Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

31.3.2010 | Handboltaakademía

Sigur gegn Þrótti

gamla1M.fl. vann Þrótt á útivelli í gær í næst síðustu umferð 1. deildarinnar 23-31. Staðan í hálfleik var 16-15 fyrir Þrótti. Það er því ljóst að um hreinan úrslitaleik gegn UMFA verður að ræða á Selfossi þann 7. apríl um laust sæti í úrvalsdeildinni.

29.3.2010 | Handboltaakademía

Selfoss-92 í umspil gegn HK

Selfyssingar í 3. flokki A léku síðasta deildarleik sinn sl. laugardag. Stjarnan sótti okkar menn heim og úr varð hörkuleikur. Selfoss leiddi lengi vel og var yfir í hálfleik 17-16. Í síðari hálfleik náðu þeir tveggja marka forustu. Gestirnir reyndust þó sterkari á lokakaflanum og unnu 35-37.

27.3.2010 | Handboltaakademía

Tap í Eyjum

Meistaraflokkur tapaði fyrr í dag fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum 32-28. Tapið þýðir að UMFA er komið á toppinn. Síðuritari komst ekki til Eyja með hátt í 20 stuðningsmönnum Selfossliðsins en náði tali af Sebastian Alexanderssyni þjálfara liðsins nú um kvöldmatarleitið...

26.3.2010 | Handboltaakademía

Sigur hjá B-liði 3. flokks í lokaleiknum

Í gærkvöldi spiluðu strákarnir í 3. flokki B lokaleik sinn í 2. deild gegn Þrótti og unnu þeir  leikinn 26-28. Liðið mun því enda í 4.-5. sæti af 10 liðum með 10 sigra, 1 jafntefli og 7 tapleiki. Þess má geta að 6 lið af 10 í deildinni eru A-lið sinna félaga. Framfarir okkar stráka hafa verið gríðarlegar og lærdómurinn af leikjum vetrarins mikill.

24.3.2010 | Handboltaakademía

Tap gegn Val í 3. flokki

Selfoss í 3. flokki (92-liðið) tapaði í gær fyrir Valsmönnum. Leikurin fór fram í Reykjavík og endaði 32-27 og leiddu heimamenn 16-14 í hálfleik. Okkar menn byrjuðu mun betur og komust í 4-1 og höfðu yfir 11-10 en þá komu Valsmenn með fimm mörk í röð. Selfyssingar náðu mest að minnka muninn í tvö mörk en komust ekki nær. Slæmt tap því síðuritari telur að Selfoss eigi að vinna Val að öllu jöfnu. Þetta tap þýðir að möguleikar liðsins á sæti í úrslitakeppni eru orðnir nokkuð litlir.

23.3.2010 | Handboltaakademía

Örn með slitið krossband

Örn Þrastarson okkar efnilegi miðjumaður meiddist illa í leik gegn UMFA fyrir stuttu. Nú er komið í ljós að um slitið krossband er að ræða sem og fótbrot. Örn er afar harður af sér og var greinilegt er hann lá þjáður á vellinum að eitthvað væri að fyrst hann kveinkaði sér. Hann fer í aðgerð í maí og vonandi verður hann klár sem fyrst næsta tímabil.

22.3.2010 | Handboltaakademía

Selfoss-stelpur bestar á landinu

5.kvE5Stelpurnar í 5. flokki eldra ár sigruðu í efstu deild 4. umferðar Íslandsmótsins sem fram fór á Selfossi um helgina. Selfoss-stelpurnar unnu alla sína leiki sannfærandi og eru klárlega með besta lið landsins þessa dagana í sínum aldursflokki. Helgina áður höfðu stöllur þeirra á yngra árinu einnig unnið efstu deildina í sínum aldursflokki. Frábær árangur hjá þessum sigursælum stelpum. Systurnar Inga Fríða og Guðfinna Tryggvadætur eru þjálfarar beggja liðanna og hafa gert frábæra hluti með þessar stelpur í vetur.

22.3.2010 | Handboltaakademía

Sigur gegn Val/Þrótti í 2 flokki

Í gær spilaði A-lið 2. flokks sinn síðasta deildarleik gegn Val/Þrótti og hafði sigur 29-20. Staðan í hálfleik var 15-8 fyrir Selfoss. Það þýðir að liðið endar í 2. sæti í deildinni annað árið í röð aðeins 1 stigi frá deildarmeistaratitlinum þar sem ólíklegt verður að teljast að Akureyri tapi á heimavelli í sínum síðasta leik.

22.3.2010 | Handboltaakademía

93-strákarnir með góðan leik gegn Gróttu

Strákarnir í Selfoss-2 í 3. flokki unnu í gær gesti sína í Gróttu 35-30, en í hálfleik leiddu gestirnir 15-17. Gróttumenn voru mun sterkari en heimamenn í fyrri hálfleik og hefðu með réttu átt að vera fleiri mörkum en tveimur yfir í hálfleiik. Það var hins vegar annar bragur á okkur drengjum eftir hlé og náðu þeir fljótlega forustu sem þeir létu ekki af hendi.

