar voru nokkra stund í gang og leiddu 13-11 í hálfleik. Þeir unnu svo að lokum 10 marka sigur 29-19. B-liðið lék ágætlega lengi vel en inn á milli voru kaflar sem voru ekki nægilega góðir. FH vann leikinn hjá B-liðum 25-26 en Selfoss átti skot í stöng á seinustu sekúndum leiksins þar sem þeir gátu jafnað.
A-lið 4. flokks mætti Fram í gærkvöldi, en Framarar eru með eitt besta lið landsins og í 2. sæti deildarinnar. Annað stórt verkefni var því í vændum fyrir liðið. Selfyssingar stóðust aðra áskorun sína á fimm dögum og unnu leikinn 22-21 eftir afar dramadískar lokamínútur þar sem hreinlega allt var undir.
Í 4. flokki mætti Selfoss liði Aftureldingar í A-liðum. Fyrir leikinn var Afturelding með besta árangur liðanna í 4. flokki. Það var því ljóst að afar erfitt verkefni væri í vændum fyrir Selfyssinga. Þeir voru hins vegar tilbúnir í það verkefni svo um munaði. Með frábærum varnarleik og framúrskarandi hugarfari vann Selfoss 26-23 eftir að hafa leitt 14-12 í hálfleik.
B-lið 4. flokks mætti Fjölni í dag. Strákarnir voru nokkuð lengi í gang og fyrri hálfleikur ekki nægilega góður. Síðari hálfleikurinn var mun betri og vann Selfoss 18-14 sigur í leiknum.
Helgina 15.-16. janúar verður haldið B-stigs dómaranámskeið hjá dómaranefnd HSÍ. Gert er ráð fyrir að námskeiðið standi frá 17-21 á föstudeginum og frá 10-14 á laugardeginum. Skráning fer fram á robert@hsi.is og stendur til þriðjudagsins 12. janúar.
B-lið 4. flokks lék gegn Fram í gær en Fram er með öflugri liðum deildarinnar. Strákarnir léku mjög vel á köflum og héldu áfram allan leikinn. Það dugði ekki til að þessu sinni og tap 23-27 niðurstaðan en ljóst er að hægt er að byggja á fjölmörgum jákvæðum hlutum í leiknum.
Jólin verða kvödd á Selfossi með glæsilegri þrettándagleði miðvikudaginn 6. janúar. Farin verður blysför frá Tryggvaskála að brennustæði við tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt verður í þrettándabálkesti. Glæsileg flugeldasýnig verður, jólasveinar kveðja og álfar og tröll mæta á svæðið. Gaman væri að sjá sem flesta í trölla-, álfa- eða jólasveinabúningum. Vinsamlegast fylgist með útvarpsfréttum ef veðurútlit er tvísýnd.
