23.12.2011 | Handbolti
Þann 26. desember munu tvö lið frá Selfossi halda á Norden Cup – Norðurlandamót félagsliða í yngri aldursflokkum – sem fram fer í Gautaborg milli jóla og nýárs. Um er að ræða strákaliðið og stelpuliðið í 1997 árgangi en þeim var boðið á mótið í kjölfarið af því að Selfoss varð Íslandsmeistari í 5. flokki karla og kvenna seinasta keppnistímabil. Á Norden Cup keppa bestu liðin frá öllum Norðurlöndunum og því afar spennandi verkefni fyrir okkar lið í vændum.
14.12.2011 | Handboltaakademía
Í gærkvöldi unnu strákarnir í 3. flokki lið Aftureldingar í hörkuleik með minnsta mun 24-23. Staðan í hálfleik var 12-11 fyrir Selfoss.
13.12.2011 | Handboltaakademía
Stelpurnar unnu lið Fylkis3 í deildinni í gær á útivelli 18-22. Staðan í hálfleik var 9-12 fyrir Selfoss. Fylkir3 sem er efst í 2. deild var þarna að tapa sínum fyrsta leik í deildinni í vetur.
12.12.2011 | Handbolti
Á morgun, þriðjudag, fer fram stórleikur í Vallaskóla þegar 3. flokkur
karla mætir liði Aftureldingar í 16-liða úrslitum bikarsins. Leikurinn
fer fram klukkan 21:00 og hvetjum við fólk eindregið til þess að mæta á
leikinn. Ljóst er að boðið verður upp á hörkuleik annað kvöld en Selfoss
er í efsta sæti í 1. deildinni og Afturelding í 3. sæti.
12.12.2011 | Handbolti
FH-ingar sóttu ákveðna og grimma okkar menn í 2.flokki heim í gær. Fór svo að okkar menn höfðu sigur 32 - 27 eftir að hafa haft yfir í hálfleik 17 - 15.
11.12.2011 | Handboltaakademía
Í gær fóru stelpurnar í A liðinu í Kaplakrika til að mæta FH. Leikurinn vannst 29-18 en staðan í hálfleik var 15-6.
10.12.2011 | Handbolti
Fyrr í dag mætti Selfoss liði Gróttu B í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar í 4. flokki karla. Selfoss sigraði leikinn 16-31 og er liðið því komið í 8-liða úrslit. Lýkur þá fyrri helmingi keppnistímabilsins hjá 4. flokki og við tekur mánaðarhlé frá leikjum. Selfyssingar hafa heilt yfir leikið mjög vel til þessa og verður fróðlegt að sjá hvort liðið bæti sig ekki enn frekar eftir áramót.
8.12.2011 | Handboltaakademía
Ragna Valdís Sigurjónsdóttir leikmaður meistaraflokks kvenna varð fyrir því óláni að slíta krossband í hné á æfingu á dögunum og verður ekkert meira með á þessu keppnistímabili. Þetta er mikið áfall fyrir Selfoss liðið sem er í harðari toppbaráttu í 2.deild Íslandsmótsins.
8.12.2011 | Handboltaakademía
Í gær unnu stelpurnar Fylki3 sem eru efstar og taplausar í 2. deildinni sem Selfoss er einnig þátttakandi í og það á útivelli. Þær létu það ekkert á sig fá slógu toppliðið út og eru komnar í 8-liða úrslit Bikarkeppninnar. Leikurinn endaði 24-31 en staðan í hálfleik var 11-14 fyrir Selfoss.
7.12.2011 | Handbolti
Um síðastliðna helgi sótti 2. flokkur Garðbæinga heim og höfðu okkar menn sigur 27-24 eftir að hafa yfir í leikhléi 15-12.
6.12.2011 | Handbolti

Yngra ár 4. flokks karla í handbolta, sem eru strákar fæddir 1997, tekur þátt í hinu geysisterka Norðurlandamóti félagsliða yngri flokka - Norden Cup, sem verður í Gautaborg milli jóla og nýárs eða dagana 26.-31. desember. Strákarnir verða með jólatréssölu fyrir framan Sportbæ við Austurveg, sem lið í fjáröflun vegna ferðarinnar. Salan verður eftirtalda daga í desember: 10., 15., 16., 17., 18. og 21. Seld verða úrvalstré frá Skógrækt ríkisins. Vonast strákarnir til að sjá sem flesta koma í heimsókn og versla sér jólatré.
5.12.2011 | Handboltaakademía
Í gær unnu stelpurnar lið Fjölnis 34-21 í Vallaskóla. Staðan í hálfleik var 16-13 fyrir Selfoss. Góður sigur hjá stelpunum að þessu sinni.
4.12.2011 | Handbolti
4. flokkur sótti Gróttu heim fyrr í dag. Um hörkuleiki var að ræða bæði
í A og B liðum og fór svo að lokum að heimamenn höfðu sigur í báðum leikjanna.
4.12.2011 | Handboltaakademía
Strákarnir í 3 fl. kk. héldu áfram á sigurbrautinni í gær þegar þeir unnu Stjörnuna á útivelli 32-40. Staðan í hálfleik var 18-19 fyrir okkar stráka.
4.12.2011 | Handboltaakademía
Á föstudagskvöldið tóku stelpurnar á móti liði Aftureldingar. Leikurinn vannst 23-19 eftir að staðan hafi verið 11-8 í hálfleik fyrir Selfoss. Frábær vörn og markvarsla skóp þennan sigur í síðasta leik ársins hjá stelpunum í Mfl.
1.12.2011 | Handbolti
Kökubasar í Kjarnanum á föstudag
Föstudaginn 2. desember verður 4. flokkur kvenna í handbolta með kökubasar í Kjarnanum frá kl. 13. Til sölu verða tertur, smákökur, lagkökur o.fl. Kökubasar þessi er liður í fjáröflun stelpnanna fyrir ferð á Norden Cup í handbolta nú um jólin.
30.11.2011 | Handboltaakademía
Stelpurnar í mfl. kvenna komust aftur á sigurbraut í gærkvöldi þegar þær unnu lið ÍR í Austurbergi 25-20. Staðan í hálfleik var 13-12 fyrir Selfoss.
28.11.2011 | Handboltaakademía
Um helgina spiluðu bæði liðin útileiki. A liðið mætti liði Aftureldingar og B liðið fór á Ásvelli. Báðir leikirnir unnust. A liðið vann 18-10 og B liðið vann 18-15. Góð helgi hjá stelpunum að þessu sinni.
27.11.2011 | Handbolti
Selfoss-2
í 3. flokki lék gegn Fram 2 í dag. Leikurinn var magnaður af hálfu Selfoss
liðsins sem vann Framara 25-14 eftir að hafa leitt 15-8 í hálfleik. Baráttan og
liðsheildin hjá Selfyssingum skilaði þessum sigri en saman eru leikmenn að búa
til eitt öflugasta varnarlið sem sést hefur lengi.
27.11.2011 | Handbolti
Bæði liðin í 4. flokki karla
léku gegn HK í gær. Óhætt er að segja að
leikirnir hafi verið mjög ólíkir. A-liðið sigraði 30-17 eftir að hafa
leitt
13-8 í hálfleik. B-liðið hins vegar gerði jafntefli 25-25 eftir að hafa
lent í nær vonlausri stöðu í fyrri hálfleik þegar gestirnir komust 4-13
yfir. Spilamennskan hjá báðum liðum var góð
lengst af og leikirnir lærdómsríkir um hvað sé mögulegt.
26.11.2011 | Handboltaakademía
Í dag var leikur gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Fram í Vallaskóla. Þrátt fyrir að það hafi vantað tvo landsliðsmenn í Framliðið þá er það engu að síður mjög vel mannað. Selfoss hafði sigur þrátt fyrir að spila talsvert frá sínu besta 28-25.
25.11.2011 | Handbolti
Um helgina fara fram 6 handboltaleikir í íþróttahúsi Vallaskóla. Meistaraflokkur ríður á vaðið í kvöld með leik gegn ÍR kl. 19:30. Á laugardag leika 4. flokkur (bæði lið) og 3. flokkur A þrjá leiki í röð en fyrsti leikur þann daginn er kl. 12:15. Á sunnudag leika 3. flokkur B og 2. flokkur.
Tímasetningarnar á leikjunum eru hér fyrir neðan. Hvetjum við fólk að sjálfsögðu til að mæta og styðja við bakið á okkar mönnum.
23.11.2011 | Handboltaakademía
Í gærkvöldi mættu stelpurnar í meistaraflokki Víkingi sem er sterkasta liðið í deildinni á útivelli. Reyndar gerði Selfoss sér lítið fyrir og vann Víking í bikarnum fyrir viku. Þetta var samt hörkuleikur sem Víkingar þurftu svo sannarlega að hafa fyrir.
22.11.2011 | Handbolti
2. flokkur tapađi
Okkar menn í 2. flokki fóru sneypuför yfir heiðina er þeir sóttu Gróttu heim. Selfoss sá aldrei til sólar í leiknum og tapaði 41-27. Staðan í hálfleik var 22-11 fyrir heimamenn. Grótta var sterkari á öllum sviðum leiksins og eins var barátta, vilji og þor allt þeirra megin. Okkar menn verða vonandi búnir að koma sér í réttan gír fyrir næsta leik sem er heima gegn Fram næsta sunnudag kl. 16.00
21.11.2011 | Handbolti
A-liðið í 4. flokki fór og heimsótti KR í Vesturbæinn í gær. Var þar um hörkuleik sem var nokkuð kaflaskiptur. KR-ingar leiddu 15-14 í fyrri hálfleik en lokatölur urðu 29-29 jafntefli í leik þar sem Selfyssingar náðu sér ekki á strik.
21.11.2011 | Handbolti
Selfoss-2 í 3. flokki lék einnig gegn Gróttu á laugardag í miklum baráttuleik þar sem sterkar varnir voru í aðalhlutverki. Til að mynda var einungis 1 mark skorað fyrstu 10 mínútur leiksins. Selfyssingar voru ekki nægilega beittir framan af og misstu Gróttu framúr sér. Mest komust heimamenn í Gróttu fimm mörkum yfir í fyrri hálfleik. Selfoss minnkaði í fjögur fyrir hlé en staðan í hálfleik var 10-6.
20.11.2011 | Handboltaakademía
Í hádeginu í dag mættu stelpurnar liði HK2 í Digranesi. HK liðið er skipað mjög sprækum stelpum í góðu formi sem spila mjög hraðan og skemmtilegan handbolta. Selfoss hafði engu að síður betur að þessu sinni 26-33. Staðan í hálfleik var 10-17 fyrir Selfoss.
20.11.2011 | Handboltaakademía
Á laugardag (í gær) mættust þau tvö lið í 1. deild 3. flokks karla sem höfðu enn ekki tapað leik þannig að um sannkallaðan toppslag var að ræða. Grótta er með þó nokkra landsliðsmenn og mjög gott lið þannig að það var ljóst að um hörkuleik yrði að ræða.
19.11.2011 | Handboltaakademía
Í gærkvöldi spiluðu bæði A og B lið 4 flokks kvenna í Vallaskóla. A liðið mætti ÍR og B liðið Fram. Báðir leikirnir unnust. A liðið vann 28-16 og B liðið 15-14.
17.11.2011 | Handbolti
Búið hefur verið til sérstakt myndband um 3. flokk karla í handboltanum. Það er stórskyttan Egidijus Mikalonis sem á veg og vanda að gerð myndbandsins en þar eru leikmenn Selfoss-2 í 3. flokki kynntir til leiks. Myndbandið er meðal annars frá leik Selfoss og Þróttar á dögunum sem Selfyssingar unnu 43-26. Við hvetjum alla til að horfa á myndbandið og kynnast flokknum en sagan segir að fleiri myndbönd frá handboltanum séu væntanleg!
16.11.2011 | Handboltaakademía
Í gærkvöldi þá komst Selfoss í 8-liða úrslit í Bikarkeppninni með því að leggja lið Víkings á útivelli 25-27. Staðan í hálfleik var 16-14 fyrir Víking. Dregið verður í hádeginu í dag (miðvikudag) og nú eru bara lið í N1 deildinni eftir í keppninni þannig að það er öruggt að Selfoss fær heimaleik.
14.11.2011 | Handboltaakademía
Á sunnudag gerðu stelpurnar í 3. flokki sér lítið fyrir og unnu Val sannfærandi á útivelli með 31 marki gegn 23. Valur er með gott lið og því var sigurinn sætur. Staðan í hálfleik var 12-13 fyrir Selfoss.
14.11.2011 | Handbolti
Kynning, sala og afhending á Ullmax vörum í Tíbrá
Stelpur í 4. flokki í handboltanum og foreldrar þeirra eru að selja Ullmax útivistarfatnað sem fjáröflun fyrir keppnisferð á Norden Cup í handbolta sem fer fram í Gautaborg 27.-30 desember. Í tilefni þess verður kynning, sala og afhending á Ullmax vörum í Tíbrá fimmtudaginn 17. nóvember kl. 19-21. Allir eru velkomnir.
14.11.2011 | Handbolti
2. flokkur tapađi heima fyrir Haukum
Selfyssingar í 2. flokki töpuðu í gær 26-28 fyrir Haukum úr Hafnarfirði. Okkar menn leiddu í hálfleik 13-12 og komust yfir 19-15 en þá kom 11-1 kafli Haukum í vil. Selfoss lék af 20% getu í leiknum í gær og þurfa að taka til í sínum ranni. Meira getur síðuritari ekki skrifað um leikinn.
13.11.2011 | Handboltaakademía
Í gær kom 3. flokkur Hauka í heimsókn í Vallaskóla og léku við Selfoss 1. Selfoss vann leikinn 30-25 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 17-14. Haukar eru með fínt lið og þurftu okkar strákar virkilega að hafa fyrir sigrinum að þessu sinni.
13.11.2011 | Handboltaakademía
Stelpurnar í meistaraflokki kvenna spiluðu á föstudagskvöldið gegn HK 3 og höfðu sigur á heimavelli 36-26 en staðan í hálfleik hafði verið 21-15 fyrir okkar stelpur.
13.11.2011 | Handbolti
Bæði liðin í 4. flokki karla mættu Haukum í Sólvallaskóla á laugardag. Selfoss-liðin áttu góðan dag og sigruðu báða leikina. A-liðið vann 33-24 og B-liðið 22-18. Í A-liðum mætti Selfoss liðið frábærlega undirbúið í leikinn og komst 6-0 yfir. Selfyssingar héldu uppteknum hætti á næstu mínútum eftir það og leiddu 13-4 eftir 17 mínútur.
11.11.2011 | Handbolti
Selfoss 2 vann mjög góðan sigur á Þrótti í gærkvöldi í 3. flokki. Selfoss strákarnir byrjuðu leikinn af krafti og komust strax þremur mörkum yfir. Eftir korters leik var Selfoss komið i 9-3 og aldrei spurning hvort liðið myndi sigra eftir það. Liðið bætti við muninn í fyrri hálfleik og leiddi 21-10 í hálfleik. Í síðari hálfleik bættu Selfyssingar við muninn og unnu að lokum 43-26 sigur.
10.11.2011 | Handbolti
Alls verða átta handboltaleikir á Selfossi frá og með deginum í dag og fram
á sunnudag. Selfoss-2 í 3. flokki ríður á vaðið í kvöld.
Meistaraflokkarnir báðir leika á föstudagskvöldinu. Á laugardag er
heimaleikjadagur þar sem 4. flokkur A og B sem og 3. flokkur spila þrjá
leiki í röð. Á sunnudeginum leika svo 4. flokkur kvenna B og 2. flokkur
karla.
Tímasetningar eru hér fyrir neðan en tilvalið væri fyrir fólk að mæta á leikina og styðja við bakið á handboltaliðunum okkar.
8.11.2011 | Handboltaakademía
Leikmenn 2. flokks sóttu Fram heim í gærkvöld og höfðu sigur 31-28 eftir að hafa verið undir 14-15 í hálfleik. Okkar menn sýndu styrk sinn þegar mikið reyndi á þá í gær og stóðust álagið. Því fer fjarri að öll lið sæki sigur í Safamýrina og var þetta því afar góður sigur okkar drengja.
8.11.2011 | Handboltaakademía
Stelpurnar í 3. flokki fóru til Akureyrar á sunnudaginn og spiluðu þar við KA/Þór. Leikurinn tapaðist 26-20 en staðan í hálfleik var 10-11 fyrir Selfoss.
5.11.2011 | Handboltaakademía
Bæði A og B liðin hafa spilað tvo leiki undanfarið. Síðustu helgi og svo aftur í dag. A liðið tapaði úti fyrir Fram og vann ÍBV heima en B liðið tapaði báðum útileikjunum sínum.
3.11.2011 | Handbolti
Flestum er tengjast handbolta á Selfossi er orðið ljóst að völlurinn í íþróttahúsi Vallaskóla stenst ekki reglugerðir. Í haust veitti stjórn Handknattleikssambands Íslands handknattleiksdeild Umf. Selfoss eins árs undanþágu fyrir völlinn í íþróttahúsi Vallaskóla, en völlurinn er ekki rétt merktur. Einnig er gólfflötur hússins ekki nægjanlega stór. Vallarhelmingarnir eru misstórir og breidd vallarins 55 sm of stutt. Eins er of lítið pláss frá hliðarlínum og að hliðarveggjum hússins. Það gefur því auga leið að húsið verður alltaf ólöglegt til handknattleiksiðkunar þó svo að völlurinn verði settur í rétta stærð.
2.11.2011 | Handbolti
Selfyssingar fengu Víkinga í heimsókn síðastliðinn föstudag. Tapaðist sá leikur en bilið var 5-7 mörk stærstan part leiksins og áttu Selfyssingar lítla möguleika. Varnarleikurinn varð okkur að falli en hann var arfaslakur allan tímann og skoruðu Víkingar alltof mörg auðveld mörk.
2.11.2011 | Handbolti
Einar Sverrisson leikmaður Selfoss hefur verið valinn í landslið Íslands skipað leikmönnum fæddum 1992 og 1993. Einar fer til Noregs á morgun ásamt félögum sínum í liðinu og leikur liðið þar þrjá leiki, gegn Noregi, Svíþjóð og Tékklandi.
31.10.2011 | Handbolti
Selfyssingar í 2.flokki í handbolta sóttu HK-inga heim í Digranesið síðastliðinn laugardag og sóttu tvö stig eftir öruggan 30-23 sigur. Selfoss leiddi í hálfleik 16-9.
30.10.2011 | Handbolti
4. flokkur karla fór til Vestmannaeyja um helgina og lék þar tvo leiki við heimamenn. Í A-liðum vannst karakters sigur 22-23 þar sem góður varnarleikur skóp sigurinn. Í B-liðum var jafnt í hálfleik en í síðari hálfleik keyrði ÍBV yfir okkar menn og vann 27-20.
29.10.2011 | Handboltaakademía
Í gær unnu strákarnir lið ÍBV í Vallaskóla 33-24. Staðan í hálfleik var 17-11 fyrir Selfoss. Þrátt fyrir að liðið hafi ekki spilað sinn besta leik þá vannst samt sigur og það er alltaf gaman að vinna.
27.10.2011 | Handboltaakademía
Breyttur leiktími í 3. flokki karla
Við viljum vekja athygli á því að leikur Selfoss og ÍBV í 3. flokki karla verður á morgun kl. 16:30 en ekki kl. 21:00 eins og upphaflega stóð til. Við biðjum fólk um að koma og styðja strákana í þessum leik og svo meistaraflokkinn í beinu framhaldi, en þeir leika gegn Víkingi í 1. deildinni strax á eftir kl. 19:30. Áfram Selfoss!
26.10.2011 | Handbolti
Selfyssingar fengu ÍR-inga í heimsókn seinasta mánudag. Fór svo að leikurinn tapaðist eftir hörkuspennandi lokamínútur. Selfyssingar voru í vænlegri stöðu þegar um 15 mínútur voru eftir af leiknum en töpuðu þeirri forystu niður á klaufalegan hátt og leikurinn endaði 26-28 ÍR-ingum í vil.
24.10.2011 | Handbolti
Bikarleikur viđ ÍR í Vallaskóla í kvöld kl. 19:30

Selfoss fær ÍR í heimsókn í kvöld í íþróttahús Vallaskóla þar sem liðin mætast í Eimskips bikar karla. Hefst leikurinn kl. 19:30. Fastlega má búast við hörku leik - eins og bikarleikir eru oft. Liðin áttust við í Seljaskóla í 1. deildinni um daginn og lauk þeim leik með jafntefli 27:27 eftir að Selfoss hafði verið undir 16:12 í hálfleik. Nú er um að gera að mæta í Vallaskóla, upplifa stemninguna á pöllunum og hvetja strákana til sigurs. Áfram Selfoss!
19.10.2011 | Handboltaakademía
Strákarnir í 3. flokki mættu Aftureldingu á útivelli í gærkvöldi og unnu þar sætan sigur á mjög öflugu liði heimamanna 24-29. Staðan í hálfleik var 17-14 fyrir heimamenn.
17.10.2011 | Handboltaakademía
Stelpurnar í Mfl. gerðu sér lítið fyrir og unnu Fylki í síðasta leik gærdagsins. Fylkisliðið er mjög vel spilandi og með frábæran markmann og því er sigurinn mjög sætur.
17.10.2011 | Handboltaakademía
Fyrsti leikur A liðsins og annar leikur B liðsins fóru fram i gær í Vallaskóla. Þetta voru tveir fyrstu leikir dagsins af alls 5 leikjum sem fóru fram í húsinu.
17.10.2011 | Handbolti
4. flokkur karla (A og B) lék í gær gegn FH í Vallaskóla á svokölluðum Heimaleikjadegi. Fjölmennt var í húsinu allan daginn og var gaman að sjá hversu vel Selfoss liðin voru studd af áhorfendum. A-liðið reið á vaðið og sigraði FH-inga 26-25 í há dramatískum leik eftir að hafa verið 12-16 undir í hálfleik. B-liðið vann einnig 26-25 en þeir voru 14-11 yfir í hálfleik.
15.10.2011 | Handbolti
Við minnum á heimaleikjadag í Vallaskóla á morgun, sunnudag, en þá munu
fara fram fimm leikir í handboltanum. Fyrst leika 4. flokkur kvenna
(bæði lið), þá næst 4. flokkur karla (bæði lið) og í lokin spilar
meistaraflokkur kvenna. Fyrsti leikur hefst kl. 13:30 og verða leikirnir
hver á eftir öðrum eftir það. Hér eru tímasetningar á öllum
leikjunum...
14.10.2011 | Handbolti
Selfoss-2 í 3. flokki mætti A-liði FH í gær í fyrsta leik tímabilsins.
FH-ingar eru með hörkulið og unnu leikinn nokkuð örugglega 17-31 eftir
að hafa leitt 7-17 í hálfleik.
14.10.2011 | Handbolti
Vegna orðróms sem uppi hefur verið vegna brotthvarfs okkar bræðra frá handknattleiksdeild Selfoss viljum við koma eftirfarandi á framfæri:
12.10.2011 | Handboltaakademía
Í gær var fyrsti leikur 3. flokks kvenna í Vallaskóla gegn FH2. Leikurinn fór 36-21 fyrir Selfoss eftir að staðan í hálfleik hafði verið 15-9. Vörn og markvarsla var mjög góð allan leikinn og mikil barátta í stelpunum. Hraðaupphlaupin gengu betur og betur eftir því sem leið á leikinn. Sóknarleikurinn var ágætur þrátt fyrir að lítið sé búið að vinna í honum enn sem komið er.
10.10.2011 | Handboltaakademía
Í gær hófst Íslandsmótið hjá 4. flokki kvenna. B-liðið mætti þá Fram á útivelli. Framliðið var talsvert sterkara að þessu sinni og vann 24-15. Staðan í hálfleik var 10-6 fyrir Fram.
10.10.2011 | Handbolti
Selfoss vann tvöfaldan sigur á Akureyrarmótinu um síðustu helgi í 6. flokki drengja og stúkna yngra ár. Mótafyrirkomulagið er þannig að leikin eru fimm fjölliða mót þar sem öll liðin á landinu koma saman og besti samanlagður árangur veitir Íslandsmeistaratitil.
9.10.2011 | Handboltaakademía
Nú eru allir flokkar Selfoss að hefja leik á Íslandsmótinu. Flestir spila sína fyrstu leiki í síðustu eða þessari viku. Selfoss er með öll sín lið í öllum flokkum í efstu deild. Sunnudaginn 16 .október verða 4 leikir hjá liðunum í 4. flokki í Íþróttahúsi Vallaskóla. A og B lið karla og kvenna verða í eldlínunni og að auki verður fyrsti heimaleikur meistaraflokks kvenna um kvöldið.
8.10.2011 | Handboltaakademía
Stelpurnar okkar eru ekki í N1 deildinni en þær eru í deildinni fyrir neðan. Þar hófst Íslandsmótið í gærkvöldi með leik FH og Selfoss í Kaplakrika. Stelpurnar stóðu sig með prýði og unnu sigur 26-28 á spræku FH liði.
7.10.2011 | Handboltaakademía

Í gær hófst Íslandsmótið í 3 flokki karla með leik Selfoss og Fjölnis í Vallaskóla. Selfoss liðið byrjaði mótið vel og vann góðan sigur 39-21. Staðan í hálfleik var 17-8.
6.10.2011 | Nýjustu fréttir
Í kvöld fer fram fyrsti heimaleikur meistaraflokks Selfoss í 1. deildinni. Leikið verður gegn ÍBV og hefst hann kl. 18:30. Um mikilvægan leik er að ræða enda er ÍBV spáð efsta sætinu í 1. deildinni. Þar sem að einungis eru 6 lið í deildinni og fjórföld umferð leikin þá skipta innbyrgðis viðureignir miklu máli. Hvetjum við alla til að mæta því þetta verður heljarinnar skemmtun eins og vanalega. Á eftir leiknum er annar handboltaleikur þar sem 3. flokkur karla tekur á móti Fjölni. Sá leikur hefst kl. 21.
6.10.2011 | Handbolti
4. flokkur karla lék í gær sinn fyrsta leik í deildinni í vetur gegn Aftureldingu. Leikurinn fór fram í Vallaskóla og voru þó nokkrir áhorfendur mættir til að horfa á strákana. Þó hefði verið gaman að sjá fleiri mæta enda var leikurinn hin mesta skemmtun fyrir áhorfendur. Selfoss vann 11 marka sigur, 30-19 eftir að hafa leitt 14-8 í hálfleik. Selfyssingar fara því vel af stað í vetur.
4.10.2011 | Handbolti
Í vikunni leika 4. og 3. flokkur karla sína fyrstu heimaleiki á Íslandsmótinu í handknattleik. Strákarnir í 4. flokki leika gegn Aftureldingu og 3. flokkurinn gegn Fjölni, en báðir leikirnir fara fram í Vallaskóla. Við hvetjum fólk til að mæta og styðja við bakið á okkar drengjum sem ætla sér að leggja sig alla fram í vetur og sýna mikla leikgleði á vellinum. Miðvikudagur 5. október - kl. 20:00 - Selfoss - Afturelding (4. fl. karla). Fimmtudagur 6. október - kl. 21:00 - Selfoss - Fjölnir (3. fl. karla).
3.10.2011 | Handbolti
Selfyssingar fengu erfiða andstæðinga í fyrstu umferð 1. deildarinnar er þeir fóru í Garðabæinn og heimsóttu Stjörnunna. Stjörnunni er af mörgum spá beint upp í N1 deildina því augljóst að um verðugt verkefni var að ræða. Svo kom á daginn að Selfyssingar spiluðu ekki nægilega góðan leik og lágu því þeð 6 marka mun, eða 29-23.
30.9.2011 | Nýjustu fréttir
Systkinaafsláttur á milli deilda og fyrir ţá sem ćfa fleiri en eina grein
Á fundi aðalstjórnar Umf. Selfoss sem haldinn var 7. september 2011 var ákveðið að félagið myndi veita systkinaafslátt á milli deilda fyrir tímabilið september - desember 2011 og janúar - maí 2012. Systkinaafsláttur er 1.000 kr. á mánuði fyrir fyrir 2. og 3. barn og gildir fyrir fjölskyldur þar sem börn æfa ekki öll sömu íþróttagrein. Afslátturinn gildir einnig fyrir börn sem æfa fleiri en eina íþróttagrein. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri á skrifstofu Umf. Selfoss.
30.9.2011 | Handbolti
Fyrsti leikur meistaraflokks Selfoss í 1. deild karla í handboltanum verður í kvöld og er hann gegn Stjörnunni í Mýrinni í Garðabæ. Hefst leikurinn kl. 20:00. Auk Selfoss og Stjörnunnar eru í 1. deild karla Fjölnir, ÍBV, ÍR og Víkingur. Þar sem liðin eru aðeins sex verður leikin fjórföld umferð. Fyrsti heimaleikurinn er gegn ÍBV fimmtudaginn 6. okt kl. 18:30. Nú er um að gera að setja sig í rétta gírinn og fylgjast með handboltastrákunum.
16.9.2011 | Handbolti

Það styttist óðum í að tímabilið hefjist í handboltanum. Undirbúningur
Selfyssinga stendur nú sem hæst og menn að koma sér í sitt besta form
fyrir veturinn. Heimasíðan tók viðtal við Hörð Bjarnarson fyrirliða
Selfoss liðsins og kannaði stöðuna á liðinu. Hörður sagðist vera
spenntur fyrir vetrinum og hafði trú á ungu liði Selfyssinga.
12.9.2011 | Handboltaakademía

