Handknattleiksdeild Umf. Selfoss verður með handboltaskóla fyrir börn á aldrinum 9-13 ára (4.-7. bekkur) í sumar. Fyrra tímabilið verður dagana 7.-25. júní og það síðara 9.-20. ágúst. Æfingar verða í Íþróttahúsi Vallaskóla alla virka daga kl. 10:00-12:00. Þjálfari verður Sigrún Arna Brynjarsdóttir íþróttakennaranemi.
Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður fimmtudaginn 20.maí í sal Vallaskóla kl. 18-19. Á dagskránni er verðlaunafhending, myndataka og grillveisla. Einnig verður sérstakur heiðursgestur. Á staðnum verður líka mátun á nýjum búningum fyrir næsta keppnistímabil. Foreldrar og forráðamenn eru eindregið hvattir til að mæta með krökkunum.
Í dag fór fram æfingaleikur milli 1997 liða Selfoss og KR (5. flokkur yngra ár). Síðuritari viðurkennir að hafa sinnt yngstu flokkunum ekki nægilega þennan veturinn og skrifað alltof lítið en úr því verður bætt næsta vetur. Selfoss og KR voru tvö bestu liðin í þessum árgangi í vetur og varð KR Íslandsmeistari. Liðin tóku æfingaleik í Vallaskóla í dag þar sem spilaður var 3 x 15 mínútna leikur. Selfoss vann alla leikhlutana og að lokum 27-23 sigur í bráðskemmtilegum leik. 9 leikmenn Selfoss skoruðu í leiknum og var skemmtilegt að sjá góða liðsheild hjá liðinu.
Dagana 8.-10. júní verður fræðslunefnd HSÍ með þjálfaranámskeið í tengslum við landsleiki Íslands og Danmerkur. Meðal fyrirlesara verða Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, Ulrik Wilbek, landsliðsþjálfari Danmerkur, Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður og Aron Kristjánsson, þjálfari Íslandsmeistara Hauka.
Stelpurnar í 4. flokki kvenna í handbolta verða með bingó í Íþróttahúsi Vallaskóla miðvikudaginn 12. maí kl. 20:00. Fjöldinn allur af flottum vinningum verður í boði eins og t.d. símtæki, handboltar, bakpokar, lambalæri, hársnyrtivörur o.fl. o.fl. Spjaldið kostar 500 kr. og sjoppa verður á staðnum. Stelpurnar munu einnig ganga í hús fimmtudaginn 13. maí og selja nýjar eplakökur frá Guðnabakaríi. Þær vonast eftir góðum viðtökum, en þær eru að safna fyrir ferð á Partille Cup í sumar.
Á lokahófi HSÍ um helgina hlaut Ragnar Jóhannsson þrenn verðlaun fyrir frammistöðu sína í vetur. Þá var Sebastian einnig valinn þjálfari ársins í 1. deild auk þess sem að hann fékk tilnefningu sem besti markmaður deildarinnar.
Selfoss mun senda lið til keppni í meistaraflokki kvenna á næsta keppnistímabili, en m.fl. kvenna hefur ekki verið starfræktur á Selfossi síðast liðin áratug. Stofnfundur m.fl. kvenna var haldinn í síðustu viku, þar mættu flölmargir leikmenn og er mikill hugur í stelpunum. Selfoss hefur verið í fremstu röð í yngriflokkum kvenna undanfarin á og stofnum meistaraflokks rökrétt framhald að því. Stefnt er á að vera í 2.deild næstu tvö árin og reyna svo að taka skrefið í úrvalsdeildina eftir tvö tímabil.
Laugardaginn 1. maí var haldið lokahóf meistaraflokks, 2. flokks og 3. flokks karla ásamt handboltaakademíunni. Um 150 manns mættu í Félagslund í tilefni dagsins. Veitingarnarnar voru stórglæsilegar að vanda og þökkum við Lilju og hennar fólki kærlega fyrir þær. Veislustjóri var Gústaf Lilliendahl og óhætt er að segja að hann hafi verið frábær.