22.3.2010 | Handboltaakademía

Selfoss-2 í 2.flokki lék nógu vel til að vinna en....

B- lið 2. flokks tapaði á laugardaginn fyrir Gróttu 29-30 eftir að staðan hafi verið í hálfleik 16-16. Okkar menn voru alltaf sterkari í leiknum en náðu aldrei meira forskoti en þremur mörkum.

20.3.2010 | Handbolti

4. flokkur spilaði seinustu leiki sína í deild

Bæði liðin í 4. flokki karla léku seinasta leik sinn í deild í dag. B-liðið mætti Fjölni og vann þar sinn annan leik í vetur. Lokatölur urðu 19-15 sigur í ansi furðulegum leik. A-liðið mætti Aftureldingu en tapaði eftir hörkuleik 28-23. Báðir leikir voru á útivelli.

19.3.2010 | Handboltaakademía

Sigur á ÍR í 1. deildinni

Selfoss er aftur komið á toppinn í deildinni eftir sigur í gærkvöldi gegn ÍR 30-21. Staðan í hálfleik var 17-10 fyrir okkar menn. Sigurinn var fyrirhafnarlítill og hefði vel getað verið miklu stærri.

18.3.2010 | Handboltaakademía

Æfingar hjá U16 kvenna í handbolta

Búið er að velja úrtakshóp U-16 ára landsliðs kvenna og karla í handbolta og munu hóparnir æfa dagana 29.-31. mars í íþróttahúsinu Kórnum í Kópavogi. Í kvenna-hópnum eru fjórar stelpur frá Selfossi þær Kristrún Steinþórsdóttir, Birta Antonsdóttir, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Díana Sigmarsdóttir. Hjá stráknum eru það þeir Gísli Axelsson, Janus Daði Smárason og Gísli Örn Þórisson sem eru í landsliðshópnum.

18.3.2010 | Handboltaakademía

Andri Már í aðgerð

Andri Már Sveinsson einn af okkar efnilegu leikmönnum fór í aðgerð á hné vegna krossbandsslits nú í vikunni og var aðgerðin vel heppnuð að sögn. Andri hefur því ekki verið alveg aðgerðarlaus þessa vikuna. Vonandi nær Andri sér sem fyrst en það getur tekið um hálft ár að ná sér af svona meiðslum.

15.3.2010 | Handbolti

Góður árangur hjá 5. flokki kvenna

5.fl.kvenna mars 2010Stelpurnar í 5. fl. kvenna A-liða unnu 4 leiki um helgina, gerðu eitt jafntefli og enduðu með gullið. Liðið hefur verið mjög stígandi í vetur og sýndu þær um helgina hvað þeim hefur farið gríðarlega fram. Varnarleikurinn sem þær spiluðu var líkt við meistaraflokkstakta og bakvið vörnina var frábær markvarsla.

15.3.2010 | Handboltaakademía

Sigur á móti ÍR í 2. flokki

Í gær vann Selfoss ÍR í 1. deild 2. flokki á heimavelli 48-33, en staðan í hálfleik var 23-18 fyrir okkar menn. Enn einn stórsigurinn á heimavelli í vetur. Eftir 3 góða útisigra undanfarið þar sem góð vörn og slök sókn var einkennandi þá sprakk liðið út sóknarlega að þessu sinni.

15.3.2010 | Handboltaakademía

93-gengið vann Hörð

Á laugardaginn unnu okkar menn í Selfoss-2 í 3.flokki Harðarmenn frá Ísafirði 46-30 eftir að hafa leitt í hálfleik 25-15.

15.3.2010 | Handboltaakademía

Öruggur sigur 91 drengjanna gegn UMFA

Selfoss-2 í 2. flokki mætti UMFA-1 í gær á Selfossi og hafði sigur 42-27, en heldur illa gekk hjá okkar mönnum að slíta sig frá gestunum. Í hálfleik stóð 19-15.

14.3.2010 | Handbolti

4. flokkur vann ÍR

A-lið 4. flokks karla lék sinn seinasta heimaleik í deild á laugardaginn er liðið fékk ÍR í heimsókn. Selfoss var mun öflugara í leiknum og vann 32-24 sigur en heimamenn leiddu 18-12 í hálfleik. Selfoss vann því alla 8 heimaleiki sína í vetur í deild og tókst ætlunarverk sitt á því sviðinu.

12.3.2010 | Handboltaakademía

Tap hjá 3 fl. B fyrir HK á útivelli

Í gærkvöldið tapaði B-liðið, 34-24, fyrir A liði HK í 2. deildinni í 3 flokki. A lið HK og Hauka eru afgerandi sterkust í 2 deild og því var fyrirfram ljóst að um erfiðan leik yrði að ræða.

11.3.2010 | Handbolti

Síðasti heimaleikur 4. flokks

4. flokkur karla leikur sinn seinasta heimaleik í deild um helgina er A-liðið mætir ÍR. Leikurinn fer fram á laugardaginn kl. 14:00 í Vallaskóla. Strákarnir í A-liðinu hafa unnið alla 7 heimaleiki sína í vetur og stefna að því að vinna þann áttunda á laugardaginn.

11.3.2010 | Handboltaakademía

92 vann í gærkvöld

Framarar úr Safamýri renndu austur fyrir fjall í gærkvöld og öttu kappi við okkar menn í 92-liði Selfoss. Gestirnir voru sterkari lengstum og höfðu ávallt frumkvæðið í leiknum.

8.3.2010 | Handboltaakademía

Góður leikur hjá 92 en dugði því miður skammt

Í gær sóttu okkar menn í Selfoss-1 í 3. flokki Stjörnumenn heim í Garðabæinn. Leikurinn var hraður og mjög fjörugur og óhætt að segja að hiti hafi verið í húsinu og þá aðallega heimamönnum sem sættu sig ekki við mótspyrnu gesta sinna. Leikurinn endaði 38-34 fyrir Stjörnuna en okkar menn leiddu 21-18 í hálfleik.

8.3.2010 | Handboltaakademía

93-liðið vann Víking heima

Heimamenn í Selfoss-2 í 3. flokki unnu í gær gesti sína úr Fossvoginum örugglega 39-26. Í hálfleik stóð 18-11.

8.3.2010 | Handboltaakademía

Sigur á móti FH í 2 fl. á útivelli

A-lið 2 fl. virðist vera að taka við sér þessa dagana. Þeir unnu sinn 3 útileik í röð á laugardaginn þegar þeir unnu FH 21-23 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 11-11. Liðið er nú tímabundið í efsta sæti deildarinnar en það mun breytast þar sem Haukar og Akureyri eiga inni leiki á Selfoss

8.3.2010 | Handboltaakademía

Fyrsta tap ársins hjá 91

Strákarnir í Selfoss-2 í 2. flokki þurftu að játa sig sigraða gegn Fram í Safamýri á laugardaginn síðastliðinn. 36-34 endaði leikurinn eftir að staðan var 19-16 í hálfleik fyrir heimamenn.

7.3.2010 | Handbolti

Sigur og jafntefli hjá 4. flokki

Bæði liðin í 4. flokki karla léku gegn KA í Vallaskóla í gær. Síðuritari brá sér á völlinn en Selfoss náði í þrjú stig að þessu sinni. A-liðið vann 33-31 sigur eftir að hafa leitt 17-13 í hálfleik. B-liðið gerði jafntefli 26-26 í afar dramatískum leik en þeir voru 10-12 undir í hálfleik.

6.3.2010 | Handboltaakademía

Sigur á Fjölni í 1. deildinni

Í gærkvöldi unnu Selfyssingar Fjölni 34-17 í 1. deildinni og eru því enn efstir í deildinni stigi á undan Aftureldingu sem vann Víking í gær. Staðan í hálfleik var 16-8 fyrir Selfoss.

 

3.3.2010 | Handboltaakademía

2. fl. vann Víking á útivelli

2. fl. A-lið eða Selfoss 1 eins og þeir heita hjá HSÍ unnu sinn annan útileik í röð í gærkvöldi gegn Víkingi 22-29, en fyrir leikinn voru Víkingar í efsta sæti deildarinnar. Liðið á einn útileik eftir á laugardaginn og vonandi tekst þeim að landa sigri þar líka.

Á næstunni


Nýjustu úrslit

  • Mfl. karla 1. deild 2009-2010:

Fjölnir -  Selfoss 14 : 32
Selfoss -  Víkingur   22 : 20
Selfoss -  Þróttur 35 : 22
Afturelding  -  Selfoss 26 : 25 
ÍBV -  Selfoss 23 : 25
Selfoss -  ÍR 32 : 28
Selfoss -  Fjölnir 36 : 17
Víkingur -  Selfoss 30 : 32 
Selfoss - ÍBV 33 : 29
Þróttur - Selfoss 20 : 44
Selfoss - Afturelding 32 : 23
ÍR - Selfoss 30 : 28
Víkingur - Selfoss 27 : 33
Selfoss - Fjölnir 34 : 17
Selfoss - ÍR 30 : 21
ÍBV - Selfoss 32 : 28
Þróttur - Selfoss 23 : 31
Selfoss - Afturelding 27 : 24

Selfoss - sigurvegari í 1. deild 2010
byko.islyfogheilsa.iswww.olis.iswww.orkusalan.islandsbankinn.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta