Þeir Ragnar Jóhannsson og Árni Steinn Steinþórsson eru á leið á Evrópumeistarmótið í handknattleik landsliða skipað leikmönnum 20 ára og yngri. Þjálfari landsliðsins er Selfyssingurinn Einar Guðmundsson, en þetta lið hafnaði í öðru sæti á heimsmeistaramótinu sem haldið var í Túnis í fyrra og í fjórða sæti á Evrópumeistaramótinu sem haldið var í Tékklandi fyrir tveimur árum. Mótið í ár er haldið í Bratislava í Slóvakíu dagana 28. júlí - 8. ágúst. Liðið hefur undirbúið sig af kappi allan júlí mánuð og ættu strákarnir að vera vel undirbúnir undir átökin. Þriðji Selfyssingurinn Guðmundur Árni Ólafsson, núverandi leikmaður Hauka, er einnig leikmaður í þessu landsliði.
Handknattleiksdeild Umf. Selfoss hefur gert samning við Guðjón Finn Drengsson fyrir komandi keppnistímabil. Guðjón á að baki ein 11 ár í meistaraflokki með Fram og býr því yfir mikilli reynslu. Hann hefur verið þekktur fyrir mikla baráttu, gott keppnisskap og fyrir það að vera góður liðsmaður í velgengni og ennþá betri liðsmaður í mótlæti.
