Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

21.5.2012 | Handbolti

Selfoss međ nćst besta heildarárangur félaga

Yngri flokkar handknattleiksdeildar Selfoss náðu næst besta heildarárangri keppniliða á Íslandsmótinu í vetur. Síðustu 5-7 ár hefur Selfoss verið í röð allra fremstu liða. Í fyrra var Selfoss með besta samanlagðan heildarárangur en nú skaust Fram í efsta sætið. Árin tvö þar á undan varð Selfoss í öðru sæti á eftir FH.

15.5.2012 | Handbolti

Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verđur föstudaginn 18.maí

Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður haldið föstudaginn 18. maí  í
íþróttahúsi Sólvallaskóla frá  kl. 17-18. Á dagskránni er verðlaunaafhending, myndataka og grillveisla. Foreldrar og forráðamenn eru eindregið hvattir til að mæta með krökkunum.

7.5.2012 | Handbolti

Myndir af Íslandsmeisturum 2012

Eins og fram hefur komið urðu tvö Selfoss lið Íslandsmeistarar um helgina í handknattleik. 4. flokkur kvenna B vann Fylki í dramatískum leik 11-12 og 3. flokkur karla vann Val 31-25. Við birtum hér myndir af þessu frábæra íþróttafólki okkar sem á svo sannarlega framtíðina fyrir sér.

7.5.2012 | Handboltaakademía

3 f. karla varđ Íslandsmeistari um helgina

Í lokaleik laugardagsins áttust við Selfoss og Valur. Leiknum lauk með sigri Selfoss 31-25 en staðan í hálfleik var 14-13 fyrir Selfoss. Þar með unnu strákarnir 2 af 3 titlum vetrarins. Til hamingju með það strákar.

7.5.2012 | Handboltaakademía

4 fl. kvenna A liđ fékk silfriđ

Á laugardaginn þegar keppt var um Íslandsmeistaratitlana þá urðu stelpurnar í A liðinu að lúta lægra haldi fyrir liði Fram. Leikurinn tapaðist 24-17 en staðan í hálfleik var 11-7 fyrir Fram.

7.5.2012 | Handboltaakademía

4 fl. kvenna B liđ Íslandsmeistari

Á laugardaginn gerðu stelpurnar sér lítið fyrir og unnu Fylki í úrslitaleiknum 11-12 og eru því Íslandsmeistarar. Staðan í hálfleik var 5-7 fyrir okkar stelpur.

7.5.2012 | Handboltaakademía

Tveir tiltar í hús um helgina

Selfyssingar urðu um helgina Íslandsmeistarar í handbolta í 3. flokki karla og í 4. flokki kvenna-B. Úrslitaleikir í yngri flokkunum fóru fram að Ásvöllum í Hafnarfirði. Leikurinn hjá 3. flokki karla gegn Valsmönnum var spennandi lengst um og jafn framan af. Staðan var 14-13 í hálfleik en Selfoss hafði betur undir lokin og landaði að lokum öruggum sigri, 31-25. Maður leiksins var valinn Gísli Axelsson leikmaður Selfoss en hann skoraði 7 mörk í leiknum ásamt því að leiða varnarleik liðsins.

2.5.2012 | Handboltaakademía

Selfoss međ ţrjú liđ í úrslitum

Á laugardaginn fara fram úrslitaleikir yngri flokka á Íslandsmótinu í handbolta. Selfoss á fulltrúa í þremur leikjum af sjö. Selfoss átti lið í 8-liða úrslitum í öllum flokkum ásamt því að 6.flokkur varð Íslandsmeistari og 6.flokkur kvenna náði 2. sæti á Íslandsmótinu.

4.& 2. flokkur karla misstu naumlega af sæti í úrslitum en báðir þessir flokkar léku til úrslita í bikarkeppninni, þar sem 2.flokkur vann eftirminnilegan sigur.

Það er ástæða að hvetja alla að mæta á Ásvelli í Hafnarfirði og hvetja Selfoss til sigurs.

2.5.2012 | Handboltaakademía

4 fl. kvenna B liđ komst í úrslitaleikinn

Stepurnar í B liðinu fylgdu í kjölfarið á A liðinu og 3 fl. karla og tryggðu sér sæti í úrslitaleik Íslandsmótsins á laugardaginn með sigri á Fram í framlengingu 18-19.

29.4.2012 | Handboltaakademía

Strákarnir í 3. flokki A komnir í úrslit

Fyrr í kvöld unnu strákarnir í 3. flokki A sigur á Gróttu og eru því komnir í úrslitaleikinn á Íslandsmótinu. Leikurinn endaði 25-18 eftir að Selfoss hafði leitt í hléinu 14-8. Til hamingju allir Selfyssingar.

29.4.2012 | Handboltaakademía

Stelpurnar í 4. flokki A-liđa komnar í úrslit

Fyrr í dag unnu stelpurnar í 4. flokki A ótrúlega sætan sigur á ÍBV 18-17 þar sem sigurmarkið kom á lokaandartökum leiksins. Til hamingju allir Selfyssingar.

27.4.2012 | Handboltaakademía

Tveir undanúrslitaleikir í Vallaskóla á sunnudaginn

Heimasíðan vill vekja athygli á því að á sunnudag verða tveir leikir í undanúrslitum Íslandsmótsins í Vallaskóla og á þriðjudaginn 1. maí verður einn leikur á útivelli. Við hvetjum alla til að mæta og hvetja krakkana til dáða. 

25.4.2012 | Handbolti

Tímabiliđ búiđ hjá 4. fl. karla

Bæði liðin í 4. flokki karla féllu á dögunum úr leik í 8-liða úrslitum.

