Uppskeruhátið ÍTÁ var haldin í hátíðasal FSu í gærkvöldi. Þar voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur á árinu, afhentir styrkir úr afrekssjóðum og að lokum tilkynnt um val á íþróttakarli og íþróttakonu Árborgar 2010. Þau Ragnar Jóhannsson handknattleiksmaður og Guðmunda Brynja Óladóttir knattspyrnukona, bæði úr Umf. Selfoss, urðu fyrir valinu að þessu sinni.
Uppskeruhátíð íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar, ÍTÁ, verður haldin í kvöld þriðjudaginn 28. desember kl.20:00 við hátíðlega athöfn í hátíðarsal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hátíðin er eins og nafnið ber til kynna uppgjör íþróttafólks í Árborg á árinu 2010 en þar verður afreksíþróttafólk ársins heiðrað......
Enn er að bætast við landsliðsmenn Selfoss í yngri landsliðum HSÍ. Gísli
Þór Axelsson og Janus Daði Smárason hafa nú verið valdir í U-17 hópinn.
Þeir tveir eru enn í 4. flokki og því á yngra ári í þessu landsliði.
Gísli og Janus hafa verið að spila stór hlutverk bæði með 4. flokki og
3. flokki hjá Selfossi í vetur.
Valið hefur verið u-19 ára landslið karla sem fer til Þýskalands á milli jóla og nýárs. Liðið tekur þar þátt í Victors Cup ásamt landsliðum Egyptalands, Finnlands, Póllands, Sviss, Slóvakíu og Þýskalands en þar að auki tekur úrvalslið Saar héraðs þátt.
Ragnar Jóhannsson skoraði sjö mörk og var markahæsti leikmaður U21 árs liðs Íslands í handbolta sem tapaði fyrir Noregi á Selfossi í gærkvöldi, 32-35. Fjórir Selfyssingar eru í landsliði Íslands; Ragnar, Guðmundur Árni Ólafsson og Bjarki Már Elísson auk þjálfarans Einars Guðmundssonar. Bjarki Már skoraði 2 mörk í leiknum og Guðmundur 1.
U21 árs lið Íslands og Noregs í handbolta mætast í íþróttahúsi Vallaskóla á Selfossi kl. 19:30 í kvöld. Þetta er síðasti leikur liðanna í þriggja leikja æfingaleikjatörn en liðin léku í Hafnarfirði í gær og í fyrradag. Ísland vann fyrsta leikinn 29-27 en í gær gerðu þau jafntefli, 25-25. Í liði Íslands eru Selfyssingarnir Ragnar Jóhannsson, Guðmundur Árni Ólafsson og Bjarki Már Elísson. Fjórði Selfyssingurinn, Einar Guðmundsson, er annar þjálfara liðsins. Bæði lið eru að búa sig úr fyrir undankeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer 7. - 9. janúar víðsvegar um Evrópu.
Átta ungmenni frá Selfossi voru valin í landsliðshópa skipað leikmönnum 15 ára og yngri sem æfa af kappi um jólin. Þær Thelma Björk Einarsdóttir, Þuríður Guðjónsdóttir, Harpa Sólveig Brynjarsdóttir, Katrín Magnúsdóttir og Dagmar Öder Einarsdóttir voru valdar í stúlknalandsliðið og þeir Ómar Ingi Magnússon, Hergeir Grímsson og Guðjón Ágústsson voru valdir í piltalandsliðið. Alls hafa 22 leikmenn frá Selfossi verið valdir í ungmennalandslið á þessu ári og hafa aldrei verið fleiri.
Selfoss lék við Gróttu í A-liðum 4. flokks karla í gær. Um hörkuleik var að ræða enda Grótta skammt á eftir Selfossi í deildinni. Selfyssingar voru alltaf með góð tök á leiknum og alltaf einu til tveimur skrefum á undan. Selfoss vann að lokum 31-27 sigur.
Mánudaginn 20. desember leikur unglingalandslið Íslands í handknattleik skipað leikmönnum 20 ára og yngri landsleik við Norðmenn í íþróttahúsi Vallaskóla og hefst leikurinn kl 19:30. Þetta er þriðji leikur landanna á þessari helgi. Hinir tveir leikirnir fara fram í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði laugardaginn 18. des og sunnudaginn 19. des. Með íslenska liðinu leika Selfyssingarnir Ragnar Jóhannsson og Guðmundur Árni Ólafsson. Þjálfari liðsins er Einar Guðmundsson.
4. flokkur karla hélt norður á Akureyri um helgina ar sem A-liðið lék einn leik gegn KA. Ákveðið var að fara á föstudegi og búa til skemmtilega ferð en leikurinn við KA var svo á laugardag. Það reyndist mikið gæfuspor því leikurinn gegn KA vannst sannfærandi 21-35 og leikmenn bjuggu til góða ferð þar sem þeir skemmtu sér mikið saman.
Strákarnir í Selfoss-1 í 3.flokki unnu HK sannfærandi fyrir stuttu á útivelli. Lokatölur 36-28 og höfðu Selfyssingar yfir í hálfleik 19-17.
5. flokkur karla í handbolta verður með jólatréssölu í Jólagarðinum fimmtudagana 9. og 16. des kl. 18-21 og tvær síðustu helgarnar fyrir jól kl. 13-18. Jólatrén eru frá Skógrækt ríkisins. Þetta eru falleg, íslensk tré sem eru ræktuð án allra eiturefna. Jólatréssalan er liður í fjáröflun strákanna fyrir Gautaborgarferð milli jóla- og nýárs, á Norden Cup, sem haldin er þar ár hvert með þátttöku allra sterkustu félagsliða Norðurlanda í yngri flokkunum. Hvetjum við alla Ungmennafélagsmenn og aðra velunnara að koma og versla sér tré.
Bæði liðin í 4. flokki karla léku um helgina. A-liðið lék gegn FH á laugardag og tapaði 25-23 eftir að hafa verið mun betri framan af leik. B-liðið aftur á móti vann stóran sigur á ÍR 13-29. Báðir leikir voru á útivelli.
Þær stöllur Díana Kristín Sigmarsdóttir og Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir voru valdar til að æfa með U17 ára landsliði Íslands, en æfingarnar fóru fram um helgina. Þar stóðu þær sig báðar mjög vel. Þremur stúlkum úr U17 hópnum voru boðaðar á æfingar með U19 ára landsliðinu og var Díana ein þeirra. Sannarlega efnilegar handboltastúlkur þar á ferð sem eiga framtíðina fyrir sér í handboltanum.