Á laugardaginn spilaði 4. flokkur kvenna í forkeppni fyrir Íslandsmótið í Vallaskóla. Andstæðingarnir voru KA/Þór og Fjölnir. Stelpurnar unnu báða leikina og spila því í 1. deild í vetur. KA/Þór fer í milliriðil og Fjölnir spilar í 2. deild.
12.9.2011 | Handbolti
4. flokkur karla vann forkeppni sína sannfærandi um helgina. Liðið lék
tvo leiki á sunnudag, fyrri gegn KR og sá síðari gegn Val. Gegn KR leiddi Selfoss frá byrjun en náði ekki að hrista KR-inga frá
sér fyrr en eftir 15 mínútna leik þá jók liðið muninn úr einu marki í fjögur og
leiddi 12-8 í hálfleik
9.9.2011 | Handbolti
4. flokkur karla og kvenna leika um helgina í forkeppni fyrir veturinn en bæði lið halda sína riðla á Selfossi. Stelpurnar leika á laugardag og strákarnir á sunnudag. Leikir Selfoss liðanna fara fram báða daga klukkan 14 og 15 í Vallaskóla og er um að gera fyrir fólk að kíkja á leikina. Nánara leikjaplan er hér...
9.9.2011 | Handbolti
Sameiginlegur foreldrafundur hjá yngri flokkum í handbolta verður miðvikudaginn 14. september kl. 18:00 í Iðu íþróttahúsi FSu.
8.9.2011 | Handbolti
Heimasíðan tók Arnar Gunnarsson nýráðinn meistaraflokksþjálfara í viðtal og spurði hann spjörunum úr. Arnar hefur starfað lengi í kringum handboltann á Selfossi og er nú á sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari meistaraflokks. Hann segist m.a. vera stoltur að því að geta stillt upp liði sem einungis er skipað heimamönnum og að þeir muni leggja sig alla fram á komandi tímabili.
6.9.2011 | Handbolti
Strákarnir fæddir 1997 í handboltanum sem fóru á Falk Elite Turnering mótið um seinustu helgi enduðu í 2. sæti. Liðið vann alla leiki sína í riðlinum örugglega og svo Norrköping í undanúrslitum 25-19. Í úrslitaleiknum mætti liðið Silwing/Troja sem kemur frá Stokkhólmi en Selfoss hafði unnið það lið áður í mótinu sannfærandi.
5.9.2011 | Handboltaakademía
Í gær fór fram forkeppni í 3. flokki karla í Vallskóla. Selfoss var í B-riðli og fékk að halda keppnina á heimavelli vegna góðs árangurs í deildarkeppninni í fyrra. Önnur lið í riðlinum voru ÍR og frændur okkar úr ÍBV.
5.9.2011 | Handbolti
Ragnarsmótinu lauk með úrslitaleikjum á laugardaginn. HK-ingar báru sigurorð af Haukum í úrslitaleiknum 29:21. Fram vann Selfoss 28:24 í leik um 3. sætið og Afturelding vann Gróttu 32:30 í leik um 5. sætið. Úrslit og viðurkenningar á mótinu má sjá hér að neðan.
4.9.2011 | Handbolti
Selfoss liðið sem leikur í 1997 keppninni á Falk Elite Turnering mótinu í Noregi er komið í úrslit eftir 6 marka sigur, 25-19, á Norrköping í undanúrslitum. Kl. 14:45 að íslenskum tíma mætir liðið Silwing/Troja í úrslitaleik. Selfyssingar unnu sama lið í riðlakeppninni í gær og stefna á sigur á mótinu.
Áfram Selfoss!
2.9.2011 | Handbolti
Strákarnir fæddir 1997 unnu í dag fyrsta leikinn á Falk Elite Turnerning mótinu í Noregi. Lokatölur urðu 22-18 sigur Selfoss. Liðið leikur tvo leiki á morgun í riðlakeppninni,
Á heimasíðu strákanna
http://selfossnorden.wordpress.com/ er hægt að lesa nánar um leikina og ferðina almennt. Strax í hálfleik eru hálfleikstölur uppfærðar og eftir lokatölur koma inn um leið og leik líður.
1.9.2011 | Handbolti
Haukar og HK međ sigra í fyrstu leikjum Ragnarsmótsins
Ragnarsmótið hófst í gær með tveimur leikjum. Í fyrri leiknum unnu Haukar Fram 28:22 og í þeim síðari unnu HK-ingar Aftureldingu 31:24. Í dag fimmtudag 1. sept eigast við HK og Selfoss í fyrri leiknum kl. 18:30 og síðan Haukar og Grótta kl. 20:00. Aðgangur að leikjunum er ókeypis og því um að gera að skella sér í íþróttahús Vallaskóla og sjá skemmtilegan handbolta.
31.8.2011 | Handbolti
Eins og kom fram eru strákarnir fæddir 1997 í handboltanum á leið til Noregs á handboltamót. Liðið er með sér heimasíðu þar sem fréttir munu koma frá ferðinni og verður uppfært hvernig gengur.
Slóðin á síðuna er sú sama og er liðið fór á Norden Cup um seinustu jól:
http://selfossnorden.wordpress.com/
30.8.2011 | Handbolti
Um seinustu helgi fór 4. flokkur karla í æfingaferð til Vestmannaeyja. Ferðin var liður í undirbúningi fyrir keppnistímabilið sem er handan við hornið. Í ferðinni æfðu Selfyssingar auk þess að leika tvo æfingaleiki við ÍBV. Æfingarnar voru góðar og árangursríkar en þar var farið í hluti í leik Selfoss liðsins sem lagðir verða upp í vetur. Í leikjunum var skipt í tvö lið og sigruðu Selfyssingar báða leikina gegn heimamönnum.
29.8.2011 | Handbolti
Strákarnir fæddir 1997 í handboltanum halda á fimmtudaginn til Noregs á mjög sterkt handboltamót sem haldið er í Horten skammt frá Osló. Mótið, sem nefnist Falk Elite Turnering, fer fram frá föstudegi til sunnudags. Mótið hefur verið haldið árlega fyrir þennan aldur undanfarin ár. Selfoss strákunum var boðið á mótið í kjölfarið af þátttöku sinni á Norden Cup um síðastliðin jól þar sem þetta sama Selfoss lið fékk silfurverðlaun.
29.8.2011 | Handboltaakademía
Strákarnir í 3. flokki hafa æft af kappi að undanförnu fyrir komandi keppnistímabil. Strax um næstu helgi mun flokkurinn leika í forkeppni fyrir veturinn en á sunnudag verður riðill þeirra leikinn á Selfossi. Þar munu ÍBV og ÍR leika við okkar menn um sæti í efri deild fyrir veturinn.
22.8.2011 | Handboltaakademía
Handboltaæfingar hófust mánudaginn 22. ágúst. Hér fyrir neðan eru æfingatímar yngri flokka.
24.7.2011 | Handbolti
Elvar Örn Jónsson, Hergeir Grímsson og Ómar Ingi Magnússon fóru á dögunum í handboltaskóla Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi. Æft var nokkrum sinnum á dag í fimm daga auk þess sem fundir voru utan æfinga og annað í þeim dúr. Þá komu leikmenn frá Rhein-Neckar í heimsókn og voru spurðir spjörunum úr.
20.7.2011 | Handbolti
Búið er að raða niður leikjum fyrir Ragnarsmótið 2011. Mótið verður það 22. í röðinni og fer fram dagana 31. ágúst - 3. september. Heimasíðan mun fylgja þessu móti eftir sem og liðinu okkar á næstu dögum og vikum. Liðin sem taka þátt eru: A-riðill: Fram, Haukar og Grótta, B-riðill: Selfoss, HK og UMFA.
20.7.2011 | Handbolti
Handknattleiksdeild Umf. Selfoss hefur ráðið Arnar Gunnarsson sem þjálfara fyrir meistaraflokk karla og 2. flokk karla til næstu tveggja ára. Arnar er íþróttafræðingur og kennari. Hann hefur verið þjálfari í yngri flokkum félagsins í mörg ár og hefur einnig þjálfað í Handknattleiksakademíu FSU sem styrkir liðið okkar enn meira.
15.7.2011 | Handbolti
4. flokkur Selfoss hélt fyrir skömmu á Partille Cup mótið í Svíþjóð. Mótið er lang stærsta handboltamót heims og voru tæplega 20.000 þátttakendur þetta árið. Frá Selfoss fóru 18 strákar á mótið og náði 16 ára liðið að komast í 8-liða úrslitum á mótinu eða lengst íslenskra liða í þeim aldursflokki en liðið var einungus hársbreidd frá því að komast enn lengra. 82 lið voru í 16 ára keppninni.
8.7.2011 | Handbolti
Þá er riðlakeppninni lokið og tekur útsláttarkeppnin við, en hún hefst í dag miðvikudag. Eldra liðið tapaði i fyrri leiknum i gær gegn Ystad. Lokatölur urðu 18-12 sigur þeirra. Í seinni leiknum unnu strákarnir svo landslið Singapore 36-5. Eins og úrslitin segja var sá leikur ekki erfiður fyrir okkar menn. Yngra liðið tapaði seinasta leik sínum gegn Brabrand 7-15, en okkar menn voru þungir á sár og náðu sér ekki almennilega á strik.
7.7.2011 | Handbolti
Yngra liðið spilaði í gær tvo leiki. Leikirnir voru mjög vel spilaðir af okkar hálfu lengst af og spilamennskan hjá liðinu mun betri en fyrsta daginn. I fyrri leiknum lékum við gegn Västerås fra Svíþjóð og svo gegn Kielce frá Póllandi. Baðir leikir töpuðust naumleg en okkar menn lentu i leikjum þar sem munu seint gleymast. Hin fræga "partille domgæsla" lét loksins sjá sig og var það hátið ef okkar menn voru með fullt lið inni a vellinum. Ýmist vorum við einum færri og oft tveimur færri fyrir afar venjuleg brot. Það setti nokkuð strik i reikninginn en eins og áður sagði var spilamennskan góð þann daginn þrátt fyrir úrslitin.
7.7.2011 | Handbolti
Eldra liðið (95 strákarnir plús Árni, Nikulás og Sævar) lékk í gær gegn Son HK frá Noregi en það var eini leikur þeirra i gær. Þar unnum við 19 marka sigur 23-4 eftir ad hafa verið 10-1 yfir i hálfleik. Virkilega góður leikur hjá strákunum sem spiluðu á fullu allt til enda. Varnarleikurinn var áfram mjög góður og heldur það vonandi svoleidis áfram. Í sókninni gengur boltinn vel og erum við að spila upp á góð færi.
6.7.2011 | Handbolti
Á sunnudag fór 4. flokkur karla a Partille Cup i Gautaborg sem er stærsta handboltamót heims. Selfoss er með tvö lið á mótið, eitt 15 ára lið (1996) og eitt 16 ára lið (1995). Strákarnir eru með sérstaka heimasíðu þar sem haegt er ad fylgjast med gangi mala.
slóðin á síðuna er:
http://partille2011.123.is/
28.6.2011 | Handboltaakademía
Handboltaakademía UMFS og FSu óskar eftir að ráða þjálfara til þess að sjá um líkamsþjálfun iðkenda á aldrinum 16-20 ára. Um er að ræða hlutastarf. Umsækjendur þurfa að hafa íþróttatengda menntun og/eða mikla reynslu af þjálfun. Áhugasamir eru beðnir um að senda umsókn ásamt ferilskrá á netfangið:
sebastian@nyherji.is fyrir 10. júlí.
13.6.2011 | Handbolti
Selfyssingarnir Árni Guðmundsson, Hergeir Grímsson, Nikulás Hansen Daðason, Ómar Ingi Magnússon og Sævar Ingi Eiðsson voru valdir í 15 ára landslið Íslands í handknattleik sem lék um helgina. Slegið var upp móti þar sem íslenska hópnum var skipt í þrjú lið auk þess sem 16 ára landslið Færeyja var með og spilaði við íslensku liðin. Strákarnir voru því að leika sinn fyrsta landsleik um helgina.
6.6.2011 | Handboltaakademía
Þetta tímabil hjá 2. flokki verður lengi í minnum haft fyrir æði marga misjafna hluti. Talsvert var um meiðsli leikmanna og sem dæmi léku aðeins tveir leikmanna okkar alla leikina, en það voru markmennirnir tveir. Neyddumst við Selfyssingar að draga B-liðið úr leik þar sem svo margir svo margir leikmenn meiddust í lengri eða skemmri tíma.
6.6.2011 | Handboltaakademía
Tímabilið 2010-11 hjá 3. flokki karla í handbolta var afar skemmtilegt og óhætt að segja að mikla framfarir hafi orðið hjá leikmönnum flokksins. Flokkurinn samanstóð af gríðarlega skemmtilegum hópi ungra drengja sem tilbúnir eru að leggja mikið á sig til að ná árangri.
2.6.2011 | Nýjustu fréttir
Fjölmenni var á íþróttavallarsvæðinu við Engjaveg í dag er haldið var upp á 75 ára afmæli Ungmennafélags Selfoss. Dagskráin hófst um kl. 11 með leikjum og ýmsu sprelli. Þar gátu ungir sem aldnir tekið þátt í fótbolta, frjálsum og fimleikum. Einnig sýndu taekwondoiðkendur og þjálfarar ýmsar æfingar og spörk sem hægt var að spreyta sig á. Á eftir var öllum boðið upp á grillaðar pylsur og Kókómjólk. Í gærkvöldi var haldin hátíðasamkoma í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Þangað var boðið stjórnum allra deilda félagsins, heiðursfélögum og öðrum velunnurum félagsins.
1.6.2011 | Handboltaakademía
Nú þegar Handboltaakademían hefur verið starfrækt í 5 ár með góðum árangri hefur verið ákveðið að gera breytingar á ýmsum þáttum starfsins. Starfið verður kynnt fyrir áhugasömum og jafnframt verður farið yfir þær breytingar sem fyrirhugaðar eru á fundinum. Við bjóðum öllum sem áhuga hafa að koma og kynna sér starfið og þær breytingar sem fyrirhugaðar eru. Kynningafundurinn verður haldinn í Tíbrá þriðjudaginn 7. júní kl. 18:00.
31.5.2011 | Nýjustu fréttir
Afmćlisveisla fyrir alla krakka á íţróttavellinum á fimmtudag
Í tilefni 75 ára afmælis Ungmennafélags Selfoss verður afmælisveisla fyrir alla krakka á íþróttavellinum við Engjaveg fimmtudaginn 2. júní. Veislan hefst með leikjum og sprelli kl. 11:00. Síðan verður pylsuveisla á eftir þ.e. kl. 12:00-13:00. Allir krakkar eru velkomnir. Á afmælisdaginn sjálfan (1. júní) mun aðalstjórn félagsins og stjórnir allra deilda koma saman í hátíðasal FSu.
23.5.2011 | Handboltaakademía

Yngriflokkaráð handknattleiksdeildar umf. Selfoss fór fram í íþróttahúsi Sólvallaskóla s.l. föstudag. Afhent voru einstaklingsverðlaun fyrir framúrskarandi árangur í vetur, einnig var myndataka af öllum liðum og hátíðinni lauk svo með heljarmikilli grillveislu. Handknattleiksdeildin vill þakka Landbankanum, SS-pylsum, Guðnabakaríi og N1 fyrir að hjálpa til við að gera lokahófið glæsilegt.
18.5.2011 | Nýjustu fréttir
Myndataka fyrir afmćlisblađiđ
Í dag miðvikudag verður myndataka í nýju knattspyrnustúkunni upp á íþróttavelli. Myndin á að prýða forsíðu afmælisblaðs félagsins sem kemur út fljótlega. Eru allir krakkar á aldrinum 5-14 ára sem hafa áhuga á að vera með á myndinni velkomnir. Allir verða að vera í Selfoss-galla, Selfoss-keppnisbúning eða í keppnisbúningi sinnar greinar. Mæting er kl. 15:45 og myndatakan kl. 16:00.
18.5.2011 | Handboltaakademía
Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar
Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður fötudaginn 20.maí í
íþróttahúsi Sólvallaskóla frá kl. 17-19. Á dagskránni er verðlaunaafhending, myndataka og grillveisla.
Foreldrar og forráðamenn eru eindregið hvattir til að mæta með krökkunum.
9.5.2011 | Handbolti
Lokahóf meistaraflokks, 2. flokks, 3. flokks og Handboltaakademíu handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður haldið í Félagslundi föstudaginn 13. maí. Húsið opnar kl. 18:00 en borðhald hefst kl. 18:30. Verðlaunaafhending og viðurkenningar.
4.5.2011 | Handbolti
2.flokkur Selfoss sótti Hauka heim í Hafnarfjörð í gærkvöld. Okkar drengir lögðu sig alla fram og börðust fram í rauðan dauðan en því miður dugði það ekki til að þessu sinni. Haukar með sína fjölmörgu landsliðsmenn höfðu sigur í hörkuleik 29 - 25 en heimamenn leiddu í hálfleik 16 - 11.
3.5.2011 | Handbolti

Selfoss vann um helgina þrjá Íslandsmeistaratitla í yngri flokkunum í handbolta. Stelpurnar í 4. flokki A unnu Fylki 21:15 í úrslitaleik og stelpurnar í 5. flokki og strákarnir í 5. flokki urðu Íslandsmeistarar eftir mót helgarinnar.
29.4.2011 | Nýjustu fréttir

Aðalfundur Ungmennafélags Selfoss fór fram í félagsheimilinu Tíbrá í gærkvöldi. Mjög góð mæting var á fundinn, en 54 fulltrúar af 57 sem höfðu rétt til setu á fundinum mættu. Að vanda var lögð fram vönduð ársskýrsla þar sem fram kom að starfið hefur aldrei verið öflugra. Á fundinum var m.a. lýst yfir ánægju með uppbyggingu íþróttamannvirkja á Selfossi og bæjaryfirvöld jafnframt hvött til að halda því starfi áfram. Einnig voru samþykktar ályktanir um bann við hvers kyns áfengisauglýsingum og hvatt til að standa vörð um við tóbaksnotkun hvers konar.
29.4.2011 | Handbolti
4. flokks lið Selfoss í karlaflokki lék gegn Gróttu í Vallaskóla á miðvikudag í undanúrslitum Íslandsmótsins. Fjölmargir áhorfendur voru mættir og studdu vel við bakið á okkar mönnum.
26.4.2011 | Handboltaakademía
Þriðji flokkur Selfoss lék í gærkvöld í undanúrslitum gegn sterku lið Fram hér heima á Selfossi. Okkar menn gáfu sig alla í leikinn en því miður þá dugði það ekki til að þessu sinni. Leiknum lauk með 16 - 19 sigri gestanna í Fram eftir að hálfleikstölur voru 4 - 7.
26.4.2011 | Handbolti
Úrslitakeppni yngri flokka stendur sem hæst þessa dagana. Á morgun,
miðvikudag, fara fram þrír stórleikir í Vallaskóla en allir leikirnir eru í
undanúrslitum.
Miðvikudagur 27. apríl - 18:00 - Selfoss - Grótta (4. flokkur karla A-lið)
Miðvikudagur 27. apríl - 19:15 - Selfoss - Grótta (4. flokkur kvenna B-lið)
Miðvikudagur 27. apríl - 20:30 - Selfoss - Valur (4. flokkur kvenna A-lið)
21.4.2011 | Handboltaakademía
2. flokkur sótti Framara heim í Safamýri í gærkvöld í 8-liða úrslitum. Heimamenn eru þar erfiðir heim að sækja og var því búist við hörkuleik. Það var svo sannarlega raunin sem endaði á þann veg að Selfoss hafði sigur 35 - 27. Í hálfleik leiddu okkar menn 16 - 15.
20.4.2011 | Handbolti
Þá eru komnar tímasetningar fyrir alla fjóra leiki Selfoss í undanúrslitum Íslandsmóts yngri flokka sem fara fram á heimavelli. Alls fara fjórir undanúrslitaleikir fram á Selfossi og er því ekki annað hægt en að taka dagsetningarnar frá tímanlega og stefna að því að mæta. Þetta eru seinustu heimaleikir Selfoss í öllum flokkum í vetur en með sigri komast liðin í úrslitaleiki sem fara fram á hlutlausum velli.
Mánudagur 25. apríl - 19:00 - Selfoss - Fram (3. flokkur karla)
Miðvikudagur 27. apríl - 18:00 - Selfoss - Grótta (4. flokkur karla A-lið)
Miðvikudagur 27. apríl - 19:15 - Selfoss - Grótta (4. flokkur kvenna B-lið)
Miðvikudagur 27. apríl - 20:30 - Selfoss - Valur (4. flokkur kvenna A-lið)
19.4.2011 | Handbolti
B-liðið í 4. flokki karla lauk keppni í gær með tveimur leikjum gegn ÍBV. Selfoss náði að sigra báða leikina. Fyrri leikurinn var frekar ójafn en þar leiddi Selfoss 17-6 í hálfleik og vann svo 32-16. Síðari leikurinn var öllu jafnari en þar vann Selfoss 25-23 eftir að hafa leitt með fjórum mörkum í hállfeik.
16.4.2011 | Handboltaakademía
3. flokkur Selfoss í handknattleik er kominn í undanúrslit eftir sigur í dag á Þrótti, 28 - 22. Í hálfleik hafði Selfoss yfir 13 - 10. Selfyssingar náðu sér seint og illa í gang sóknarlega og voru t.a.m. aðeins búnir að skora eitt mark eftir 10 mínútna leik. Vörn og markvarsla var hins vegar í afar góðum málum allan leikinn og lagði fyrst fremst grunninn að sigrinum.
15.4.2011 | Handboltaakademía
3.flokkur A liđ leikur á morgun í 8-liđa úrslitunum
Á morgun í Vallaskóla Selfossi fer fram leikur við Þróttara úr Reykjavík og er hann liður í 8-liða úrslitum HSÍ. Leikurinn hefst kl. 14:00 og hvetur heimasíðan alla sem gaman hafa af góðum handbolta að mæta og berja okkar menn augum. Sigur er miði í undanúrslit, leggjumst því öll á eitt og styðjum okkar lið. Þróttarar unnu 2.deildina sannfærandi og munu eflaust selja sig dýrt.
15.4.2011 | Handboltaakademía
Strákarnir í Selfoss-2 í 3. flokki, einnig þekktir sem 94-liðið, sóttu Valsmenn heim að Hlíðarenda í gærkvöld. Ljóst var að leikurinn yrði erfiður þar sem Valsmenn hafa leikið í 1. deild í vetur og staðið sig vel í erfiðri deild en okkar menn í þeirri neðri. Lokatölur urðu 36:24 eftir að Valsmenn leiddu 20:8 í hálfleik.
14.4.2011 | Handbolti
Strákarnir í 4. flokki léku í gær gegn Fjölni í 8-liða úrslitum Íslandsmóts 4.
flokks. Leikurinn varð aldrei spennandi en Selfyssingar unnu leikinn 36-17
eftir að hafa komist í 17-1 forystu eftir um 20 mínútna leik.
13.4.2011 | Handbolti
Við lofuðum tímasetningum á leikjunum í úrslitakeppninni hjá yngri flokkum í handbolta þegar þær væru komnar á hreint og stöndum auðvitað við það. 2. flokkur karla byrjaði á því að vinna leik sinn í gær og strákarnir komnir áfram í keppninni. Þá eru fimm lið enn eftir í 3. og 4. flokki karla og 4. flokki kvenna. Fjögur liðanna leika á heimavelli og því tilvalið fyrir fólk til að fjölmenna á leikina enda hægt að lofa mikilli skemmtun.
12.4.2011 | Handboltaakademía
Í kvöld vann Selfoss í 2.flokki lið UMFA 40 - 33. Staðan í hálfleik var 19 - 15 fyrir heimamenn í Selfoss. Selfoss náði sér ekki almennilega á strik varnarlega og markvarslan hefði einnig mátt vera ögn skárri að mati ritara. Þá kom ekkert út úr línuspilinu en þeir leikmenn er það leika fengu aðeins eitt færi allan leikinn. Margt jákvætt og gott var þó í leik okkar manna og er síðuritari alls ekki svartsýnn á framhaldið.
12.4.2011 | Handboltaakademía
Bæði lið 3.flokks enduðu deildarkeppnina í 2. sæti. 93-liðið í 1.deild og 94-liðið í 2.deild. Bæði lið hafa staðið sig vel og eiga leik nú í vikunni í úrslitakeppninni. 93-liðið tapaði gegn FH síðastliðinn föstudag og missti þannig af deildarmeistaratitlinum. Lokatölur 27 - 22.
12.4.2011 | Handbolti
Úrslitakeppni yngri flokkanna í handboltanum er nú að hefjast en þar verða lið frá Selfoss í öllum flokkum í eldlínunni. Von er á mjög skemmtilegum leikjum, en 2., 3. og 4. flokkur karla sem og 4. flokkur kvenna eiga allir heimaleiki á næstu dögum. Dagskráin næstu daga er sem hér segir........
8.4.2011 | Handboltaakademía
Okkar menn í 3. flokki B sóttu HK-inga heim í Digranesið og höfðu þar sigur 25 - 23. Í hálfleik leiddu heimamenn 13 - 10, en okkar menn komu til baka í síðari hálfleik.
6.4.2011 | Handboltaakademía
Selfoss-2 í 3.flokki tapaði gegn Þrótti í sérstökum handboltaleik í gærkvöldier leikinn var á þjóðarleikvangi okkar Íslendingar, Laugardalshöllinni. Tapaði liðið 32 - 16 eftir að hafa verið undir 15 - 8 í hálfleik.
5.4.2011 | Handboltaakademía
Selfoss-1 í 3.flokki sótti Valsara heim að Hlíðarenda í gærkvöld. Vitað mál var að um erfiðan leik yrði að ræða þar Valsmenn hafa öflugt lið og sterka einstaklinga. Fór það svo að Valur vann 31 - 27 eftir að hafa haft örugga forustu í hálfleik 21 -11.
4.4.2011 | Handbolti
A-liðið í 4. flokki karla lék sinn seinasta deildarleik á þessu
tímabili gegn Aftueldingu í gær. Selfoss lék vel heilt yfir í leiknum og vann
að lokum 31-20 sigur. Þetta er áttundi sigurleikur Selfoss í jafn mörgum
leikjum á heimavelli í vetur. Úrslitakeppnin tekur við hjá þessu liði þar sem
allt getur gerst en Selfoss drengirnir hafa unnið 6 af seinustu 7 leikjum og
fara inn í hana í fínu formi.
3.4.2011 | Handboltaakademía

Um síðastliðan helgi fór fram hið árlega Landsbankamót í handbolta á Seflossi . Nú var í fyrsta skiptið keppt í 7. flokki drengja og stúlkna 10 ára og yngri, en áður hefður verið leikið í 6. eða 5.flokki. Handknattleiksdeild Umf. Selfoss heldur mótið sem er hluti af Íslandsmeistaramótinu.
1.4.2011 | Handbolti
Selfoss tapaði í gær fyrir Val 26:19 í N1 deildinni í handbolta í gær. Á sama tíma vann Afturelding Akureyri fyrir norðan. Þar með er ljóst að Selfoss mun ekki spila í deild þeirra bestu á næstu leiktíð.
31.3.2011 | Handboltaakademía
Okkar menn í Selfoss-2 í 3.floki (94-liðið) vann UMFA-2 heima í gær 38 - 29 eftir að hafa leitt í hálfleik 19 - 16. Selfyssingar voru lengi í gang en gerðu marga góða hluti þegar leið á leikinn. Vörn liðsins var góð í síðari hálfleik og markvarsla Sölva mjög góð allan leikinn.
31.3.2011 | Handboltaakademía
Selfoss-1 (93-liðið) gerði í gærkvöld jafntefli við UMFA hér heima á Selfossi. Hvort lið skoraði 27 mörk en Selfoss leiddi með einu marki í hálfleik. 13 - 12. Lið UMFA er skipað hávöxnum leikmönnum er leika góða og þétta vörn og áttu okkar menn erfitt uppdráttar gegn henni í gær. Sér í lagi saknaði liðið Bjarnar Gíslasonar í gærkvöld.
29.3.2011 | Handbolti
Selfyssingar sýndu mikinn karakter í kvöld þegar þeir sóttu jafntefli 30:30 gegn FH í N1 deildinni í handbolta. Þetta var fjórða jafntefli Selfyssinga í röð á heimavelli. Frábær mæting var á leikinn og var stemmningin til fyrirmyndar. FH-ingar hafa verið á fleygiferð í síðustu leikjum en voru mjög sáttir með stigið í Vallaskóla í kvöld.
29.3.2011 | Handboltaakademía
Kvennalandslið Íslands skipað leikmönnum 16 ára og yngri tók þátt í undankeppni fyrir Evrópumeistaramótið í handbolta um síðastliðna helgi. Líðið var grátlega nálægt því að tryggja sér þátttöku en var að láta sér lynda 3.sæti á markamun. Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir fyrirliði hins sigursæla 4.fl. kvenna hjá Selfoss var í landsliðinu og stóð vel fyrir sínu. Annar Selfyssingur Kristrún Steinþórsdóttir lék einnig með landsliðinu en hún er í láni hjá Fylki í vetur.
28.3.2011 | Handbolti
Selfyssingar léku við Gróttu á Seltjarnarnesi í 4. flokki karla um helgina bæði í A og B liðum. Leikirnir voru afar mismunandi.
28.3.2011 | Handbolti
Selfyssingar töpuðu s.l. fimmtudag með 4 marka mun 35:31 í Safamýrinni á móti Fram í N1 deild karla í handbolta. Lokatölur gefa þó ekki rétta mynd af leiknum því hann var í járnum síðustu mínúturnar en Fram skoraði 3 síðustu mörk leiksins þegar sigurinn var í höfn.
27.3.2011 | Handboltaakademía
Selfoss-1 í 3.flokki vann HK fyrr í dag með fimm mörkum. 33 - 28 en heimamenn í Selfossi leiddu í hálfleik 17 - 13.
27.3.2011 | Handboltaakademía
Selfoss-2 í 3.flokki vann A lið Þórs öðru sinni í tímabilinu í fjörugum leik í gær á Selfossi. Lokatölur 29-24 en selfoss leiddi í hálfleik 15-14. Mestur varð munurinn átta mörk.
24.3.2011 | Handboltaakademía
Selfyssingar í 94-liðinu unnu í gær HK2 hér heima á Selfossi 46 - 26 eftir að hafa haft yfir 26 - 15 í hálfleik. Aldrei var spurning hvoru megin sigurinn endaði.
24.3.2011 | Handboltaakademía
Fram - Selfoss í kvöld
Selfoss leikur í kvöld útileik við Fram í íþróttahúsinu við Safamýri í Reykjavík. Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir okkar menn í baráttunni í N1-deildinni. Leikurinn hefst kl 19:30 og við hvetjum alla til að fjölmenna á leikinn, fyrir þá sem heima sitja verður leikurinn í beinni útsendingu á www.sporttv.is
22.3.2011 | Handboltaakademía
Fram úr Reykjavík sótti okkar menn heim um helgina og vann 38-41 eftir að hvort lið hafði skorað 18 mörk eftir fyrri hálfleik, Varnarlega náðu okkar menn sér aldrei á strik í leiknum og því fór sem fór,
22.3.2011 | Handboltaakademía
Selfoss-2 í 3.flokki vann á sunnudaginn síðastliðinn Fjölni á útivelli 25-29 eftir að staðan hafi verið 14-16 fyrir okkar menn í hálfleik. Léku okkar strákar ekki nægjanlega vel lengstum í leiknum en síðustu 20 mínútur leiksins voru afar góðar og vann Selfoss þær mínútur 10-4.
20.3.2011 | Handbolti
B-lið Selfoss í 4. flokki karla mætti ÍR-ingum í dag og unnu þar stórsigur 44-24. Selfyssingar voru í miklu stuði og flest allt gekk upp allan leikinn. Selfyssingar voru 24-10 yfir í hálfleik eftir að hafa komist 6-0 yfir í byrjun leiks.
19.3.2011 | Handbolti
4. flokkur karla mætti KA í gær í deildinni. Okkar menn voru gífurlega vel stemmdir þrátt fyrir að leikmenn vantaði í liðið. Selfyssingar kláruðu leikinn strax á upphafsmínútunum og lauk leiknum með 12 marka sigri Selfoss, 32-20 en Selfoss var 18-8 yfir í hálfleik.
18.3.2011 | Handbolti
Selfyssingar mega vel vera svekktir með að gera jafntefli 31:31 gegn Akureyri í N1 deild karla í handknattleik, eftir að hafa verið rændir sigrinum á lokasekúndum leiksins af mistækum dómurum leiksins. Leikurinn fór fram í Vallaskóla í gærkvöldi.
17.3.2011 | Handboltaakademía
Strákarnir í 3.flokki A liði halda áfram að standa sig með prýði. Í gærkvöld unnu þeir Stjörnumenn er sóttu okkar drengi heim. Endaði leikurinn 32-29 eftir að gestirnir úr Garðabæ leiddu í hálfleik 10-17. Því er óhætt að segja að kúvending hafi orðið á leik okkar manna í síðari hálfleik.
17.3.2011 | Handboltaakademía
Selfoss-2 í 3.flokki atti kappi um síðustu helgi við heimamenn í ÍBV. Eftir jafnan fyrri hálfleik þurftu okkar menn að játa sigraða með átta marka mun. Liðið á þó enn möguleika á að komast í úrslitakeppnina en deildin er afar jöfn og spennandi.
15.3.2011 | Handboltaakademía
Okkar menn í 2. flokki unnu í gærkvöld lið ÍR úr Breiðholtinu. Lokatölur voru 29-26 eftir að Selfoss leiddi 17-11 í leikhléi. ÍR-ingar náðu að minnka muninn í síðari hálfleik og komust næst heimamönnum í stöðunni 20-19 en þá skiptu okkar menn aftur um gír og náðu að knýja fram sigur.
8.3.2011 | Handboltaakademía
Selfoss-1 í 3. flokki vann topplið deildarinnar, Fram, í gærkvöld 24-22 eftir að okkar menn leiddu 10-9 í hálfleik. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann en Selfyssingar reyndust sterkari á lokakaflanum og skoruðu þrjú síðustu mörk leiksins.
7.3.2011 | Handbolti
Um helgina léku bæði liðin í 4. flokki karla. B-liðið mætti HK í Digranesi og tapaði þar eftir slakan leik 29-25 þrátt fyrir að hafa verið yfir framan af. A-liðið mætti FH1 í Vallaskóla. Selfoss var þar með undirtökin allan leikinn og vann sannfærandi sigur 34-23.
3.3.2011 | Handbolti
Það verður boðið upp á hörkuleik í beinni útsendingu á SportTV.is í kvöld úr N1 deild karla þegar viðureign HK og Selfoss verður sýnd beint. Útsending hefst kl. 19:20 en leikurinn hefst kl. 19:30. HK á í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni og Selfoss þarf á öllum mögulegum stigum að halda í harðri fallbaráttu við Aftureldingu.
28.2.2011 | Handbolti

Hér kemur myndaveisla frá sigrum Selfoss í 4. flokki karla og kvenna í
bikarúrslitum yngri flokka í gær. Selfoss vann FH 26-22 í karlaflokki og
ÍBV 33-22 í kvennaflokki.
28.2.2011 | Handbolti
Í gær fóru fram bikarúrslitaleikir í bæði 4. flokki karla og kvenna í handbolta. Í báðum leikjum átti Selfoss lið í úrslitum. Strákarnir hófu leik gegn FH og unnu þar sigur 26-22 . Stelpurnar fylgdu í kjölfarið með annan sigur, 33-22 gegn ÍBV. Þetta er í fyrsta skipti sem Selfoss vinnur Bikarmeistaratitil í handbolta.
26.2.2011 | Handbolti
Á morgun fara fram úrslitaleikirnirnir í bikarkeppni yngri flokka þennan
veturinn. Selfoss á tvö lið þar en bæði 4. flokkur karla og 4. flokkur
kvenna mun leika þar til úrslita. Leikirnir fara fram í
Laugardalshöllinni og hvetjum við fólk eindregið til að mæta á leikina
og styðja við bakið á okkar liðum.
Strákarnir ríða á vaðið og spila gegn FH klukkan 12:00
Stelpurnar fylgja í kjölfarið og spila gegn ÍBV klukkan 13:30
24.2.2011 | Handbolti

Í gærkvöldi fóru fram undanúrslitaleikir í bikarkeppni yngri flokka í handboltanum. Bæði í 4. flokki karla og 4. flokki kvenna lenti Selfoss gegn Gróttu á útivelli og voru leikirnir spilaðir hvor á eftir öðrum. Selfoss liðin spiluðu frábærlega í leikjunum og unnu sannfærandi sigra. Stelpurnar fyrst 17-25 og strákarnir næst 24-29. Bæði liðin eru því komin í sjálfan bikarúrslitaleikinn sem fer fram í Laugardalshöll næstkomandi sunnudag.
21.2.2011 | Handbolti
Lokasprettur deildarkeppninnar í N1 deild karla í handbolta hefst í kvöld þegar Selfoss tekur á móti Haukum í íþróttahúsi Vallaskóla og hefst leikurinn kl. 19:30.
21.2.2011 | Handbolti
Selfoss-2 í 4. flokki karla lék gegn toppliði Fjölnis í gær. Leikurinn
var ágætlega leikinn af Selfossi lengst af en tapaðist þó 19-21.
21.2.2011 | Handboltaakademía
2.flokkur er á hinu ágæsta róli þessa dagana sér í lagi ef meiðsli og ýmiskonar sirkus, sem birtist í hinum ýmsu myndum, er tekinn með í reikninginn. Strákarnir hafa lagt sig gríðarlega mikið fram og hafa bætt sig í hverjum leik. Liðið byrjaði reyndar illa í gær gegn ÍBV og lenti undir eftir 11 mínútna leik 2-6 en eftir það var aldrei spurning hvoru megin sigurinn endaði. Selfossi hafði yfir 14-13 í hálfleik og vann á endanum 32-23.
21.2.2011 | Handboltaakademía
Selfyssingar í 3.flokki mættu KA-mönnum síðastliðinn laugardaginn og var vitað mál að um hörkuleiki yrði að ræða. KA er afar vel þjálfað og er A lið þeirra sem dæmi komið í bikarúrslit. Einvarður Jóhannsson þjálfari er svo sannarlega að gera frábæra hluti enda vandaður og góður maður. Svo fór að A liðin skildu jöfn þar sem hvort lið gerði 33 mörk en í hálfleik var einnig jafnt, 16-16. B lið Selfoss náði að hafa sigur 25-24 en var undir eftir vægast sagt dapran fyrri hálfleik, 8-12.
17.2.2011 | Handboltaakademía
Selfoss-1 í flokki vann í gærkvöld Gróttu frá Seltjarnarnesi og það nokkuð örugglega 33-24. Heimamenn höfðu yfir 14-12 í hálfleik en Selfoss var alltaf sterkara í leiknum og náðu Gróttumenn aldrei að ógna okkar mönnum í síðari hálfleik.
14.2.2011 | Handboltaakademía
Strákarnir í 2. flokki töpuðu í hörkuleik fyrir Stjörnunni í Garðabæ í gær. Lokatölur 28-27 eftir að heimamenn höfðu yfir 15-10 í hálfleik.
14.2.2011 | Handboltaakademía
Strákarnir í 93-liði Selfoss gerðu góða fer til Hafnarfjarðar í gærkvöld er þeir unnu þar heimamenn í Haukum 34-30 eftir að hafa leitt í hálfleik 15-13.
14.2.2011 | Handbolti
Selfoss-2 í 4. flokki sigraði KR-inga í gær í leik á Íslandsmótinu. Okkar menn voru öflugri allan tímann og unnu að lokum 19-16 sigur. Í hálfleik leiddi Selfoss 8-7.
7.2.2011 | Handbolti
Selfoss lék gegn Haukum á sunnudag í 4. flokki karla í Vallaskóla, bæði A- og B-lið, en þessi lið mættust snemma í vetur og hafði þá Selfoss sigur í báðum leikjunum með einu marki. Allt annað var uppi á teningnum núna og vann Selfoss 41-19 í A-liðum, en tapaði 19-23 í B-liðum.
7.2.2011 | Handboltaakademía

Hér fyrir neðan er staðan í 2. - 5. flokki karla og kvenna á Íslandsmótinu í handbolta.
7.2.2011 | Handbolti
Eftir að hafa haft fjögurra marka forskot þegar átta mínútur voru eftir af leiknum voru Haukar stálheppnir að fara með eitt stig burt frá Selfossi sl. fimmtudag. Selfoss jafnaði 25-25 á lokamínútunni og náði í sitt fyrsta stig í N1 deildinni síðan í 2. umferð.
6.2.2011 | Handboltaakademía
Strákarnir í 2. flokki unnu sinn fyrsta heimaleik á tímabilinu og það í sjöttu tilraun. Haukar úr Hafnarfirði sóttu okkar menn heim en fóru sem betur fer fyrir Selfyssinjga tómhentir heim. Lokatölur 30-29, en í hálfleik stóð 16-14.
4.2.2011 | Handboltaakademía
Selfoss-2 í 3.flokki vann HKR í gær 37-24 og leiddu okkar menn jafnframt í hálfleik 19-9.
2.2.2011 | Handboltaakademía
Selfyssingar í 93-liðinu unnu Víkinga örugglega hér heima á Selfossi fyrr kvöld. Lokatölur urðu 35-21 eftir að heimamenn leiddu í hálfleik 19-10. Okkar menn náðu fljótlega öruggri forustu, 6-2 og 13-6 og varð leikurinn aldrei jafn.
1.2.2011 | Handboltaakademía
Stelpurnar í 4. flokki tryggðu sér sæti í undanúrslitum bikarkeppninnar með stórsigri á Fylki 22-11 í íþróttahúsi Sólvallaskóla í kvöld eftir að staðan í hálfleik hafði verið 11-4 Selfoss í vil. Selfoss hóf leikinn af krafti og náði strax öruggri forustu. Fylkisstelpurnar virtust yfirspenntar í byrjun og liðið átti engin svör við frábærum varnarleik Selfyssinga og var leikur Fylkis mjög vandræðalegur allan tímann.
1.2.2011 | Handbolti
Selfyssingar hafa bætt við sig tveimur erlendum leikmönnum fyrir lokasprettinn í N1 deild karla í handbolta. Þarna eru á ferðinni Serbinn Milan Ivancev og Litháinn Andrius Zigelis. Báðir eru þeir 25 ára gamlir, Ivancev er miðjumaður og Zigelis vinstri hornamaður. Þeir fengu leikheimild með Selfossliðinu í gær og munu leika sinn fyrsta leik fyrir félagið þegar Selfoss tekur á móti Haukum í N1 deildinni nk. fimmtudagskvöld.
1.2.2011 | Handbolti
Ungmennalið Selfoss vann frábæran sigur á ÍR í 1. deild karla í handbolta í gærkvöldi, 33-31. Það var ekki að sjá að þarna væru að mætast liðin í 2. og 6. sæti deildarinnar en Selfyssingar tóku leikinn strax í hendur sér og leiddu nær allan leikinn.
30.1.2011 | Handbolti
Bæði liðin í 4. flokki á léku á útivelli í gær. Leikir beggja liða voru
slakir og töpuðust báðir. B-liðið gegn Fylkir 19-18 og A-liðið gegn FH2 21-16.
Í báðum leikjunum byrjaði Selfoss illa og var það fyrst og fremst ástæðan fyrir
slæmu gengi.
28.1.2011 | Handboltaakademía
Selfoss-2 í 3.flokki hélt sigurgöngu sinni áfram í gærkvöld er liðið fékk ÍR2 í heimsókn. Selfoss hafði yfir 20-9 í hálfleik en hafði sigur 36-18.
27.1.2011 | Handboltaakademía
Í gærkvöld sóttu Breiðhyltingar okkar menn í 3.flokki A liði heim. ÍR-ingar höfðu ekki erindi sem erfiði og unnu okkar menn 41-18 eftir að hafa leitt í hálfleik 21-8.
26.1.2011 | Handboltaakademía
Í gær sótti 2.flokkur Selfoss Akureyringa heim. Þar eru heimamenn ávallt erfiðir viðureignar og sú varð raunin í gær. Hafðist þó sigur hjá okkar mönnum 34-31 eftir að liðin hafi verið jöfn í hálfleik, 18-18.
26.1.2011 | Handboltaakademía
Á föstudaginn síðasta lék Selfoss-2 í 3.flokki gegn Hafnfirðingum. Vannst sá leikur 24-19 en í hálfleik stóð 9-9.
26.1.2011 | Handboltaakademía
Í síðustu viku lék 2.flokkur tvo leiki gegn Val. Þann fyrri í bikarnum heima á Selfossi og hinn síðari að Híðarenda.
25.1.2011 | Handbolti
Eins og stelpurnar í 5. flokki kvenna þá unnu strákarnir efstu deildina í 5. flokki um helgina á þriðja móti vetrarins. Selfoss-1 átti mjög gott mót. Þeir unnu 4 af 5 leikjum, þrátt fyrir að vantað hafi í liðið vegna meiðsla, og unnu þannig deildina.
25.1.2011 | Handbolti

Um síðustu helgi keppti 5. flokkur kvenna á sínu þriðja móti í vetur. Selfoss-1 gerði sér lítið fyrir og vann alla sína leiki sannfærandi. Þær unnu því mótið og er það þriðja mótið sem þær vinna. Selfoss-2 spilaði í 3. deild og unnu tvo leiki en töpuðu einum og komust því ekki upp um deild.
24.1.2011 | Handbolti
Bæði liðin í 4. flokki karla léku í gær gegn Fram í Vallaskóla. Selfyssingar áttu góðan dag og náðu bæði liðin sigrum, fyrst B-liðið 25-22 (12-9 í hálfleik) og svo A-liðið 30-21 (11-11 í hálfleik).
24.1.2011 | Handboltaakademía
Nú er keppnistímabil yngri flokka í handknattleik um það bil rúmlega hálfnað. Þegar staða allra flokka er skoðuð kemur í ljós að Selfoss á lið í fremstu röð í öllum flokkum. Selfoss er með lið í efstu deild í öllum flokkum, ásamt því að tefla fram b-liði í 2.deild í öllum flokkum. Ljóst er að fá félög sem geta státað af viðlíka árangri. Auk þess urðu strákarnir í 5. flokki í öðru sæti á Norðurlandamóti félagsliða á dögunum.
20.1.2011 | Handbolti
4. flokkur karla lék í gærkvöldi við Fram 2 í 8-liða úrslit
bikarkeppninnar. Selfoss var mun sterkara og kláraði leikinn á fyrstu 15
mínútum leiksins. Liðið komst 6-12 yfir og leiddi 9-16 í hálfleik. Í síðari
hálfleik var aldrei spurning hvernig færi og lokatölur 19-25 sigur Selfoss.
20.1.2011 | Handbolti
Helgina 14.-16. janúar s.l. var Íslandsmót kvenna í 6. flokki haldið hjá Fylki. Lið Selfoss í 6. flokki kvenna yngra ár var að spila á sínu fyrsta móti í vetur, léku í 3. deild. Stelpurnar stóðu sig frábærlega, unnu þrjá leiki og gerðu eitt jafntefli. Þess má geta að í liðinu voru tvær stelpur úr 6. flokki yngra ár og fjórar úr 7. flokki.Flestar stelpurnar voru því að spila upp fyrir sig. Stelpurnar enduðu í 1.-2. sæti ásamt Gróttu.
20.1.2011 | Handboltaakademía

Heimasíðan hafði samband við þjálfara mfl. varðandi stöðuna á liðinu og gengið á æfingum núna í aðdraganda seinni hluta Íslandsmótsins. Liðið er aðeins 2 stigum frá því að komast í umspilssæti og aðeins 6 stigum frá öruggu sæti. Hins vegar eru enn 20 stig í pottinum.
19.1.2011 | Handboltaakademía
Ragnar aftur út til Gummarsbach

Ragnar var í heimsókn hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Gummersbach um síðustu helgi og æfði þar með liðinu. Ragnar stóð sig það vel að þeir vildu fá hann aftur út til þess að skoða hann betur. Ragnar fer út í fyrramálið og mun um helgina spila með þeim 2 æfingaleiki í Frakklandi. Þetta eru góðar fréttir fyrir Ragnar og viðurkenning fyrir haldboltastarfið á Selfossi. Við óskum honum alls hins besta í ferðinni.
17.1.2011 | Handboltaakademía
2. flokkur tapaði heima gegn FH í gær en liðið náði sér aldrei almennilega á flug í leiknum. Selfyssingar léku afar slaka vörn og því fór sem fór. Í hálfleik leiddi FH 21-14 og loktölur voru 41-32. FH-ingar gerðu reyndar sjö síðustu mörk leiksins.
17.1.2011 | Handboltaakademía
Selfoss-2 í 3. flokki (94-liðið) lék síðasta laugardag heima gegn Fjölnismönnum og unnu örugglega 37-24 en heimamenn leiddu í hálfleik 18-10.
16.1.2011 | Handbolti
4. flokkur karla lék gegn Stjörnunni í dag á þeirra heimavelli. Stjarnan er með eitt besta liðið í 4. flokki og mjög vel skipulagt. Það var því ljóst að um hörku leik yrði að ræða.
13.1.2011 | Handboltaakademía

Síðastliðinn fimmtudag kom landsliðsmaðurinn Logi Geirsson í heimsókn á Selfoss og stjórnaði æfingu hjá 5. fl. drengja og stúlkna, ásamt því að halda fyrirlestur um hvað þarf til að ná árangri í handbolta. Logi brýndi fyrir krökkunum mikilvægi hollrar næringar, svefns, reglusemi og mikilvægi þessa að setja sér markmið og leiðir að markmiðunum. Það voru þau Soffía Pálsdóttir og Ásgeir Vilhjálmsson sem höfðu veg og vanda að komu Loga á Selfoss....
12.1.2011 | Handbolti
Í gær mætti 4. flokkur Selfoss liði Fram í 16-liða úrslitum bikars í Framhúsinu. Leikurinn var dramatískur og spennandi en hann þurfti að tví framlengja og var enn jafnt eftir síðari framlenginguna. Var þá gripið til vítakastkeppni þar sem Selfyssingar unnu hreint magnaðan sigur 40-41 og er liðið því komið í 8-liða úrslita bikarkeppninnar í 4. flokki.
11.1.2011 | Handboltaakademía
Selfoss-1 (93-liðið) fór einnig norður um helgina en lék aðeins einn leik, gegn KA á sunnudeginum. Vitað var að um hörkuleik yrði að ræða þar sem Akureyrarliðið er vel mannað og vel þjálfað. Selfyssingar náðu að vinna 27-23 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 15-14.
11.1.2011 | Handboltaakademía
Um helgina lék Selfoss-2 í 3. flokki alls þrjá leiki á norðurlandi um helgina, tvo á Akureyri og einn á Húsavík. Strákarnir unnu Þórsara og Völsunga á laugardeginum en þurftu að játa sig sigraða gegn KA-2 á sunnudeginum. Vissulega tók það mikið á að spila þrjá leiki á innan við sólarhring, sér í lagi þar sem leikirnir við Þór og Völsung voru grófir og tóku mikið á líkamlega. Áttu strákarnir því ekki mikla orku í leiknum gegn KA-2.
8.1.2011 | Nýjustu fréttir
Ţrettándabrennan á Selfossi verđur í kvöld laugardag
Jólin verða kvödd með glæsilegri flugeldasýningu á Selfossi í kvöld laugardaginn 8. janúar 2011. Blysför verður farin frá Tryggvaskála kl. 20:00 og gengið að brennustæði við tjaldstæði Gesthúsa við Engjaveg. Jólasveinarnir koma og kveðja krakkana ásamt álfum og tröllum. Fólk er beðið um að fylgjast með veðurfréttum ef veðurspá er slæm.
7.1.2011 | Handbolti

Heimasíðan fékk sendar þónokkrar myndir frá ferðalagi 1997 liðs Selfoss í handbolta til Svíþjóðar milli jóla og nýárs þar sem liðið keppti á Norden Cup. Við birtum þær hér .
6.1.2011 | Handboltaakademía
Fh-ingar sóttu okkar menn heimi í 1. deild í 3. flokki. Mikil handboltahefð er í Hafnarfirði og er saga FH afar glæsileg og er um mikið stórveldi að ræða. Vissu okkar menn því að um erfiðan leik er að ræða, sem er reyndar raunin með alla leiki í þessari sterku deild. Fór svo að okkar menn höfðu sigur 33-30 en gestirnir leiddu þó í hálfleik 17-18.
4.1.2011 | Handboltaakademía
3.flokkur Selfoss þetta tímabilið er afar fjölmennur. Rétt um 30 strákar æfa handbolta með þessum flokki og er því nóg um að vera er kemur að samkeppni, samheldni og dugnaði. Þessi hópur er skemmtilegur að mati síðuritara og hefur hann haft gaman af því að horfa á liðin leika.
3.1.2011 | Handboltaakademía
2.flokkur telur tvö lið þetta tímabilið líkt og í fyrra. Gengi liðanna hefur verið misjanft. Selfoss-1 hefur valdið vonbrigðum það sem af er tímabils en Selfoss-2 hefur komið á óvart og unnið sem dæmi alla sína útileiki.
1.1.2011 | Handbolti
Strákarnir í Selfoss liðinu náðu ekki að sigra heimamenn í Kärra í
úrslitaleiknum á Norden Cup í Gautaborg. Leikurinn var æsispennandi
allan tímann og jafnt 15-15 þegar lítið var eftir. Fá þá Selfyssingar
brottvísun og skora Svíarnir næstu tvö mörkin. Selfoss náði ekki að
jafna eftir það og endaði leikurinn með 21-18 sigri Kärra.