24.4.2012 | Handbolti

Úrslitaleikur gegn Aftureldingu

Selfoss og Alfurelding eigast við í kvöld að Varmá í þriðja leik sínum í umspili um laust sæti í N1 deild karla. Hefst leikurinn kl. 19:30. Afturelding vann fyrsta leikinn 30:25, en Selfoss jafnaði metin í öðrum leik 26:25. Þriðji leikurinn er því hreinn útslitaleikur um hvort liðið leikur við Stjörnuna um sæti í N1 deildinni. Nú er um að gera að skella sér í Mosfellsbæinn og hvetja Selfoss-strákana. Áfram Selfoss!!!

23.4.2012 | Handboltaakademía

3. fl. kvenna úr leik í 8-liđa úrslitum

Á laugardaginn töpuðu stelpurnar í 3. flokki fyrir Bikar- og Deildarmeisturum Hauka í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Leikurinn endaði 28-20 fyrir Hauka.

20.4.2012 | Handboltaakademía

4. fl. kvenna A-liđ komnar í undanúrslit

Í gær unnu stelpurnar lið HK í 8-liða úrslitum 25-14 en staðan í hálfleik hafði verið 12-7. Þær eru því komnar í undanúrslit á Íslandsmótinu.

19.4.2012 | Handbolti

Hörđur Bjarnarson: „Erum búnir ađ vera bćta okkur jafnt og ţétt í allan vetur“

Heimasíðan heldur áfram að hita upp fyrir umspilsleikina gegn Aftureldingu. Í kvöld fer fram fyrsti leikurinn í einvíginu og verður leikurinn kl. 19:30 í Mosfellsbæ.
Það er fyrirliðinn Hörður Gunnar Bjarnarson sem situr fyrir svörum að þessu sinni.

19.4.2012 | Handboltaakademía

3 fl. karla kominn í undanúrslit

Í gær unnu strákarnir lið Stjörnunnar í framlengdum leik 39-36 en staðan að venjulegum leiktíma loknum var 32-32.

18.4.2012 | Handbolti

Matthías í viđtali fyrir einvígiđ gegn Aftureldingu

Matti

Á morgun, fimmtudag, leikur meistaraflokkur karla fyrsta leikinn í umspilinu um sæti í efstu deild. Kl. 19:30 mæta Selfyssingar liði Aftureldingar í Mosfellsbæ og er von á hörku einvígi. Hvetjum við alla Selfyssinga til að mæta og styðja við bakið á strákunum sem koma inn í umspilið í toppformi.
Í upphitun fyrir leikinn fékk heimasíðan Matthías Örn Halldórsson til að svara nokkrum spurningum um einvígið.

18.4.2012 | Handboltaakademía

B-liđ 4. fl. kvenna komnar í undanúrslit

Stelpurnar unnu Gróttu í gær 23-11 og eru því komnar í undanúrslit Íslandsmótsins. Staðan í hálfleik var 9-6 fyrir Selfoss.

16.4.2012 | Handboltaakademía

Allir flokkar Selfoss í 8-liđa úrslitum

Frábær uppskera vetrarins í yngri flokkum Selfoss er að koma í ljós. Árangur félagsins í deildinni og bikarkeppninni var góður og nú eru allir flokkar félagsins komnir í 8-liða úrslit Íslandsmótsins.

16.4.2012 | Handboltaakademía

3. fl. kvenna vann Stjörnuna og eru komnar í 8-liđa úrslit

Stelpurnar spiluðu í umspili um laust sæti í úrslitakeppninni í gær og unnu lið Stjörnunnar á útivelli 23-24.

10.4.2012 | Handboltaakademía

Landsbankamótiđ í 7. flokki fer fram um helgina

handboltakallUm helgina fer fram á Selfossi hið árlega Landsbankamót í handbolta. Nú er í annað skipti keppt í 7. flokki drengja og stúlkna 10 ára og yngri. Handknattleiksdeild Umf. Selfoss heldur mótið sem er jafnframt hluti af Íslandsmeistaramótinu. Um 700 keppendur eru skráðir á mótið á Selfoss þessa helgi. Búast má við að annar eins fjöldi af foreldrum og liðstjórum heimsæki Selfoss. Alls eru 175 lið skráð til leiks, en leikið verður í íþróttahúsi Vallaskóla og Iðu. Liðin gista í Vallaskóla og eru þar í mat.

3.4.2012 | Handboltaakademía

A- og B-liđ 4. flokks kvenna unnu bćđi um helgina

A-liðið vann KA 21-27 fyrir norðan og B-liðið vann FH 19-16 á heimavelli um síðustu helgi.

3.4.2012 | Handbolti

Sautján Selfyssingar á ungalandsliđsćfingum HSÍ

HSI_logoSelfoss á 17 leikmenn á unglingalandsliðsæfingum á vegum Handknattleikssambands Íslands nú um páskana, fleiri en nokkurt annað félag. Þeir Ómar Ingi Magnússon, Sævar Ingi Eiðsson, Árni Guðmundsson og Guðjón Ágústsson æfa með U16 ára liðinu. Gísli Þór Axelsson, Jóhann Erlingsson, Sverrir Pálsson, Daníel Arnar Róbertsson og Janus Daði Smárason æfa með U18 ára liðinu sem undirbýr sig fyrir undankeppni Evrópumótsins sem fram fer í Tyrklandi um miðjan apríl.  Janus Daði var einnig valinn í U21 árs landsliðið en hann er aðeins 17 ára gamall, og því þremur árum yngri en flestir leikmenn liðsins. Þær Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Thelma Björk Einarsdóttir, Helga Rún Einarsdóttir, Harpa Brynjarsdóttir, Elena Birgisdóttir, Dagmar Öder Einarsdóttir, Katrín Magnúsdóttir og Þuríður Guðjónsdóttir æfa allar með unglingalandsliðum kvenna.

2.4.2012 | Handbolti

Frábćr leikur hjá 4. fl. B

Strákarnir í B-liði 4. flokks léku gegn Stjörnunni í dag og var leikurinn síðasti deildarleikur þessa keppnistímabils. Það er skemmst frá því að segja að Selfyssingar léku frábærlega í leiknum og unnu að lokum 32-26 sigur.

1.4.2012 | Handbolti

Selfoss komst í umspiliđ!

Selfyssingar lögðu Víkinga á útivelli á föstudaginn síðastliðinn, 25-29, eftir að hafa yfir 9-16 í leikhléi, og tryggðu sér þar með sæti í umspili um laust sæti í N1 deildinni.

30.3.2012 | Handboltaakademía

Titill á Selfoss eftir sigur á Víkingi í úrslitaleik

Handb_kv_utandeild_2012Stelpurnar í meistaraflokki urðu í gærkvöldi meistarar í næst efstu deild kvenna eftir sigur á Víkingi í framlengdum úrslitaleik sem var frábær skemmtun fyrir leikmenn og áhorfendur.

29.3.2012 | Handboltaakademía

Sigur á UMFA og úrslitaleikur í dag

Mfl. kvenna vann UMFA í gær 18-22 í undanúrslitum og eru stelpurnar komnar í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í næst efstu deild íslensks kvennahandbolta. Leikurinn er gegn Víkingi í Víkinni og hefst kl. 19:45. Óskum eftir öllum þeim stuðningi Selfyssinga á leikinn sem hægt er að fá.

28.3.2012 | Handboltaakademía

Sigur gegn Val í lokaleik 3. flokks karla

Strákarnir í 3. flokki settu punktinn yfir i-ið í lokaleik deildarinnar í gær þegar þeir unnu Val 26-30 á útivelli. Staðan í hálfleik var 11-14 fyrir Selfoss.

27.3.2012 | Handboltaakademía

Sigur gegn Fylki 3 í síđasta deildarleiknum

3. flokkur kvenna endaði deildarkeppnina með glæsibrag. Þær unnu KA/Þór á föstudag og í gær lið Fylkis 3. Bæði þessi lið voru í toppbaráttu deildarinnar og því eru þessir sigrar mjög góðir.

26.3.2012 | Handbolti

4. flokkur tapađi gegn Fram

Strákarnir í 4. flokki léku gegn Fram á sunnudag í Safamýri. Heimamenn í Fram voru öflugri framan af og vor 3-4 mörkum yfir lengst af í fyrri hálfleik. Staðan var 15-10 í seinni hálfleik. Selfyssingar minnkuðu muninn aðeins í síðari hálfleik en að lokum unnu Framarar 26-22 sigur.

25.3.2012 | Handbolti

Meistaraflokkur vann Fjölni

Strákarnir í meistaraflokki unnu Fjölni örugglega, 28-16 á föstudaginn. Selfyssingar færðust upp í 4. sætið með sigrinum, en þurfa sigur í lokaumferðinni ætli þeir sér að halda sætinu. Selfyssingar voru mun betri aðilinn gegn Fjölni og leiddu 16-6 í hálfleik. Seinni hálfleikur var jafnari en sigurinn aldrei í hættu.

25.3.2012 | Handboltaakademía

Sigur hjá 3. flokki kvenna á móti KA/Ţór

Stelpurnar í 3. flokki gerðu sér lítið fyrir og unnu annað af tveimur bestu liðum deildarinnar á föstudagskvöldið 28-27 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 14-16 gestunum í vil.

22.3.2012 | Handboltaakademía

Jafntefli viđ Stjörnuna og Deildarbikarinn á loft

3ka_deild2012_025Í gær skildu strákarnir okkar og Stjarnan jöfn 31-31 og í leikslok fór Deildarbikarinn á loft. Strákarnir búnir að vera frábærir í vetur og eiga þennan titil algjörlega skilið.

20.3.2012 | Handbolti

Selfoss lagđi toppliđ ÍR

Selfoss vann um helgina ÍR hér á Selfossi, 31 - 25. Selfoss leiddi allan leikinn og léku afar vel í leiknum. Gaman var að sjá Sigurð Má koma sterkan inn í leik liðsins og þá kom Atli Kristins til baka eftir magurt gengi undanfarið. Vörn og marvarsla voru í góðum málum og áttu ÍR-ingar oft í vandræðum með að finna leið að markinu. Okkar menn leika næst hér á heimavelli gegn Fjölni á föstudaginn 23. mars.

20.3.2012 | Handbolti

Jafntefli hjá 2. flokki

Akureyringar sóttu okkar menn heim um helgina í 2. flokki. Endaði leikurinn 25 - 25 en Selfoss fór illa að ráði sínu undir lok leiks er þeir voru þremur mörkum yfir og stutt eftir.

19.3.2012 | Handboltaakademía

Tap í síđasta deildarleik meistaraflokks kvenna

Stelpurnar í mfl. mættu Haukum í gær á Ásvöllum í leik sem tapaðist 37-29. Staðan í hálfleik var 19-18 fyrir Hauka.

19.3.2012 | Handboltaakademía

Sigur á KA í 3. fl. karla

Strákarnir í 3. flokki A unnu enn einn leikinn í deildinni á sunnudaginn. Að þessu sinni var það lið KA sem þeir unnu 36-30. Staðan í hálfleik var 17-17.

19.3.2012 | Handboltaakademía

3. fl. kvenna vann Fjölni

Á laugardaginn unnu stelpurnar í 3. flokki Fjölni örugglega 17-32 en staðan í hálfleik var 5-15. Góður leikur hjá stelpunum að þessu sinni.

18.3.2012 | Handbolti

Selfoss og Grótta mćttust í 4. flokki

Á laugardag spilaði 4. flokkur á móti Gróttu í íþróttahúsi Sólvallaskóla. Í A-liðum voru Selfyssingar mun öflugri strax frá byrjun og komust t.a.m. í 8-3 eftir 9 mínútna leik. Grótta minnkaði muninn í 11-10 en Selfoss náði svo að skora seinustu tvö mörk hálfleiksins og fara með góða stöðu inn í leikhlé, 13-10.

14.3.2012 | Handbolti

4. flokkur sótti fjögur stig í Kópavoginn

Í 4. flokki karla léku bæði lið gegn HK á útivelli og náðu Selfyssingar sér í tvo sigra í ferðinni.

14.3.2012 | Handbolti

Selfoss 2 tapađi í 3. flokki karla

Selfoss 2 í 3. flokki lék gegn Fram um helgina. Fór svo að Framarar höfðu sigur 25-23 eftir að Selfyssingar höfðu verið öflugri framan af leik. Jafnt var í hálfleik 14-14.

14.3.2012 | Handboltaakademía

Góđur sigur í 4. fl. kvenna

Stelpurnar í A liði 4. flokks tóku á móti Aftureldingu í gær og unnu góðan sigur 23-12 en staðan í hálfleik var 12-8 fyrir Selfoss.

14.3.2012 | Handbolti

Tveir sigrar hjá meistaraflokki karla

Selfoss vann á föstudaginn síðastliðinn Stjörnuna heima 28 - 27 eftir að hafa verið undir 14 - 16 í hálfleik. Í gærkvöld gerðu svo okkar menn góða ferð til Eyja og unnu 21 - 23 eftir að hafa forustu 11 - 14 í leikhléi.

13.3.2012 | Handboltaakademía

Tap fyrir UMFA í meistaraflokki kvenna

Stelpurnar í mfl. töpuðu á laugardaginn fyrir Aftureldingu á útivelli 28-25 en staðan í hálfleik var 12-12. Mikið vantaði í lið Selfoss að þessu sinni og hjálpaði það ekki til.

13.3.2012 | Handboltaakademía

Frábćr sigur á Fram í 3. flokki karla

Strákarnir í 3. flokki gerðu sér lítið fyrir og unnu Íslands- og Bikarmeistara Fram á þeirra heimavelli. Fram sló strákana út í undanúrslitum Bikarkeppninnar í febrúar og því var sigurinn sætur. Lokatölur 23-29 fyrir Selfoss. 

12.3.2012 | Nýjustu fréttir

Hérađsţing HSK var haldiđ í Brautarholti

hsk_2012-27990. héraðsþing Skarphéðins var haldið í Brautarholti á Skeiðum síðastliðinn laugardag. Góð mæting var á þingið sem tókst í alla staði mjög vel. Fjórtán fulltrúar frá Umf. Selfoss mættu á þingið. Fjöldi mála var tekinn fyrir og margar tillögur afgreiddar. Samþykktir þingsins má sjá á heimasíðu HSK.

12.3.2012 | Nýjustu fréttir

Málţing um íţróttadómara

ÍSÍ, KSÍ, HSÍ, KKÍ og BLÍ boða til málþings um íþróttadómara og þeirra mikilvægu störf í tengslum við íþróttirnar. Fulltrúar sérsambandanna munu fjalla um stöðu mála og framtíðarhorfur. Málþingið er öllum opið, endurgjaldslaust á meðan húsrúm leyfir. Allir sem áhuga hafa á þessum málum eru hvattir til að mæta, fræðast um stöðuna og leggja jafnvel orð í belg um málefnið.

8.3.2012 | Handboltaakademía

Góđur sigur hjá 3 fl. kvenna

Í gær unnu stelpurnar lið Gróttu2 á útivelli 22-33 en staðan í hálfleik var 11-14 fyrir Selfoss.

7.3.2012 | Handboltaakademía

Mfl. kv. tapađi fyrir Víkingi í toppslagnum

Í gær mættust tvö efstu lið deildarinnar. Með sigri gátu okkar stelpur ennþá orðið deildarmeistarar en því miður þá náði Víkingur sigri 28-29 eftir að jafnt var í hálfleik 15-15.

6.3.2012 | Handbolti

Selfoss-2 vann líka í 3. flokki

Selfoss 2 í 3. flokki sigraði Gróttu á sunnudaginn líkt og A-liðið gerði. Leikurinn endaði 23-22 en Selfyssingar voru með yfirhöndina allan leikinn.

5.3.2012 | Handboltaakademía

4. fl. kvenna B liđ vann Gróttu

Stelpurnar í B-liðinu í 4. flokki gerðu góða ferð á Seltjarnarnesið í gær og unnu 18-28. Staðan í hálfleik var 9-12 fyrir Selfoss.

5.3.2012 | Handboltaakademía

Tap hjá 4 fl. kvenna A liđi

Á laugardaginn mættu stelpurnar í 4 flokki liði ÍR á útivelli og töpuðu að þessu sinni 21-14 en staðan í hálfleik var 11-8 fyrir heimaliðið.      

5.3.2012 | Handboltaakademía

Sigur hjá 3 fl. karla

Í gær unnu strákarnir Gróttu á heimavelli 31-27 eftir að hafa verið undir í hálfleik 14-16. þeir halda því toppsætinu áfram núna þegar 4 leikir eru eftir.

5.3.2012 | Handboltaakademía

Selfoss bikarmeistari í 2. flokki áriđ 2012

Fyrir stuttu urðu okkar menn í 2. flokki bikarmeistarar er þeir lögðu Valsmenn að velli 32 - 29. Í hálfleik var jafnt 15 - 15.

5.3.2012 | Handboltaakademía

2. flokkur tapađi í sérstökum leik

Strákarnir í 2. flokki töpuðu heima í gær fyrir Gróttu 26 - 31, en okkar menn leiddu í hálfleik 16 - 11.

5.3.2012 | Handbolti

Grátlegt tap gegn Víkingum

Strákarnir í meistaraflokki töpuðu sínum fyrsta leik frá því í nóvember á síðasta ári er Víkingur höfðu sigur. Tapaðist leikurinn með minnsta mun, 22 - 23, eftir að okkar menn leiddu í hálfleik 13 - 12.

3.3.2012 | Handbolti

Öruggur sigur í 4. flokki

Selfyssingar mættu KR í 4. flokki karla í dag. Í Selfoss liðið vantaði tvo sterka pósta, þá Hergeir og Richard, sem voru frá vegna meiðsla en auk þeirra var Guðjón slappur og gat ekki beitt sér af fullu. Þrátt fyrir það vann Selfoss 10 marka sigur, 30-20, og var sigurinn aldrei í hættu. Það er því greinilegt að breiddin í flokknum er mikil.

29.2.2012 | Handboltaakademía

Mfl. kvenna vann aftur

Í gær unnu stelpurnar í meistaraflokki lið HK3 með 5 marka mun. Lokatölur urðu 27-32. Í hálfleik var staðan 11-16 fyrir Selfoss.

27.2.2012 | Handbolti

Gekk ekki hjá 4. flokki

Selfoss náði ekki að tryggja sér bikarmeistaratitil í gær í 4. flokki. Liðið mætti FH-ingum sem voru beittari framan af og komust í 0-4. Kom þá öflugur kafli hjá okkar mönnum sem komust 5-4 yfir. Jafnræði var með liðunum það sem eftir var fyrri hálfleiks.

26.2.2012 | Handbolti

2. flokkur bikarmeistari 2012!

2.fl. bikarmeistarar 2012Selfoss varð nú í kvöld bikarmeistari í 2. flokki í Eimskipsbikarkeppni HSÍ. Strákarnir eru vel að þessum titli komnir og hafa lagt mikið á sig til að landa honum. Flestir leikmanna Selfoss í kvöld voru að leika sinn fyrsta úrslitaleik og stóðust þeir álagið. Í hálfleik stóð 15 - 15, en lokatölur voru 32 - 29. Frekari umfjöllun er væntanlega með fleiri upplýsingum um leikinn sem og tölfræði. Áfram Selfoss!

23.2.2012 | Handbolti

Bikarúrslit yngri flokka – Allir í Höllina!

Eins og fram hefur komið á síðunni hafa tvö lið frá Selfossi tryggt sér sæti í bikarúrslitaleikjum yngri flokka sem fram fara í Laugardalshöll næstkomandi sunnudag. 4. flokkur karla spilar klukkan 12:00 gegn FH og 2. flokkur karla spilar klukkan 19:00 á móti Val.
Viljum við hvetja alla Selfyssinga til að mæta í Höllina og styðja okkar lið áfram í þessum skemmtilegu leikjum.

22.2.2012 | Handbolti

2. flokkur kominn í bikarúrslit!

Okkar menn í 2. flokki unnu FH í undanúrslitum hér á Selfossi í gærkvöld. Lokatölur urðu 25 - 24 eftir að gestirnir úr Hafnarfirði höfðu yfir 11 - 15 í leikhléi. FH-ingar komu betur stemmdir til leiks og voru fremri á öllum sviðum í fyrri hálfleik. Virtist sem spennustig okkar manna væri helst til hátt.

21.2.2012 | Handbolti

Stórleikur á Selfoss í kvöld!

Það verður sannkallaður stórleikur á Selfoss í kvöld er 2.flokkur mætir FH. Hefst leikurinn kl 19.00 í Vallaskóla og hvetur síðuritari sem og heimasíðan alla til að mæta og styðja strákana til sigurs. Leikurinn er liður í bikarkeppni HSÍ og er um að ræða undanúrslit. Liðið sem vinnur í kvöld fer í sjálfan úrslitaleikinn.

Áfram Selfoss!

20.2.2012 | Handboltaakademía

2001 árgangur stráka orđnir Íslandsmeistarar

Strákarnir á yngra ári í 6. flokki drengja hafa nú þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í sínum aldursflokki eftir að hafa unnið þrjú fyrstu mótin í vetur. Keppnisfyrirkomulagið er þannig að úrslit úr þremur mótum af fimm telja til Íslandsmeistaratitils. Þetta er með eindæmum sigursæll flokkur. Þeir hafa aldrei tapað leik á Íslandsmóti, unna alla sína leiki síðustu ár líka. Guðmundur Sigmarsson íþróttakennari hefur verið þjálfari strákanna allt frá byrjun.

20.2.2012 | Handboltaakademía

Öruggur 9 marka sigur á Fjölni

Strákarnir í meistaraflokki unnu á föstudag Fjölni örugglega í Reykjavík, 28-19, eftir að hafa verið yfir 10-7 í leikhléi. Okkar menn voru alltaf með undirtökin í leiknum og létu aldrei af stjórninni. Mestur varð munurinn 11 mörk. Vörn liðsins var afar góð allan leikinn, en sóknarleikurinn fór í gang í síðari hálfleik. Ómar lék afar vel í leiknum og hefur verið að nýtast liðinu vel sóknarlega einnig. Þá léku Árni Felix Gíslason og Ketill Heiðar Hauksson sína fyrstu leiki með meistaraflokki. 

19.2.2012 | Handbolti

4. flokkur tapađi fyrir Haukum

Selfyssingar fóru slæma ferð á Ásvelli í dag í 4. flokki karla. Bæði lið töpuðu eftir slaka byrjun í báðum leikjum.

19.2.2012 | Handbolti

Góđur sigur hjá strákunum í 2. flokki

Strákarnir í 2. flokki gerðu góða ferð í Hafnarfjörð í gær og unnu þar heimamenn í Haukum 29 - 26. Mest náðu okkar menn átta marka forustu og leiddu í hálfleik 13 - 10. Smá klaufaskapur í lok leiks varð til þess að heimamenn náðu að laga stöðuna aðeins.

19.2.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur kvenna tapađi fyrir Val

Stelpurnar í 3. flokki töpuðu í gær fyrir liði Vals 27-33, en staðan í hálfleik var 12-18 fyrir gestina.

19.2.2012 | Handboltaakademía

B-liđ 4. flokks kvenna vann Hauka

Stelpurnar í B-liðinu í 4. flokki unnu góðan sigur í gær á liði Hauka. Lokatölur urðu 22-16 en staðan í hálfleik var 11-8.

19.2.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur karla vann Hauka

Á föstudagskvöldið náðu strákarnir í 3. flokki sigri á útivelli gegn Haukum 21-24. Staðan í hálfleik var 9-10 fyrir Selfoss.

17.2.2012 | Handbolti

4. flokkur karla í bikarúrslit!

Í gær sigraði 4. flokkur karla ÍBV, 27-26, í afar dramatískum leik í undanúrslitum bikarkeppninnar og tryggði sér þannig sæti í úrslitaleiknum sem fram fer í Laugardalshöllinni. Í annað skiptið á þremur dögum voru rúmlega 200 áhorfendur mættir á handboltaleik hjá yngri flokkum á Selfossi og gerðu þeir leikinn eftirminnilegan fyrir leikmenn.

15.2.2012 | Handboltaakademía

3. fl. kvenna úr leik í Bikarnum eftir hetjulega baráttu

Engu munaði að stelpunum í 3. flokki tækist að framkalla annað kraftaverk í Bikarnum þegar þær töpuðu 24-28 fyrir Haukum í undanúrslitum í gær.

14.2.2012 | Handbolti

Önnur bikarvika í Vallaskóla

Í þessari viku fara fram tveir undanúrslitaleikir í bikarkeppni yngri flokka HSÍ. Leikirnir fara fram í íþróttahúsi Vallaskóla á þriðjudag og fimmtudag. Er rík ástæða til þess að hvetja fólk til að mæta á leikina og styðja okkar lið áfram því með sigri tryggja þau sér sæti í úrslitaleikjunum sem fara fram í Laugardalshöllinni. Þriðjudaginn 14. febrúar kl. 21:00 leika Selfoss og Haukar í 3. flokki kvenna og fimmtudaginn 16. febrúar kl. 17:00 leika Selfoss og ÍBV í 4. flokki karla.

14.2.2012 | Handboltaakademía

Selfoss náđi í stig í Breiđholtinu

Selfyssingar sóttu ÍR-inga heim í Austurberg síðastliðinn föstudag og fengu úr þeim þeim leik eitt stig. Um hörkuleik var að ræða sem endaði 28 - 28, en í leikhléi var einnig jafnt, 13 - 13. Leikurinn var jafn og gat allt eins farið þannig að annað hvort liðið hefði heppnina með sér og næði fram sigri. Því má kannski segja að jafntefli hafi verið sanngjörn niðurstaða. Vörn Selfoss var góð í leiknum sem og markvarsla. Matthías átti góðan leik sem og Atli Kristins. Ómar stóð fyrir sínu og Trausti átti flotta innkomu. Þá lék Hörður afar vel í seinni hálfleik og skoraði mikilvæg mörk. Næsti leikur liðsins er svo á föstudaginn næsta úti gegn Fjölni.

12.2.2012 | Handbolti

3. flokkur vann stórsigur í Eyjum

3. flokkur karla fór í gær til Vestmannaeyja og lék við heimamenn. Lið ÍBV hefur verið að bæta sig mikið að undanförnu en í þessum leik mættu þeir öflugum Selfyssingum sem voru greinilega staðráðnir í að koma sér aftur í gang eftir tvö töp að undanförnu. Strákarnir léku á alls oddi unnu 23-45.

12.2.2012 | Handbolti

4. flokkur sigrađi ÍBV tvívegis

Á föstudag léku bæði lið 4. flokks karla gegn ÍBV í íþróttahúsi Vallaskóla. A-liðið reið á vaðið og sigraði 30-27 eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik. B-liðið sigraði 32-24 en þeir voru 15-11 yfir í hálfleik.

10.2.2012 | Handbolti

4. flokkur leikur viđ ÍBV í dag

4. flokkur karla tekur á móti ÍBV í tveimur leikjum í dag. Leikirnir fara fram í Vallaskóla kl. 16:00 og 17:00 og hvetjum við alla til að mæta og fylgjast með strákunum.

9.2.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur karla úr leik í Bikarnum

Strákarnir í 3. flokki töpuðu í gær 24-23 fyrir Fram í undanúrslitum Bikarkeppninnar. Staðan í hálfleik hafði verið 12-7 fyrir heimamenn.

6.2.2012 | Handbolti

Gekk ekki í Kaplakrika

Selfyssingar mættu FH í Kaplakrika í gær í 4. flokki karla. Seinast þegar þessi lið áttust við vann Selfoss í bæði A og B liðum með einu marki. Núna voru FH-ingar sterkari og unnu báða leikina.

5.2.2012 | Handbolti

Strákarnir sigruđu Eyjamenn í hörkuleik

Eftir tæplega tveggja mánaða hlé, vegna Evrópumótsins sem íslenska karlalandsliðið tók þátt í Serbíu, er 1. deildin hafin á ný. Það er greinilegt að lið Selfoss hefur unnið  heimavinnuna sína í hléinu því þeir byrjuðu á því að vinna ÍBV í spennandi leik í Íþróttahúsi Vallaskóla, en leikurinn endaði 21-20.

4.2.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur tapađi fyrir UMFA

Í gærkvöldi tapaði A-lið 3. flokks karla sínum fyrsta leik á þessu tímabili. Gestirnir frá Mosfellsbæ voru betri og áttu sigurinn skilið. Lokatölur 20-24 eftir að gestirnir höfðu leitt í hálfleik 7-11.

2.2.2012 | Handbolti

Útisigur hjá 4. flokki karla

Strákarnir í 4. flokki mættu Aftureldingu í Mosfellsbæ í gær. Selfoss var með yfirhöndina allan leikinn og sigraði að lokum 23-31 eftir að hafa leitt 10-16 í hálfleik.

1.2.2012 | Handbolti

Fjögur liđ frá Selfossi í undanúrslitum bikars

Með sigri 3. flokks kvenna á Fylki í gær urðu stelpurnar fjórða liðið frá Selfossi sem tryggði sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ. Áður hafði 3. flokkur karla sigrað Gróttu 32-20, 4. flokkur karla sigrað KR 25-14 og 2. flokkur karla sigrað Aftureldingu 28-26, en þeir sigrar voru einnig í 8-liða úrslitum.

1.2.2012 | Handboltaakademía

3. fl. kvenna kominn í undanúrslit i Bikarnum

Í gærkvöldi gerðu stelpurnar í 3. flokki sér lítið fyrir og unnu Fylki, eitt af allra bestu liðum landsins, í 8-liða úrslitum Bikarsins á heimavelli 26-24. Staðan í hálfleik var 17-14 fyrir Selfoss. Hins vegar var sigurinn allt of dýru verði keyptur þar sem Þuríður meiddist illa í leiknum og óvíst hvort hún spilar meira í vetur.

1.2.2012 | Handboltaakademía

2. fl. vann í Hafnarfirđi

Strákarnir í 2. flokki unnu á FH á útivelli á mánudaginn var. Eftir að hafa leitt í leikhléi 15 - 12 unnu þeir að lokum 29 - 27 þar sem FH-ingar skoruðu tvö síðustu mörk leiksins. Okkar menn lögðu sig fram og léku sinn besta varnarleik það sem af er tímabils.

30.1.2012 | Handbolti

Frábćr leikur hjá Selfoss 2

Selfoss 2 í 3. flokki mætti A-liði FH í gær í Kaplakrika. Fyrir leikinn voru FH-ingar lang efstir í 2. deildinni og höfðu unnið alla sjö leiki sína með minnst 10 marka mun. Selfyssingar léku frábærlega í leiknum og áttu góða möguleika á að vinna leikinn. FH-ingar kláruðu hins vegar leikinn á seinustu mínútunum og sigruðu 22-20.

30.1.2012 | Handboltaakademía

Sigur og tap í 4. flokki kvenna

Um helgina spiluðu stelpurnar í A- og B-liði 4. flokks við Fylki. Niðurstaðan varð sigur hjá Aliðinu á útivelli 14-20 en tap á heimvelli 13-20 hjá B-liðinu.

30.1.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur karla vann Fjölni

Í gær fóru strákarnir okkar í A-liði 3. flokks í Grafavog og spiluðu við Fjölnismenn. Niðurstaðan 23-31 sigur en staðan í hálfleik var 13-17 fyrir Selfoss.

27.1.2012 | Handboltaakademía

2.flokkur áfram í bikarnum

Lið Selfoss í 2. flokki karla sótti Mosfellinga heim í gærkvöld í 8-liða úrslitum bikarkeppninar. Uppskáru okkar menn sigur 28-26 í hörkuleik eftir að hafa leitt í leikhléi 16-12.

27.1.2012 | Handbolti

4. flokkur karla í undanúrslit

Strákarnir í 4. flokki léku í gær gegn KR-ingum í 8-liða úrslitum bikarkeppni yngri flokka. Selfyssingar unnu þar sannfærandi sigur 25-14 og eru því komnir í undanúrslit bikarsins. Frábær varnarleikur Selfoss í leiknum skóp þennan sigur.

26.1.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur karla áfram í Bikarnum

Í gærkvöldi unnu strákarnir í 3. flokki lið Gróttu 32-20 á heimavelli í Bikarkeppninni. Staðan í hálfleik var 14-7 fyrir Selfoss. Frábær sigur á góðu liði og nú eru strákarnir komnir í undanúrslit keppninnar.

24.1.2012 | Handbolti

Bikarvika í Vallaskóla!

Næstu tvo daga fara fram tveir æsispennandi leikir í 8-liða úrslitum bikarkeppni yngri flokka í handboltanum í Vallaskóla. Ástæða er til að hvetja fólk til að fjölmenna á leikina þar sem okkar lið fengu heimaleik í bikar í þetta skiptið.
Miðvikudagur 25. janúar - 21:00 - Selfoss - Grótta (3. flokkur karla)
Fimmtudagur 26. janúar - 20:00 - Selfoss - KR (4. flokkur karla)

23.1.2012 | Handboltaakademía

4. fl. kvenna vann bćđi í A- og B-liđum

Í gær vann A-liðið 4. flokks kvenna KA/Þór 19-17 og B-liðið strax á eftir lið Gróttu 23-21. Báðir sigrarnir voru mikilvægir fyrir framhaldið á Íslandsmótinu.

23.1.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur karla vann KA fyrir norđan

Á föstudaginn fór 3. flokkur karla norður og náði góðum sigri á KA 26-35 eftir erfiðan fyrri hálfleik sem endaði 16-18. Lagt var af stað kl. 07:00 um morguninn.

23.1.2012 | Handboltaakademía

M.fl. kvenna úr leik í Bikarnum

Síðasta fimmtudagskvöld féllu stelpurnar úr leik í Bikarnum í 8-liða úrslitum fyrir ÍBV. Lokatölur voru 37-20 en hálfleik var staðan 16-8.

23.1.2012 | Handboltaakademía

2.flokkur lék tvo leiki

Okkar menn í 2.flkki léku fyrir stuttu gegn Val og AHF í deildinni.

22.1.2012 | Handbolti

Flottur sigur í 4. flokki

Strákarnir í 4. flokki fóru til Akureyrar á föstudaginn og léku gegn heimamönnum í KA. Ferðin var vel heppnuð og sigraði Selfoss 25-28 eftir að hafa leitt 10-16 í hálfleik. Leikurinn var jákvæður fyrir Selfyssinga sem fara nú að búa sig undir leik í 8-liða úrslitum bikarsins sem fer fram næstkomandi fimmutdag í Vallaskóla.

15.1.2012 | Handboltaakademía

4. fl. kvenna vann FH

Í gær unnu stelpurnar í 4. flokki FH á heimavelli 21-17. FH var þó yfir í hálfleik 9-10. Stelpurnar þurftu að hafa gríðarlega mikið fyrir þessum sigri enda FH liðið gott og náðu þær mjög góðum leik gegn Selfossi að þessu sinni.

15.1.2012 | Handboltaakademía

Tap hjá mfl. kvenna gegn Fylki

Stelpurnar spiluðu gegn Fylki á útivelli á laugardag (í gær) og töpuðu 21-20 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 11-6 fyrir Fylki. Slakur fyrri hálfleikur í sókn varð liðinu að falli að þessu sinni.

14.1.2012 | Handbolti

4. flokkur vann KA

Strákarnir í 4. flokki unnu góðan heimasigur á KA-mönnum í gærkvöldi 38-27. Norðanmenn leiddu framan af leik en um miðjan fyrri hálfleik náðu Selfyssingar tökum á leiknum og stjórnuðu honum alfarið eftir það. Gaman var að sjá að það sem liðið æfði og lagði áherslu á í vikunni skilaði sér svo um munaði í leiknum.

13.1.2012 | Handboltaakademía

19 unglingalandsliđsmenn

Fjölmörg ungmenni frá Selfossi voru í landsliðsverkefnum í lok desember. Öll yngri landslið Íslands voru með æfingabúðir og átti Selfoss samtals 19 þátttakendur í þessum verkefnum. Selfoss var með 15 ára lið stráka og stelpna á Norden-cup milli jóla og nýárs og gátu þeir krakkar því ekki tekið þátt í landsliðæfingum, en Norden-cup er óopinbert Norðurlandamót félagsliða.

13.1.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur karla vann Val

Í gærkvöldi kom 3. flokkur Vals í heimsókn á Selfoss og mætti okkar strákum í toppslag 1. deildar. Leikurinn endaði með 27-23 sigri Selfoss og halda strákarnir því toppsætinu áfram.

12.1.2012 | Handboltaakademía

2. flokkur áfram í bikarnum

Okkar menn í 2. flokki unnu í gær Fram í Safamýri í bikarkeppni HSÍ. Þurfti framlengingu til að ná úrslitum fram en sigurmarkið kom þremur sekúndum fyrir leikslok. Eftir venjulegan leiktíma stóð 30-30 en lokatölur urðu 36-35. Heimamenn höfðu yfir í leikhléi 15-13.

11.1.2012 | Nýjustu fréttir

Vorannarfjarnám ÍSÍ í ţjálfaramenntun

ÍSÍ_merkiVorannarfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 6. febrúar nk. og tekur það átta vikur. Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám eða sem samsvarar öllu 1. stiginu,1a, 1b og 1c. Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.

11.1.2012 | Handbolti

4. flokkur leikur heimaleik á föstudag

4.fl.A 2011-12Næstkomandi föstudag, 13. janúar,  taka strákarnir í A-liði 4. flokks á móti KA mönnum frá Akureyri. Leikurinn fer fram kl. 21:00 í Vallaskóla og verður væntanlega um hörkuleik að ræða. Strákarnir eru staðráðnir í að ná upp góðum leik og skorum við á sem allra flesta að mæta og horfa á liðið spila.

10.1.2012 | Handbolti

Selfoss-strákar 97 unnu brons á Norden Cup

norden-cup-strakar-2011Tvö Selfosslið tóku þátt í Norden Cup sem fór fram í Gautaborg á milli jóla og nýárs. Var þar um að ræða strákalið og stelpulið úr árgangi 1997. Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu bronsverðlaun er þeir sigruðu Bakkelagets Sportsklub með einu marki í leik um þriðja sætið.

9.1.2012 | Handboltaakademía

Tap í hörkuleik hjá 3 fl. kvk.

Á laugardaginn mættu stelpurnar Fram2 í 2. deildinni. Fram hafði betur með sigurmarki á síðustu sekúndum leiksins og vann 27-26. Þetta var fyrsta tap stelpnanna síðan 6. nóvember.

8.1.2012 | Handboltaakademía

Góđur sigur hjá Selfoss 2

Selfoss 2 í 3. flokki karla vann KR-inga í dag 25-22 eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik. Sigurinn er sá þriðji hjá liðinu í fimm leikjum og liðið á góðri stefnu í deildinni.

8.1.2012 | Handbolti

Slćmur dagur hjá 4. flokki

A- og B-liðin í 4. flokki karla mættu toppliðunum í deildunum í gær. Bæði lið þurftu að sætta sig við töp eftir að hafa verið í ágætum möguleika á að ná meiru út úr leikjunum. Of mikið af þýðingarmiklum atriðum klikkuðu í leikjunum til að hægt væri að vinna leiki gegn sterkum liðum.

6.1.2012 | Handboltaakademía

2. flokkur byrjar áriđ vel

Stjörnumenn úr Garðabæ sóttu okkar drengi heim í gærkvöld og fóru tómhentir heim að lokinni heimsókn þeirri. Selfoss hafði yfir 16-15 í hálfleik og hafði að lokum öruggan sigur, 37-28.

5.1.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur kvenna byrjađi áriđ á sigri

Stelpurnar í 3. flokki unnu í gærkvöldi lið Gróttu 2 á heimavelli 30-26 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 16-13 fyrir Selfoss.

2.1.2012 | Handbolti

HSK-mótiđ í handbolta haldiđ í 5. sinn

HSK-mótið í meistaraflokki karla fór fram í íþróttahúsi Vallaskóla fimmtudaginn 29. desember sl. Var þetta fimmta árið í röð sem mótið er haldið eftir að það var endurvakið. Handknattleiksnefnd HSK sá um undirbúning og framkvæmd mótsins, en leikmenn skiptust á að dæma leiki.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.iskfc.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta